Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2003, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003
29
*
Jóna Margrét Ragnarsdóttir og félagar hennar í
Stjörnunni komust lítiö áleiöis gegn Birgit Engl eöa
öörum Eyjastúlkum í undanúrslitaleik liöanna í
Eyjum í gær. DV-mynd PÖK
. . v ■ ‘ » ■
■ A 1
M ■ / ** t,!
v
Island og Bandaríkin mætast í kvennalandsleik:
Sterkur hópur hjá
Bandaríkjamönnum
- fyrir leikinn gegn íslendingum ytra
April Heinrichs, þjáifari banda-
ríska kvennalandsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur valið 24 manna hóp
fyrir landsleikinn gegn íslandi en
hann fer fram 16. febrúar á Black-
baud-leikvanginum í Charleston í
Suður-Karólínu.
Hópurinn er gífurlega sterkur
og í honum er meðal annars þrír
leikreyndustu leikmenn liðsins,
þær Mia Hamm, Kristine Liily og
Julie Foudy en þær voru ekki í
hópnum þegar bandariska liðið
rúllaði yfir Mexíkó, 7-0, 7. janúar
síðastliðinn. Nokkrir reynslubolt-
ar eru þó fjarverandi og má þar
nefna framherjann Tiffany Mil-
brett. Bandaríska liðið undirbýr
sig nú af kappi fyrir Algarve Cup
þar sem flest sterkustu landslið
heims mun etja kappi saman dag-
ana 14.-20. mars.
ísland og Bandaríkin hafa fjór-
um sinnum mæst áður. Bandarík-
in hafa unnið þrívegis en einn
leikur, 8. apríl 2000, endaði með
markalausu jafntefli þar sem Þóra
Helgadóttir, markvörður íslands,
fór á kostum.
Bandaríski hópurinn er skipað-
ur eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir: Briana Scurry, Siri
Muflinix, Hope Solo, LaKeysia
Beene.
Vamarmenn: Christie Pearce,
Nandi Pryce, Brandi Chastain,
Kate Sobrero, Jenny Benson,
Thori Bryan, Heather Mitts.
Miðjumenn: Lori Chalupny,
Tiffany Roberts, Jena Kluegel, Aly
Wagner, Julie Foudy, Kristine
Lifly, Angela Hucles, Lindsay Tar-
pley, Dewyn Hawkins.
Framherjar: Heather O’Reilly,
Mia Hamm, Cindy Parlow, Abby
Warmbach. -ósk
- þegar Eyjastúikur tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleik kvenna með 25-17 sigri á Stjörnunni
ÍBV tók á móti Stjörnunni i undan-
úrslitum í Eyjum í gærkvöldi en
leiknum hafði verið frestað frá því
kvöldið áður. Liðin höfðu fyrir leik-
inn leikið þrívegis í vetur og voru
leikirnir aflir mjög spennandi þar
sem úrslitin réðust ekki fyrr en á
lokasekúndunum.
Það voru því flestir á þvi að leikur-
inn í gærkvöldi hefði alla burði til
þess að verða spennandi enda er
Stjarnan eina liðið sem hafði tekið
stig frá Eyjum. En annað kom á dag-
inn því Eyjastúlkur hreinlega völt-
uðu yfir andstæðinga sína úr Garða-
bænum og tryggðu sér sæti í úrslit-
um bikarkeppninnar þriðja árið í
röð.
Það var augljóst að taugar leik-
manna og forráðamanna voru þand-
ar til hins ýtrasta í gærkvöldi enda
var byrjunin á leiknum frekar glopp-
ótt. Heimaliðið hafði reynsluna fram
yfir gestina og þó að þær hafi gert
mörg mistök í upphafí náðu þær
strax undirtökunum.
Gestirnir úr Garðabænum náðu
hins vegar ekki að ógna Eyjavörn-
inni enda skoruðu Stjörnustúlkur að-
eins eitt mark fyrstu íjórtán mínút-
urnar. Varnir beggja liða voru reynd-
ar sterkar en um miðjan hálfleikinn
tóku Eyjastúlkur góða rispu, skoruðu
sex mörk gegn aðeins tveimur mörk-
um gestanna og breyttu stöðunni úr
3-2 í 9-4. Þarna lögðu Eyjastúlkur
grunninn að sigrinum en staðan í
hálfleik var 11-5.
