Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Side 11
28
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002
29
Sport
Sport
Þórsarar FH-ingum
lítil fyrirstaða
- Magnús Sigmundsson varði mark FH af stakri snilld
FH-ingar burstuðu slaka Þórs-
ara, 32-22, í Essódeild karla í
handknattleik á föstudagskvöldið
í Kaplakrika. Leikurinn var frek-
ar leiöinlegur á að horfa í heild-
ina séð og lítið var um stemningu
og leikgleði. Þá vakti athygli
hversu fáir létu sjá sig á leiknum
en líklega eru það viss skilaboð
til heimamanna en gengi þeirra
FH-Þór 32-22
9-0, &-3, 8-6, 13-10, (15-11). 16-11, 18-13, 21-15,
24-16, 28-19, 32-22.
FH:
Mörk/viti (skot/viti): Logi Geirsson 14/8
(16/8), Guömundur Pedersen 5 (6), Björgvin
Rúnarsson 5 (9), Ólafur Bjömsson 3 (4), Amar
Pétursson 2 (3), Magnús Sigurösson 1 (2), Heiö-
ar öm Amarsson 1 (3), Andri Berg Haralds-
son 1 (4), Svavar Vignisson (2).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 8 (Guömundur
3, Björgvin 2, Andri, Ólafur, Logi).
Vitanýting: Skoraö úr 8 af 8.
Fiskud viti: Svavar 4, Magnús 2, Logi, Guö-
mundur.
Varin skot/víti (skot á sig): Magnús Sig-
mundsson 23/3 (42/6, hélt 10, 55%, Jónas Stef-
ánsson 2 (5, hélt 1, 40%).
Brottvísanir: 10 mínútur.
Dómarar (1-10):
Jónas Elíasson og
Valgeir Ómarsson
(8)
GϚt leiks
(1-10): 5.
Áhorfendur: 150.
Maöur
Magnús Sigmundsson, FH
Þór:
Mörk/viti (skot/víti): Páll Viðar Gíslason 5/1
(9/2), Goran Gugic 4/1 (7/1), Sigurpáll Ámi
Aöalsteinsson 4/1 (8/2), Ámi Sigtryggsson 4
(12), Höröur Sigþórsson 2 (2), Aigars Lazdin 2
(7/1), Halldór Oddsson 1 (3), Bjami B. Bjama-
son (2).
Mörk úr hraóahL: 2 (Páll, Lazdin)
Vítanýting: Skoraö úr 3 af 6.
Fiskuö viti: Höröur 3. Lazdin 2, Sigurpáll
Varin skot/víti (skot á sig): Höröur Flóki
Ólafsson 10 (37/7, hélt 6, 30%, Hafþór Einars-
son 4 (7/1, hélt 1, 52%)
Brottvísanir: 4 mínútur, Höröur Flóki fékk
rautt tveimur mínútum fyrir leikslok.
Fram-HK 22-22
0-1, 2-1, 3-3, 6-4, 6-7, 9-8, 9-11 (18-11), 11-11,
11-15, 13-17,18-18, 18-19, 19-21, 21-22, 22-22.
Fram:
Mörk/víti (skot/víti): Héðinn Gilsson 6 (13),
Guöjón Finnur Drengsson 4/2 (8/5), Hafsteinn
Anton Ingason 3 (4), Hjálmar Vilhjálmsson 3
(4), Valdimar Fannar Þórsson 2/1 (10/1),
Haraldur Þorvaröarson 1 (1), Gunnar
Bergmann Jónsson 1 (2), Magnús Kári
Jónsson 1 (2), Þorri Björa Gunnarsson 1 (3).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 2 (Hjálmar,
Gunnar)
Vítanýting: Skoraö úr 3 af 6.
Fiskuö vtti: Hafsteinn 2, Gunnar, Héðinn,
Valdimar, Haraldur
Varin skot/víti (skot á sig): Sebastian
Alexandersson 8 (15/4, hélt 2, 53%, Magnús
Gunnar Erlendsson 7 (22/2, hélt 2, 34%)
Brottvísanir: 8 mínútur.
