Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Page 19
19
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2003_______________________
DV ________________________________________________________________ Menning
Flýgur upp og út úr myndinni til hœgri
í gær hlaut Ingibjörg Haraldsdóttir íslensku
bókmenntaverðlaunin fyrir ljóðabókina Hvar
sem ég verð. Kom það engum aðdáanda hennar
á óvart og þó eru þeir margir því bækur hennar
hafa dreifst víða um íslenskt samfélag og ratað
til stærri og margvíslegri hópa fólks en algengt
er með nútímaljóð. Einnig voru gagnrýnendur
hjartanlega sammála um verðleika ljóðanna.
Draumanna minnist ég með trega
Það sem hefur einkennt ljóð Ingibjargar frá
fyrstu tíð er hve einlæg þau eru og hvað hún er
í raun og veru opinská við lesendur sína um ævi
sina og persónulegar tilfmningar. í ljóðum henn-
ar fylgjum við ákveðnum einstaklingi - konu -
nánast frá þvi hún fæðist í kjallaraíbúð við
Snorrabraut í Reykjavík „einn októberdag fyrir
löngu“ í fyrstu bókinni, Þangað vil ég fljúga
(1974), og þar til hún, tvískilin, tveggja barna
móðir sem horfst hefur í augu við dauðann situr
við niðandi vötn tungunnar og veltir fyrir sér
gjöf skáldskaparins í lokahluta nýju verðlauna-
bókarinnar.
Bókmenntir
„En ég vona að hún sé ekki bara ég,“ segir
Ingibjörg í viðtali um þessa konu í ljóðum sín-
um, og raunin hefur orðið sú að einmitt með því
að koma eins nálægt sjálfri sér og hún gerir á
einlægan og þó ævinlega orðvaran hátt hefur
hún orðað líf og hugsanir sinnar kynslóðar
kvenna betur en nokkur annar. Þetta var fyrsta
kynslóð kvenna sem taldi víst að hún væri bor-
in til að sigra, verða gerandi og gera allt sem
hana langaði til. En reyndin varð ekki sú, og þá
er spurningin hvers er að sakna - eins og segir
í „Nostalgíu" I Nú eru aðrir tímar (1989): „Ég
sakna ekki þess sem var / ég trúi ekki á fegurð
/ fortíðarinnar / en draumanna / minnist ég
með trega..."
Mikilvirkur þýöandi
Ingibjörg lærði kvikmyndagerð í Moskvu eftir
stúdentspróf og dvaldi þar í sex ár eins og viða
sést á ljóðum hennar. í fyrstu bókinni er þó
Kúba nálægari því þar orti hún flest ljóð henn-
ar. Þangað fluttist Ingibjörg frá Moskvu og bjó
þar einnig í sex ár áður en hún
kom alkomin heim. Ingibjörg hef-
ur ekki nýtt sér menntunina sem
hún fékk í kvikmyndagerð - nema
ef myndvísi ljóða hennar á þeirri
skólun eitthvað að þakka - en
tungumálakunnáttan hefur orðið
henni drjúg; hún er afkastamikill
þýðandi úr rússnesku á íslensku
og hefur einnig þýtt talsvert úr
spænsku. Hún hlaut einmitt
Menningarverðlaun DV í bók-
menntum árið 1988 fyrir þýðingu
sína á Fávitanum eftir Dostójev-
skí.
Ingibjörg skipuleggur hverja
bók þannig að hún segi ákveðna
sögu eða reki rás atvika. Fyrsta
bókin hefst á bernskuljóðum sem
gefa knappar, lifandi myndir af
stelpulífi í borg og sumardvöl í
sveit. Ljóð frá Kúbu taka við af
bemskuljóðunum, og það kemur
klassískur tónn inn i þau með
heimþránni sem þau eru mettuð af
og sem var svo algengt yrkisefni 19. aldar skálda.
Hvað eftir annað dreymir hana að hún sé komin
heim og hún syngur af gleði, en þegar hún vakn-
ar er hún „skoplega ein / og svo langt i burtu“.
