Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002
n>v
Fréttir
Ung hjón sem keyptu sitt fyrsta húsnæði standa uppi með milljónakostnað:
Burðarvirki hússins
stórskemmt eftir bruna
- gamlar brunaskemmdir huldar með klæðningu og málningu
Húsnæði sem ung hjón keyptu í
Reykjavik síðastliðið sumar reynd-
ist hafa skemmst af bruna fyrir
tæpum tuttugu árum. í ljós hefur
komið að burðarvirki hússins er
stórskemmt eftir eld. Klastrað hefur
verið upp á það en skemmdirnar
sáust alls ekki, að sögn kaupend-
anna. Nú blasir við að rífa þurfi allt
innan úr íbúð ungu hjónanna nema
útveggina. Miklar viðgerðir þarf
einnig á næstu hæð fyrir ofan og
nemur áætlaður kostnaður milljón-
um króna.
Það var í apríl sl. að þau Ólafur
Haukur Atlason og Jenný Aradóttir
keyptu sína fyrstu íbúð, kjallaraí-
búð í þríbýli í miðborginni. Þau
fluttu inn 1. júlí sl. í lofti íbúðarinn-
ar voru klæddir stokkar, sem virt-
ust vera utan um burðarbita. Ólafur
hugðist fjarlægja stokkana og láta
bitana njóta sín. Þegar hann hóf
verkið blasti við honum ljót sjón.
Innan i stokkunum voru kolbrunnir
burðarbitar. Fagmenn voru kallaðir
á staðinn og sögðu þeir strax að allt
burðarvirki hússins væri illa farið
af bruna en hefði verið klætt með
plötum og málað yfir. Sem dæmi má
nefna að burðarbiti sem lá yfír
stofuloftið í íbúðinni var styrktur
með stokk sem gekk niður í gólfið.
Bitnm sjálfur endaði inni á baði og
var þar festur í gifs, án nokkurrar
undirstöðu. Þar sem kroppað hafði
verið í veggklæðningar kom í ljós
svart og sótugt timbur með klæðn-
ingu og málað yfir.
„Við ræddum við fasteignasöluna
um leið og þetta komst upp,“ sagði
Ólafur við DV. „Við fengum afslátt
af kaupverðinu en hann er bara
smáhluti af þeim kostnaði sem þesi
leyndi galli hefur í för með sér.“
Þegar uppvíst varð um gallann
höfðu hjónin samband við aðra íbúa
í húsinu sem einnig eru nýlega bún-
ir að kaupa íbúðir sinar. Málið er
nú komið í hendur lögfræðings sem
vinnur að því að safna gögnum og
leita réttar íbúanna. Sjálfur sagðist
Ólafur hafa varið ómældum tíma í
að grafast fyrir um sögu hússins,
Taw«rt«r rtwœndir urto á bsUtoo
í bntuuma en nm «ildwapOfa «
«tannu«t. M afig» v»ríMj4r« 4
•UhkvtMMisti I R*ykJ*v& «r Ukkg-
«at «6 (ktortam hafl komfft upp i
•n híatia*, «n J*r *r íMfarbÚWJtfti.
Eöginn v*r i htoltftu «r dáutitm ktxn
K4U tjrir kbtkkta %'fi 4 Unixtov-
vötf b*wt íúAkrfliðÍM í tteykjank
Dularfullur bruni
DV-MYNDIR HARI
Brunafrétt í DV 1983
DV greindi frá því í ágúst 1983 aö eldur heföi komiö upp í umræddu húsi.
Sex dögum síöar kom aftur upp í því eidur, aö sögn blaösins. Töluveröar
skemmdir uröu á húsinu, aö því er blaöiö hefur eftir þáverandi varöstjóra á
Slökkvistööinni í Reykjavík, en taliö var aö eldurinn heföi í bæöi skiptin kom-
iö upp í kjallaraíbúö hússins.
Gólffjalir
Þetta eru nokkrar gólffjaliraf sem
veriö var aö fjariægja úr miöhæö
hússins. Yfir þær höföu veriö lagöar
spónaplötur. Rífa þar gólfiö/loftiö
milli kjallara og miöhæöarinnar alveg
í burtu og búa til nýtt buröarvirki.
Brunnir bitar
Þessi mynd var tekin á miöhæö hússins
og sýnir þaö sem í Ijós kom þegar
klæöning var rifin frá vegg viö dyrnar
Lafir á lyginni
Ólafur Haukur Atlason sýnir Ijósmyndara hvar buröarbitinn í stofuloftinu endar
inni í baöherbergi, festur ígifs, en án undirstööu. „Þaö má segja aö þetta
lafi á lyginni, “ sagöi Ólafur Haukur.
tryggingamál þess og svo framvegis.
Ungu hjónin verða nú að flytja úr
íbúðinni aftur þar sem gera verður
hana algerlega upp að öllu leyti.
Þau sögðust verða að leigja sér hús-
næði meðan viðgerðin stæði yfir.
Kostnaðurinn deilist á allt húsið, en
hann nemur milljónum króna eins
og áður sagði. -JSS
. Maður sem er ákærður fyrir að stinga sambýliskonu djúpu sári á háls:
Eg var að reyna að
ná hnífnum af henni
- segir að sér þyki vænt um konuna en hún hafi ráðist á sig áður með hnífi
................................................................................................................................................................................................................................................................................................................. .................................................................................................................. :
DV-MYND GVA
Ákærði neitaði
Karlmaöur á fimmtugdaldri neitaöi fyrir dómi í gær aö hafa ráðist á fyrrum
sambýliskonu sína og veitt henni djúpt sár á hálsi meö hnífi.
