Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2002, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2002, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 Útlönd i>v Róttæk stjórnarskipti í Kína: Markaðstengt flokksræði og einkavædd spilling Nýútnefndur formaður stjómmála- nefndar Kommúnistaflokks Kína, Hu Jintao, á tröllaukin verkefni fyrir höndum, því samkvæmt hefðinni mun hann taka við öðrum valdamiklum embættum, svo sem forsetaembættinu, en því fylgir æðsta stjóm hersins og ut- anríkisstefnunnar. En með mark- aðsvæðingu og innstreymi erlends fjár- magns og ítaka erlendra stórfyrirtækja í landinu er dregið verulega úr alræði Flokksins, þótt enn eigi að heita að hann stjómi öllu stóm sem smáu í rík- inu. Gamli flokksformaöurinn hefur enn ekki sleppt öllum áhrifum á stjóm mála og gömlu valdaklíkumar em var- ar um sig og fylgjast vel með hvemig allir nýgræðingamir í stjómmála- nefndinni, sem nú er skipuð níu mönn- um i stað sjö áður, standa sig. Skemmst er að minnast að útnefning Hu Jintao á nýafstöðnu flokksþingi kom engum á óvart. Þótt hann hafi ekki verið áberandi i stjómmálum var öllum sem fylgjast með málum ljóst að hann var í miklu uppáhaldi hjá Jiang Zemin forseta, sem var á ferð á íslandi sl. sumar og var sýnd meiri áreitni en einvaldur fjölmennasta ríki heims á að venjast. En lengstum þóttu íslendingar höfðingdjarfari en góðu hófi gegndi meðal einvalda nágrannaríkjanna og búa enn að þeirri framhleypni. Fast- lega má búast við að nýi flokksleiðtog- inn verði einnig kjörinn forseti og hljóti þar með sömu völd og forveri hans í flokknum. Hér eftir verður Kommún- istaflokkurinn ekki einráð- ur í Kína. Markaðskerfið, með tilheyrandi einka- rekstri og aðstreymi er- lends fjármagns og erlendu eignarhaldi á fyrirtækjum tekur við af flokkssam- þykktum og einstrengings- legu flokksræði. En í end- umýjaðri stjórnmálanefnd munu ungu mennimir bera fremur lítið skyn- bragð á efnahagsmál sem stjómast af alþjóðlegu markaðskerfi. Hvemig þeim famast í breyttum heimi fer kannski eftir því hve fljótir þeir verða að átta sig á því að mark- aðslögmálin og harðsnúið flokksrœði fara illa saman. Eftir að efhahagsumbætumar hófust 1978 undir leiðsögn Kommúnistaflokks- ins hafa orðið gífúrlegar breytingar á öllu fjármálalífinu. Landbúnaðar- kommúnumar, sem Mao formaður var frumkvöðull að, em horfhar og tugir þúsunda ríkisfyrirtækja heyra sögunni til. Eina verðlagseftirlitið sem enn er við lýði varðar nauðsynlegustu mat- vælategundir og verð á gasi og raf- magni er ákveðið af þvi opinbera. Á milli 30 og 60% af umfangi efnahagslífs- ins heyrir til einkarekstri, eftir þvi út frá hvaða forsendum er reiknaö, og verslunin er tiltölúlega frjáls. Að öllum líkindum munu erlendar fjárfestingar í Kína verða meiri í ár en í nokkm riki öðm og nema um 55 milljöröum doll- ara. Efnahagurinn bágstaddur Meginverkefni Hu Jintao og ungu mannanna í stjómmálanefhdinni verð- ur að stýra umbótaþróuninni áfram án þess að ofbjóða kerfinu og steypa Kína ir bera fremur lítið skynbragð á efna- hagsmál sem stjómast af alþjóðlegu markaðskerfi. Hvemig þeim famast í breyttum heimi fer kannski eftir því hve fljótir þeir verða að átta sig á því að markaðslögmálin og harðsnúið flokksræði fara illa saman. Spillingin til trafala Efnahagsumbætumar í Kína eiga sér dökkar hliðar. í skjóli þeirra við- gengst spilling sem barist er gegn í orði kveðnu en er svo víðtæk meðal flokks- manna sem flestu eöa öllu ráða að ill- mögulegt er að fást við hana án þess að skaöa flokkinn og hinar ráðandi stéttir. Síðan markaðskerfið fór að virka að einhverju leyti upp úr 1990 og einka- | rekstur að taka við opinberam fyrir- tækum og stofnunum notfæröu þeir sem völdin höfðu sér ástandið og kræktu sér í bita af