Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Side 21
21 MIÐVDCUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 !DV Tilvera PJ Harvey 33 ára Breska söngkonan PJ Harvey á afinæli í dag. Hún var skírð Poly Jean og fæddist í Sommerset þar sem hún hóf feril sinn árið 1991. Hún seg- ist hafa fengið gott tón- listaruppeldi frá foreldrum sínum og lærði hún á mörg hljóðfæri, meðal annars gítar, saxófón og fiðlu. Fyrstu plötur hennar, þar sem hún var með hljómsveit sem bar hennar nafii, seld- ust ekkert mjög vel en fengu óskipta athygli gagnrýnenda og hefúr vegur hennar farið vaxandi og er oft nefhd í sömu setningu og Björk þegar talað er um söngkonur sem hafa áhrif. Gildlr fyrir flmmtudaglnn 10. október Vatnsberlnn (20. ian.-18. febr.): I Gættu þess að gleyma engu sem er nauðsyn- legt. Allir virðast óvanalega hjálpsamir og"vingjamlegir í þinn garð. Fiskarnlr (19. febr.-20. mars); Mál, sem þú hefur llengi beðið lausnar á, leysist eins og af sjálfu sér. Þú þarft að sætta þig við eitthvað sem er þér ekki að skapi. Hrúturlnn (21, mars-19. aprih: . Framtiðaráætlanir 'krefjast töluverðrar yf- irvegunnar. Þú ættir ekki að flýta þér um of að taka ákvarðanir. Happatölur þínar eru 4, 26 og 34. Nautlð (20. anril-20. mail: Reyndu að gera vini þinum sem á eitthvað bágt greiða. Hann mun launa þér það margfalt l síöar. Tvíburarnlr (21. mai-21. iúníl: Gamall kunningi skýt- ur upp kollinum síð- „V / degis og þið munið eiga góða stund sam- an. Fjarhagurinn fer batnandi. Krabblnn (22. iúni-22. iúií); Þú ert eitthvað niður- i dreginn en það virðist með öllu ástæðulaust. Reyndu að gera eitt- . þú hefur sérstakan áhuga á. UÓnlð (23. iúlí- 22. áeúst): I Mikil gleði ríkir í ' kringum þig. Einhver hefur náð verulega góðum árangri og ástæða þykir til að gleðjast yfir því á einhvem hátt. Mevlan (23. áeúst-22. sept.): a* Hugsaðu þig vel um -Avft áður en þú tekur ákvörðun í máli sem . r varðar fjölskylduna. Heimilislifið á hug þiim allan um þessar mundir. Vogln (?3. sent.-73. nkt.l: S Hikaðu ekki við að OaíV' grípa tækifæri sem þér V f býðst. Það á eftir að r f hafa jákvæð áhrif á líf þitt til frambúðar. Happatölur em 5, 8 og 22. Sporðdreklnn (24. okt.-2i. nðv.): Reyndu að skilja aðal- atriðin frá aukaatrið- junum og gera áætlanir þínar eftir því. Það er ekki víst að ráð annarra séu betri en þín eigin. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l: .Fjárhagsstaðan batnar rtil muna á næstunni ef þú heldur rétt á spil- unum. Gefðu þér tima til að sinna útivist og heilsurækt. Stelngeltln (22- de?.-i9, ian.); Það er ekki sama hvað þú gerir eða segir í dag. Það er fylgst ná- kvæmlega með öllum þínum gerðum. Happatölur þínar era 7,12 og 16. DVJV1YND ÞOK Sýningarstjórlnn Hér veröa stöndug fyrirtæki sem eru aö gera góöa hluti og þau ætla ekki aö láta jaröa sig lifandi, “ segir Ragnheiöur sem starfar hjð fyrirtækinu RSN og sérhæfir sig í ráöstefnum og sýningum. Dóttir Jude Law gleypti e-töflu Tveggja ára gömul dóttir leikarahjónanna, Jude Law og Sadie Frost, var flutt með hraði á sjúkrahús í fýrradag eftir að hafa gleypt e-töflu. Atburðurinn átti sér stað á klúbbi í London þar sem litla stúlkan, Iris, var gestur í afmælisboði vinar síns. Talið er að hún hafi fúndið töfluna á gólfi klúbbsins en þakka má snarræði móður hennar að ekki fór verr. Sadie tók eftir því að Iris var að japla á einhveiju og við nánari skoðun kom í ljós að það var hvítt duft á tungu stúlkunnar. Iris dvaldi á sjúkrahúsi í sólarhring en er nú á batavegi. Agora, fagsýning