Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2002, Síða 21
21
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002
DV Tilvera
I
Tina Turner 63 ára
Hin slunga söngkon-
an og rokkamma, Tina
Turner, er afmælisbam
dagsins. Tina Turner
var skírð Anna Mae
Bullock og fæddist í
Tennessee og þar bjó
hún þegar hún kynntist rokkaranum
Ike Turner sem ekki aðeins giftist
henni heldur gerði hana fræga, þoldi
svo ekki að hún varð frægari en hann.
Tina hefur yfirleitt sagt eftir langar
tónleikarispur að nú væri hún hætt
en alltaf birtist hún aftur og virðist
tuttugu árum yngri en hún er. Ef ein-
hver á skilið titilinn drottning rokks-
ins þá er það Tina Tumer.
«mmnum
-fr!
Gildir fyrir miðvikudaginn 27. nóvember
Vatnsberlnn (20. ian.-18. febr.):
. Þú verður líklega
‘ heppinn í fjármálum
næstu daga. Þú ert
mun bjartsýnni en
þú hefúr verið undanfarið og
finnst gaman að vera til.
Flskamlr (19. febr.-20. marsl:
Það er hætt við því að
Iþú vanmetir andstæð-
ing þinn eða keppi-
naut. Þú þarft
i töluvert fyrir þvi að kom-
ast þangað sem þú ætlar þér.
Hrúturlnn (21. mars-19. apríll:
. Þín bíður skemmtileg-
'ur dagur og viðburða-
rikt kvöld. Lifið brosir
_ við þér
þessa dagana og þú skalt njóta
þess til hins ýtrasta.
Nautld (20. april-20. maíl:
Ekki leggja árar í bát
þó að á móti blási.
Leitaðu heldur eftir
aðstoð ef
þér-reynast aðstæður erfiðar.
Kvöldið verður mjög skemmtilegt.
Tvíburarnir (21. maí-21, iúní):
Þó að þér finnist líflð
' erfltt um þessar mimd-
ir skaltu muna að tím-
inn læknar öll sár og
hver veit nema hamingjan bíða
handan götunnar?
Krabbinn (22. iúní-22. iúli):
« Þú hefúr mikið að
gera í dag og þarft að
halda virkilega vel á
spöðunum til að kom-
það sem þú ætlar þér.
Happatölur þinar eru 1,14 og 21.
LÍÓnlð (23. iúlT- 22. áeúst):
, Það hentar þér betur
að vinna einn í dag. Þú
þreytist við að hafa of
mikið af fólki í kring-
um þig og ættir að eyða tíma með
sjálfum þér.
Mevian (23. áeúst-22. sept.l;
Veikindi eða slappleiki
gætu sett strik í reikn-
'itinginn hjá þér og tafið
^ f fyrir. Greiðsemi fellur
í góðan jarðveg hjá vinnufélögum
þinum.
Vogin (23. sept-23. okt.l:
Ástarmálin taka mikið
af tíma þínum. Það lít-
ur út fyrir að eitthvert
ósætti komi upp en
þáð jafnar sig sennilega fljótt.
Happatölur þínar eru 3,17 og 28.
Sporðdreklnn (24. okt.-2l. nóv.l:
Þú ferð í óvænt feröalag
á næstunni sem víkkar
jsjóndeildarhring þinn og
þér finnst þú loks nær
því að vita hvað þú vilt í lífinu. Þér
leitist létt að fá aöra á þitt band.
Boemaðurlnn (22. nóv.-21. des.):
iLeitaö verður til þin
'um leiðbeiningar eða
| ráðgjöf í máli sem þér
er ekkert gefið um að
láta í ljós álit þitt á. Happatölur
þínar eru 8,12 og 23.
Stelngettln (22. des.-19. ian.l:
Þú kynnist nýju og
áhugaverðu fólki á
næstunni. Það skiptir
w miklu máli að
þú komir vel fyrir. Þú átt framtíð-
ina fyrir þér.
