Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 Fréttir :ov Dæmdir fyrir rán og innbrot Fjórir piltar á höfuöborgarsvæð- inu, 18 til 21 árs, voru i gær dæmd- ir í fjögurra til níu mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir mismikla aðild að ráni í verslunina Sparkaup í Stigahlíð annars vegar og innbrot á meðferðarheimilið Árvelli á Kjalar- nesi í vetur. Tveir piltanna fóru inn í Sparkaup þegar stúlka var þar ein- sömul við afgreiðslu. Þeir þóttust vera starfsmenn gosdrykkjaverk- smiðju komnir til að fylla á lager verslunarinnar. Piltamir fengu stúlkuna til að koma með sér niður í kjallara. Annar piltanna veittist að stúlkunni niðri og reyndi að setja límband fyrir munn hennar. Ekki tókst það en þá hélt hann fyrir munn hennar uns hún lofaði að öskra ekki. Pilturinn sparkaði þá upp hurð að skrifstofu og leitaði fé- lagi hans þar að peningum á meðan sá fyrmefndi festi stúlkuna með límbandi við stól og setti límband fyrir munn hennar. Viö svo búið fóm piltamir af vettvangi með 73 þúsund krónur, greiðslukortakvitt- anir og viðskiptamannaseðla. Stúlka sem var ákærð fyrir að hafa veitt piltunum upplýsingar um hvar peningamir væru geymdir og hvenær vikunnar mest væri af þeim var sýknuð - þáttur hennar var ekki talinn tengjast brotinu með nægilega áþreifanlegum hætti en henni var kunnugt um hvemig hátt- aði til í versluninni vegna fyrri starfa sinna þar. Tveir piltar eru ákærðir fyrir annað rán í 10-11, ann- ar fyrir að taka starfsmann þar hálstaki aftan frá á meðan hinn tók peninga. Piltamir voru allir dæmdir fyrir að hafa brotist inn á meðferðar- heimilið Árvelli á Kjalarnesi, spenna upp glugga og brjóta hurðir innandyra og stela þaðan tölvum, lyfium og myndbandstökuvél. Þegar Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað að hafa refsingamar skilorðsbundnar tók haim ýmist tillit til þess að tveir piltanna hafa ekki sætt refsingum áður, ungs aldurs og þess að brotin voru greiðlega játuð. -Ótt DV-MYND EINAR ÖLAFSSON Sá guli feitur og fallegur Árni í Odda og Ólafur Friöriksson bregða á leik meö þann gula eftir vel heppnaöan túr Hallvarös frá Horni. Þeir komu meö þriggja tonna afia, sem þeir veiddu undan Munaöarnesi, aö iandi á Drangsnesi í fyrradag. í síöustu viku fengu þeir fallega ýsu og stendur sú hrota enn. Aflabrögö á Drangsnesi hafa veriö sæmileg undanfarin misseri og á staönum er rekin öfiug fisk- vinnsla hjá fyrirtækinu Drangi sem er í eigu heimamanna. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga: Dregið úr framlög- um til tekjuhárra Nefnd sem skipuð var til þess að endurskoða þann hluta laga um tekjustofna sveitarfélaga sem fjallar um Jöfnunarsjóð sveitarfé- laga kemst að þeirri niðurstöðu að ekki sé tímabært að gera rót- tækar breytingar á uppbyggingu og gerð framlaga sjóðsins en nauðsynlegt sé að aðlaga framlög og breyta þeim í samræmi við ný sjónarmið og breyttar forsendur. Nefndin stóð frammi fyrir tveim- ur valkostum sem var annars veg- ar róttæk endurskipulagning á starfsemi sjóðsins og fyrirkomu- lagi jöfnunarkerfísins og hins vegar áðlögun sjóðsins að þeim breytingum sem orðið hafa á um- hverfi hans í þeim tilgangi að ná þeim markmiðum sem nefndin hefur sett sér. Tillögur nefndarinnar fela þó í sér að útreikningur framlaga verður einfaldari; hlutfallslegt vægi almennra framlaga til sveit- arfélaga verður aukið; dregið verður úr skerðingu vegna hag- kvæmni en tillit til tekna aukið, án þess þó að dregið sé úr hvata sveitarfélaga til að styrkja betur tekjustofna sina; breyting á hag- kvæmnilínu dregur úr lækkun út- gjaldajöfnunarframlaga þegar um stærri sameiningar er að ræða. Heimilt verður að aðstoöa sveit- arfélög í kjölfar sameiningar i rík- ari mæli en áður, meðal annars með stofnframlögum vegna end- urskipulagningar skólahalds og með sérstökum rekstrarframlög- um í tiltekinn tíma. Framlög til millistórra sveitar- félaga eða sveitarfélaga með íbúa á bilinu 2000 til 21.000 verða auk- in; dregið verður úr framlögum til mjög tekjuhárra sveitarfélaga og vægi jöfnimar verður aukið. -GG f íTr,; '’w. mamm 7- — ..........

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.