þekkingariðnaðarins, opnuð á morgun: Vil gera jafnt við alla - segir Ragnheiður Hauksdóttir sýningarstjóri Agora, fagsýning þekkingariðn- aðarins, verður sett í Laugardals- höll á morgun. Hún er nokkurs konar stefnumót milli fyrirtækja í þessum iðnaði þar sem þau kynna atvinnulifmu sína vöru og á laugar- dag er hún opin öllum þeim sem áhuga hafa, hvar í stétt sem þeir standa. Það var ys og þys í höllinni um miðjan dag í gær - bláklæddir iðn- aðarmenn á þönum og einstaka hvítflibbi með stresstösku - undir- búningur í fullum gangi. Mitt í öllu kraðakinu stendur ung en öflug stúlka, Ragnheiður Hauksdóttir. Hún er sýningarstjóri og hefur í mörg hom að líta og þótt gemsinn hringi og nafn hennar heyrist kall- að úr öllum áttum er hún yfirveguð og eyðir fúslega nokkrum mínútum í viötal. „Hér verða um níutíu fyrir- tæki í fjarskipta- og þekkingariðn- aði með bása,“ segir hún. Hún segir það ívið færri þátttakendur en voru á Agorasýningu fyrir tveimur árum en þessi sé þó jafn umfangsmikil því básamir séu stærri. Ekki viil hún gefa upp hverjar séu markverðustu nýjungamar sem kynntar verða. „Ég vil láta sýnendur sjálfa um að koma þeim á framfæri, enda verð ég að gera jafnt við þá alla,“ segir hún brosandi. Að sjálfsögðu verður nýjasta tækni notuð á Agora til að miöla upplýsingum til sýnenda og þar ber nýtt skráningarkerfi hæst. Ragn- heiður lýsir því: „Það virkar þannig að allir gestir á fagsýningunni fá rafrænt nafnspjald. Ef þeir leyfa geta sýnendur lesið af spjöldunum nöfn þeirra, símanúmer og netfong og í framhaldinu sent þeim efni og upplýsingar." Sérstakt frumkvöðlatorg verður á sýningunni og Samtök iðnaðarins verða með fjölbreytta dagskrá alla dagana. Samhliða sýningunni verð- ur haldin ráðstefna um rafræn við- skipti og fjárfestingar í upplýsinga- tækniiðnaði á Grand-Hóteli með bæði íslenskum og erlendum fyrir- lesurum. Ragnheiður sýningarstjóri segir greinilegt að mikill hugur sé í fyrir- tækjum í þekkingariðnaði á íslandi og telur að neikvæð umræða um stöðu þeirra hafi ef til vill gefið þeim aukinn kraft. „Þetta eru stöndug fyrirtæki sem eru að gera góða hluti og þau ætla ekki að láta jarða sig lifandi." -Gun. Grant og Chan umhverfis jörðina Samkvæmt nýjustu fréttum frá Bretlandi munu þeir Hugh Grant and Jackie Chan leiða saman hesta sína í nýrri end- urgerð myndarinnar Umhverfis jörðina á 80 dögum sem áætlað er að muni kosta „aðeins“ 60 milljónir punda. Grant er ætlað að leika ævin- týramanninn Phileas Fogg en Kung Fu hetjan Chan hinn einstaka einkaþjón Foggs, Passepartout. Frumgerð myndarinnar eftir sögu Jules Vemes var gerð árið 1956 en þá fór David heitinn Niven með hlutverk Foggs en Cantinflas hlutverk þjónsins. Tökur nýju myndarinnar munu byrja í janúar og segist Chan hlakka mikið tU þessa að vinna með Grant sem nú býr sig undir hlutverk bresks forsætisráðherra sem á í ástarsam- bandi viö eina þjónustuna í forsætis- ráðherrasetrinu að Brekkugötu 10 í Lundúnum. Bíógagnryni —————WWMH——HWI—WillWliiiwli ....... . Sam-bíóin/Háskólabíó - Insomnia Svefnlaus í Alaska Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Hver gerði hvað? Al Pacino og Robin Williams í hlutverkum sínum. Hollywood á það tU að fara í evr- ópskar kvikmyndir og endurgera þær, yfirleitt með hörmulegum af- leiðingum og þar hafa norrænar kvikmyndir ekki farið varhluta af. Tvær misheppnaðar kvikmyndir koma upp í hugann, Head above Water, sem var endurgerð norsku myndarinnar Hodet over vannet, og The Nightwatch sem gerð var eftir dönsku