Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 Tilvera X>V Green Dragon ★★★- Flóttamannalíf í lok Víetnam- stríðsins fluttu tugir þúsunda Rjgjfr ^r, H Suður-Vietnama til Bandaríkjanna I jj þar sem þeim var I í fyrstu komið fyr- ir í flóttamanna- /£ '3i búðum. Green Dragon segir eina sögu af mörgum um dvölina þar. Fólkið sem flutt var í búðimar vissi ekkert hvað var fyrir utan þær. Það var einangrað innan girðingar. Eftir því sem tíminn líður verður vonleysið meira, hvað tekur við? I einu slíku vonleysi fer yfirforingi búð- anna með talsmann Víetnamanna út fyrir búðimar. Við fáum ekkert að sjá frá þeirri ferð, heldur aðeins gleðina í augum hans þegar hann kemur til baka. Sú gleði smitar út frá sér. Þaö má segja um Green Dragon að hún sýni okkur á sannfærandi hátt hvernig fólk frá ólíku menningar- svæði reynir að lifa lífi sem það þekk- ir við aðstæður sem það þekkir ekki. Leikstjórinn Timothy Linh Bui og bróðir hans Tony lentu í svona búð- um en muna lítið eftir því. Það er af vörum móður þeirra sem þeir hafa þekkinguna og uppeldi þeirra gerir það að verkum að þeir ná á sannfær- andi hátt að lýsa sögupersónum sín- um. Bandarísku leikararnir Patrick Swayze og Forest Whitaker eru kynnt- ir sem aðalleikarar. Það eru þeir ekki. En þeir sýna góðan leik í hlutverki herforingjans sem stjómar búðunum og kokksins. Aðalpersónurnar eru írændur. Annar er fullorðinn og hinn drengur, sem alltaf er að bíða eftir móður sinni sem aldrei kemur. Þessir tveir eru hjarta myndarinnar og það er í gegnum þá sem fæst raunsæi sem gerir Green Dragon að góðri kvik- mynd. -HK Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Timoty Lin Bui. Bandaríkin, 2001. Lengd: 115 mín. Leikarar: Patrick Swayze, Forest Whitaker, Don Duong og Hiep Thi Le. Bönnuð börnum innan 12 ára. After image i Morðingi laus After Image tek- ur á þema sem frægast hefur orð- ið i kvikmyndun- um um Hannibal Lecter, hvemig raðmorðingi getur laðast að einhverj- um sem vinnur að rannsókn málsins sem tengist honum. Það þarf að vera ansi djúp skoðun í sálarlíf morðingj- ans til að takist aö koma slíku sam- bandi til skila. Ekki er neinu slíku fyrir að fara í After Image, þar sem fjallað er um þrjár manneskjur sem þekktu ekki hver aðra í upphafi en tengjast vegna óupplýstra morðmála. Það vantar ekki að nóg er af hug- myndum í myndinni, en engin þeirra er fullkomnuð þannig að segja má að myndin sé eitt samsafh af lausum end- um. John Mellencamp leikur lögreglu- ljósmyndara sem dag einn fær nóg af starfi sínu og fleygir myndavélinni í sjóinn. Þetta sér raðmorðingi sem haíði drepið þrettán ára stúlku, morð sem gerði þaö að verkum að Ijósmynd- arinn fékk nóg. Morðinginn tekur upp á því að elta ljósmyndarann og mynd- ar tengsl við hann í gegnum heyrnar- lausa stúlku sem er skyggn. Leikstjóri myndarinnar er greini- lega mjög hrifinn af „slow motion“ myndatöku og notar hana í tíma og ótíma. Þetta gerir stundum myndina áferöarfallegri en getur ekki leynt því aö textinn er innantómur og persónur glærar. -HK Útgefandi: Sam myndbönd. Lelkstjórl: Ro- bert Manganelli. Bandaríkin 2000. Lengd: 96 min. Lelkarar: John Mellencamp, Louise Fletcher og Terrylene. Bönnuö innan 16 ára. Opið hús í Kattholti á sunnudag: Vakað yfir vel- ferð dval- f 'l 1 "I 1 H * a ^ * Gunnarsdóttir Sannkallaö ævmtyn