stóra kökunum fyr- ir lítið. Vinir og ættingjar nutu góðs af og vel launaðar stöður og eignarhald á fyrirtækjum færöist frá ríki og héröð- um til fjölskyldna flokksgæðinganna. Kínverskir hagfræðingar telja að frá 1990 hafi sem svarar 14% af landsfram- leiðslu horfið árlega til hinna verðugu án þess að fullnægandi greiðslur kæmu fýrir. Að þessu leyti er þróunin í Kfna áþekk því sem gerðist þegar Sovétríkin gufuðu upp og markaðskerfið tók við af pólitíkinni. Svona þróun á raunar við um mörg eöiahagslega illa þróuð lönd sem taka upp á að einkavæða ríkisfyr- irtæki. I Kína er talið að umbreytingin frá ríkisrekstri í einkarekstur hafi j kostað um 25 milljónir manna atvinn- una. En farið er með þetta eins og víö- tæka „rauðflibbaglæpi" sem ríkis- leyndarmál. í ræðu sinni á flokksþinginu sagði Jiang Zemin að ef ekki tækist að stemma stigu við opinberri spillingu mundu blóðböndin milli flokksins og þjóðarinnar slitna og flokkurinn vesl- ast upp af sjálfseyðingarhvöt. Þessum ummælum var fagnað ákaflega af þing- fulltrúum. Spillingin er af mörgum talin mesta ógnin við alþýðulýðveldið sem nú steðj- ar að og verði ekki komið í veg fyrir að hún nái enn að magnast mun illa fam- ast. Einn af sérfræðingum um málefiii ; Kína orðar það svo að spillingin sé það eldsneyti sem magnar upp önnur vandamál. Ört vaxandi atvinnuleysi, auknar kröfur um velferð og öryggi og ömurlega illa statt bankakerfi eru ; brýnustu vandamálin sem ný og fersk stjóm i Kína þarf að kljást við. Mun nú reyna á hvort ungu menn- imir í stjómmálanefhdinni era aldir upp sem eintrjáningar flokksræðis sem grundvallað er á ófijóum hugsunum Maós eða hvort þeir era menn nýs tíma þar sem markaðshyggjan er tekin við stjómartaumum og lætur tilskipanir og flokkssamþykktir lönd og leið. (Heimildir m.a. Guardian og Newsweek.) Fjölgað var í hinni allsráðandi stjórnmálanefnd á flokksþingi Kommúnistaflokks Kína og mikii endurnýjun átti sér stað. Þessir menn eiga nú að leiða fjölmennasta ríki heims frá flokksræði til markaðshyggju. Hu Jintao, nýskipaður æðsti maður stjórnmálanefndarinnar og valdamesti maður í Kína. Hans bíða tröllaukin verkefnl að fást við. í efnahagskreppu. Og það er hægara sagt en gert. Ríkisbankamir fjórir era reknir með halla, fyrirtækjum gengur illa að gera sig gildandi á alþjóðamark- aði og gífurlegar flárhæðir streyma ár- lega eftir ólöglegum leiðum úr landi. Það er jafiivel álitið að meira íjármagn streymi úr landinu en sem nemur er- lendum fjárfestingum innan Kína. Það ber efnahagsástandinu lélegt vitni. Hvort Hu Jintao og félögum hans átta í stjómmálanefhdinni tekst að ráða bót á ástandinu leiðir tíminn einn í ljós. En vandamálin era ekki búin til af ungu mönnunum sem nú gegna for- ystuhlutverkum í nýju og breyttu Kína. Eitthvað ætti það að létta róðurinn að Kína er orðið meðlimur Heimsvið- skiptastofhunarinnar en höfuðverkur- inn er ekki síst vaxandi skuldasöfnun ríkisins. Þátttakan í heimsviðskiptastofnun- inni krefst þess að létt verði á við- skiptahöftum og eftirliti á starfsemi er- lendra fyrirtækja og fjárfestinga þeirra í kínverskum atvinnuvegum. Það leið- ir af sér aukið fjármagn og fleiri störf en atvinnuleysi er yfirþyrmandi í mörgum héröðum eða fýlkjum lands- ins. Fjármagnsskorturinn er óleyst vandamál. Endurfjármögnun bank- anna og stórskuldugir eftirlaunasjóðir era verkefiii sem ekki verða hrist fram Hér eftir verður Kommúnistaflokk- urinn ekki einráður í Kína. Markaðs- kerfið, með tilheyrandi einkarekstri og aðstreymi erlends fjámagns og erlendu eignarhaldi á fýrirtækjum, tekur við af flokkssamþykktum og einstrengings- legu flokksræði. En í endumýjaðri stjómmálanefnd munu ungu mennfrn- úr erminni eða leyst með tilskipunum og flokkssamþykktum. Allir ungu mennimir í stjómmála- nefridinni