Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Side 48
52
// e l c) u rfo l ci c) DV LAUGARDAGUR ll. JANÚAR 2003
Reynsluakstur nr. 732
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
© Takkinn fyrir sætisupphitun bílstjóra er of nálægt sæti
og hverfur því sjónuin bílstjórans.
© í stýri er þægilegur takki fyrir stjórnun á hljóintækjum
sera var ekki í bílnum með 2,7 lítra vélinni.
© Innrétting er einföld og frekar gamaldags en allt vel
staðsett.
© Þriggja lítra vélin er öflug og kemur vel út í Terrano II.
© Farangursrými er með besta rnóti en Terrano II er
seldur með þriðju sætaröðinni.
Með öfíugrí vél
sem tryggir tor-
færugetuna
Kostir: Kraftmikil vél, geta í torfœrum
Gallar: Aftursœti, hóvœr vél
Nissan Terrano hefur sannað sig á íslenskum jeppa-
markaði sem einn vinsælasti jeppi landans. Hann hef-
ur hingað til verið vinsælastur
með 2,7 lítra dísilvélinni en hefur
verið boðinn síðan í haust með
þriggja lítra einbunu dísilvél,
þeirri sömu og boðin er í Nissan
Patrol. Sú vél er mun öflugri en
gamla vélin og því þótti rétt að
grípa aðeins aftur í bílinn.
Óbreyttur aö innan
Með nýrri vél var sama og eng-
in breyting á útliti, búnaði eða
innréttingu bílsins, fyrir utan það
að komin er fjarstýring á hljóm-
tæki í stýri. Allt er sem áður var
- mjúk sætin og frekar gamaldags
yfirbragð á innréttingu og í efn-
isvali. Vel fer um farþega í fram-
sætum og ekkert út á uppsetningu
mælaborðs að setja, fyrir utan
staðsetningu á takka fyrir sætis-
upphitun ökumanns, en hann sér
hann ekki fyrir sínu eigin sæti. Ekki er þó hætta á að
hann gleymi henni í gangi því að ylurinn er mikill og
góður. Þótt mjög vel fari um tvo í miöjusætaröðinni er
þriðja farþeganum þar ekki vel búinn kosturinn. Þriðja
höfuðpúðann vantar og bilið á milli 50/50 skiptingar
sætanna er mikið og seta þar frekar óþægileg. Þegar
kemur að öftustu sætaröðinni er rými þar ágætt enda
farangursrými gott þótt aðgengi að öftustu sætaröðinni
mætti vera betra.
Öflug vél en hávær
Ekki verður kvartað yfir vöntun á afli með nýju vél-
inni. Þyngdaraukningin með henni er meiri en búast
mátti við, eða 55 kíló, en þess verður ekki vart í afli
eða aksturseiginleikum. Vélin býður upp á mikið tog
og ætti því enn betur að henta þeim sem vilja öflugan
bíl á fjöllum. Vélin er hávær og hið alkunna dísilglam-
ur fer ekki fram hjá manni, sérstaklega þegar bíllinn
er kaldur. Miðstöð er frekar lengi að hitna og mætti
vel hugsa sér aukamiðstöð í bílinn. í akstri virkar
Terrano II nokkuð vel á mann þótt jeppahreyfingarnar
séu auðfmnanlegar. Stýrið er mátulega létt í akstri og
hann er stöðugur á vegi. Fjöðrun er frekar mjúk að
framan sem kemur sér vel i torfærum. Hins vegar
leggst hann nokkuð á framhornið ef farið er snöggt í
krappa beygju, en svoleiðis á heldur ekki að keyra
jeppa.
Gott verð
Verðið á þriggja lítra Terrano II er 3.789.000 kr. sem er
nokkuð gott verð. Helsti keppinautur hans er án efa nýr
Toyota Land Cruiser 90 en LX-útgáfa hans kostar 3.990.000
kr. Terrano stenst honum að vísu ekki lengur snúning í
búnaði eða frágangi en gerir það vel í afli og verði. Aðrir
hugsanlegir keppinautar eru Mitsubishi Pajero 3,2, sem
kostar 4.560.000 kr., og Land Rover Discovery, en ódýrari
útgáfa hans kostar 3.990.000 kr. -NG
NISSAN TERRANO II 3,0
Vél:
3ja lítra, einbunu dísilvél.
Rúmtak:
2953 rúmsentímetrar.
Ventlar:
Þjöppun:
17,9:1.
Gírkassi:
4ra þrepa, sjálfskiptur.
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan:___________Sjálfstæð tvöföld snerilfjöðrun.
Fjöðrun aftan:5 liða hásinq, qormar með jafnvæqisstönq.
Bremsur:
Loftkældir diskar/skálar, ABS. j
Dekkjastærð:
235/70 R16.
YTRI TOLUR:
Lenqd/breidd/hæð:
4240/1755/1805 mm.
Hjólahaf/veqhæð:
2450/210 mm.
Beyqjuradíus:
10,8 metrar.
INNRI TOLUR:
Farþeqar m. ökumanni:
Fjöldi höfuðpúða/öryqqispúða:
Faranqursrymi:
335-1650 lítrar.
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km:
9,8 lítrar.
Eldsneytisqeymir:
72 lítrar.
Ábyrqð/ryðvörn:
3/7 ár.
Grunnverð:
3.789.000 kr.
Umboð:
Inqvar Helqason hf. j
Staðalbúnaður: 4 öryggispúðar, útvarp/geislaspilari með
6 hátölurum, álfelgur, upphituð framsæti, rafdrifnar rúð-
ur og speglar, tvívirk rafdrifin topplúga, loftkæling, stig-
bretti, þokuljós, fjarstyrðar samlæsinqar.____________________:
SAMANBURÐARTOLUR:
Hestöfl/sn.:
154/3600. :
Snúninqsvæqi/sn.:
304 Nm/1600.
Hröðun 0-100 km:
13,6 sek. i
Hámarkshraði:
166 km/klst.
Eiqin þynqd:
1870 kq.
Heildarþynqd:
2580 kq.