Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Side 15
15
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002
J>V___________________________________________________________________________________________________Menning
Amadeus í öndvegi
Kvikmyndaverðlaun
Norðurlandaráðs
- tvö mögnuö verk meistara Mozarts á Sinfóníutónleikum annað kvöld
Víða um heim er
nú verið að sýna
endurgerð Milos
Formans á kvik-
myndinni Amadeus
frá 1984. Hún er 20
mínútum lengri en
sú gerð sem fór sig-
urför um heiminn á
sínum tíma og hirti
öll verðlaun sem í
boði voru. Það eru
einkum unnendur
tónlistar Mozarts
sem græða á viðbót-
inni því brotin úr
tónverkum lengjast.
gerðinni eitt óhugnanlegt atriði milli Con-
stance Mozart og Antonios Salieris sem al-
veg var klippt út í styttri gerðinni en skýr-
ir hatiu' Constance á öfundarmanni eigin-
mannsins.
Þetta er rifjað upp nú af því að á tónleik-
um Sinfóníuhljómsveitar íslands í Gulu
röðinni annað kvöld og föstudagskvöld kl.
19.30 verða leikin verk Mozarts, fyrst Sin-
fónía nr. 25 i g-moll K 183 og síðan sjálf
Sálumessa K. 626 sem mjög kemur við
sögu í biómyndinni. Við munum öll eftir
F. Murray Abraham ofsækja Mozart í
hlutverki Salieris (sem hann fékk ósk-
arsverðlaun fyrir forðum og Golden Globe
o.m.fl.) og enginn skilur hvers vegna
Murray hefur ekkert fengið að gera í tæp
tuttugu ár.
Hljómsveitarstjóri annað kvöld er Bem-
harður Wilkinson og hefur með sér fríðan
flokk söngvara. Einsöngvarar era Hulda
Björk Garöarsdóttir, Sesselja Kristjáns-
dóttir, Gunnar Guðbjömsson og Tómas
Tómasson og kóramir em Söngsveitin Fil-
harmónía og Selkórinn. Sesselja og Gunn-
Hulda Björk Sesselja
Garðarsdóttir. Kristjánsdóttir.
ar eru vitaskuld í stjörnuhlutverkum i
Rakaranum í Sevilla hjá Islensku óper-
unni um þessar mundir. Þar að auki má
geta þess að Hulda Björk og Sesselja eru
nýkomnar úr frægðarför með Söngsveit-
inni og Selkómum til St. Pétursborgar i
Rússlandi þar sem hápunktur tónleikanna
var einmitt Sálumessa Mozarts - undir
stjórn Bemharðs Wilkinsonar.
Dulúð Sálumessunnar
Sinfónían nr. 25 var samin í október
1773, þegar Mozart var tæpra átján ára en
er þó talin marka ákveðin skil á ferli
hans. Þetta er verk í fjórum þáttum, fyrsta
sinfónia Mozarts í moll og yfirbragðið
mun alvarlegra en í fyrri sinfóníum hans.
Stundum er sagt að í henni megi heyra
forboða stóm systurinnar, sinfóníu nr. 40,
sem sömuleiðis er í g-moll.
Nafnlausi maðurinn sem pantaði Sálu-
messu hjá Mozart sumarið 1791 var raun-
ar alls ekki Salieri, það er bara heilaspuni
Peters Shaffers sem samdi leikritið Ama-
deus sem kvikmyndin er byggð á. Sagan af
Gunnar Tómas Tómasson.
Guðbjörnsson.
Sálumessunni er samt dulúðug og má vel
segja að kvikmyndin nái því vel þótt skipt
sé um nafn á þeim sem pantaði tónverkið.
Sá var greifi nokkur, Walsegg-Stuppach að
nafni. Hann þráði virðingu á tónlistarsvið-
inu en neyddist til að skreyta sig láns-
göðrum vegna hæfileikaskorts. Hann fékk
því ýmis tónskáld til að semja fyrir sig á
laun, en lagði síðan fram verkin og lét
flytja þau í eigin nafni. Sálumessuna átti
að leika til minningar um eiginkonu hans.
Mozart var undir miklu álagi þetta
haust, enda var hann að ljúka við
Töfraflautuna og semja ópemna La clem-
enza di Tito auk smærri verka. Hann
veiktist hastarlega í nóvember, en reyndi
þó að vinna við sálumessuna. Hann lést
frá verkinu hálfkláruðu 5. desember og
fékk ekkja hans nemanda hans, Franz
Xaver Sússmayr, til að ljúka því.
Þetta mikla verk fá tónleikagestir að
heyra annað kvöld og föstudagskvöld í Há-
skólabíói, sömu útgáfu og hátt á annað
þúsund Rússar hrifust af í Sjostakovitsj-
salnum í St. Pétursborg á dögunum.