„Ég mótmæli þessu og vill koma
því á framfæri að ég var að reyna
að ná hnífnum af henni. Hún var að
ráðast á mig og ekki í fyrsta skipti
með hníf,“ sagði 47 ára karlmaður
fyrir dómi í gær sem ákærður er
fyrir tilraun til manndráps með því
að hafa stungið fyrrum sambýlis-
konu sína djúpu sári á háls á heim-
ili hennar að Boðagranda í Reykja-
vík. Hann er einnig ákærður fyrir
að hafa í sömu átökum olnbogabrot-
ið konuna og skorið hana á auga-
brún. ,
„Ég heyrði smell þegar ég náði
hnífnum af henni,“ sagði maðurinn
þegar Guðjón Marteinsson héraðs-
dómari spurði hann um olnboga-
brotið. Hann kvaðst ekki átta sig á
því hvemig konan fékk sár eftir
hníf á augabrúnina - sagði konuna
jafnvel hafa veitt sér þá áverka
sjálfa eftir að aöalátökin áttu sér
stað. Sauma þurfti konuna 30-40
spor í höfuð og andlit eftir atburð-
ina í íbúðinni. Hún nefbrotnaði,
tognaði á hálsi og hlaut einnig mar
og sár víða um líkamann.
Onnur árás í maí
Maðurinn er einnig ákærður fyr-
ir að hafa veist með ofbeldi á sömu
konu á sama stað í maí - slegið
hana margsinnis i höfuð og líkama
en einnig að hafa barið höfði henn-
ar utan í vegg auk þess að hafa mis-
þyrmt henni með öðrum hætti.
Um þetta sagði maðurinn að hann
neitaði sök - konan hefði tveimur
vikum áður ráðist á sig með sama
hníf og um var að ræða þegar hún
varð fyrir stungusárunum í júlí.
„Það er sjónvarvottur að því,“
sagði maðurinn. Ákveðið er að
leiða umræddan sjónarvott sem
vitni þegar kemur að sjálfum rétt-
arhöldunum í lok janúar en þing-
festingin fór fram í gær. Maðurinn
hefur setið i gæsluvarðhaldi frá því
aö atburðurinn átti sér stað á Boða-
granda í júlí.
Dómarinn sagði að með hliðsjón
af gildandi lögum og því hvernig
málið er vaxið sé rétt að ákveða að
dómurinn verði fjölskipaður þegar
vitni verða leidd og málflutningur
fer fram. -Ótt
Gagnrýna hækkun
Islands gagnrýnir
f j anir á leikskóla-
/ | laga um næstu ára-
■ mót. Framkvæmda-
■Eí—I Arnbjörnsson, segir
í samtali við mbl.is að rök Reykja-
víkurborgar fyrir 8% hækkun séu
bull. Hann bendir á að tekist hafi að
ná tökum á verðbólgunni og þvi
skjóti hækkanir sem þessar skökku
við.
Dæmdar 16 milljónir
Hæstiréttur felldi í gær úrskurð
þess efnis að ellefu ára stúlku skuli
greiddar rúmar 16 milljónir í bætur.
Stúlkan fæddist mjög skert andlega
en móðir hennar hafði greinst með
meðgöngueitrun í mæðraskoðun.
Karlar oftar yfirmenn
Mun færri konur I læknastétt eru
yfirmenn á Landspítalanum en
starfsbræður þeirra af karlkyni.
Þrátt fyrir það eru konur hlutfalls-
lega stærri hópur lækna sem helgar
sig starfl á spítalanum.
Loftflutningar fyrir Nató
Ríkisstjórn íslands hefur sam-
þykkt að verja allt aö 300 milljónum
króna til loftflutninga fyrir Nató
komi til aðgerða á vegum banda-
lagsins. Gengið hefur verið frá
rammasamningum við Flugleiðir og
Atlanta sem gerir stjórnvöldum
kleift að leigja vélar þeirra með litl-
um fyrirvara.
Sýnir í Tate Modern
Ólafur Elíasson
hefur fengið boð
um að sýna í
túrbínusalnum,
stærsta sal Tate
Modern listasafns-
ins í London. Verk
Ólafs verður hluti
af sýningarröðinni
„Unilever Series“ og er sýningin
fyrirhuguð á næsta ári. mbl.is
greindi frá.
Fjárvana verktakar
Frjálsi íjárfestingarbankinn hf. er
nú stærstur lóðarhafa og ibúðareig-
enda í Reykjavík. Bankinn á 284
íbúðir í Grafarholti. Sjálfstæðis-
menn í borgarstjóm vöktu máls á
þessu á fundi borgarstjórnar í gær.
Þeir kenndu um skipulagsleysi og
sögðu málið einsdæmi í sögu borg-
arinnar. Borgarstjóri vísaði gagn-
rýni minnihlutans á bug og sagði
m.a. engan lóðarhafa orðið gjald-
þrota. -aþ
helgarblað
Björk r einkaeign
í Helgarblaði DV á morgun er ít-
arlegt viðtal við Björk Guðmunds-
dóttur söngkonu
sem nú stendur á
tímamótum á ferli
sínum. Björk talar
um tónlistina,
hungurverkfall
móður sinnar
gegn virkjunum,
samband sitt við
Matthew Bamey
einnig mögnuð
myndasaga sem ljósmyndari DV tók
utan sviðs og innan á boxkeppni í
Laugardalshöll fyrir viku. DV ræðir
við rithöfundana Þórarin Eldjárn og
Steinar Braga og fjallar um feril
Kristins Hallssonar, óperusöngvara
íslands númer eitt. Einnig koma við
sögu Rómeó og Júlía, Ramadan, og
Jóel Pálsson saxófónleikari.
og ísland.
í blaðinu er