Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2003
I>V
] Fréttir
Hátt í 20 milljónir burðarpoka fara út um dyr matvöruverslana á ári hverju:
Verslanir græða
fæstar á pokunum
Allir á 15 krónur nema einn
Burðarpokar helstu matvöruverslana landsins kosta 15 krónur en þar af renna 7 krónur í Pokasjóö. Kaupmenn
græða yfirleitt ekki á buröarpokum þó álagning sé frjáls. Þeir sem ekki eru í samstarfi um Pokasjóð og selja pokann
á 15 krónurgeta hins vegar hagnast ágætlega.
Burðarpokar undir vörur sem keypt-
ar eru í matvöruverslunum kosta 15
krónur í þeim verslunum þar sem DV
kannaði verðlag fyrr i vikunni. Ein
undantekning er reyndar á þessu en í
Fjarðarkaupum í Hafharfirði kostar
burðarpokinn 8 krónur. Verslanir sem
DV heimsótti voru 10-11, 11-11, Nettó,
Fjarðarkaup, Samkaup, Europris, Nóa-
tún, Krónan, Bónus og Hagkaup.
Allar ofantaldar verslanir, nema
Fjarðarkaup, greiða 7 krónur af verði
hvers poka í Pokasjóð verslunarinnar
sem áður hét Umhverfissjóður verslun-
arinnar. Pokasjóður skiptist í tvær
deildir, sameignarsjóð og séreignar-
sjóð. í sameignarsjóð renna 60 prósent
af þessum 7 krónum, eða 4,20 krónur.
Er úthlutað úr sameignarsjóðnum í
nafiii Pokasjóðs einu sinni á ári eða ofl-
ar ef svo ber undir. í séreignarsjóð
renna hins vegar 40 prósent af framlagi
verslunarinnar, eða 2,80 krónur af
hverjum poka. Úr séreignarsjóðnum
úthlutar hver verslun eða verslunar-
fyrirtæki, eins og Bónus gerði á dögun-
um, þegar Bamaspítali Hringsins fékk
8 milljóna króna lækningatæki.
80 milljónir í ár
Einasta markmið Pokasjóðsins, sam-
kvæmt reglugerð, er „að veita styrki til
verkefna, sem horfa til almannaheiila,
svo sem umhverflsmála, menningar-,
íþrótta- og heilbrigðismála“. Á þessu
ári er gert ráð fyrir að 80 milljónum
króna verði úthlutað úr sjóðnum til
verkefna um allt land en fyrir hækkun
framlaga í sjóðinn námu árlegar út-
hlutanir um 30 milljónum króna á ári.
Samtals hefur um 220 milljónum króna
verið úthlutað úr sjóðnum. Þetta er
framlag viðskiptavina verslananna en
þegar lagt var upp með hugmyndina að
Pokasjóði gengust kaupmenn inn á þá
hugmynd að þeir gæfu eftir álagningu
af burðarpokunum og andvirði hennar
rynni til almannaheilla.
Framlög í Pokasjóð tvöfólduðust i
árslok 2001 en framlag í sjóðinn af
verði hvers poka var áður 3,50 krónur.
Við hækkunina hækkuðu langflestir
kaupmenn pokana í 15 krónur en þess
ber að geta að álagning á burðarpoka
er frjáls.
Vildum ekki hækka
Flestar helstu matvöruverslanir
landsins og ÁTVR eru með í samstarf-
inu um Pokasjóð. Fjarðarkaup í Hafn-
arfirði eru hins vegar ekki með í þessu
samstarfi.
„Það stóð til að vera í þessu sam-
starfi en við vildum ekki hækka pok-
ana í 15 krónur og seljum þá á 8 krón-
ur. Þama vorum við fyrst og fremst að
hugsa um hag viðskiptavina. Við ger-
um okkur grein fyrir að peningamir
sem fara í Pokasjóð skila sér til baka í
formi framlaga til ýmissa góðra mála.
