Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2003, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003
DV
Fréttir
Lágmarksframfærslukostnaður á íslandi:
Eru niutíu þúsund
krónur nóg?
Pétur H. Blöndal alþingismaður
sagði á Alþingi í gær að nokkrir ein-
staklingar hefðu haft samband við
sig og sagst lifa af níutíu þúsund
krónum á mánuði og jafnvel minna
og kæmust þokkalega af. Níutíu þús-
und krónur er einmitt um það bil
það sem almannatryggingakerfið
tryggir þeim sem býr einn og hefur
engar tekjur annars staðar og á eng-
in réttindi í iífeyrissjóði, að sögn Pét-
urs. En svo vill til að ekki hafa verið
gerðar nýlega kannanir á því hvað
dugir í raun.
Viðmið LÍN
Hjá Lánasjóði íslenskra náms-
manna fengust þær upplýsingar að
þar á bæ væri miðað við tölur úr
neyslukönnun Hagstofunnar frá 1995.
Tölumar eru því raunveruleg meðal-
talsneysla þeirra sem héldu stíft og
nákvæmt bókhald í könnuninni. Þær
hafa vitanlega verið uppfærðar með
tilliti til verðbólgu.
Samkvæmt þessu miðar Lánasjóður-
inn við að framfærsla einstaklings sé
rúmar 75 þúsund krónur á mánuði að
öllu meðtöldu. í tilviki hjóna eða sam-
býlisfólks með eitt bam hækkar fram-
færslan í rúmar 94 þúsund krónur á
hvom fullorðinn einstakling. Einstætt
foreldri þarf tæpar 110 þúsund krónur á
mánuði til að framfleyta sér og bami
sínu. í öilum tilvikum er gengið út frá
því að engu breyti hvort búið er í leigu-
húsnæði eða eigin húsnæði.
Hagstofan gerði neyslukannanir á
fimm ára fresti þar til 1995 en hefur ekk-
ert birt síðan. Nú stendur til að birta
nýjar tölur árlega og miða við þriggja
ára meðaltal. Fyrstu tölur samkvæmt
nýju verklagi birtast væntanlega á
næsta ári.
Ráðgjafarstofan
Ráðgjafarstofa um fiármál heimil-
anna miðar við könnun sem hagfræð-
ingur Neytendasamtakanna gerði 1993.
Hún er gerólík neyslukönnun Hagstof-
unnar því að í henni er miðað við að
fólk kaupi eingöngu brýnustu nauðsynj-
ar, enda er verið að hjálpa fólki í fiár-
hagsvanda. Þetta er því ekki meðaltals-
framfærsla heldur lágmarksframfærsla.
Og ekki er síður mikilvægt að hafa í
huga að í tölum Ráðgjafarstofunnar er
húsnæðiskostnaður ekki talinn með, en
hann skiptir sem kunnugt er tugum
þúsunda. En tölumar eru raunhæfar
því að fólk komst í raun og veru af með
þær fiárhæðir sem nefndar em.
Og samkvæmt þessari könnun kemst
einstaklingur af með ríflega 58 þúsund
krónur á mánuði. Hjón komast af með
tæpar 82 þúsund kónur á mánuði en
hafi þau bam á framfæri sínu hækkar
lágmarksframfærslan í ríflega 100 þús-
und krónur - auk húsnæðis eins og fyrr
er getið.
Hvað er nauðsyn?
Pétur H. Blöndal segir mikilvægt að
menn sættist á einhverja viðmiðun um
hvað þurfi til framfærslu en að umræða
Hvaö kostar aö lifa? - iágmarks vtómió Raigjafarstofu um fiármái hermilanna - án hú — snæðís
Einstaklingur Hjón Hjón með 1 barn Hjón með 2 börn
Matur og hreinlætisvörur 26.900 41.800 53.000 63.000
Rekstur bifreiðar 23.700 23.700 23.700 23.700
Fatakaup 2.700 5.500 8.000 10.500
Lækniskostnaður 2.500 5.000 7.600 10.100
Tómstundir 1.400 2.800 4.200 5.600
Ýmislegt 1.400 2.800 4.200 5.600
Samtals 58.600 81.600 100.700 118500
Miðaö er við könnun sem Neytendasamtökin gerðu fyrir tæpum áratug.
í tölunum eru ekki upplýsingar um húsnæðiskostnað, síma, áskriftir,
fasteignagjöld, tryggingar, dagheimilisgjöld.
um fátækt hljóti ávallt að enda í ágrein-
ingi um hvað teljist nauðþurftir og hvað
ekki.
„Ef einhver þingmaður fer að líta svo
á að það sem hann þarf sjálfur séu nauð-
þurftir þá er það alveg út í hött. Að það
sé nauðsynlegt að eiga vélsleða eða fara
reglulega til útlanda," segir Pétur.
Sumir telja að með vaxandi velmegun
hljóti fátæktarviðmið að hækka. Spurt
er hvort ekki megi til dæmis telja eðli-
legt viðmið að fólk hafi ráð á að kosta
böm sín til íþróttaiðkunar hafi þau
áhuga á því, jafnvel þótt slíkt hafi þótt
óþarfi eða munaður fyrir nokkrum
árum eða áratugum. Pétur segist ekki
geta samþykkt þetta viðmið: „Sé þetta
samþykkt verður annaðhvort að banna
að böm æfi hjá íþróttafélagi eða láta
þau öll gera það. Ég held að fólk eigi að
reyna að færa bömum sínum einhverja
sjálfsvirðingu og hún felst ekki endilega
í að veita þeim jafnmikla neyslu og öðr-
um bömum.“
Hvert er meiniö?
Pétur segist hafa leitað að götum í
velferðarkerfmu og þá einkum staldrað
við stöðu forsjárlausra feðra sem verða
atvinnulausir. „Þeir fá um 74 þúsund
krónur í atvinnuleysisbætur og með
tveimur bömum fá þeir auk þess nokk-
ur þúsund krónur í dagpeninga. En þeir
borga 30 þúsund krónur í meðlag,
þannig að þeir hafa um 50 þúsund eftir.
En borgi þeir með þremur bömum verð-
ur dæmið eiginlega alveg óviðráðan-
legt,“ segir Pétur og bætir við að mikil-
vægast í umræðu um fátækt sé, að kom-
ast að raunverulegri rót meinsins, sem
sé uppáskriftir og ýmiss konar fikn sem
steypi fólki í fátækt, óháð tekjum þess.
Fasteignir - sumarbústaðir - atvinna
Miðvikudagar
eru fasteigna- og
atvinnudagar hjá DV
950 kr.
Auglýstu sumarbústað, fasteign eða atvinnu
fyrir 950 kr. með mynd á miðvikudögum
MT |Srnáau
Auglýsingin þín birtist frítt á www.smaauglysingar.is í viku