Dómarar (1-10):
Stefán Amaldsson
og Gunnar
Viöarsson (7)
GϚi leiks
(1-10): 7
Áhorfendur: 160.
Maöur leiksíns:
Ðjörgvín Gústafsson, HK
HK:
Mörk/víti (skot/víti): Ólafur Víöir Ólafsson
8/6, (13/6), Samúel Ámason 4 (7), Atli Þór
Samúelsson 4 (8), Már Þórarinsson 2 (3),
Alexander Amarson 2 (3), Elías Már
Halldórsson 2 (5).
Mörk úr hraóahl.: 6 (Samúel 3, Már 2,
Alexander.).
Vítanýting: Skoraö úr 6 af 6.
Fiskuö víti: Alexander 3, Atli 2, Ólafur.
Varin skot/víti (skot á sig): Björgvin
Gústavsson 19/1 (41/4, hélt 6, 46%, 1 víti í slá,
1 víti í stöng.
Brottvisanir: 10 mínútur.
hefur ekki verið gott að undan-
fornu.
Þessi sigur gefur þeim þó fyrir-
heit um betri tíð með blóm í haga
en Þórsarar, sem hafa spilað
mjög vel í vetur fram að þessum
leik, hljóta að hrista þennan doða
af sér og ná leikgleðinni aftur í
sitt lið. FH-ingar tóku frumkvæð-
ið strax í byrjun en gekk illa að
hrista gestina af sér, munurinn
var oftast 2-3 mörk og það hjálp-
aöi Þórsurum ekkert að vera á
tímabili tveimur mönnum fleiri.
Þó veröur að nefna það að
markvörður FH, Magnús Sig-
mundsson, var frábær í markinu
og gerði í raun gestunum ókleift
að komast almennilega inn í leik-
inn. Hann hélt þessum stórleik
áfram í síðari hálfleik og lagði al-
gjörlega einn síns liðs grunninn
að því að FH-ingum tókst að slíta
Þórsara almennilega af sér. Aðr-
ir leikmenn liðsins fylgdu síðan
eftir þessum magnaða leik Magn-
úsar og munurinn jókst jafnt og
þétt. Magnús fór síðan af velli
þegar um það bil sjö mínútur
voru eftir en þá hafði kappinn
varið 23 skot, þar af þrjú víti, og
staðan orðin 28-19. Logi Geirsson
var enn og aftur á skotskónum,
gerði 14 mörk en 8 af þeim komu
úr vítum og hefur Logi skorað úr
ansi hreint mörgum vítum í röð.
Guðmundur Pedersen sýndi ágæt-
is takta, sem og þeir Ólafur
Björnsson og Björgvin Rúnars-
son. Svavar Vignisson barðist vel
að venju inni á línunni og fiskaði
meðal annars fjögur víti.
Hjá Þórsurum voru þeir skást-
ir, Páll Viðar Gíslason, Goran
Gusic og Sigurpáll Árni Aðal-
steinsson. Hörður Flóki Ólafsson,
sá ágæti markvörður, eyddi
mestu af sínu púðri i röfl og kjaft-
hátt viö dómara leiksins og upp-
skar hann að lokum rautt spjald
og sem kom það fáum á óvart.
Hálfömurlegt er að horfa upp á
svona hegðun og er það liðinu
dýrt. -SMS
Fram náði
stigi af HK
- þegar liðin skildu jöfn, 22-22
Framarar og HK-ingar skildu jafn-
ir í Framheimilinu á fóstudag, 22-22
í leik sem bauð lengi vel ekki upp á
mikinn æsing. HK-ingar hafa tekið
miklum framfórum í vetur og sýndu
það í þessum leik þar sem þeir voru
nálægt því að vinna án besta manns
sins, Jaliesky Garcia, sem var
meiddur í baki. Þessi leikur var
lýsandi fyrir framfarir HK-inga í
vetur en þeir töpuðu fyrri leik lið-
anna í vetur, þá með bæði Garcia og
Vilhelm Bergsveinsson í liðinu.
