Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2002, Síða 20
20
MIÐVKUDAGUR 11. DESEMBER 2002
Islendingaþættir_______________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Attatíu og fimm ára
Engilbert Hannesson
fyrrv. hreppstjóri á Bakka í Ölfusi
90 ára______t______________
Ragnheiöur Árnadóttir,
Tjarnarbraut 13, Hafnarfirði.
§5_ára_____________________
Ása G. Gísladóttir,
Fannafold 125a, Reykjavík.
80 ára_____________________
Hulda Thorarensen,
Öldugötu 61, Reykjavík.
Sólveig Guömundsdóttir,
Álfhólsvegi 38, Kópavogi.
75 ára
Friðgeir
Kristjánsson,
1 Bröttuhlíð 17,
Hveragerði.
70 ára_____________________
Ólöf Hulda Sigfúsdóttir,
Vesturbergi 114, Reykjavík.
60 ára_______________________
Atli Stefánsson,
Háaleitisbraut 43, Reykjavík.
Guöný Gunnarsdóttir,
Heiðargarði 29, Keflavík.
Sigurður Brynjólfsson,
Stórahjalla 29, Kópavogi.
Vilhjálmur Skarphéölnsson,
Hliðarvegi 76, Njarðvík.
50 ára_______________________
íslelfur Árnl Jakobsson,
Fagrahjalla 68, Kópavogi.
Jón Friörik Jóhannsson,
Hrannargötu 10, ísafirði.
Kristján Örn Kristjánsson,
Hólagötu 37, Njarðvík.
Trausti Hauksson,
Bakkastöðum 107, Reykjavík.
Þorleifur Magnús Magnússon,
Logafold 182, Reykjavík.
Engilbert Hannesson, bóndi og
fyrrv. hreppstjóri á Bakka í Ölfusi,
er áttatíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Engilbert fæddist á Bakka og ólst
þar upp hjá foreldrum sínum viö
venjuleg sveitastörf. Hann fór til
náms að Héraðsskólanum á Laugar-
vatni og þaðan í búfræðinám að
Bændaskólanum á Hvanneyri.
Að loknu námi að Hvanneyri
starfaði Engilbert hjá Búnaðarsam-
bandi Dala- og Snæfellsness vor og
sumar 1941, var verkstjóri hjá
Framræslu- og áveitufélagi Ölfus-
hrepps 1942 og starfaði síðan hjá
heildsölufyrirtæki í Reykjavík til
1944.
Engilbert keypti jörðina Bakka II
í ölfusi af fóður sínum 1944 og hef-
ur verið þar bóndi síðan.
Hann var einn af stofnendum
Ungmennafélags Ölfusinga 1934, sat
í stjórn þess um skeið, starfaði m.a
fyrir félagið í sundlauga- og skóg-
ræktarnefndum, sat í hreppsnefnd
Ölfushrepps 1946-58, sat í skóla-
nefnd Hveragerðisskóla fjögur kjör-
tímabil, í sýslunefnd Ámessýslu í
tuttugu ár, í gróðurvemdarnefnd
Árnessýslu í tuttugu og fjögur ár,
þar af tuttugu ár sem formaður, var
formaður Búnaöarfélags Ölfus-
hrepps í þrjátíu ár, sat í stjóm Bún-
aðarfélagsins, í stjórn Ræktunar-
sambandsins og um tima fram-
kvæmdastjóri þess, var umboðs-
maður Brunabótafélags íslands í
Ölfushreppi 1973-89 og hefur setið í
ýmsum nefndum og ráðum.
Engilbert var hreppstjóri í Ölfus-
hreppi 1973-88, var umboðsmaður
skattstjóraembættisins á sama tíma,
var einn þeirra Hjallasóknarbænda
sem átti stóran þátt í að hitaveita
komst til Þorlákshafnar fyrir 1980
enda heita vatnið sótt í land Engil-
berts að Bakka II.
Engilbert var sæmdur riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir félagsstörf 1994.
Fjölskylda
Engilbert kvæntist 24.10. 1942
Ragnheiði Jóhannsdóttur, f. að
Breiðabólstað á Síðu 7.5. 1916, d.