í upphafl næstu bókar, Orðspor daganna
(1983), er svo komið að ljóðmælanda líður eins
og strandaglópi á þessari framandi, suðrænu sól-
skinseyju, og hún fer heim. En heimkoman verð-
ur henni vonbrigði, og í rauninni heldur hún
áfram að vera útlendingur í ljóðum þessarar
bókar.
íhugul en ögrandi
í Nú eru aðrir tímar (1989) fullkomnar Ingi-
björg aðferð sína við að orða hugsanir kvenna af
sinni kynslóð og lífssýn þeirra í ljóðum, muninn
á hinu sæla innhverfa lífi og því úthverfa í ein-
manalegu úthverfinu, tilbreytingarleysið og
stöðnunina, óttann við ofbeldið en líka við ást-
ina og hverfulleikann. Síðustu ljóðin í bókinni
daðra við dauðann, og í næstu bók, Höfði kon-
unnar (1995), er stundum eins og ljóðmælandi sé
í raun og veru dáinn og búi í borg sem sefur
„djúpt undir mjöllinni hvítu": „þar stendur tím-
inn kyrr / þar lifir aðeins það / sem löngu er
dáið“.
Hápunktur bókarinnar er ljóðaflokkurinn
Höfuð konunnar sem hefst á markvissri og
kíminni vísun í upphafsljóðlínuna í fyrstu bók
Sigfúsar Daðasonar:
Höfuó konunnar er ekki þungt
Höfuö konunnar er
mjallhvítur
dúnmjúkur
hnoöri
Höfuö konunnar siglir
á skœrbláum sunnudagshimni
og hlœr
„Þetta höfuð hans Sigfúsar sem var svo þungt
. . . mér fannst eiginlega kominn tími til að
storka því aðeins," segir hún í
viðtali. Höfuð konunnar hend-
ist á fleygiferð um veröldina,
týnir áttum, dettur, er geymt
milli fóta um hríð, hengt út á
snúru á hárinu en dansar svo
á Klambratúni „undir blind-
fullu tungli" við undirleik
„kjagandi / kroppandi / garg-
andi / tónsmíða haustsins".
Nýja bókin, Hvar sem ég
verð, er verðugt framhald
eldri bókanna. Þetta er íhugul
ljóðabók. Konan sem talar þar
er ekki lengur á valdi ástriðna
né minnimáttarkenndar sem
toguðu yngri konuna stund-
um á milli sín. Þetta er kona
sem hefur fundið sinn stað í
veröldinni - þó að hún geti
enn fundið til og saknað.
Áhrifamikil eru minninga-
Ijóðin, bæði úr hennar eigin
lífi og þegar hún setur sig í
spor ömmu sinnar í Bolungar-
vík. Eins og pólska nóbelsskáldið Wislawa Szym-
borska yrkir Ingibjörg göldrótt kattakvæði, og
gefur lesendum sínum - kannski sérstaklega
konum - orð sem losa þá úr viðjum veruleikans
og sleppa þeim jafnvel algerlega lausum:
Konan í speglinum
vindur upp á sig
snýr baki í mig
þenur herðablööin
blakar þeim hœgt
hefst á loft
flýgur
upp og til hœgri
úr úr myndinni
ofurhœgt
þaö síöasta sem ég sé
er skórinn
á vinstri fœti
Silja Aðalsteinsdóttir
BORGARLEIKHUSIÐ
Leikfeiag Reykjavíkur
STÓRA SVIÐ
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
rtir Sálina og Karl Agúst Úlfsson
f
I k
kvöld kl. 20
Lau. 1/2 kl. 20. UPPSELT
Fi. 6/2 kl. 20
Fö. 7/2 kl. 20
Lau. 8/2 kl. 20
Fö. 14/2 kl. 20
Lau. 15/2 kl. 19, ath. breyttan sýn.tíma
Lau. 22/2 kl. 20
SÖLUMAÐUR DEYR
e. Arthur Miller
Su. 2/2 kl. 20
Su. 9/2 kl. 20
Su. 16/2 kl. 20
Fi. 20/2 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HONKl UÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles ogAnthony Drewe
Gamansöng/eikurfyrir allajjölskylduna.
