Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 Fréttir Stórátak í sölu og markaðssetningu á smyrslinu Penzím hafið í Bandaríkjunum: Milljarðar fyrir ensím, unnið úr þorskslógi DV-MYND GVA Penzím fyrir milljaröa Dr. Jón Bragi Bjarnason setur Penzím á handarbakið, smyrsl sem vonir standa til aö seljist fyrir milljaröa króna á erlendum mörkuðum á næstu árum. Penzím er unniö úr ensímum úr þorskslógi og hefur reynst vel viö ótal kvillum, þ.á m. gigtverkjum, bruna, psoriasis ogýmsum álagsmeiöslum. Gríðarlega öflugt markaðsátak fyrir smyrslið Penzím, sem þróað er hér á landi af dr. Jóni Braga Bjamasyni, er hafið í Bandaríkjunum í samvinnu við þarlent fyrirtæki, Sunlife USA. Verður miklum fjármunum varið til auglýs- inga á þessu smyrsli sem unnið er úr ensímum úr þorskslógi. Heilsíðuaug- lýsingar hafa þegar birst í heims- þekktum tímaritum, eins og Cosmopolitan og Health & Fitness, og á næstunni verður Penzím auglýst í hinu víðlesna tímariti Newsweek. Áætlanir gera ráð fyrir að sala Penz- íms muni nema 250.000 túpum fyrsta árið í þessu markaðsátaki, 500.000 túp- um annað árið og einni milljón túpa þriðja árið. Verðmæti samningsins vestanhafs nemur því nokkrum millj- öröum króna. Við þetta er að bæta að Penzím er komið á markað mun víðar en vestanhafs, t.d. í Frakklandi, eins og DV greindi frá í fyrravor, Pólíandi, Sviss, arabaríkjunum, Iran og Israel, eða ails í 40 löndum. Penzím er húðsmyrsl sem hefur reynst mjög vel gegn ýmsum kviilum og áfóllum sem hrjá fólk, eins og verkj- um í vöðvum, gigtarverkjum, exemi, álagsmeiðslum hvers konar og bruna- sárum. í samtali við DV lagði dr. Jón Bragi áherslu á að hann og samstarfs- fólk hans hjá Ensímtækni væru með báða fætur á jörðinni - færu varlega í að tala um stjarnfræðilegar fjárhæðir í þessu sambandi. En hann neitar því ekki að hér sé á ferðinni afar verðmæt framleiðsla og möguleikamir gríðar- lega miklir. Heilbrigðisvandinn: „Algerlega óviðunandi" Staða heil- brigðiskerfisins er algjörlega óviðunandi að mati Margrétar Frimannsdóttur, frummælanda í utandagskrárum- ræðum um stöðu heilbrigðismála á Alþingi í gær. Hún sagði að fjár- lög ríkisins byggðust ekki á neinni framtíðar- sýn og í raun vantaði 4-5 millj- arða inn í heil- brigðiskerfið til að mæta bráðum vanda. Þá væri grunnþjónustan, heflsugæslu- stöðvakerfið, löngu sprungin í Reykjavík sem annars staðar í landinu. Allir starf- andi heimilislæknar á Suöumesjum hygðust hætta störfum um næstu mánaðmót og sömu sögu væri að segja um heimilislækna í Hafnar- firöi. Fleiri uppsagnir væru í pípun- um vegna óánægju heimilislækna með kjör. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra varð til andsvara og benti á að heilsugæslukerflð íslenska væri með því albesta sem þekktist i heim- inum. Hörð hríð hefði verið gerð að sér um nokkurt skeiö sem heilbrigð- isráðherra en hann teldi rétt að riíja upp ástandið í heilbrigðismálunum þegar framsóknarmenn tóku við ráðuneytinu af krötum. Það hefði verið svo bágborið að endurskipu- leggja hefði þurft allt innra starf heilbrigðiskerfisins, auk þess sem samskipti