Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2003, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003
DV
Fréttir
Jarðboranir hagnast:
Fá aukin verkefni
á Azoreyjum
Jarðboranir og dótturfélög skil-
uðu um 136,2 milljóna króna hagn-
aði i fyrra miðað við 15,4 miiljónir
árið á undan. Fyrirtækið vann við
boranir víða um land og rekur fyr-
irtæki á Azoreyjum. Þar liggja nú
fyrir samningar um ný verkefni
fyrir bæjarfélög og aðra aðila fyrir
um 100 milljónir króna og unnið er
að samningagerð við orkufyrirtæk-
ið GeoTerceira um rannsóknarbor-
anir á háhitasvæði á eyjunum.
Bent Einarsson, framkvæmda-
stjóri Jarðborana, segir að góður
árangur hafi náðst í verkefnum
fyrirtækisins, ágætur vöxtur hafl
verið í starfseminni og speglast
aukin umsvif félagsins í veltuaukn-
ingu sem nemur yfir 20% milli ára.
Að sögn Bents sýna stærstu
orkufyrirtæki landsins vaxandi
áhuga á að framleiða rafmagn með
jarðvarmaorku. Sýnt þyki aö þær
breytingar sem nú eigi sér stað
innan og utan orkumarkaðarins
muni skapa Jarðborunum mjög
áhugaverða möguleika á komandi
árum. -JBP
Opinberir aðilar fá slæma einkunn í nýrri könnun SA:
í vanskilum og neita
að greiða dráttarvexti
- óverjandi framkoma við fyrirtæki, að mati SA
Opinberir aðilar hafa verið í van-
skilum við rúm 19% fyrirtækja, þar
af oft við um 5% þeirra. í 61% tilfella
hafa opinberir aðilar neitað að
greiða dráttarvexti. Er Samtökum at-
vinnulífsins kunnugt um dæmi þess
að opinberir aðilar hóti að rifta við-
skiptum við fyrirtæki krefjist þau
réttmætra dráttarvaxta vegna van-
skila. Þetta kemur fram í könnun
sem Samtök atvinnulífsins létu gera
í janúar og náði til 1350 fyrirtækja.
í könnuninni kemur fram að um
helmingur fyrirtækjanna í úrtakinu
er ekki í teljandi viðskiptum við op-
inbera aðila. Því megi gera að því
skóna að þegar um veruleg við-
skipti er að ræða séu opinberir aðil-
ar í vanskiium í um 40-50% tilvika.
Skiptingin er nokkuð jöfn milli rík-
isvaldsins og stofnana þess annars
vegar og sveitarfélaga og stofnana
þeirra hins vegar. Þó virðast van-
skil eilítið algengari hjá ríkinu.
Um næstu áramót á að taka gildi
hér á landi tilskipun Evrópusam-
bandsins, 2000/35/EB, um baráttu
gegn greiðsludrætti í viðskiptum.
Rökin fyrir tilskipun um þetta efni
eru m.a. þau að fjórðung gjaldþrota
hjá fyrirtækjum innan ESB má
rekja til greiðsludráttar af hálfu
annarra fyrirtækja og opinberra að-
ila. í kynningarriti framkvæmda-
stjórnar ESB er sérstaklega vísað til
slælegrar frammistöðu opinberra
aðila. Tilskipun þessi mun ekki
hafa teljandi áhrif hér á landi þar
sem íslensk lög hafa þegar að geyma
ákvæði um greiðslu dráttarvaxta
vegna vanskila. Segir í frétt á vef
Samtaka atvinnulífsins að ótvírætt
sé að opinberir aðilar njóti þar
engra undanþága og framkoma
þessi sé þvi algerlega óverjandi.
Svör bárust frá 650 fyrirtækjum í
könnininni sem þýðir að svarhlut-
fallið er 48 prósent.
