Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2003, Qupperneq 20
20
FTMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003
M
agasm
Bíómolar
Þýskir kvikmyndahúsa-
gestir
oánægðir
Kvik-
myndaunn-
endur í
Þýskalandi
íhuga að snið-
ganga kvik-
myndahús
þar í landi
vegna óánægju með fjölda aug-
lýsinga sem sýndar eru á undan
myndunum. Dæmi eru um að
auglýsingar séu sýndar í 50 mín-
útur áður en sýnishom úr vænt-
anlegum kvikmyndum eru sýnd.
Þannig lentu margir illa í því
þegar þeir fóru að sjá Harry
Potter í kvikmyndahúsi í Berlin
sem átti að hefjast kl. 22.15 en
vegna auglýsinga var henni ekki
lokið fyrr en kl. 1.30, þegar al-
menningssamgöngum var hætt
þann daginn. Eigendur kvik-
myndahúsanna segja hins vegar
að auglýsingar séu nauðsynlegar
til að halda miðaverði í sídkkan-
legu hófi.
Berry og Cruz saman í
mynd
Leikkon-
urnar Halle
Berry og
Penelope
Cruz munu
leika aðal-
hlutverkin i
ofumáttúr-
legu spennu-
myndinni
Gothika sem áætlað er að komi
út í haust. Berry leikur sálfræð-
ing sem skyndilega vaknar á
geðveikrahæli fyrir glæpamenn
þar sem hún kemst að því að
hún er kærö fyrir morð sem hún
man ekki eftir að hafa framið.
Craz leikur Chloe, samfanga
hennar á hælinu. Það er Joel Sil-
ver sem framleiðir myndina.
Tom Cruise í vanda hjó
Maórum
Tom Cru-
ise er um
þessar
mundir að
leika í mynd-
inni The
Last
Samurai og
hefur ekki
gengið
áfallalaust fyrir sig að taka
myndina í-sátt og samlyndi við
nærstadda. Þrátt fyrir að hún
gerist að mestum hluta í Japan
er hún aöallega tekin á Nýja-Sjá-
landi. Þar hafa Maórar, fram-
byggjar landsins, mótmælt því
harðlega að illa hefur verið geng-
iö um heilaga staði og að hið
heilaga Taranaki-fjall verði sýnt
í henni. Margir þeirra halda
fram að þeim hafl veriö lofað að
Qallið verði ekki notað en krefj-
ast nú hluta tekna myndarinnar
vegna þessa.
Nicole Kidman fær
stjörnu
Nicole
Kidman af-
hjúpaði í
vikunni
stjömuna
sina á Walk
of Fame-göt-
unni í
Hollywood
þar sem
helstu kvikmyndastjörnur sög-
unnar eru heiðraðar með stjömu
í steypunni. Hún var yfir sig
ánægð með heiðurinn og sagði
við athöfnina að hún hefði aldrei
verið jafn spennt yflr því að fólk
mundi ganga yfir hana um alla
framtíð. Kidman sló allhressilega
i gegn á síðasta ári í söngva- og
dansmyndinni Moulin Rouge og
er nú tilnefnd til Golden Globe-
verðlauna fyrir hlutverk sitt í
The Hours þar sem hún leikur
rithöfundinn Virginiu Woolf.
Kím Basinger leikur móður Eminem í 8 Mile sem er frumsýnd um helgina:
Ýmist í ökkla eða
eyra hjá Basinger
Um helgina verður frumsýnd 8
Mile, með rapparanum Eminem í
aöalhlutverki.- Sagan -sem sögð er
þár er ekki ólík uppvexti rapparans
sjálfs í Detroit þar sem hann barðist
fyrir því að sjá draum sinn rætast
að gera tónlistina að ævistarfi sínu.
Móðir Jimmys Smiths yngri, sem
Eminem leikur, heitir Stephanie og
er leikin af óskarsverölaunahafan-
um Kim Basinger. Sú hefur verið
viðloðandi glamúrlifið í Bandaríkj-
unum frá unga aldri þó svo að á
ýmsu hafi gengið.