17.3. 1998, húsfreyju. Hún var dóttir
Jóhanns Sigurðssonar, fyrrv. bónda
á Núpum, og f.k.h., Ragnheiðar
Helgadóttur, d. 1916, húsfreyju.
Fósturmóðir Ragnheiðar var Jó-
hanna Magnúsdóttir húsfreyja, s.k.
Jóhanns.
Börn Engilberts og Ragnheiðar
eru Jóhanna Ragnheiður, f. 22.2.
1945, fjármála- og rekstrarstjóri,
hennar maður er Páll Jóhannsson
en börn hennar eru Engilbert, f. 8.7.
1964, Sigurjón, f. 1.10. 1966, og Rann-
veig Borg, f. 13.4. 1972; Valgerður
Hanna, f. 19.10. 1947, leikskólakenn-
ari, hennar maður er Garðar Guð-
mundsson og eru börn hennar
Ragnheiður, f. 6.5. 1971, og Engil-
bert, f. 15.6. 1980; Guðmunda Svava,
f. 12.7. 1952, næringarráðgjafi, gift
Gunnlaugi Karlssyni. Bamabarna-
böm Engilberts og Ragnheiðar eru
sex talsins.
Af systkinum Engilberts eru lát-
in: Guðrún Lovisa, Magnús og Þórö-
ur Valgeir.
Systkini hans á lífi eru Guðmund-
ur, smiður í Reykjavík; Jóna Maria,
húsfreyja í Hveragerði.
Fóstursystir Engilberts: Ásta
Valdimarsdóttir, húsfreyja í Reykja-
vík.
Foreldrar Engilberts voru Hann-
es Guðmundsson, f. 23.11. 1885, d.
10.12. 1958, fyrrv. bóndi að Bakka,
og Valgerður Magnúsdóttir, f. 2.9.
1897, d. 4.11. 1954, húsfreyja.
Engilbert verður að heiman á af-
mælisdaginn.
40 ára_____________________
Aldís María Karlsdóttir,
Flögusíöu 9, Akureyri.
Biljana Micic,
Lundarbrekku 10, Kópavogi.
Finnur Guömundsson,
Sandholti 40, Ólafsvík.
Hrafnhildur I. Halldórsdóttir,
Súluhöfða 18, Mosfellsbæ.
Ingibjörg Magnúsdóttlr,
Hraunbæ 102e, Reykjavík.
Karl Gunnar Eggertsson,
Torfufelli 13, Reykjavík.
Kristján R. Kristjánsson,
Esjugrund 11, Reykjavík.
Kristján Vaitýr K. Hjelm,
Skógar|ötu 2, Sauðárkróki.
Loftur Ágústsson,
Hraunbraut 35, Kópavogi.
Ólöf Haröardóttir,
Hólavegi 24, Sauöárkróki.
Sigrún Þörarinsdöttir,
Kvisthaga 3, Reykjavík.
Sigursteinn Olgeirsson,
Bjarnarstíg 9, Reykjavík.
Aðvcntu-
eiðiskrossar
12V - 34V
Sent í póstkröfu
Simi 431 1464 og 898 3206
Svavar Guölaugsson, Fögruhlíö, Fljóts-
hlíð, lést fimmtud. 28.11. sl. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Magnús Pétur Þorbergsson málm-
steypumaöur lést í New York laugard.
30.11.
Jóhannes Guömundsson, Kelduhvemmi
7, Hafnarfirði, lést á gjörgæsludeild
Landspítalans föstud. 6.12.
Björn A. Bjarnason frá Garði, Neskaup-
stað, síðast til heimilis í Funalind 13,
Kópavogi, andaðist sunnud. 8.12.
Sigríöur Jóhannesdóttir frá Seyðisfiröi
lést á Hrafnistu í Reykjavík laugard.
7.12.
Lovísa Jóhannsdóttlr frá Skálum á
Langanesi, Stýrimannastíg 13, Reykja-
vík, lést á líknardeild Landspítalans,
Landakoti, að kvöldi laugard. 7.12.