Su. 2/2 kl. 14
Su. 9/2 kl. 14
Su. 16/2 kl. 14
FÁAR SÝNINGAR EFTIR
NYJA SVIÐ
MAÐURINN SEM HELT AÐ
KONAN HANS VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélene Estienne
Frumsýning lau 1/2 kl. 20 UPPSELT
Su. 2/2 kl. 20 UPPSELT
Fö. 7/2 kl. 20
Lau. 8/2 kl. 20
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR
Frekar erótískt leiktrit íprem þáttum
e. Gabor Rassov
í kvöld kl. 20
Fi. 6/2 kl. 20 AUKASÝNING
SÍÐASTA SÝNING
KVETCH eftir Steven Berkojf
1 SAMSTARFI VIÐ Á SENUNNI
Su. 9/2 kl. 20
Su. 16/2 kl. 20
Fö. 21/2 kl. 20
ÞRIÐJA HÆÐIN
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Su. 16/2 kl. 20
Fö. 21/2 kl. 20
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakesþeare
í SAMSTARFI VIÐ VESTURPORT
I kvöld kl. 20 UPPSELT
Lau 1/2 kl. 20 AUKASÝNING
Fi 6/2 kl. 20 UPPSELT
Fö 14/2 kl. 20
TÍBRÁ: Tónlistin byggir brýr
Fiðlusnillingurinn Szymon Kuran og Júlíana
Rún Indriðadóttir, píanó, flytja virtúósaverk
eftir Wieniawski og eitt af frægustu fiðluverkum
Szymanowski (flutt í fyrsta sinn í heild á Islandi)
auk verka eftir flytjandann sjálfán, Szymon Kuran.
Miðasala hafin.
Verð kr. 1.500/1.200.
Óður til Etlyjar - Endurfluttir vegna
fjölda áskorana - Nokkur sæti laus
Guðrún Gunnarsdóttir syngur vinsælustu lög
Ellyjar Vilhjálms ásamt valinkunnum
tónlistarmönnum úr fremstu röð, Eyþóri
Gunnarssyni, Borgardætrum, Sigurði Flosasyni,
Eyjólfi Kristjánssyni, Stefani Hilmarssyni o.fl.
Miðasala hafin.
Verð kr. 2.000.
Hin smyrjondi jómfrú
Naerondi leiksýning fyrir iíkoma og sól.
Sýnt í Iðnó:
Síðdegissýningar
Lau. 2. febr. Id. 15
Sun. 9. febr. kl. 15
Sun. 16. febr. kl. 15
Sun. 23. febr. Id. 15
Kvöldsýningar
Lau. 1. febr. kl. 20
Sun. 2. febr. kl. 20
Sun. 9. febr. kl. 20
Sun. 16. febr. kl. 20
Sun. 23. febr. kl. 20
"Erótískur dans rœkjubrauðsneiðar og
lifrakœfubrauðsneðar var sérlega
eftirminnilegur og svo ekki sé minnsl á litlu
rœkjunna sem sveiflaði sérfimlega upp og
niður tilfmningaskalann. " HF, DV
SKJALLBANDALAGIÐ KYNNIR
M if1
IM
' &
MÐNO
Fös. 31. jan. kl. 21, örfá sæti laus.
Fös. 7. febr. kl. 21, nokkur sæti laus
Lau. 8. febr. kl. 21
Fös. 14. febr. kl. 21
Lau. 22. febr. kl. 21
Fös. 28. febr. kl. 21
Miðasalan í Iðnó er opin frá 10-16 alla virka daga, 14-17 um helgar og frá kl. 19 sýningardaga.
Pantanir í s. 562 9700. Ósóttar pantanir eru seldar 4 dögum fyrir sýningar.
' ’ ' é*
fm90Jf99.9
eftir Sálina hans Jóhs míns og Karl Ágúst Úlfsson
Miðasala 568 8000
BORGARLEIKHUSIÐ
Leiktelag Revkjavíkur • íslenski dansfiokkurinn
SaíiH hdhs Jóns mms