Þær eru ófáar fyrirsætumar sem
dreymir um að gerast heimsfrægar
leikkonur í hinni stóru Hollywood
og einnig þær sem hafa reynt að
stíga skrefið til fulls. Sem dæmi má
nefna Cindy Crawford og Elle MacP-
herson og þrátt fyrir heiðarlegar til-
raunir verður seint sagt að þær telj-
ist til mest áberandi leikkvenna
Bandaríkjanna.
Epliö og eikin
Kim er fædd í suðurríkjum Banda-
ríkjanna, í Athens í Georgiu, og er
miðjubam, með tvo eldri bræður og
tvær yngri systur. Faðir hennar var
djasstónlistarmaður og móðir þekkt
sundkona og fyrirsæta. Það þarf því
ekki að koma á óvart að Kim lýsti
því snemma yfir að hún ætlaði einn
daginn að verða stórfengleg leik-
kona. Þrátt fyrir það var hún gífur-
lega feimin sem barn, svo mjög að
foreldrar hennar létu sérfræðinga at-
huga hvort hún væri einhverf.
Þegar hún hóf nám í miðskóla fet-
aði hún í fótspor móður sinnar og
varð keppnismanneskja í dýfingum
og reyndi fyrir sér í dansi. 16 ára
tók hún þátt í Junior Miss Georgia
feguröarsamkeppninni þar sem hún
bar sigur úr býtum og öðlaðist þar
með þátttökurétt í lokakeppninni í
New York. Þar hitti hún eitt stærsta
nafnið í tískubransanum, Eileen
Ford, sem bauð henni þegar í stað
samning við Ford fyrirsætustofuna.
Hún neitaði í fyrstu, þar sem hún
vildi láta reyna á feril í söng- eða
leiklist en lét þó segjast á endanum
og flutti ung að aldri til New York.
Hótt launuö fyrirsæta
Hún komst fljótt að því að stór-
borgarlifið í New York var mjög frá-
brugðið því sem hún hafði átt að
venjast, enda alist upp í litlum smá-
bæ í vernduðu umhverfi. Greinilegt
var að hún átti ekki heima í þessum
hópi, félagslega séð. Hvað vinnuna
varðaði, var hún greinilega í essinu
sínu. Hún birtist á forsíðu fjölda
timarita snemma á 8. áratugnum og
í hundraðum auglýsinga. Hún gafst
þó aldrei upp á gamla draumnum,
leiklistinni, og gaf sér tíma til þess
að sækja leiklistartíma og koma
fram í smáklúbbum á Manhattan i
New York, þar sem hún kom fram
sem söngkonan Chelsea.
Þegar hún varð orðin þreytt á fyr-
irsætubransanum ákvað hún, 23 ára
gömul, að flytja til Los Angeles til
að reyna að gangsetja leikaraferil-
inn fyrir fullt og allt. Þá var hún
meðal hæst launuðu fyrirsæta í
heimi, með þúsund dali í laun á dag.
Eftir 6 mánaða dvöl í kvikmynda-
borginni tókst Kim loks að koma
sér á framfæri með gestahlutverk-
um í vinsælum sjónvarpsþáttaröð-
um eins og Charlie’s Angels og The
Six Million Dollar Man, árið 1977,
og landaði hún meira að segja aðal-
hlutverki í sjónvarpsþættinum Cat
and Dog. Sá lifði reyndar afar stutt.
Hún hélt áfram að leika í sjón-
varpi og tók meðal annars þátt í
endurgerð sjónvarpsverksins From
Here to Eternity árið 1980 og ári síð-
ar kom fyrsta kvikmyndahlutverk-
ið, þar sem hún lék eitt aðahlut-
verkanna í Hard Country.
Árið 1983 reyndist svo vera vendi-
punktur á hennar leiklistarferli.
Hún var reyndar ekkert svo sátt við
þá athygli sem hún fékk á þeim
tíma, eða skort á henni öllu heldur,
og ákvað að fækka fótum fyrir
karlatimaritið Playboy. Þó svo að
það hafi vissulega vakið athygli átti
það ekki beinan þátt í velgengni
hennar það árið. Það var fyrst og
fremst frammistaða hennar sem
Bond-stúlkan Domino í Never Say
Never með Sean Connery og í The
Man Who Loved Women með Burt
Reynolds sem jók hróður hennar
hvaö mest. Með þessum hlutverkum
var hún orðin, loksins, „al-
vöru“leikkona.