Lokamínúturnar voru spennu-
þrungnar. Framarar sem höfðu ver-
iö undir allan seinni hálfleikinn
börðust af krafti fyrir öðru stiginu
og Héöinn Gilsson tryggði þeim það
með glæsilegu langskoti tæpum 40
sekúndum fyrir leikslok. HK-ingar
náðu ekki að koma skoti á mark úr
síðustu sókn sinni en það fór veru-
lega í skapið á þeim að hafa ekki
fengið vítakast þegar Framarar virt-
ust verjast þeim innan línu.
Fyrri hálfleikur jafn
Annars var fyrri hálfleikurinn
jafn og liðin skiptust á um að hafa
forystuna. Framarar höfðu betur
framan af en eftir slæman kafla þar
sem þeir skoruðu ekki mark í 10
mínútur náðu HK-ingar frumkvæð-
inu. Einhver deyfð var yfir Framlið-
inu lengi vel og þegar Hjálmar Vil-
hjálmsson, sem hafði verið mest
ógnandi af þeim, var tekinn úr um-
ferð í upphafi seinni hálfleiks, náðu
HK-ingar fljótt fjögurra marka for-
skoti eftir að hafa skorað nokkur
auðveld mörk eftir hraðaupphlaup.
Framarar brugðu á það ráð að
setja Sebastian Alexandersson í
markið og tókst honum að kveikja
neistann hjá öðrum leikmönnum
liðsins og Héðinn Gilsson, sem hafði
verið slakur, fór hamförum á
lokamínútunum og skoraði hvert
markið af öðru með langskotum.
Framarar áttu ekki góðan
dag
Framarar áttu ekki góðan dag en
náðu sér aðeins á strik síðustu 20
mínúturnar sem var nóg til þess að
bjarga öðru stiginu. Héðinn og
Sebastian voru sem
fyrr segir bestu
menn liðsins. Hjá
HK var vörnin þétt
og Björgvin Gú-
stavsson varði mjög
vel í markinu. Hann
og Jón Bersi Elling-
sen voru bestu
menn liðsins og í
sókninni áttu Atli
Þór Samúelsson og
Ólafur Viðir Ólafs-
son góða spretti en
Ólafur Víðir sýndi
Héðinn Gilsson sýndi gamla góða takta gegn HK og
skoraði sex mörk f leiknum.
mikið öryggi á víta-
ltnunni, sérstaklega
á lokamínútunum
þegar mest lá við.
-HRM
Daði Hafþórsson úr Aftureldingu reynir hér línusendingu á félaga sinn, Erlend Egilsson. Stjörnumaðurinn Björn Friðriksson reynir hvað hann getur til að koma í veg
fyrir sendinguna. DV-mynd ÞÖK
Naumur
- Ólafur H. Gíslason tryggði Mosfellingum sigurinn gegn Stjörnunni
Afturelding sigraði Stjörnuna
naumlega í Mosfellsbænum í
Essódeild karla í handbolta í gær-
kvöld. Leikurinn var í heildina al-
veg ágætur, nokkuð fjörugur og
lokakaflinn var þrælspennandi.
Lokatölur urðu 29-28 en það var
markvörður heimamanna, Ólafur H.
Gíslason, sem tryggði mönnum
sínum stigin tvö.
Hann varði glæsilega frá David
Kekelia úr hraðaupphlaupi þrjátíu
sekúndum fyrir leikslok og útileik-
mennirnir áttu ekki í vandræðum
með að halda boltanum út leiktim-
ann. Leikurinn var nokkuð sveiflu-
kenndur en það var jafnræði með
liðunum lengstum í fyrri hálfleik.