DV-MVNDIR SIGURDUR K. HJÁLMARSSON
Brosandi börn
Þaö er sama hvar sungiö er á land-
inu, grunnskólabörnin kunna hvar-
vetna vel aö meta heimsóknir Listar
fyrir alla. Hér má sjá bros á hverju
andliti skótakrakka í Vík.
viljum líka halda áfram að syngja
og spila.“
Ólafur Kjartan og Tómas Guðni
voru á leiðinni til annarra skóla á
Suðurlandi og síðan liggur leið til
Vestmannaeyja á þriöjudag og
miðvikudag.
-JBP/SKH
Mozart, Bach og
Britney heilla
Á sumum heimilum er talað um
„óperugarg" og bömin hafa þá
hugmynd um óperasöngvara að
þeir séu feitir, gamlir kallar. En
reynslan af List fyrir alla, sem er
átak til að kenna ungum grunn-
skólanemum að meta tónlistina,
segir allt aðra sögu. Þegar þeir
Ólafur Kjartan Sigurðarson
barítón og Tómas Guðni Eggerts-
son, undirleikari hans, mættu til
Víkur í Mýrdal fyrir stuttu til að
skemmta krökkunum mátti sjá
bros á hverju andliti meðan
konsertinn var. Það var sama
hvort það var Bach eða Birtney
Spears eða blues-tónlist, tónlist
djasspíanistans Oscars Petersons -
eða óperutónlist sjálfs meistara
Mozarts, allt mæltist þetta vel fyr-
ir.
„Þetta er í einu orði sagt stór-
kostlegt, bæði skemmtilegt og lær-
dómsríkt," sagði Ólafur Kjartan í
samtali við DV. „Krakkamir kann-
ast við þessa tónlist, hvort sem
þeir eru sex ára eða sextán, og þeir
vilja heyra meira og meira, og við
Papageno
Hinn káti Papageno úr Töfraflautu Mozarts heillaöi krakkana í Mýrdal. Hér er
Tómas Guöni viö píanóiö, Ólafur Kjartan meö rauöa hanakambinn og bros-
andi andlit í salnum.
íslensk jólatré og jólagreinar
í kvöld halda skógræktarfélögin
opið hús í Mörkinni 6 (húsi Ferðafé-
lags íslands). Umijöllunarefni
kvöldsins eru jólatré og skreytinga-
efni úr íslenskum skógum, sem
skógræktarfélögin vilja vekja sér-
staka athygli á. Fjölbreytt dagskrá
verður í boði. Steinar Björgvinsson
garðyrkjumaður fjallar um ýmiss
konar efni til jólaskreytinga úr is-
lensku skógunum og gefur hug-
myndir um hvemig vinna má úr
því. Skógfræðingar Skógræktarfé-
lags íslands verða með myndasýn-
ingu um íslensku jólatrén. Fjalla
þeir um hvar þau em ræktuö í land-
inu, hvernig þaö er gert, hvaða trjá-
tegundir eru notaðar og hvernig á
að meðhöndla þau til þess að þau
standi fersk og ilmandi yfir jólin.
Einnig verður Jón Ólafsson, skreyt-
ingameistari frá versluninni Garð-
heimum, með kynningu. Sýnir
hann nokkrar mismunandi aðferðir
til þess aö skreyta jólatré. Dagskrá-
in hefst kl. 20 og er öllum opin.
Jólasveinar og íslensk jólatré
Jólasveinarnir sýna áhugasömum
áhorfendum afrakstur skógræktar-
mnar.
Bíógagnrýni
Í..O'
Regnboginn - The Important of Being Ernest irici-.
Nafn sem skiptir máli
Hiimar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Algy og Ceclly uppgötva hvort annað
Rupert Everett og Reese Witherspoon í hlutverkum sínum.