myndinni Nattevagten. í end- urgerðunum tókst ekki að ná upp sömu spennu sem einkenndi nor- rænu myndirnar, meðal annars vegna þess að hinn þröngi stakkur sem norrænu myndimar vom settar í var víkkaður út og má segja aö flætt hafi út úr léttvæg amerísk túlkun. Sömu örlög hefðu sjálfsagt beðið endurgerðar norsku kvikmyndarinn- ar Insomnia hefði þrennt ekki komið tU, leUístjórinn Christopher Nolan, leikaranir A1 Pacino og Robin WUli- ams og Alaska. Þessi þrenning gerir það að verkum að Insomnia er mögn- uð upplifún. Nolan kom sér á staU með frumlegustu og bestu leikstjór- um með Memento þar sem honum tókst hiö ómögulega, að gera frábæra kvikmynd þar sem sagan er rakin aftur á bak. Hann sýnir hér að hann þarf ekki á breUum og frumlegheit- um að halda tU aö ná tU áhorfenda. Insomnina er hreint og beint saka- máladrama þar sem öðru hverju er vitnað í fortíðina með snöggum skot- um, sem hafa takmarkaða mynd- ræna frásögn. < i i i; í »-1 í í i < t»11) i i j 11111 rt > i (11 Áhrif frá landslaginu koma strax í upphafsatriðinu þegar tveir lögreglu- menn, WUl Dormer (A1 Pacino) og Hap Eckhart (Martin Donovan), koma fljúgandi tU smáþorps i Alaska þar sem óhugnanlegt morð hefur ver- ið framið. Það er sumar og nóttin er björt. Þetta hefúr ekki góð áhrif á Dormer sem er frægur lögreglu- þjónn. Þorpslöggan EUie Burr (HU- ary Swank) er ekki að leyna hrifn- ingu sinni á honum og nánast lítur á hann sem dýrling. Dormer er þó ekki nema að hluta tU með hugann við morðið. Hann er tU rannsóknar hjá innra eftirliti lögreglunnar fyrir at- vik sem við fáum skýringu á seint í myndinni og hann grunar að Echart sé í samstarfi við þá sem viija hann burtu. Þetta og flókið morðmál gerir það að verkum að Dormer getur ekki sofið og eftir því sem Uður á mynd- ina hefur það meiri og meiri áhrif á gerðir hans. Gefur það grunuðum morðingja, rithöfundinum Walter Finch (Robin WUliams,) færi á að vera kötturinn í leiknum við músina. Það er Ula gert við væntanlega áhorfendur að ljóstra miklu upp um framvindu sakamálsins í myndinni. Sagan er mögnuð, bæði spennandi og dramatísk, auk þess sem hún gefur innsýn í persónur sem eiga við mikU vandamál að stríða. Nolan er hrifin af landslaginu og kemur því að sem sterku umhverfi utan um söguna. Þá er aðeins eftir að minnast á A1 Pacino og Robin WUliams og er óhætt að segja að leikur þeirra sé með ein- dæmum góður. Það má nánast sjá hvað svefnleysið leikur Dormer illa. Andlit hans hverfur frá því að vera andlit hins veraidarvana lögreglu- manns í að vera illa gerð vaxgríma. Þá er einnig magnað hvernig A1 Pacino kemur okkur strax í skilning um að þama sé á ferðinni persóna, sem hefur séö aUt og á engar tilfinn- ingar eftir. Finch í meðförum Robins WUliams er samviskulaus, maður sem hefúr lítið tU brunns að bera en gengst upp í að geta stjórnað. Þessi falska sjálfsímynd er gegnsæ í snjöll- um leik WUliams. Þegar stórleikarar á borð viö A1 Pacino og Robin WUliams fá að njóta sín f vel skrifuðum hlutverkum þá er það leikstjórans að gæta þess að þeir fari ekki yfir strikið og þótt Christopher Nolan hafi aðeins kettlingareynslu á við leikarana tvo þá hefur hann góða stjóm á þeim og myndinni í heUd sem skUur mikið eftir sig. Lelkstjórl: Christopher Nolan. Handrlt: Hilary Seitz, byggt á handriti Nikolaj Frobenius og Érik Skjoldberg. Kvlk- myndataka: Wally Pfister. Tónllst: David Julyan. Aóalleikarar: Al Pacino, Robin Williams, Hilary Swank, Maura Tierney og Martin Donovan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.