í lokakafla hálfleiksins náöu
heimamenn frumkvæðinu og skor-
uðu þrjú síðustu mörkin fyrir leik-
hlé. Þá var staðan 16-13. Þeir félag-
ar, Bjarki Sigurðsson og Valgarö
Thoroddsen, héldu sínum mönnum
algjörlega á floti í fyrri hálfleik en
þá skoruðu þeir báðir sjö mörk og
því fjórtán af þessum sextán mörk-
um liðsins. Leikmenn Aftureldingar
héldu dampi framan af síðari hálf-
leik og virtust hafa þetta í hendi
sér. Stjörnumenn voru þó aldrei
langt undan en mestur varð munur-
inn fjögur mörk.
Gestirnir tóku sig smám saman á
en þó tók það þá rúmar tuttugu mín-
útur að jafna leikinn, 25-25. Stuttu
seinna var forystan orðin þeirra.
Leikmenn Aftureldingar voru ekki
til í að láta Stjörnuna komast upp
með neitt meira og þeir endur-
heimtu forystuna rúmri einni og
hálfri mínútu fyrir leikslok með lag-
legu marki Erlends Egilssonar.
Þetta reyndist vera síðasta mark
leiksins og Stjörnumenn hljóta að
naga sig í handarbökin yfir töpuðu
stigi.
Liðið spilaði á köflum mjög vel
og talsverður frískleiki var yfir lið-
inu sem er smám saman að styrkj-
ast. Þórólfur Nielsen var þeirra
bestur, afar skapandi og hreyfanleg-
ur leikmaður. David Kekelia stóð
Þórólfi lítt að baki en hann hlýtur
að vera svekktur yfir síðasta skoti
sínu og það er ekki algengt að hann
bregðist í svona góðum færum.
Guðmundur Karl Geirsson var
ágætur í markinu en annars var
liðsheildin nokkuð góð hjá liðinu.
Það spilar enn án stórskyttunnar
Vilhjálms Halldórssonar, sem var á
bekknum, mönnum sínum til
stuðnings, með gifs á fæti. Þá er
Bjarni Gunnarsson enn fjarri góðu
gamni og með þetta i huga er leikur
Stjörnunnar að undanförnu hreint
ágætur
Bjarki virkilega sterkur
Hjá heimamönnum var Bjarki
Sigurðsson virkilega sterkur og
leikur hans minnti á gamla og góða
daga hjá honum. Valgarð Thorodd-
sen var öflugur og sýndi að það er
nóg eftir á tanknum hjá honum.
Ólafur H. Gíslason varð betri og
betri eftir því sem á leikinn leið og
hámarkinu náði hann auðvitað með
síðasta varða skotinu. Daði Hafþórs-
son átti spretti og þeir Sverrir
Björnsson og Atli Rúnar Steinþórs-
son lögðu sitt af mörkum. Kannski
er nú komið eitthvert jafnvægi í
leik Aftureldingar í sjálfri deildar-
keppninni en þar hefur liðið í heild
spilað mjög illa enda er það ansi ná-
lægt botninum.
Allt annað hefur verið upp á ten-
ingnum í bikarkeppninni þar sem
fórnarlömbin hafa verið FH-ingar,
Haukar og svo Grótta/KR. Nú er að
sjá hvort jafnvæginu er náð en leik-
ir á móti sterkari liðum deildarinn-
ar koma auðvitað fyrst og fremst
með að gera út um það. -SMS
KA sterkara
Það var eins og við mátti búast þeg-
ar þessi lið mætast, sem háð hafa
marga hildina, að það var hörkuleikur
í KA-heimilinu á laugardag. Leikur-
inn byijaði með stuttum sóknum en
með töluverðri markvörslu á báða
bóga sem benti til einvígis á milli
markvarðanna, Egediusar í KA-mark-
inu og Rolands Vals, í marki Vals.
Roland fékk íslenskan ríkis-
borgararétt fyrir helgi og KA færði
honum blómvönd í tilefni þess. En eft-
ir 5 mín. var KA með 3-1 og komust
Valsmenn einu sinni yflr í fyrri hálf-
leik, 6-7. Eftir það var nánast jafnt á
öllum tölum hálfleiksins og ekki mikið
um markvörslu fyrr en undir lok hálf-
leiksins. KA-menn náðu þó tveggja
marka forustu fyrir hálfleik.