Djarft hlutverk
Hún á þó sjálfsagt aldrei eftir aö
leika í jafn áberandi hlutverki og
hún gerði árið 1986 þegar hún ásamt
Mickey Rourke lét allt flakka í 9 1/2
Weeks, mynd sem þrátt fyrir að hafa
fengið aðeins sæmilega dóma, gerði
allt vitlaust í miðasölunni. Greinilegt
var að Kim var eftirsótt hjá kvik-
myndahúsgestum, hvort sem var
heima fyrir eða á alþjóðlegum vett-
vangi. Meðal annarra kvikmynda
sem komu í kjölfarið má nefna Blind
Date, My Stepmother Is an Alien og
vitaskuld Batman þar sem hún lék
ljósmyndarann Vicki Vale.
Á hátindi ferilsins, árið 1989,
leiddi hún hóp fjárfesta sem keyptu
hreinlega smábæinn Braselton í
heimafylkinu Georgia og mun hún
hafa eytt 20 milljónum dala í það
verkefni. Átti það eftir að koma
henni allverulega í koll þar sem
næstu sjö myndir sem hún lék í
fengu litla sem enga athygli kvik-
myndahúsgesta.
Fjórum árum eftir Batman og
Braselton-ævintýrið kom mikið
reiðarslag fyrir hana. Hún hafði
nefnilega lofað að leika aðalhlut-
verkið í mynd að nafni Boxing Hel-
ena og þegar hún neitaði fóru fram-
leiðendur myndarinnar í mál og
dómari úrskurðaði að hún þyrfti að
greiða þeim 8,1 milljón dala í skaða-
bætur fyrir loforðssvikin. Kim varð
í kjölfarið að lýsa sig gjaldþrota en
náði svo að leysa málið með sátt eft-
ir að hafa áfrýjað dómnum.
Stórfengleg endurkoma
í miðri hringiðunni myndaði hún
samband við leikarann Alec Bald-
win og giftust þau árið 1994 og eign-
uðust stúlkubarn ári síðar. Hún
ákvað þá að taka sér hlé frá öllu
saman og vera heima með barnið.
Endurkoma hennar var þó með
þeim mest áberandi sem um getur
þegar hún gaf þeim Kevin Spacey og
Danny DeVito ekkert eftir með
frammistöðu sinni I LA Confidenti-
al. Hún sópaði að sér verðlaunun-
um, þeirra á meðal sjálfum óskam-
um, og virtist allt leika í lyndi á ný.
Hún leikur þvi á ný undir leik-
stjóm Curtis Hanson i 8 Mile, en
hann leikstýrði einnig LA Con-
fidential fyrir rúmum 5 árum. -esá
Dómar
LOTR: The Two Towers ****
„The Two Towers stendur ekki að
baki fyrsta hlutanum hvaó varóar
mikilfengleik. “ -HK
Stella í framboði
„Edda Björgvinsdóttir er bara betri og
glœsilegri en síöast." -SG
Die Another Day ★**
„Þrátt fyrir aö vera of löng er hún
miklu betri en síðasta Bond-mynd og
sýnir aö á nýju árþúsundi er enn pláss
fyrir ofurnjósnara hennar hátignar. “
-SG
Harry Potter og leyniklefinn *★★
„Önnur myndin um galdrastrákinn
knáa, Harry Potter, er betri en sú
fyrsta." -SG
Treasure Planet ***
„Handritshöfundar og teiknarar Disn-
ey hafa búió til eigiö œvintýri sem er
nokkuð vel heppnaö." -HK
The Transporter **
„Myndin ber.þaó meó sér að vera gerð
af mátulegu kœruleysi gagnvart vió-
fangsefninu." -HK
Analyze That
„Þar sem fyrri myndin vann út frá
ansi skemmtilegri hugmynd þá hrjáir
hugmyndaleysi Analyze That." -SG
Væntanlegt
17. ianúar
8 Mile .... Eminem / Kim Basinger
Juwanna Man.........Vivica A. Fox
24. ianúar
Half Past Dead......Steven Seagal
Jackass: The Movie.........Ýmsir
Once Upon a Time... . Robert Carlyle
The Banger Sisters . . Goldie Hawn /
Susan Sarandon
Kim Basinger og Eminem leika feðgin í 8 Miie.