Bernharður
Wilkinson.
Auk þess er í nýju
Norðurlandaráð hefur bætt einum norrænum list-
verðlaunum við bókmennta- og tónlistarverðlaun sín:
kvikmyndaverðlaunum, og í gær upplýsti Norður-
landaráð hvaða kvikmyndir væru tilnefndar þegar
þau verða veitt i fyrsta sinn á 50 ára afmælishátíð þess
í Óperuhúsinu í Helsinki 29. október. Við sama tæki-
færi verða bókmennta- og tónlistarverðlaunin afhent
og verðlaun ráðsins á sviði umhverfísvemdar. Verður
athöfninni sjónvarpað til allra Norðurlandaþjóða.
Norðurlandaráð hefur enn ekki ákveðið hvort veiting
kvikmyndaverðlaunanna verður árlegur viðburður.
Sem endranær þegar Norðurlandaráð er annars
vegar stöndum við jafnfætis „stóru" þjóðunum, því tíu
bíómyndir eru tilnefndar, frá Danmörku, Finnlandi,
Islandi, Noregi og Svíþjóð, tvær frá hverju landi.
Nokkrar myndanna hafa þegar hlotið verðlaun á al-
þjóðlegum kvikmyndahátíðum, t.d. í Cannes. Mynd-
imar þurftu að uppfylla þau skilyrði að vera í bíó-
myndalengd (72 mín. eða lengri) og hafa verið frum-
sýndar í heimalandinu á tímabilinu 1. sept. 2001 til 30.
sept. 2002. Veitt eru ein verðlaun sem nema 50.000 doll-
umm eða 4,3 milljónum ísl. króna. Skiptast þau jafnt
á milli handritshöfundar, leikstjóra og framleiðanda
verðlaunaverksins.
Af íslands hálfu em tilnefndar myndimar Máva-
hlátur og Hafið. Handritshöfundur og leikstjóri Máva-
hláturs er Ágúst Guðmundsson og framleiðandi Krist-
ín Atladóttir. Leikstjóri og framleiðandi Hafsins er
Baltasar Kormákur og samdi hann handritið ásamt
Ólafi Hauki Símonarsyni. I valnefnd sátu Ólafur H.
Torfason, kvikmyndagagnrýnandi Rásar 2, Sif Gunn-
arsdóttir, kvikmyndagagnrýnandi DV, og Skarphéð-
inn Guðmundsson, blaðamaður Morgunblaðsins.
Frá Danmörku eru tilnefndar Elsker dig for evigt
eftir Susanne Bier og Anders Thomas Jensen og Okay
eftir Jesper W Nielsen og Kim Fupz Aakeson. Frá
Finnlandi Cleaning up eftir Rostislav Sergejevich
Aalto og Mies Vailla Menneisyytta eftir Aki
Kaurismaki. Frá Noregi Alt om min far eftir Even
Benestad og Musikk for bryllup og begravelser eftir
Unni Straume. Og frá Svíþjóð koma Lilja 4-ever eftir
Lukas Moodysson og Leva livet eftir Mikael Háfström
og Hans Gunnarsson.
Við bíðum spennt.
Konungurinn og prinsessan
Viö minnum á Bubba og Heru í Salnum
á fimmtudags-kvöldiö. Þau færa sig
nær og nær höfuöborginni meö hveijum
tónleikum ...
Jón og Hólmfriöur
Nýjasta sýningin T Borgarleikhúsinu er
smellur sem segir sex. "Dýrkendum
raunsæis er örugglega misboöiö en þeir
sem eru til í aö gefa sig fantasíunni á
vald fá konunglega skemmtun."
HF, DV
Grettla á sviö
"Viö köllum þaö sem viö erum aö gera
Grettissögu - sögu Grettis," segja
aöstandendur Hafnarfjaröarleikhússins
Hermóös og Háövarar. Þar veröur á
laugardaginn frumsýnt leikrit eftir Hilmar
Jónsson byggt á einni vinsælustu
íslendingasögunni.
Beyglur með öllu
"Sminkurnar á bak viö (Elma Lísa
Gunnarsdóttir og Arndís Hrönn
Egilsdóttir) fóru alveg inn í leggöng í
sínum samræöum og hálfdrápu
áheyrendur úr hlátri."
SA, DV
Honk
"Bráöskemmtileg
sýning sem höföar
til allra aldurshópa
- textinn fyndinn og
hlaöinn tvíræðni.
Felix Bergsson átti
samúö allra í
salnum í hlutverki
hins hjartahreina
og útskúfaöa
Ljóta."