heilbrigöisráðuneytisins við lækna hefði verið við frostmark. Varðandi uppsagnir heilsugæslu- lækna sagði Jón að ef hann yrði við kröfum þeirra væri hætta á að heilsugæslan brotnaði niður í nú- verandi mynd. -BÞ „Það er eðlilegt að spyrja í þessu sambandi hvort til sé einhver íslensk neytendavara sem á sér alþjóða- skírskotun, vara sem allir vilja kaupa úti í hinum stóra heimi. Ég held að penzím komist næst því. Ef þessi vara selst í 50 þúsund pakkningum hér á landi má hæglega margfalda þá tölu með 1000 þegar horft er til markaða heimsins. Það eru miklir möguleikar í kvöld og annað kvöld verða tónleikar á Dalvík til stuðnings Sigrúnu Maríu Óskarsdóttur og fjölskyldu. Sigrún Maria lenti í al- varlegu bilslysi í sumar en er á batavegi. Að sögn föður hennar, Óskars Þórs Halldórssonar, hefur hún enn aukið styrk i efri hluta líkamans auk þess sem andleg fæmi hennar hefur tekið miklum framforum. Hún er enn í hjólastól en Óskar Þór segist vonast til að tíminn og þjálfunin hjálpi henni að ná styrk. „Þetta er verkefni sem ber að skoða í mánuðum eða jafnvel árum,“ segir Óskar Þór. Sigrún María er í þjálfun á Bjargi þrisvar í viku og einu sinni í viku fer hún í sund í end- urhæfingarlauginni á Kristnesi. Þá er hún alla virka daga vikunn- ar, hluta úr degi, í bekknum sín- sem felast í því að búa tfl hávirðisvör- ur úr sjávarfangi með líftæknilegum aðferðum," sagði Jón Bragi við DV. Stækkun húsnæðis - Eruð þið í stakk búin að anna eft- irspum gangi söluáætlanir eftir? „Við munum gera allt til aö svo megi verða. Við vinnum smyrslið í húsnæði vestur á Granda og nú þeg- Systkinin Sigrún Ósk í faömi systkina sinna, Kjartans Atla og Dagnýjar Þóru á Akureyri. ar er hafin vinna við stækkun þess húsnæðis. Hins vegar mun blöndun og átöppun Penzíms eiga sér staö hjá öðrum fyrirtækjum sem hafa til þess aðstöðu og búnað, eins og bandaríska lyfjafyrirtækinu Line laboratories, sem blandar smyrslið og pakkar fyrir Sunlife USA. Þá sér belgískt fyrirtæki um að blanda og pakka Penzími fyrir Frakklandsmarkað og fleiri markaðs- svæði. Við munum aðeins þróa áburði og hreinsa og selja ensím- lausnina ásamt aðferðinni og leyfinu til að framleiða vörurnar okkar. Þannig fáum við okkar tekjur.“ Jón Bragi bætti við að svo gæti far- ið að hið nýja sameinaða fyrirtæki, Pharmaco og Delta, Pharmanor, vildi blanda Penzím og pakka því. En Jón Bragi og hans fólk láta ekki staðar numið við Penzím fyrir al- mennan markað. Erlendis er unnið að ýmsum klínískum rannsóknum með það fyrir augum að þróa vörur úr þorskensímum fyrir lyflaframleiðslu. Má þar nefna rannsóknir á sólbruna, psoriasis, unglingabólum og legusár- um. Encode, fyrirtæki í eigu íslenskr- ar erfðagreiningar, kemur m.a. þar við sögu. - Þú ætlar þá ekki að kasta hvíta sloppnum ef ævintýrið gengur upp og ríkidæmi blasir við? „Nei, alls ekki. Við höldum okkar striki. Þróunarvinnan heldur áfram af fullum krafti og ég vona að hún geri það einnig annars staðar - í Háskólan- um, í fyrirtækjum og stofhunum." -hlh um í Lundarskóla og eru þessi fé- lagslegu tengsl mjög mikilvæg, að sögn föður hennar. „Baráttan heldur