„Það er náttúrlega óverjandi að
opinberir aðilar séu að greiða reikn-
inga seint og illa og hóta því að
borga ekki dráttarvexti eins og aðrir
þurfa að gera. Það er ekki hægt að
afsaka slíka framkomu á nokkurn
hátt,“ sgði Vilhjálmur Þ. Vilhjáims-
son, formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga, um könnunina þegar
DV ræddi við hann í morgun.
Vilhjálmur sagði vanskil hafa
viljað loða við heilbrigðisþjónust-
una en hann sat í stjórn Borgarspít-
alans í mörg ár. Hann segist hafa
haldið að slík háttsemi tilheyrði lið-
inni tíð. Hann segist hins vegar
ekki hafa heyrt um vanskil fyrir-
tækja á vegum borgarinnar.
„Ég dreg niðurstöður könmnun-
arinnar ekki i efa og það hlýtur að
vera sérstakt viðfangsefni hjá opin-
berum aðilum að þeir hagi sér eins
og almennilegt fólk,“ sgði Vilhjálm-
ur -hlh
—
DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJÁNSSON
Bíófrumsýning í Keflavík
Barna- og fjölskyldumyndin Didda og
dauöi kötturinn var frumsýnd í Kefla-
vík í gærkvöld og var fullt hús. Fögn-
uðu frumsýningargestir í lokin. Fyrir
miöri mynd er áðalleikkonan, Kristín
Ósk Gísladóttir. Meö henni á mynd-
inni eru meöal annarra leikararnir
Helga Braga Jónsdóttir og Steinn Ár-
mann Magnússon.
Dómsmálaráðuneyti endurskoðar reglur:
Hertar reglur um
meðferð vórslufjár
- í kjölfar Holtsmálsins og nýrrar kæru
Í Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu
I Verð á mann frá 19.800* kr.
{ þegar bókað er á WWW.ÍCelandaÍr.ÍS
I *lnnifalið: Flug og flugvallarskattar
ICELANDAIR jfm
Dómsmálaráðuneytið
vinnur nú að endurskoð-
un reglugerðar um fast-
eignaviðskipti. Einnig
fyrirhugar ráðuneytið
endurskoðun laga sem
gilda þar um. Málefni
eins fasteignasala eru nú
til rannsóknar hjá lög-
reglunni í Reykjavík.
Lagðar hafa verið fram þrjár kær-
ur af mismunandi toga á hendur
honum.
„Við reynum að fylgjast með
málum af þessu tagi, ef þau koma
upp, og aðstoða eftir bestu getu,“
sagði Magnús Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Félags fasteigna-
sala. Hann sagði dapurlegt þegar
slíkt kæmi upp, fyrst sl. haust
vegna fasteignasölunnar Holts i
Kópavogi og svo aftur núna.
„Nú er verið að athuga reglu-
gerðina, sem grunduð er á lögum
um fasteigna - og skipasölu frá
1997 og jafnframt er stefnt að laga-
breytingu. Sú vinna er í gangi hjá
dómsmálaráðuneytinu með ráð-
gjöf frá Félagi fasteignasala.
Magnús sagði hugmynd-
ir að breytingum á reglu-
gerðinni ekki fullmótaðar,
en þær yrðu væntanlega
tilbúnar eftir viku til hálf-
an mánuð. Endurskoðun
sjálfra laganna frá 1997
væri síðan á döfínni.
„Ég er að vona að það
felist einhver réttarbót í
þessu,“ sagði Magnús. „Það er
ófremdarástand að svona slys
skuli geta gerst. Þau hafa ýtt þess-
ari endurskoðun á reglugerð og
lögum af stað. „
Magnús sagði að endurskoðun-
in myndi taka á atriðum um með-
ferð vörslufjár sem fasteignasalar
hefðu í fórum sínum. „Það verða
hertar reglur varðandi að þeir
geti ekki valsað með þessa pen-
inga,“ sagði hann. „Ég á ekki von
á að þetta verði beinlínis tekið úr
höndum fasteignasala, enda eru
flestir þeirra famir að láta fjár-
vörslufyrirtæki, svo sem banka
og verðbréfasjóðina, sjá um upp-
gjör fyrir sig.“ -JSS
Stuttar fréttir
EB styrkir rannsókn
Evrópusamband-
ið hefur ákveðið að
styrkja alþjóðlegt
rannsóknarverkefhi
um Suðurlands-
skjálftana sumarið
2000 um rúma 1,1
milljón evra, eða
rúmar 90 milljónir
króna. Er þetta meö stærstu rann-
sóknarverkefnum sem íslendingar
hafa leitt á sviði jarðeðlisvísinda.