Fjör í seinni hálfleik
Seinni hálfleikur var svo fjörugur
í meira lagi. Fyrstu fimmtán minút-
urnar fóru heimastúlkur hreinlega
hamfórum og héldu handboltasýn-
ingu þar sem hvert glæsimarkið rak
annað. Þegar munurinn var kominn
í eflefu mörk tóku gestirnir leikhlé
og réðu ráðum sínum.
Eftir það voru þær Alla Gorkorian
og Anna Yakova teknar úr umferð og
virtist það ætla að bera tilætlaðan ár-
angur. Stjarnan skoraði næstu sex
mörkin og munurinn var kominn
niður í fimm mörk. Þá lék Unnur
Sigmarsdóttir sama leik og kollegi
hennar hjá Stjörnunni, tók leikhlé og
eftir það náðu leikmenn ÍBV aftur
tökum á leiknum.
Undir lokin leystist leikurinn upp
enda tóku gestirnir þrjá leikmenn
ÍBV úr umferð en engu að síður
breikkaði bilið á mifli liðanna aftur
og endaði í átta marka mun, 25-17.
Þar með er ÍBV komið í úrslitaleik-
inn þriðja árið í röð en liðið hefur
orðið bikarmeistari síðustu tvö ár og
hefur því titil að verja.
Loksins spiluö góö vörn
Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði ÍBV,
var að vonum kát í leikslok með sig-
urinn. „Það kom loksins að því að
við spiluðum góða vörn og sókn í
heilan leik. Við reyndar hikstuðum
aðeins í sókninni í byrjun og svo þeg-
ar þær tóku tvær úr umferð en vor-
um fljótar að leysa það. Það aö fá að-
eins á sig fimm mörk í hálfleik gegn
jafnsterku liði og Stjörnunni hlýtur
að teljast gott. Leikir liðanna hafa
alltaf verið spennandi en eftir síðasta
deildarleik, þar sem við jöfnuðum
þegar leiktíminn var búinn, fórum
við aðeins yfir málin.
Það hefur einkennt okkur gegn
Stjörnunni að við höfum verið að
spila illa en það kom ekki til greina
að gera það fyrir fullu húsi. Ég lofa
því líka að ef við spilum svona vel í
úrslitum þá töpum við þeim leik
ekki.“
Jóna Margrét ekki súr
Jóna M. Ragnarsdóttir, hægri
skytta Stjömunnar, var þrátt fyrir
tapið ekki mjög súr. „Við erum ekki
með eins reynt lið og ÍBV og ég held
að það hafi komið okkur í koll í byrj-
un. Þær eru með reynda leikmenn í
Góð vörn skilaði sigri
Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari ÍBV, er að þjálfa meistaraflokkslið í fyrsta sinn og árangurinn er glæsilegur, efsta
sæti í deildinni og liðið komið í úrslit bikarkeppninnar. Unnur sagði í samtali við DV eftir leikinn að það hafi fyrst
og fremst verið góður varnarleikur sem skilaði sigrinum.
„Við fáum bara á okkur fimm mörk í fyrri hálfleik og greinilegt að við vorum betur undirbúnar andlega fyrir
leikinn. í okkar liði er mikil reynsla í bikarkeppninni og við undirbjuggum útlendingana vel fyrir leikinn. Það var
auðvitað taugaveiklun í byrjun enda fullt hús og mikið í húfi en þaö var bara spurning um að komast yfir þetta.“
Það hefur ekkert veriö farið að fara um þig þegar Stjaman minnkaði muninn niður í fimm mörk í síðari hálfleik?
„Nei, ég tók bara leikhlé til að róa stelpumar aðeins niður. Við vorum á þessum kafla að klúðra dauðafærum
þannig að það þurfti bara aðeins að fá einbeitinguna aftur í lag. Með frábærum stuöningi áhorfenda náðum við svo
aö tryggja okkur sigurinn." -jgi
öllum stöðum á meðan við erum með
2-3 sem hafa svipaða reynslu en við
hinar erum enn ungar. Svona leikir
leggjast bara inn á reikning í
reynslubankanum og nýtast okkur
seinna.
Það koma aðrir bikarleikir eftir
þennan leik og þá verðum við tilbún-
ar í slaginn. Ég vil bara þakka stuðn-
ingsmönnum okkur sem stóðu sig
eins og hetjur í kvöld.“ -jgi
ÍBV-Stjarnan 25-17
l-O, a-2,8-3, (11-5), 12-5,15-8, 20-9, 20-15, 25-17.