Sextugur
Einar Friðrik Sigurðsson
framkvæmdastjóri í Þorlákshöfn
Einar Friðrik Sig-
urðsson, fram-
kvæmdastjóri Auð-
bjargar ehf., Skál-
holtsbraut 5, Þor-
lákshöfn, er sextug-
ur í dag.
Starfsferill
Einar fæddist í
Reykjavík og ólst
þar upp, í Borgar-
firðinum og í Ölfus-
inu. Hann fór ung-
ur með móður sinni
í Borgarfjörðinn
þar sem hún var ráðskona hjá Guð-
mundi Bergssyni. Þau giftust og
fluttu síðan suður að Hvammi í Ölf-
usi þar sem Einar ólst upp að hluta
til ásamt því að hafa alist upp hjá
móðurömmu sinni og afa í Reykja-
vík.
Einar byrjaði ungur til sjós.
Hann stundaði nám við Stýri-
mannaskólann í Reykjavík og lauk
þaðan skipstjórnarprófum 1964.
Einar varð skipstjóri í Þorláks-
höfn og kynntist þar eiginkonu
sinni. Þau byggðu þar hús 1964 og
hafa átt þar heima síðan.
Einar keypti hlut í fyrirtækinu
Auðbjörgu hf. 1971, ásamt tveimur
öðrum aðilum, og einnig vélbátinn
Amar ÁR 55 sem hann var skip-
stjóri á til 1987. Þá fór hann í land
til að sjá um fyrirtækiö eftir að hafa
keypt allt fyrirtækið. Hann bætti
við öðrum báti sem heitir Skálafell
ÁR 50 1998. Auðbjörg ehf. hefur rek-
ið fiskverkun frá 1980.
Einar sat í hreppsnefnd 1982-94,
var oddviti Ölfushrepps 1986-94, sat
í stjóm Öldunnar og FFSÍ um skeið
og sinnti þar ýmsum nefndarstörf-
um. Hann situr í stjóm SÍF, Jarð-
efnaiðnaðs, Lífeyr-
issjóðs Suðurlands,
og Eignarhaldsfé-
lagsins.
Fjölskylda
Einar kvæntist
29.8. 1964 Helgu
Jónsdóttur, f. 24.5.
1945, húsmóður.
Hún er dóttir hjón-
anna Jóns Péturs-
sonar, f. 2.9.1914, d.
11.9. 1972, ökukenn-
ara í Reykjavík, og
Kristínar Kristó-
fersdóttur, f. 22.11. 1913, d. 12.3.
1999, verkakonu.
Böm Einars og Helgu eru Ár-
mann, f. 14.1. 1964, útgerðarstjóri
hjá Auðbjörgu, búsettur í Þorláks-
höfn, kona hans er Ingveldur Jóns-
dóttir, f. 18.11. 1969 aðstoöarkona
tannlæknis, eru böm þeirra Jón
Þór, f. 2.11. 1991, (fóstursonur Ár-
manns) og Guðmundur Jökull, f.
14.12. 1998; Guðmundur, f. 7.2. 1965,
d. 13.4. 1983; Eydis, f. 25.4. 1966,
starfsmaður hjá Úrval-Útsýn, búsett
í Reykjavik, dóttir hennar er Helga
Ýr, f. 5.2. 1998; Sóley, f. 6.2. 1972,
skrifstofustjóri hjá Auðbjörgu ehf.,
búsett í Þorlákshöfn, maður hennar
er Guðbjartur Örn Einarsson, f.
30.10. 1969, skipstjóri, eru börn
þeirra Einar Örn, f. 1.2.1995, og Atli
Rafn, f. 26.9. 1998.
Foreldrar hans vora Þrúður Sig-
urðardóttir, f. 15.7. 1924, d. 28.9.
2000, og fósturfaðir, Guðmundur
Bergsson, f. 2.6. 1915, d. 26.6. 2000.
Einar og Helga munu taka á móti
gestum í Versölum (Ráðhúsinu) í
Þorlákshöfn fostudaginn 13.12.
Húsið verður opnað kl. 19.00.
Ingibjörg Jónsdóttir
fyrrv. húsfreyja í Kjarnholtum
Ingibjörg G. Jóns-
dóttir, í Kjarnholt-
um II í Biskups-
tungum, varð sjötug
í gær.