DV-MYND: PSJ Ustamaöurlnn og listaverkiö Páll Guömundsson frá Húsafelli viö listaverkiö sem hann er aö gera í Ólafsvík af Ottó Árnasyni. Páll Guðmundsson frá Húsafelli: / § ^ # Þekktur Olsari 1 stein Um þessar mundir er Páll Guð- mundsson, listamaður frá Húsa- felli, að gera minnismerki um kunnan Ólsara, Ottó heitinn Áma- son. Ottó, sem lést árið 1977, var merkismaður og m.a. sá hann um bíósýningar í Ólafsvík um langan tima. Hann var umsjónarmaður gamla félagsheimilisins í Ólafsvík en nú i desember eru 100 ár frá því að það var vígt. Haldið verður upp á þann atburð þann 14. des. nk. Þá stofnaði hann Ungmennafélagið Víking, Taflfélag Ólafsvíkur og fleiri félög. Af þessu tilefni var Páll Guðmundsson, listamaður frá Húsa- felli, fenginn til að gera minnis- varða um Ottó rétt hjá þeim stað er félagsheimilið stóð og er hann á veg- um Framfarafélags Ólafsvíkur. For- maður þess er Ester Gunnarsdóttir. Á þessum minnisvarða er bæði and- litsmynd af Ottó og riddari á skák- borði, sem er tilvalinn til að sýna at- orku Ottós í félagsmálum í Ólafsvík. -PSJ argesta „Við verðum með galopið hús hér á sunnudaginn milli eitt og fimm og vonumst til að fjölskyldur hafi gam- an af að heimsækja okkur og heilsa upp á okkar ferfættu dvalargesti,“ segir Sigríður Heiðberg, húsmóðir í Kattholti. Hún segir þar líka verða opinn basar og ágóði af honum fari óskiptur til kattanna. Aðspurð segir hún hótelið svo tii fullnýtt um þess- ar mundir, enda dvelji þar 50-60 óskilakettir. Þegar spurt er um fjölda starfsfólks upplýsist að þrennt skiptir með sér vöktum því vakað er yfir velferð kattanna alla daga ársins. Kattholt er til húsa í Stangarhyl 2 á Ártúnshöfða og er rekið af Kattavinafélaginu í góðu samstarfi við borgaryfirvöld. Gestir þar njóta heilbrigðisþjónustu Dýra- spítalans í Víðidal. „Það er auðvitað gífurlegur kostnaður sem fellur til við rekstur svona staðar,“ segir Sig- ríður og finnst í hæsta máta ósann- gjamt að kettimir líði fyrir kæru- leysi eigendanna. -Gun. Hvuttadagar í Reiðhöll Gusts um helgina: Hundur er ekki sama og hundur - segir Jón ísleifsson Hvuttadagar heitir hátíð sem hald- in verður í Reiðhöll Gusts i Kópavogi nú um helgina, frá kl. 12-18 bæði á laugardag og sunnudag. Að sögn Jóns ísleifssonar sem stendur að samkomu- haldinu verða þar helstu hundateg- undir landsins kynntar, ásamt vörum og starfsemi tengdum hundum. Meðal annars verða þar dýralæknar og hundasnyrtar. „Hvuttadagar eru fyrir fólk sem á hunda og hefur áhuga á þeim,“ segir Jón og bætir við að þama komi fram að minnsta kosti 30 tegundir sem al- menningur geti skoðað, klappað og Bíógagnrýni Góöur seppi Hundarnir geta veriö mönnum til mikillar hjálpar. Þessi ber innkaupa- poka fyrir eiganda sinn. fengið upplýsingar um. Á sérstöku svæði fái fólk 5-10 mínútur til að sýna sína hunda og lýsa kostum þeirra og sérkennum og kynnt verði þjónusta blindrahunda, leitar- og lögreglu- hunda svo nokkuð sé nefnt. „Hundur er nefnilega ekki sama og hundur. Þeir eru svo ólíkir og hæfileikamir fjölbreytilegir," segir Jón. Hann kveðst vera einn af sjö einstaklingum sem standi að þessari sýningu en bak- hjarlar séu meðal annars Pedigree og B&L. Jón og hans félagar halda lika úti netsíðunni hvuttar.net. -Gun DVMYND ÞÖK í Kattholti „Það er líflegt hjá okkur í Kattholti og ég hef trú á aö