era þar fýrir tilstyrk þeirra sem hurfu af vettvangi á flokksþinginu en halda samt fast við völd og áhrif. Flestir vora og era inn undir hjá Jiang Zemin, fráfarandi flokksformanni, sem enn er forseti og æðsti maður hers og utanríkisstefriu. Það verður ekki auð- velt fýrir þá sem era að taka við völd- um að mynda sjálfstæða stefiiu. Einnig ber að hafa í huga að í flokksræði fer ávallt fram harövitug valdabarátta og passa þeir í stjómmálanefhdinni vel hver upp á annan. Oddur Ólafsson blaöamaöur Lausnargjald fyrir köttinn Cristina Gonza- lez í Cosquin í Argentínu þurfti að reiða fram sem svarar hálfu fjórða þúsundi islenskra króna til að fá síamsköttinn sinn aftur úr klóm kattaræningja. Svo fékk ræninginn nýja kafftvél í kaupbæti. Að sögn fréttastofunnar Telam var kettinum rænt úr garðinum heima hjá Cristinu Gonzalez og skömmu síö- ar var hringt í hana og lausnargjalds krafist. Ræninginn fór í fyrstu fram á sem svarar sautján þúsund krónum fyrir kisu. Cristina var hins vegar ekki á því að greiða svo mikið fyrir dýrið og tókst að fá þjóflnn til að lækka sig, gegn því að kaffivélin fylgdi með. Rúmlega þrjátíu lögregluþjónar tóku þátt i rannsókn málsins og kött- urinn komst heilu og höldnu aftur til síns heima, eigandanum til óbland- innar ánægju. Veit ekki barna sinna tal Indverski ættbálkahöfðinginn Mudda Moopan telur engum vafa und- irorpið að langlífi sitt eigi hann að þakka leynilegri lyíjagrasablöndu sem hann tekur þrisvar á dag. Karlinn er sagður vera 120 ára og þvertekur fyr- ir að kjafta frá því hvaða grös eru í blöndunni. Mudda á 23 eiginkonur en hann man ekki nöfnin nema á sextán þeirra. Hann hefur hins vegar ekki hugmynd um hve mörg böm hann á. Vitað er að nýjasta eiginkonan er á fertugsaldri og yngsta barnið er ellefu ára. Mudda þykir vita lengra nefi sínu þegar lækningajurtir eru annars veg- ar og sækja vísindamenn mikið til hans eftir upplýsingum. Hermt er að eitt sinn hafi karli tekist að róa kol- brjálaðan fíl með einhverju lyfjagras- inu. Handjárnaöi rolluna Nýsjálensk- ur lögreglu- þjónn, Stuff að nafni, greip nýlega til þess ráðs að hand- jáma, eða rétt- ara sagt fót- jáma rollu eft- ir að hún hafði ráðist á félaga hans. Að hans sögn var ekki hlaupið að því að koma jámunum á hana og tókst það ekki fyrr en Stuff hafði glímt við hana um stund og náð að fella hana. Ástæðan fyrir rolluslagnum var sú að þeir félagar höfðu verið kallaöir til þegar fjárbóndi nokkur hringdi til lög- reglunnar og bað um hjálp vegna kol- vitlausrar rollu sem hann réð ekkert við. Þegar þeir mættu á staðinn færð- ist rollan öll í aukana og réðst um- svifalaust að félaga Stuffs sem hljóp með hana á hælunum inn í næsta úti- hús. Þar náði rollan honum og hafði hann undir með þeim afleiðingum aö buxurnar rifhuðu áður en Stuff kom félaga sínum til hjálpar eins og áður hefur verið lýst. Sjúkleg ást á prestinum Dómari í Belgíu hefur bannað hinni 47 ára gömlu Nadiu De Boeck frá bænum Opwijk, að sækja messur í kaþólskri kirkju þar sem hún sé haldin sjúklegri ást á prestinum sem heitir Philippe Merten. Presturinn sagði að í fýrstu heföi hann veitt henni alla þá þjónustu sem ætlast sé til að prestar veiti sóknar- börnum sínum en síðan hafi farið að bera á þessari sjúklegu ástleitni henn- ar. „Hún lét ekki þar við sitja heldur fór hún að senda prestinum tölvupóst og hringja í hann á öllum tímum sól- arhringsins, jafnt á nóttu sem degi,“ sagði lögfræðingur prestsins. Þegar konan var kölluð fyrir dómara sagðist hún vera að hefna sín á prestinum af því hann hefði verið í ástarsambandi við frænku hennar en hefði ekki viljað líta við sér. Dómsorðið var að hún mætti aldrei koma nálægt prestinum eða hafa samband við hann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.