En við látum líka gott af okkur leiða -
höfum reglulega gefið myndarlegar
Sigurður Björgvinsson, skólastjóri
Viðisstaðaskóla, segir fullyrðingu fóð-
ur í DV á þriðjudag um rítalingjöf til
handa bömum hans vera fjarstæðu.
Skólinn úthluti ekki lyfjum eins og
hann fullyrði og lyfiagjöf í skólanum er
að sögn skólastjóra í höndum hjúkrun-
arfræðings sem er starfsmaður heilsu-
gæslunnar en ekki skólans. Öll lyfjagjöf
í skólanum sé því á ábyrgð heilsugæsl-
unnar og fari í einu og öllu eftir reglum
sem landlæknisembættið hefur sett.
Sigurður segist ekki geta setið undir
því sem fram kom í viötalinu við Jón
fjárhæðir til skógræktar í Hafharfirði,"
sagði Gísli Sigurbergsson í Fjarðar-
kaupum við DV.
18-20 milljónir poka
Samkvæmt upplýsingum sem DV
hefur aflað sér er ekki fráleitt að áætla
að um 18-20 milljónir burðarpoka fari
árlega út um dyr versl-
ana á landinu öllu. Ef
þeir era allir seldir
er heildarveltan á
ári hátt i 300 millj-
ónir króna. Eftir
því sem DV
kemst næst fær
Pokasjóður
framlag frá ríf-
lega 6 af hverj-
um 10 seldum
pokum.
En það er
mismikið, og
oftast lítið,
upp úr poka-
sölunni að
hafa. Kaup-
menn græöa
ekki á því að
selja burðar-
poka, enda
mun ekki
vera lagt upp
í þá sölu
með hagnað að
markmiði. Viðmæl-
andi blaðsins full-
yrti að gerðu menn
góða samninga um
kaup á pokum
mætti hafa eitthvað
upp úr pokasölunni þó ekki væri um
verulegar fjárhæðir að ræða. En þá
þyrfti að halda vel utan um rýmun-
ina. Einn viðmælandi DV fullyrti
reyndar að álagning á burðarpokum
væri mjög myndarleg en DV hefur
ekki getað fengið þá fullyrðingu stað-
festa. Viðmælendur DV vora hins
vegar sammála um að rýmun á burð-
arpokum væri gríðarleg; viðskipta-
vinir tækju hreinlega mun fleiri
Ásgeir Ríkharðsson því það sé á
ábyrgð foreldranna að samþykkja lyfia-
gjöfina og því krefjist hann afsökunar-
beiðni.
Djúpt í árinni tekið
Jón Ásgeir, faðir þriggja bama í
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði, lýsti í
samtali við DV samskiptum sínum við
skólayfirvöld varðandi lyfiagjöf bama
sinna. Hann fúrðar sig á hvers vegna
notkun rítalíns fari stöðugt vaxandi
hér á landi meðal grunnskólabama.
Jón Ásgeir segist því hafa verið á móti
poka með sér úr versluninni en þeir
greiddu fyrir.
Krónur og aurar
Ekki er óalgengt að innkaupsverð
matvöruverslunar á hverjum inn-
kaupapoka sé í kringum 5 krónur. Ef
pokinn er seldur á 15 krón-
ur þá fara um 2,90 krónur
af þeirri fjárhæð í virðis-
aukaskatt, 7 krónur fara
í pokasjóðinn og þá eru
5,10 krónur eftir. Það er
því ekki eftir miklu að
slægjast. Pokamir
kalla á umsýslu
starfsmanna sem
þurfa að hlaða á
statíf við af-
greiðslukassana.
Svo er ótalin mik-
il rýmun eins og
áður segir.
En ekki
kaupa allir
poka hér inn-
anlands. Burð-
arpokar
sumra versl-
ana, t.d.
Baugs, eru
keyptir er-
lendis frá.
Samkvæmt
upplýsingum
DV kostar hver
burðarpoki hátt í 4
krónur stykkið.