The Importance of being Emest,
sem Oscar Wilde samdi árið 1895, er
einn besti farsinn sem saminn hefur
verið á enska tungu. Leikrit þetta
hefur að minnsta kosti þrisvar ver-
ið kvikmyndað áður og veriö gerðar
sjónvarpsmyndir eftir því. Það er
því að bera í bakkafullan lækinn að
gera enn eina kvikmyndaútgáfu eft-
ir leikritinu og ekki bætir kvik-
mynd Olivers Parkers neinu nýju
við ef undan er skilin tattóveringin
á Gwendolin sem ásamt tónlistinni
er nútíminn í myndinni. Að öðru
leyti fylgir myndin frumgerðinni og
mesta ánægjan felst í að horfa á úr-
valsleikara fara með snilldartexta.
Ef eitthvert leikrit er á hárfinum
mörkum þess að vera gamanleikrit
og farsi þá er The Importance of
being Emest slíkt verk. Fyndnin í
verkinu er aldrei svo að áhorfand-
inn veltist um af hlátri. Verkið hef-
ur samt yfirbragð farsans þar sem
misskilningur er í hávegum hafður.
Á móti kemur að persónumar era
ekki farsakenndar. Það er enginn
sem er „fifLið“ í hópnum.
The Importance of being Emest
gerist fyrir aldamótin 1900 þegar
siðsemi Viktoríutímabilsins, sem
svo oft er vitnað til, er í hávegum
höfð. Jack Worthing (Colin Firth)
lifir tvöföldu lífi. Hann er ráðsettur
herragarðseigandi í sveitinni og
slettir úr klaufunum í London. Þar
heitir hann Emest og á vin sem
heitir Algy (Rupert Everett) og
unnustuna Gwendolin (Frances
O’Connor) sem segir Jack/Emest að
það sem heilli hana einna mest sé
nafnið Emest. Hún er ekki ein um
að telja að nafniö Emest hafi kyn-
ferðislegt aðdráttarafl. í sveitinni er
hin 18 ára Cecily (Reese Wither-
spoon) sem Jack hefur forræði yfir.
Hana dreymir dagdrauma um mann
sem heitir Emest. Aðeins það að
hugsa um nafnið kveikir í henni.
Vinurinn Algy kemst að leyndar-
máli Jacks og fer í sveitina og þyk-
ist vera Emest. Það er eins og við
manninn mælt, Cecily kolfellur fyr-
ir honum. Síðan kemur Jack í sveit-
ina og Gwendolin á eftir honum og
fjörið hefst.
The Importance of being Emest
er vel heppnuð kvikmynd eftir leik-
riti sem hefur staðist tímans tönn.
Það er nú samt svo að mjög lítið er
gert í myndinni sem ekki er hægt
að gera á sviði. Leikstjórinn Oliver
Parker er klassískmenntaður leik-
húsmaður, sem hefur leikstýrt
tveimur kvikmyndum, Othello og
An Ideal Husband (einnig eftir leik-
riti Oscar Wildes) þar sem hann fer
hefðbundnar leiðir. Hann virðist
hafa gott auga fyrir möguleikum
kvikmyndavélarinnar, en passar vel
upp á aö fara ekki út fyrir
rammann, er jarðbundinn í þeim
efnum.
Rupert Everett og Colin Firth
náðu vel saman þegar þeir voru
yngri í Another Country og eiga
báðir góðan dag. Að vísu virkar
Firth stundum þvingaður ólíkt Ev-
erett. Frances O’Connor og Reese
Witherspoon eru sakleysislegar á
yfirborðinu, en hormónamir leyna
sér ekki. Og eins og við var að búast
fer Judy Dench á kostum í hlut-
verki hinnar siðprúðu aðalskonu
sem er meö spumingalista fyrir
biðlana.
Lelkstjóri: Oliver Parker. Handrit: Oliver
Parker eftir leikriti Orscars Wilde. Kvlk-
myndataka: Tony Pierce-Roberts. Tónllst:
Charlie Mole. Aóallelkarar: Rupert Ever-
ett, Colin Firth, Reese Witherspoon, Judi
Dench, Frances O’Connor, Tom Wilkinson
og Edward Fox.