Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2003, Blaðsíða 26
26
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003
Rafpóstur: dvsport@dv.is
steigupp
og KR-ingar lögöu Stólana, 102-92, í
DHL-Höllinni og gefa ekkert eftir
KR-ingar rifu sig upp eftir stórt tap
gegn Snæfelli í síðustu umferð með
því að sigra Tindastól á heimavelli í
gærkvöld, 102-92.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR,
var mátulega sáttur við leikinn sem
slíkan en fagnaði stigunum tveimur.
„Mér fannst leikurinn vera sveiflu-
kenndur. Við misstum Darrell Flake,
erlenda leikmanninn okkuar, út af um
miðjan fyrri hálfleik og þá kom
bakslag í þetta hjá okkur eftir að hafa
haft nokkuð góð tök á leiknum fram
að því. Mönnum leið of vel á vellinum
í byijun og fóru síðan að slaka á en
það má bara ekki. Menn fóru að taka
misgóð skot og fengu síðan hraðaupp-
hlaup í andlitið í kjölfarið. Við fórum
yfir þetta í hálfleik og töluðum um að
fá meira frá bakvörðunum. Herbert
steig upp þegar okkur vantaði hjálp
fyrir utan. Við breyttum síðan um
áherslur í vörninni þegar við lentum
níu stigum undir í byrjun seinni hálf-
leiks. Ég lét Magna taka Clifton Cook
og mér fannst það vera vendipunktur-
inn í leiknum þegar við breyttum um
áherslur í vöminni.
Næsti leikur mikilvægur
Næsti leikur er gríðarlega mikil-
vægur fyrir okkur ef við ætlum að
eiga möguleika á að komast aftur í
efsta sætið. Við fórum upp í Borgames
og verðum án Flake á meðan Grinda-
vík og Keflavík leika innbyrðis. En við
erum bjartsýnir á framhaldið og njót-
um þess að spila,“ sagði Ingi. KR byrj-
aði leikinn í gærkvöld mun betur og
komst í 17-6 og Stólarnir voru ekki að
finna sig í DHL-höllinni. KR komst
síðan í 33-20 í byrjun annars leikhluta
en þá meiddist Darrell Flake hjá KR
og í kjölfarið tvíefldust. Stólamir og
fóru með tveggja stiga forskot í hálf-
leik, 43-A5. Flake spilaði síðan seinni
hálfleikinn og var haltur allan tímann
en það kom þó ekki í veg fyrir að hann
skoraði 20 stig í hálfleiknum. Stólam-
ir komust níu stigum yfir í byrjun
seinni hálfleiks, 49-58, en þá bitu KR-
ingar á jaxlinn og Herbert Arnarson
tók sig til og skoraði þrjár 3ja stiga
körfur með stuttu millibili og Flake
jafnaði síðan leikinn, 63-63. Jafhræði
var síðan með liðunum þar til um
miðjan fiórða leikhluta þegar heima-
menn sigu fram úr og unnu 10 stiga
sigur. Leikurinn ætlaði aldrei að taka
enda þar sem Stólamir voru duglegir
að brjóta í lokin og voru heimamenn
þá mikið á vítalinunni.
Á annarri löppinni
Hjá KR var Flake ótrúlega seigur
þrátt fyrir að leika seinni hálfleikinn á
annari löppinni og leika nánast ekkert
í öðram leikhluta. Hann náði þrátt fyr-
ir það að skora 33 stig og taka 16 frá-
köst. Herbert kom sínum mönnum aft-
ur inn í leikinn og raðaði 3ja stiga
körfum um tíma og skoraði öll 23 stig
sín í seinni hálfleik. Baldur Ólafsson
lék eins og engill til að byrja með og
Jóhannes Árnason skoraði tvær mikil-
vægar 3ja stiga körfur. Þá stóð Magni
Hafsteinsson sig vel í vöminni en fann
sig ekki sóknarlega.
Hjá Tindastóli var Clifton Cook
bestur og Kristinn Friðriksson var
góður. Machail Andropov og Helgi
Viggósson voru í villuvandræðum og
komust ekki almennilega í takt við
leikinn. -Ben
deldhni
Darreli Flake og
Michail Antropov
berjast hér um eitt af
95 fróköstum sem
voru f boöi f gær.