Gestimir komu grimmir til leiks í
seinni hálfleik og tókst aö jafna leikinn
á tveimur mínútum. Var jafnt á öllum
tölum til 19-19 er Valsmenn komust
tveimur mörkum yfir þegar seinni
hálfleikur var hálfnaður en þá höfðu
heimamenn i KA ekki skorað mark í
sex mínútur. Eftir það skiptust liðin á
að hafa forustuna þar til KA-menn
veittu gestunum náðarhöggið er fjórar
mínútur voru eftir og sigruðu með
þremur mörkum, 28-25.
Leikurinn var skemmtilegur fyrir
þá rúmlega þrjú hundruð áhorfendur
sem sóttu KA-heimilið heim og var
leikið fast en samt spilaður nokkuð
heiðarlegur bolti. Voru bæði lið ekki
nema 10 min. utan vallar sem hefur
þótt lítið hér í fyrri rimmum. Bæði
undrun og reiði vakti þó dómgæslan
þótt ekki hallaði meira á annað liðið.
Margir dómar voru þó skrýtnir, svo
ekki sé meira sagt, og töluvert ósam-
ræmi í þeim. Geir Sveinsson, þjálfari
Vals, sagði eftir leikinn, er blaðamaður
innti hann eftir dómgæslunni, að það
þyrfti meira pláss í blaðinu að ræða
dómgæslu yfirhöfuð. í sama streng tók
þjálfari KA, Jóhannes Bjamason.
Hann sagði að þegar hann hefði vitað
hverjir myndu dæma þennan leik
hefði hann undirbúið menn sína eftir
því.
Hjá KA voru það Amór og Baldvin
sem stóðu sig vel, þó sérstaklega í
sókn, en þeir skoruðu rúmlega helm-
ing marka KA í þessum leik. Egedius,
markvörður heimamanna, stóð fylli-
lega fyrir sínu og eins má segja um
Stelmokas sem var, eins og svo oft áð-
ur, besti maður í vöm þeirra.
Hjá gestunum er hins vegar erfitt
aðð gera upp á milli leikmanna en þó
má telja að og markvörðurinn, Roland
Valur, hafi verið besti maður þeirra
ásamt þeim Markúsi Mána og Snorra
Steini sem spilaði þó undir getu.-SAK
Oruggt hjá IBV
Víkingar komu í heimsókn til
Vestmannaeyja á föstudagskvöld-
ið. Bæði þessi lið eru að berjast í
neðri hluta deildarinnar og veitti
þeim því ekki af þeim stigum sem
í boði voru. Fyrri leikur þessara
liða í defidinni endaði með jafn-
tefli og greinilegt að liðin ætluðu
ekki að láta það endurtaka sig því
þau komu mjög ákveðin til leiks
og vörnin var mjög góð í byrjun.
Víkingar sýndu gestgjöfunum
enga miskunn í upphafi og tóku
mjög hart á þeim í vöminni.
Þeim tókst vel gegn skyttum
Eyjamanna og það setti sóknar-
leik þeirra aðeins úr skorðum.
Heimamenn skoruöu þó fyrsta
mark leiksins en bæði liðin áttu í
smábasli með sóknarleikinn í
fyrri hálfleik.
Jafhræði var með liðunum all-
an fyrri hálfleikinn en það fór svo
að Eyjamenn leiddu í hálfleik
með tveimur mörkum, 12-10, og
gáfu áhorfendum með því for-
smekkinn að því sem koma
skyldi. Þeir hvitklæddu komu
mjög ákveðnir tfi leiks i seinni
hálfleik, brugðu á það ráð að taka
Eymar úr umferð og áttu Víking-
ar aldrei svar við því. Með hreint
frábærri vöm, með Erling þjálf-
ara í broddi fylkingar, náðu Eyja-
menn fljótlega 8 marka forystu
sem þeir létu ekki af hendi og
Fossvogspiltar gáfust hreinlega
upp.