Það þýðir að á
þeim bæ hafi
menn um krónu
meira úr hverjum poka en í dæminu
hér að ofan. En það er skammgóður
vermir því að sögn Guðmundar Mart-
einssonar, framkvæmdastjóra Bónuss,
er rýmunin mikil.
„Það er með ólíkindum að hlusta á
þessa umræöu um plastpokana og full-
yrðingar í þá vera að við séum að
græða einhver ósköp á þessu - þetta
jaðri við glæpastarfsemi hjá matvöra-
verslununum. Sala burðarpoka er rek-
þessari rítalíngjöf frá upphafi.
„Ég ætlaði mér ekki að vera með
persónulegar árásir á neinn í Víði-
staðaskóla þó eflaust hafi mátt skilja
orð mín svo. Ég vil þó fá að vita ástæð-
umar fyrir því af hverju er verið að
ávisa lyfjum á böm þar sem engin veit
hveijar niðurstöðumar era meðan þau
era á h'fjum. Ég hefði viljað að læknir
skoðaði bamið 20 mínútum eftir að það
fengi lyfið, hjartslátt og allt saman, til
að vita hvemig áhrif lyfið hefur. Það
hefur ekki verið gert.“
Jón Ásgeir segir að svo hafi verið
in í kringum núllið hjá okkur. Það er
ósköp lítið upp úr þessu að hafa þegar
allur tilkostnaður, rýmun og framlag í
Pokasjóð er talið til. Og ekki má
gleyma því að það er frjáls álagning á
burðarpokum. Viðskiptavinir Bónuss
hafa lagt mjög góðu málefni lið en
kannast ekki við að það sé mikið á
þessu að græða,“ sagði Guðmundur við
DV.
Auglýsingar á móti
Kaupmenn með minni umsvif borga
gjaman meira en 5 krónur fyrir hvem
poka og séu þeir með í samstarfbiu um
Pokasjóð eru þeir í raun að borga með
hvetjum burðarpoka.
Af þeim pokum sem DV keypti við
verðkönnun sl. mánudag mátti sjá að
sumar verslanir mæta kostnaði vegna
pokasölunnar með því að selja auglýs-
ingar á pokana. DV er ekki kunnugt
um hvað þessar auglýsingar kosta.
Þannig má t.d. sjá Chiquita-banana
auglýsta á burðarpokum verslananna
11-11 og Kellogg’s-morgunkom á
annarri hlið burðarpokans úr Fjarðar-
kaupum. Með þessum hætti geta kaup-
menn komið til móts við rýmun.
Á burðarpokum Bónuss era við-
skiptavinir minntir á aö þegar þeir
kaupa pokann séu þeir að styrkja
Bamaspítala Hringsins til tækjakaupa.
Á fæstum pokanna má sjá merking-
ar sem gefa til kynna hvort 7 krónur af
söluandvirðinu renni í Pokasjóð.
Misjafnir siðir
En dæmi eru um verslanir sem selja
burðarpoka á 15 krónur án þess að
framlög renni í Pokasjóð. Þá má
kannski hagnast eitthvað á sölunni.
Húsasmiðjan selur töluvert af plastpok-
um á 15 krónur stykkið en er ekki með
í samstarfinu um Pokasjóð. Byko er
ekki með í Pokasjóði en þar greiða við-
skiptavinir hins vegar ekkert fyrir pok-
ana, þeir era ókeypis.
Þá era ónefndar ýmsar smærri
verslanir og sérverslanir en engin
regla er á þvi hvort pokinn er ókeypis
eða hvort greitt er fýrir hann. -hlh
komið að sér hafi ofboðið er annar
drengurinn var hættur að þora í skól-
ann. Hann segist því hafa átt fúnd með
skólayfirvöldum í Víðistaðaskóla á
fimmtudag i síðustu viku þar sem
ákveðið hafi verið að hætta lyfiagjöf-
inni og reyna að beita öðrum úrræð-
um.