áfram. Maður verður að vona og trúa á hið góða í lífinu," segir Óskar Þór. Tónleikarnir í kvöld fara fram í Dalvíkurkirkju og hefjast klukk- an 20.00 líkt og tónleikarnir ann- að kvöld sem fara fram í Laugar- borg. Fram koma Björg Þórhalls- dóttir sópran, Daníel Þorsteins- son píanóleikari, Helga Bryndís Magnúsdóttir pianóleikari, Kór Akureyrarkirkju, Ólafur Kjartan Sigurðsson baritón, Óskar Pét- ursson tenór, Sigurður Rúnar Jónsson fjöllistamaður og Atli Rúnar Halldórsson sem verður kynnir. Aðgangseyrir er kr. 2000 og rennur ágóði óskiptur í söfn- unarsjóð. -BÞ Stærsta hús landsins ris Nýtt vöruhótel Eimskipafélags íslands er aö taka á sig mynd í Sundahöfn. Oröiö vöruskemma á ekki lengur viö enda hús þetta engin smásmíöi og rúmar fjölda íþróttavalla. Verkinu miöar vel þessa dagana enda veöur afar hagstætt sem auöveldar iönaöarmönnum lífiö. Tónleikar til stuðnings Sigrúnu Maríu: Vonum og trúum - segir faðir hennar Margrét Frimannsdóttir. Jón Krlstjánsson. REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 18.30 18.12 Sólarupprás á morgun 08.02 07.50 Síðdeglsflóó 20.21 12.34 Árdegisflóð á morgun 08.46 00.54 Suðaustan 10-15 og talsverð rigning suðaustan- og austanlands í kvöld og nótt en annars suðaustan 8-10 og rigning öðru hverju. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast í innsveitum norðaustan- lands. Suðaustan 10-15 og talsverð rigning suðaustan- og austanlands. Hiti 6 til 17 stig, hiýjast f innsveitum norðaustanlands. mnmmmm Föstudagur Laugardagur Sunnudagur O O Hiti 7° Hrtí 7" Hrtr 7° til 12" til 12" til 12" Vindur: 8-13 ™/B Vindur; 5-10™/* Vindur 5-10<* «- 4- Suöaustan &-13 m/s. Rigning á Suöaustur- og Austurlandi en annars iítlls háttar rigning meö köfium. Hitl 7 til 12 stig. Austlægar áttir, 5-10 m/s. Rigning austan tll en annars skýjaö meö köflum og úrkomulítiö. Áfram mitt í veöri. Austiægar áttir, 5-10 m/s. Rlgning austan til en annars skýjaö meö köflum og úrkomulítiö. Áfram milt i veöri. ggsgapaii m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinnlngsgola Kaldl Stinnlngskaldl Allhvasst Hvassvlðri Stormur Rok Ofsaveður Fárviöri 5,5-7,9 8,0-10,7 10.8- 13,8 13.9- 17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7 AKUREYRI alskýjaö 13 BERGSSTAÐIR skýjaö 8 B0LUNGARVÍK hálfskýjaö 7 EGILSSTAÐIR skýjaö 10 KEFLAVÍK rigning 7 KIRKJUBÆJARKL. þoka 9 RAUFARHÖFN skúr 8 REYKJAVÍK rigning 8 STÓRHÖFÐI skúr 8 BERGEN léttskýjaö 1 HELSINKI léttskýjaö 0 KAUPMANNAHÖFN skýjað 4 ÓSLÖ skýjaö 3 STOKKHÓLMUR 3 ÞÓRSHÖFN alskýjaö 11 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 1 ALGARVE rigning 17 AMSTERDAM léttskýjaö 5 BARCELONA skúr 17 BERLÍN skýjaö 6 CHICAG0 hálfskýjaö 12 DUBLIN súld 11 HAUFAX heiðskírt 4 HAMBORG skýjaö 9 FRANKFURT léttskýjaö 3 JAN MAYEN alskýjaö 6 LONDON mistur 9 LÚXEMBORG léttskýjaö 3 MALLORCA rigning 19 MONTREAL heiöskírt 6 NARSSARSSUAQ alskýjaö 0 NEW YORK hálfskýjað 13 ORLANDO þokumóöa 23 PARÍS léttskýjaö 6 VÍN skýjaö 3 WASHINGTON alskýjað 8 WINNIPEG heiöskírt 0 r=nffi'Miiijvni;Hii,',ijitMj4ii:i.-if.!jiin»mia

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.