Besti maður þeirra var Eymar
Kruger sem var sá eini sem ógn-
aði eitthvað af viti en einnig stóð
Davíð Pálmason sig ágætlega á
línunni. Hjá heimamönnum var
Erlingur Richardsson bestur og
sýndi hve gríðarlega mikilvægur
hann er þessu unga Eyjaliði.
Hann rak menn sína áfram all-
an leikinn ásamt því að spila
vörnina hreint frábærlega. Leik-
urinn var ekki áferðarfallegur I
heild. Bæði liðin gerðu mörg mis-
tök og sóknarleikur liðanna var
oft tilviljanakenndur. Eyjamann
fá þó hrós fyrir að halda haus og
klára leikinn en það er nokkuð
sem þá hefur vantað í vetur. Sig-
urður Bragason, fyrirliði þeirra,
var ánægður með stigin tvö í
leikslok. -EHS
KA-Valur 28-25
0-1, 1-1, 3-1, 5-3, 6-6, 8-8, 11-9,12-12 (15-13), 16-16,
17-17, 19-19, 19-21, 21-21, 22-22, 23-23, 25-23, 25-24,
28-25.
KA:
Mörk/viti (skot/víti): Amór Atlason 8 (13/1),
Baldvin Þorsteinsson 7 (9), Jónatan Magnússon 4
(7), Einar Logi Friöjónsson 4 (5), Hilmar Stefánsson
3/3 (3/3), Andreas Stelmokas 2 (3).
Mörk úr hradaupphlaupum: 4 (Baldvin 3,
Stelmokas)
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Fiskuö vitU Einar Logi, Hilmar, Baldvin,
Stelmokas.
Varin skot/viti (skot á sig): Egedijus Petkevicius
14/3 (39/4, hélt 7,35%, Stefán Guðnason 0 (0/1, hélt
0)
Dómarar (1-10):
Brynjar Einarsson
og Vilbergur
Sverrisson (4)
Gϗi leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur: 300.
Maður leiksins:
Arnór Atlason, KA
Brottvisanir: 10 mínútur.
Valur:
Mörk/viti (skot/víti): Markús Máni Michaelsson
8/2 (13/3), Snorri Steinn Guöjónsson 6/1 (11/3),
Hjalti Pálmason 4 (5), Bjarki Sigurösson 4 (7),
Ragnar Ægisson 2 (2), Freyr Brynjarsson 1 (2).
Mörk úr hraöahl.: 2 (Bjarki 2).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 6.
Fiskuö vitU Bjarki 2. Ragnar 2, Snorri Steinn,
Freyr.
Varin skot/viti (skot á sig): Roland Eradze 13
(40/6, hélt 6,33%).
Valur 16 11 3 2 431-340 25
IR 15 11 0 4 435-393 22
HK 16 10 2 4 45H25 22
Haukar 14 10 1 3 404-323 21
KA 15 9 3 3 410-380 21
Þór, A. 16 10 0 6 455-416 20
FH 16 8 2 6 429-409 18
Fram 16 7 3 6 402-395 17
Grótta/KR 14 7 1 6 360-320 15
Stjaman 16 5 1 10 411-447 11
Afturelding. 15 4 2 9 355-389 10
ÍBV 16 4 2 10 367-458 10
Víkingur 13 1 2 '13 400^88 4
Selfoss 15 0 0 15 367-494 0
Næstu leikir:
Miðvikudagur 18. desember
Þór A.-Fram................19.00
Stjaman-ÍR.................20.00
HK-Aftuirelsing ...........20.00
FH-Selfoss.................20.00
Grótta/KR-ÍBV..............20.00
Valur-Haukar...............20.00
Víkingur-KA................20.00
Aftureld.-Stjarnan 29-28
1-0, 3-5, 7-7, 10-10, 13-13 (16-13), 16-14, 20-16,
22-20, 24-21, 25-25, 27-28, 29-28.