HF, DV
0
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
TÓNLEIKAR 10. OG 11. OKTÓBER
kl. 19.30 í Háskólabíól
Hljómsveitarstjóri:
Bemharður Wilkimon
Einsöngvarar:
Hulda Bjðrk Garðarsdóttir,
Sesse/ja Kristjámdóttir, Gunnar Guðbjörmson
og Tómas Tómasson
Kórar:
Sðngsveitin Fílharmónta og Selkórinn
Wolfgang Amadeus Mozart:
Sinfóma nr. 25
Woifgang Amadeus Mozart: Rcquiem
Miðasala er opin frá 9-17 virka daga
og til 19.30 á tónleikadegi. S: 34; 2500
BORGARLEIKHUSIÐ
Leíkfélag Reykjavikur
STÓRA SVIÐ
HONKl UÓTI ANDARUNGINN
e. George Sti/es ogAnthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla
fjölskylduna.
Fös. 11. okt., kl. 20 - ath. kvöldsýning
Su. 13. okt. kl. 14
KRYDDLEGIN HJÖRTU
e. Laura Esquivel
Lau 12. okt., kl. 20
Lau. 19. okt. kl. 20
MEÐ VÍFIÐ í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Fim. 24. okL kl. 20 - Næstsíðasta sýning
Fim. 31. okt. kl. 20 - Síðasta sýning
NÝJA SVIÐ
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR
Frekar erótískt leikrit iprem páttum
e. Gabor Rassov
Fi. 10/10 kl. 20
Fö. 11/10 kl. 20
Fö. 18/10 kl. 20
Lau. 19/10 kl. 20
AND BJÖRK, OF COURSE ..
e. Þorva/d Þorsteinsson
Lau. 12. okt. kl. 20
Su. 20. okt. kl. 20, AUKASÝNING
Síðustu sýningar
15.15 TÓNLEIKAR
Ferðalög. Jean Francaix
Lau. 12/10 kl. 15.15
LITLA SVIÐ
GESTURINN
e. Eric-Emmanue/ Schmitt
Fö. 11/10 kl. 20
Lau. 12/10 kl. 20
Su. 13/10 kl. 20 aukasýning
Síðustu sýningar
SALA ÁSKRIFTARKORTA
í FULLUM GANGI
VERTU MEÐ í VETUR
MIÐASALA 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
Midasalan er opin daglega 13-18
og fram að sýningu sýningardaga.
GRETTISSAGA www.hhh.is
Saga Grettis.
Lcikrit hyggt á Grettissögu eftir Hi/marJámson
Lau. 12. okt kl. 20 frumsýning, uppselt,
sun. 13. okt kl. 20,
fös. 18. okt kl. 20,
lau. 19. okt kl. 20,
fös. 25. okt kl. 20,
lau. 26. okt kl. 20.
Sellófon
eftirBjörk Jakohsdöttur
Þri. 15. okt, uppselt,
mið. 16, okt, uppselt,
fim. 17. okt, uppselt,
sun. 20 okt,, uppselt,
þri. 22. okt, uppselt,
mið. 23. okt, uppselt,
sun. 27. okt, uppselt,
þri. 29. okt, örfá sæti,
mið. 30. okt, örfá sæti,
sun. 3. nóv, uppselt,
mið. 6. nóv, laus sæti.
Miðasala í síma 555-2222
SKJALLBANDALAGIÐ KYNNIR
BEYGtyR
ÍIÐNÓ
Fim. 10/10 kl. 21
Fös. 11/10 kl. 21
Fös. 11/10 kl. 23
Lau. 12/10 kl. 21
Lau. 12/10 kl. 23
Lau. 19/10 kl. 21
Lau. 19/10 kl. 23
Sun. 20/10 kl. 21
Mið. 23/10 kl. 21
Fim. 24/10 kl. 21
Sun. 27/10 kl. 21
Fös. 1/11 kl. 21
Fös. 1/11 kl. 23
Lau.2/11 kl. 21
Lau. 2/11 kl. 23
Fös. 8/11 kl. 21
Fös. 8/11 kl. 23
Lau. 9/11 kl. 21
Lau. 9/11 kl. 23
Aukasýning
UppseÍL
Aukasýning
Uppselt.
Aukasýning
Uppseít.
Aukasýning
Uppseít.
Aukasýning
UppselL
UppselL
UppselL
Laus sæti.
Uppselt.
Aukasýning
Uppselt.
Laus sæti.
Örfá sæti.
Aukasýning
■ Örfá sæti.
- UppselL
■ Örfá sæti.
Örfá sæti.
' Uppselt.
Laus sæti.
Laus sæti.
Miðasalan í Iðnó er opin frá 10-16
alla vírka daga, 14-17 um helgar og
frá kl. 19 sýningardaga. Pantanir í
s. 562 9700. Ósóttar pantanir eru
seldar 4 dögum fyrir sýningar.