Starfsferill
Ingibjörg fæddist
á Skárastöðum í
Fremri-Torfustaða-
hreppi og ólst þar
upp til tólf ára ald-
urs er foreldrar
hennar brugðu búi
og fluttu að Hnausa-
koti. Þar starfaði
hún við hin ýmsu
landbúnaðarstörf og það sem til féll
á stóru heimili, til fmimtán ára ald-
urs er hún sleppti heimdraganum
og réðst til annarra starfa.
Ingibjörg réð sig til vistar á vetr-
um, fyrst hjá Bimi Sigurðssyni,
lækni í Keflavík, í tvo vetur og síð-
ar í tvo vetur hjá Sigurbimi i Vísi í
Reykjavík. Þá ástundaði hún nám
við kvöldskóla KFUM í Reykjavík.
Á sumrum leitaði hún jafnan
norður í sína heimasveit, réð sig til
kaupamennsku og fleira sem til féll.
Hún starfaði við Bændaskólann á
Hvanneyri 1950-51 og útskrifaðist
frá Húsmæðraskólanum að Varma-
landi 1952.
Ingibjörg hóf aftur störf við
Bændaskólann á Hvanneyri 1953-54.
Þar kynnist hún manni sínum, en
þau hófu búskap að Kjamholtum í
Biskupstungum vorið 1959 og
bjuggu þar til 1999 er hann féll frá.
Fjölskylda
Ingibjörg kvæntist á Pálma-
sunnudag 1956 Gísla Einarssyni, f. í
Kjarnholtum 2.5. 1932, d. 30.5. 1999,
bónda og oddvita Biskupstungna-
manna í tuttugu og
fjögur ár. Foreldrar
hans voru Einar
Gíslason, bóndi í
Kjarnholtum, og
Guðrún Ingimars-
dóttir, frá Efri-
Reykjum í Biskups-
tungum.
Börn Ingibjargar
og Gísla eru Einar,
f. 18.12. 1955, um-
boðsmaður Olíu-
verzlunar íslands í
Þorlákshöfn, dóttir
hans er Guðlaug, f.
6.2. 1977 og er sam-
býlismaður hennar Róbert Dan
Bergmundsson, framkvæmdastjóri
Toppnets í Þorlákshöfn, dætur
þeirra em Sesselia Dan, f. 7.9. 1998,
og Berglind Dan, f. 10.11. 2000, eig-
inkona Einars er Sesselja Sólveig
Pétursdóttir, f. 6.2. 1957; Jón Ingi, f.
28.5. 1959, framkvæmdastjóri í
Reykjavík, dóttir hans og Huldu
Dagrúnar Grímsdóttur er Inga Jara,
f. 13.7. 1988, nemi í Kópavogi, sam-
býliskona Jóns Inga er Hrönn Haf-
steinsdóttir, f. 31.10. 1957; Gylfi, f.
13.12. 1962, fjármálastjóri í Reykja-
vík, synir hans eru Gísli, f. 12.10.
1995, og Amar, f. 22.11. 2001, eigin-
kona Gylfa er Oddný Mjöll Arnar-
dóttir lögfræðingur; Jenný, f. 12.8.
1997, læknaritari í Kjamholtum II,
sambýlismaður hennar er Bjami
Bender Bjamason, f. 1.7. 1964, og er
dóttir þeirra Hekla Bender, f. 12.8.
1997.
Foreldrar Ingibjargar voru Jón
Sveinsson bóndi á Skárastöðum,
Fremri-Torfustaðahreppi, og Jenný
Guðmundsdóttir, húsfreyja að
Skárastöðum.
Tilkynning vegna afmælisgreina yfir hátíðarnar
Um jól og áramót gilda aðrar reglur um skil á upplýsingum vegna
afmælisgreina en þær sem greint er frá í bréfi til afmælisbarna.
Upplýsingar vegna afmælisgreina, sem birtast eiga í jólablaði DV og í
áramótablaði DV, þurfa að berast ættfræðideild eigi síðar en
fimmtudaginn 19. desember nk.