ÍBV:
Mörk/víti (skot/víti): Anna Yakova 6 (10),
Alla Gkorian 6/1 (11/1), Sylvia Strass 5 (6/1),
Ingibjörg Jónsdóttir 3 (4), Edda Eggertsdóttir 2
(3), Ana Perez 2(3), Björg Ó. Helgadóttir 1(1),
Birgit Engl (5), Anna Rós Hallgrímsdóttir (1).
Mörk úr hradaupphlaupum: 5 (Sylvia 2, Ingi-
björg, Anna Yakova, Edda).
Vitanýting: Skorað úr 1 af 2.
Fiskud viti: Ingibjörg, Edda.
Varin skot/víti (skot á sig): Vigdís Sigurðar-
dóttir 15/2 (32/7, hélt 8, 47%, eitt víti fram hjá
og eitt víti í stöng)
Brottvísanir: 8 mínútur.
Dómarar (1-10)
Guðjón L. Sigurðs
son og Ólafur Har
aldsson (7).
GϚi leiki
(1-10): 7.
Áhorfendur: 700
Best á vellinum:
Ingibjörg Jónsdóttir, ÍBV
Stiarnan:
Mörk/víti (skot/viti): Jóna Margrét Ragnars-
dóttir 7/5 (13/8), Sólveig Kjærnested 2 (2), Svan-
hildur Þengilsdóttir 2 (2), Margrét Vilhjálms-
dóttir 2 (3), Elísabet Gunnarsdóttir 1 (1), Krist-
ín Clausen 1 (3), Hind Hannesdóttir 1 (5),
Amela Hegic 1 (8/1), Ebba Brynjarsdóttir (1).
Mörk úr hradaupphlaupum: 3 (Kristín, Hind,
Svanhildur)
Vitanýting: Skoraö úr 5 af 9.
Fiskuö vítU Margrét 3, Amela 2, Elísabet 2,
Svanhildur 2.
Varin skot/víti (skot á sig): Jelena Jovanovic
17/1 (42/2, hélt 9, 40%).
Brottvísanir: 2 mínútur.
KORFUBOLT
Ga b & U í|kl
Úrslit í nótt:
New York-LA Lakers . . . 109-114
Sprewell 24 (8 stoðs.), Eisley 16, Ward
15 (11 stoðs.), Harrtington 13 - Bryant
46 (6 frák.), O'Neal 33 (7 frák., 7
stoðs.), Fox 9
Milwaukee-Seattle...........97-91
Allen 27, Thomas 19 (7 frák.), Redd 15
(8 frák.) - Payton 27, Lewis 18 (7 frák.,
5 stoðs.), Barry 13, James 12, Mason
12 (5 stoðs.)
Denver-San Antonio..........74-83
Howard 23 (11 frák.), Hilario 14 (8
frák.), Whitney 8 (7 stoðs.), White 8 -
Duncan 25 (8 frák.), Parker 23 (8
stoðs.), Rose 13 (10 frák.)
-t
Staðan:
Austurdeildin
Atlantshafsriðill
New Jersey Nets..............34-15
Boston Celtics...............27-22
Philadelphia 76ers...........25-24
Washington Wizards...........24-25
Orlando Magic ...............24-26
New York Knicks..............21-27
Miami Heat ..................17-32
Miörióill
Indiana Pacers...............34-15
Detroit Pistons..............32-15
New Orleans Homets...........26-24
Milwaukee Bucks ............ 25-23
Atlanta Hawks................19-30
Chicago Bulls................17-32
Toronto Raptors..............14-34
Cleveland Cavaliers ..........1040
Vesturdeildin
Miðvesturrióill
Dallas Mavericks ............38-10
San Antonio Spurs........ . . . 33-16
Utah Jazz ...................29-20
Minnesota Timberwolves .... 29-20
Houston Rockets..............26-22
Memphis Grizzlies ...........13-35
Denver Nuggets ..............12-37
Kyrrahafsrióill
Sacramento Kings.............34-17
Portland Trailblazers .......32-16
Phoenix Suns.................29-21
Los Angeles Lakers...........24-23
Seattle Supersonics..........21-27
Golden State Warriors .......21-27
Los Angeles Clippers ........17-32
4,