Aftureldine:
Mörk/viti (skot/víti): Bjarki Sígurðsson 9
(11), Valgarö Thoroddsen 9/3 (11/3), Daöi Haf-
þórsson 3 (9), Atli Rúnar Steinþórsson 2 (2),
Sverrir Bjömsson 2 (4), Erlendur Egilsson 2
(5), Jón Andri Finnsson 1 (3), Haukur Sigur-
vinsson 1 (4).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 0
Vítanýting: Skorað úr 3 af 3.
Fiskuó víti: Erlendur, Atli Rúnar, Haukur.
Varin skot/viti (skot á sig): Ólafur H. Gísla-
son 19/1 (46/7, hélt 6, 52%, víti í stöng, Einar
Bragason (0/1).
Brottvisanir: 12 mínútur, Jón Andri þrjár
brottvísanir.
Dómarar (1-10):
Guöjón L. Sigurös-
son og Ólafur Har-
aldsson (7)
Gϗi leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur: 60.
Maður leiksins:
Bjarki Sigurðsson, Aftureld.
Stiarnan:
Mörk/víti (skot/víti): Þórólfur Nielsen 9/4
(13/5), David Kekelia 6 (9), Amar Theódórsson
4/2 (7/3), Zoltan Belany 2/1 (2/1), Bjöm Friö-
riksson 2 (3), Andrei Lazarev 2 (39, Amar Agn-
arsson 2 (3), Gunnar Ingi Jóhannsson 1 (2),
Kristján Kristjánsson (2), Sigtryggur Kolbeins-
son (5)
Mörk úr hraóahl.: 4 (Lazarev 2, Kekeila,
Gunnar).
Vitanýting: Skoraö úr 7 af 9.
Fiskuó vitU Þórólfur 3, Amar T. 2, Bjöm 2,
Kekeila 2.
Varin skot/víti (skot á sig): Guömundur
Karl Geirsson 13 (32, hélt 4, 40%), Ámi Þor-
varöarson 2 (12/3, hélt 1, 20%).
Brottvisanir: 8 mínútur.
ÍBV-Víkingur 28-18
1-0, 2-2, 3-5, 6-5, 9-9, (12-10). 13-10, 13-12,
20-12, 22-14, 25-15, 28-18.
ÍBV:
Mörk/viti (skot/viti): Davíð Þór Óskars-
son 6/2 (6/2), Michael Lauritzen 5 (5), Sig-
urður Bragason 5 (6), Siguröur Ari Stef-
ánsson 5 (10), Kári K. Kristjánsson 3 (6),
Robert Bognar 3 87), Sigþór Friöriksson 2
(2).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 5 (Siguröur
3, Michael 2
Vitanýting: Skoraö úr 2 af 2.
Fiskuó viti: Sigþór, Davíö.
Varin skot/víti (skot á sig): Viktor
Gigov 16 (30/2, hélt 7, 53%)
Brottvisanir: 6 mínútur.
Dómarar (1-10):
Helgi Rafn
Hallsson og Hilmar
Guölaugsson (6)
Gϗi leiks
(1-10): 5.
Áhorfendur: 150.
Maður
Erlingur Richardsson, ÍBV
Vikineur:
Mörk/viti (skot/viti): Eymar Krúger 5/1
(10/2), Ragnar Hjaltested 3 (3), Davíð
Pálmason 3 (4), Bjöm Guðmundsson 2 (4),
Karl Grönvold 1 (1), Sverrir Hermannsson
1 (1), Pálmar Sigurjónsson 1 (2), Bjarni
Ingimarsson 1 (3), Þórir Júlíusson 1 (4).
Mörk úr hraöahl.: 2 (Eymar, Ragnar).
Vitanýting: Skoraö úr 1 af 2.
Fiskuö víti: Davíð, Pálmar.
Varin skot/viti (skot á sig): Sigurður
Sigurösson 7 (27/2, hélt 3, 26%, Jón Árni
Traustason 1 (9, hélt 1,11%)
Brottvísanir: 6 mínútur.