krökkum þyki gaman að koma hing- aö, “ segir Sigríöur Heiöberg. ’. ■ Sambíóin/Háskóiabíó - Harry Potter og leyniklefinn ★★★ Harry Potter, Hermione Granger og Ron Weasley Daniel Radcliffe, Rupert Grínt og sérstaktega Emma Watson leika af meira öryggi nú. Það er satt, önnur myndin um galdrastrákinn knáa, Harry Potter er betri en sú fyrsta. Harry Potter og leyniklefinn er dekkri og meira spenn- andi og húmorinn er meira áberandi. Eins og siðast fylgir myndin bókinni allnákvæmlega og sleppir fáu, samt heyrðust mjóróma raddir í hléi sem spurðu sína fullorðinsfylgdarmenn hvers vegna hitt og þetta vantaði, því fyrir eldheita aðdáendur hetjunnar með gleraugun og eldingarörið skiptir hvert smáatriði máli. í fyrri hluta myndarinnar er hæg stigandi en þó krydduð nettum óhugnaði og seinni hlutinn er hraöari og fullur af atriöum sem fá unga jafnt sem eldri áhorfendur til að kippast við í sætinu, enda er leik- stjórn Columbus djarfari í þetta skipt- ið. Harry er kominn aftur í Hogwarth- skólann eftir ömurlegt sumarleyfi hjá andstyggilegum ættingjum sínum sem þykir ámóta vænt um hann og skítinn undir skónum sínum og viðmót þeirra er eftir því. Harry er því feginn að vera aftur innan veggja besta skóla i heimi með bestu vinum sínum, þeim Ron og Hermione. En ekki ætlar veturinn að vera aöeins helgaður lærdómi og leikj- um, hættumar bíða úti um allt - úti í skógi, inni í veggjum og ekki síst í auöri bók. Daniel Radcliffe, Rupert Grint og sérstaklega Emma Watson leika af meira öryggi nú en síðast og Tom Felton er fullur fyrirlitningar og hat- urs sem óvinurinn Draco. Hann er svo skítlegur strákur aö ég er viss um að Rowling hafði eitthvert sérstakt hrekkjusvín í huga þegar hún bjó hann til. En þrátt fyrir vaxandi leikhæfi- leika krakkanna stela hinir fullorðnu stórleikarar senum af algjöru sam- viskuleysi. Eins og síðast er Richard Harris konunglegur Dumbledore og það er erfitt að ímynda sér nokkum koma í hans stað í næstu myndum. Robbie Coltrane er ennþá ástúðlegi ris- inn Hagrid, Maggie Smith áhyggjufull en ákveðin sem McGonagall prófessor og Alan Rickman dásamlega lævís og hættulegur sem prófessor Snape. Af nýjum andlitum er Kenneth Branagh bestur í hlutverki hins sjálfumglaða Gilderoy Lockhart. Brannagh er frá- bær gamanleikari og hefur greinilega gaman af að leika hér uppblásinn montrass. Jason Isacs er lika glæsileg viðbót við þetta úrvalslið leikara í hlutverki hins andstyggilega og svikula Lucius Malfoy, pabba Draco. Þar að auki er tölvugerði húsálfurinn Dobby skemmtileg aukapersóna. Fleiri tækniundur gleðja augað, til dæmis risavaxnar, reiðar kóngulær og stóóóór slanga sem var aðalástæðan fyrir ekkasogum yngstu áhorfendanna - enda er H.P. og leyniklefinn ekki fyr- ir áhorfendur undir sex ára aldri. Stu- art Craig hannar hina stórglæsilegu sviðsmynd eins og síðast og það er eins og skólinn hafi stækkað, ranghölum fjölgað og hættumar aukist. Þannig að aðdáendur Harry Potter fara heim með sæluhroll um allan kroppinn og biða spenntir eftir næstu mynd. S'rf Gunnarsdóttir. Leikstjóri: Chris Columbus. Framleiðandi: David Heyman. Handrit: Steve Kloves, byggt á bók J.K. Rowling. Kvikmyndataka: Roger Pratt. Tónlist: John Williams. Aðalleikarar: Daniel Radcliffe, Emma Watson, Rupert

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.