Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Page 37
37
Bjarki ekki meira meö?
Handknattleikslið Vals varð fyrir
miklu áfalli um daginn þegar Bjarki
Sigurðsson missteig sig á æfmgu og er
líklegt að krossbönd hafi slitnað hjá
honum. Ef svo er þá mun Bjarki vænt-
anlega ekki spila meira í vetur sem yrði
mikiö áfall fyrir Valsmenn, enda Bjarki
burðarás í liðinu.
Hann fer í speglun á miðvikudaginn
og að henni lokinni skýrist hvort tíma-
bilinu sé lokið hjá honum.
-HBG
Rafpostur: dvsport@dv.is
Draumat
HVERJIR
hmíhwbb0L
VÍS aB þv
^TSVnv
Islands ^ bo(
skora'’>«t-
U fsr fl,u
Und^6strey£
1eíkjum
611 um
kUHAOEXLDlN
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari:
Sárt að tapa en þessu
er ekki lokið ennþá
„Við náðum einfaldlega ekki
nógu vel saman í vörninni framan
af og það var eins og vantaði alla
færslu og vinnu í henni. Við vor-
um alltaf á eftir en síðan breyttum
við um vörn, komumst inn í leik-
inn og náðum að jafna, 18-18, sem
var í raun mjög góð frammistaða
hjá liðinu. Sóknarleikurinn í fyrri
hálfleik var mjög góður en í síðari
hálfleik getum við sagt að liðið
hafi gert of mikið af mistökum. í
stöðunni 25-25 köstuðum við
gullnu tækifæri til að ná leiknuín
í okkar hendur, þá einum fleiri, og
tókst ekki að skora á þeim tíma.
Spánverjarnir skoruðu aftur á
móti og það er vendipunkturinn í
leiknum. Þar fyrir utan skoruðum
við allt of lítið upp úr hraðaupp-
hlaupum sem við þurfum svo
sannarlega á að halda,“ sagði Guð-
mundur Guðmundsson landsliðs-
þjálfari í samtali við DV eftir leik-
inn við Spánverja í gærkvöld.
„Það hlýtur að vera sárt fyrir
landsliðsþjálfarann að sjá á eftir
sæti í nndanúrslitum mótsins?
„Já, það er sárt, en svona eru
íþróttirnar, annað liðið verður að
tapa og því miður urðum það við.
Við töpuðum fyrir liði sem var
nánast að leika á heimavelli. Það
voru ekki allir í liðinu sem léku
nægilega vel til þess að við næðum
að vinna sigur. Til að vinna Spán-
verjana við þessar aðstæður
þurftu flestir leikmennirnir að
eiga góðan dag en því miður gekk
það ekki eftir. Það þýðir ekki að
hengja haus yfir þessu, þessi leik-
ur er búinn. Nú er bara næsta
verkefni sem við vorum fyrir fram
búnir að setja okkur, en það er að
ná ólympíusæti, og nú er bara að
berjast fyrir því.“
- Var eitthvað í leik spænska
liðsins sem kom þér á óvart?
„í raun og veru ekki en við vor-
um búnir að fara vel yfir leik
þeirra. Það var vitað að hjá þeim
væri valinn maður í hverju rúmi
og við vorum búnir að kortleggja
þá eins og við gátum.“
Markmið liðsins fyrir
keppnina var ólympíusæti. Það
mun enn vera fyrir hendi þótt
svona hafi farið í þessum leik?
„Það lá fyrir en úr því sem kom-
ið var breyttust markmiðin fyrst
liðið var komið í baráttuna um
sæti í undanúrslitum. En eins og
ég segi þá vorum við í keppninni
með þau markmið að komast á
ólympíuleikana og við eigum
möguleika á því ennþá. Nú er að
safna kröftum og yfirfara það sem
við getum bætt og mæta sterkir tO
leiks."
- Verður ekki erfitt að fá ein-
beitinguna í liðið eftir ósigurinn
gegn Spáni?
„Jú, það verður það örugglega.
Það er sárt að tapa en aðalatriðið
er að þetta er ekki búið. Við verð-
um að berjast áfram og munum
gera það að sjálfsögðu.“
- Hvað er það sem þú ert
ánægðastur með í keppninni til
þessa þegar litið er nú yfir far-
inn veg?
„Það sem hefur ekki verið nægi-
lega gott er að liðið hefur vantað
stöðuðleika í vöm og sókn og það
Gústaf Bjarnason var eölilega vonsvikinn að leikslokum enda íslenska liðið
ekki fjarri því að tryggja sér sæti í undanúrslitum HM. DV-mynd Hilmar Þór
er okkar stærsta vandmál að mínu
mati. í raun veru hefur vörninni
svo ekki tekist að ná vel saman og
fyrir vikið höfum við ekki skorað
nægilega mikið upp úr hraðaupp-
hlaupum eins og við höfum gert
áður. Ég ætla ekki að segja meira
um þetta á þessari stundu. Þáð em
vonbrigði að tapa leiknum við
Spánverja enda höfðum við mögu-
leika á að komast í undanúrslit á
heimsmeistaramóti. Málið snýst
samt um það að halda áfram og
sýna karakter í það, koma til baka
og þjappa okkur saman til að ná
því markmiði. Við tökum á Rúss-
unum og búum okkur undir þann
leik af kostgæfni og svo verðum
við bara að sjá til,“ sagði Guð-
mundur Guðmundsson landsliðs-
þjálfari að lokum við DV.
%ffEnskib°*tínn
11 ^'tnattspyrnustjóri.
ÍHyrIÍ ÍSLA,">,
AESTl zo
UÚGAL FRA ■ Sem
tilefn' tH .
eru glísUM ver6 s(g fir
itf91 hv::1sTs«» f*r
1 UUnU! Motur fer6»vtn»fn9
4 HM hlS __TtiDWMl
pú átt io-.
Glssileg verðlaun
“ ,ls
,«m*0"**r*
VB «».•«“'X
SfSS
<
«
'C
t
C
ALLTUMHMÍ •»*£
HANDBOLTA v m
ancLbólta