„Það getur vel verið að ég hafi að
einhverju leyti tekið fulldjúpt í árinni
gagnvart skólanum og orðað þetta
óheppilega og sjálfsagt er að biðjast af-
sökunar á því,“ segir Jón Ásgeir Rik-
harðsson. -HKr.
Afgangurinn af plöntunum
Ríkislögreglustjóri segir að eyða
hefði átt pottunum og því sem eftir
var í þeim eftir að stilkar með
blöðum voru skornir af.
Ríkislögreglust j óri:
Hasspottunum
átti að eyða
í reglum um haldlagningu og
meðferð sönnunargagna, sem Ríkis-
lögreglustjóri gaf út árið 1999, segir
m.a. hvemig eyða skuli haldlögð-
um munum sem heimilt er að
farga. Þar eru einnig ákvæði um
hvemig framkvæma skuli eyðingu,
t.a.m. á afskurði eða pottum með
mold eins og farið var með á sorp-
haugana á Blönduósi í síðustu
viku.
Eins og fram kom í DV í gær
voru stilkar og blöð af 380 hass-
plöntum send suður til tæknideild-
ar lögreglunnar I Reykjavík eftir
að hald var lagt á þær í pottum á
tveimur sveitabýlum í Húnavatns-
sýslum. Svokallaður afskurður, það
er pottarnir sjálfir með rótum og
stubbum af því sem eftir var, fór
hins vegar á sorphaugana á
Blönduósi og var farið að vekja at-
hygli sumra ibúa staðarins. Reynd-
ar tóku einhverjir potta með sér
heim.
Samkvæmt upplýsingum ríkis-
lögreglustjóra er ljóst að sam-
kvæmt reglunum átti að farga af-
skurðinum með því að fara í sorp-
eyðingu hjá viðurkenndum aðila.
Embættið hefur óskað eftir upplýs-
ingum um hvemig staðið var að
fórgun pottanna og þeirra hald-
lögðu muna sem i þeim voru. -aþ
ísafjarðardjúp:
Valt í Mjóafirði
Flutningabíll valt í Mjóafirði í
ísafjarðardjúpi um klukkan átta í
gærkvöld. Talið er að rekja megi
ástæður óhappsins til hálku og
þess að afar hvasst var á þessum
slóðum. Bílstjórinn slapp ómeidd-
ur, en hann var á leiðinni frá ísa-
firði suður til Reykjavíkur.
Skemmdir á bílnum hafa enn ekki
verið kannaðar, en það átti að gera
þegar birti nú í morgunsárið. -sbs
Veðurklúbburinn:
Miklum snjó
hleður niður á
skömmum tíma
Veðrið í febrúar verður rysjótt;
sunnan- og norðanáttir til skiptis.
Snjórinn fær aldrei að tolla almenni-
lega, eða við getum kallað það að bloti
inn á milli.
„Við eigum ekki von á neinu stór-
viðri framan af mánuðinum og jafnvel
slampast hann svona fram og til baka
út febrúar. Að vísu er möguleiki á að
hann komi með sæmilega hugdjarfan
skell um miðjan mánuðinn. Við höfum
tilfinningu fyrir miklum snjó sem kem-
ur á stuttum tíma en getum ekki alveg
staðsett hann - kannski eins og fyrr er
sagt að hann komi um miðjan febrúar.
Ef ekki þá aukast líkumar á að hann
bresti á með hundleiðinlegu norðan-
gjálfri, með stóra G-i, 3. mars, er
góutunglið kviknar i norðnorðaustr-
inu,“ segja þeir Veðurklúbbsmenn. -hiá
Foreldri sem ofbýður rítalínnotkun skólabarna:
Ekki ætlunin að ráðast á neinn
- biðst afsökunar á óheppilegu orðalagi, segir Jón Ásgeir Ríkharðsson
fjarðarkaup
Sér á parti
/ Fjarðarkaupum kostar hver burðar-
poki 8 krónur en verslunin greiðir
ekki í Pokasjóð.