Fyrsti fundur verkefnisins verður í
Reykjavík 24.-26. febrúar. Ragnar
Stefánsson er verkefnisstjóri. Mbl.
greindi frá.
Undirritun í mars
Fyrir stjómarfundi Landsvirkjun-
ar í dag liggur tillaga um að sam-
þykktur verði samningur við
ítalska verktakafyrirtækið Impreg-
ilo um gerð stíflu og aðrennslis-
ganga Kárahnjúkavirkjunar. Undir-
ritun samnings við Impregilo fer
hins vegar ekki fram fyrr en skrifað
hefur verið undir orkusamning við
Alcoa vegna álversins i Reyðarflrði.
Samkvæmt Mbl. er stefnt að því
fyrri hluta mars.
ÍA til sölu
Stefnt er að því að 40% hlutur
ríkissjóðs í Islenskum aðalverktök-
um verði auglýstur til sölu í næsta
mánuði og að hlutabréfin verði seld
fyrir vorið.
Súrmatur til Köben
Sendiráð Islands í Kaupmanna-
höfn ætlar að flytja inn 2-300 kíló af
þorramat til Danmerkur.
Deilt um skuldir
Hart var deilt um íjárhagsstöðu
Reykjavikurborgar á borgarstjóm-
arfundi í gærkvöld
og um hvort eðli-
legt sé að skoða
skuldastöðu borgar-
sjóðs eingöngu eða
aflan samstæðu-
reikning borgarinn-
ar, þ.e. stöðu borg-
arsjóðs og fyrir-
tækja í eigu borgarinnar. Bjöm
Bjamason gagnrýndi að Þórólfur
Ámason borgarstjóri hefði aðeins
rætt við borgarfulltrúa R-listans i
undirbúningi fyrir starf sitt og ekki
svarað skriflegum spumingum sjálf-
stæðismanna. Svaraði Þórólfur að
hann réði því hverjum hann byði
heim til sín en bætti við að hann
mundi svara spumingum sjálfstæð-
ismanna í borgarráði. Mbl. greindi
frá. -hlh
j m'x +Æ helgarblaö
Lausir endar
í Helgarblaði DV á morgun verður
rýnt í skýrslu Lára V. Júlíusdóttur
saksóknara og fjallað um þá lausu
enda sem þar eru raktir í Geirfinns-
málinu og ríkissaksóknara hefur
verið falið að fjalla um.
í blaðinu er
einnig viðtal við
Kolbrúnu Hálfdán-
ardóttur, tengda-
móður Atla Helga-
sonar lögfræðings,
sem tjáir sig um eft-
irmál atburðanna í
Öskjuhlíð í nóvem-
ber 2000.
í blaðinu er rætt við Gísla J. Ást-
þórsson, blaðamann og teiknara, sem
nú leggur frá sér pennann eftir 65 ára
feril. Blaðið talar einnig viö Jón Krist-
jánsson, settan umhverfisráðherra,
sem nú er almennt kallaður Salómon
eftir úrskurðinn um Þjórsárver.
DV ræðir ítarlega við Sigurð Páis-
son leikskáld og Halldóru Geirharðs-
dóttur leikkonu og fer á kraftaverka-
samkomu í Smáralind og fylgist með
Charles Ndifon lækna geðklofa og
krabbamein með handayfirlagningu.