Flake tók 16 fráköst
og Antropov 11.
DV-mynd E. Ól.
Matteo hættur hjá Skotum
Skoska landsliðið í knattspymu varð fyrir miklu
áfalli í gær þegar varnarmaðurinn Dominic Matteo,
fyrirliði Leeds, ákvað að hætta að spila með
landsliðinu.
Matteo hefur verið mikið meiddur að undanfórnu
og sagði við fiölmiðla í gær að hann teldi sig
einfaldlega ekki hafa heilsu til að spila bæði með
félagsliði og landsliði og það heiðarlegasta sem hann
gæti gert fyrir Berti Vogts, þjálfara liðsins, og aðra
leikmenn landsliðsins væri að hætta. „Ég hef ráðfært
mig við sérfræðinga og þeir hafa ráðlagt mér að
minnka fiölda leikja sem ég spila. -ósk
1 K A R L A R 5
DGúiMiá
Staöan
Grindavík 16 14 2 1480-1303 28
KR 16 13 3 1432-1292 26
Keflavík 16 12 4 1607-1324 24
Haukar 16 10 6 1445-1374 20
Njarðvlk 16 9 7 1316-1339 18
ÍR 16 9 7 1396-1413 18
Tindastóll 16 8 8 1432-1422 16
Snæfell 16 7 9 1297-1293 14
Breiðablik 16 6 10 1449-1499 12
Hamar 16 4 12 1479-1650 8
Skallagr. 16 2 14 1296-1467 4
Valur 16 2 14 1238-1486 4
Næstu leikir
Tindastóll - Breiðabl. 13. feb. kl. 19.15
Snæfell - Njarðvík . 13. feb. kl. 19.15
Valur - Hamar .... 13. feb. kl. 19.15
SkaUagrímur - KR .14. feb. kl. 19.15
Grindavík - Keflavík 14. feb. kl. 19.15
iR - Haukar .......14. feb. kl. 19.15
Hamar - ÍR.........16. feb. kl. 19.15
KR - Grindavík .... 16. feb. kl. 19.15
Breiðabl. - Skallagr. 16. feb. kl. 19.15
Haukar - Snæfell . . 17. feb. kl. 19.15
Keflavík - Valur ... 17. feb. kl. 19.15
Njarðvík - Tindastóll 17. feb. kl. 19.15
KR - Keflavík......20. feb. kl. 19.15
Tindastóll - Haukar 20. feb. kl. 19.15
Snæfell - Hamar ... 20. feb. kl. 19.15
SkaUagr. - Njarðvík 21. feb. kl. 19.15
Grindavík - Breiðabl. 21. feb. kl. 19.15
ÍR - Valur ....... 21. feb. kl. 19.15
KR-Tindastóll 102-92
2-0, 7-2, 17-6, 17-14, 20-14, 24-16, (27-20),
33-20, 38-26, 41-31, 41-37, 43-37, (43^5),
43-47, 45-51, 49-51, 49-58, 55-58, 58-59,
65-63, (67-65), 67-68, 69-72, 73-74, 76-76,
80-76, 80-81, 86-81, 93-84, 99-86, 102-92.
Stig KR: Darrell Flake 33, Herbert Am-
arson 23, Baldur Ólafsson 18, Skarphéð-
inn Ingason 8, Jóhamjes Ámason 6, Am-
ar Kárason 5, Óðinn Asgeirsson 5, Magn-
ús Helgason 2, Magni Hafsteinsson 2.
Stig Tindastóls: Clifton Cook 31, Krist-
inn Friðriksson 18, Michail Antropov 13,
Axel Kárason 10, Óli Barðdal 7, Helgi
Rafn Viggósson 6, S igurður Sigurðsson
5, Gunnar Þór Andrésson 2.
Dómarar (1-10):
Kristinn Óskars-
son og Björgvin
Rúnarsson (8).
Gœði leiks
(1-10): 5.
Áhorfendur: 105.
Maöur leiksins:
Herbert Arnarson, KR
•«r
Staðaní
Fráköst: KR 50 (19 í sókn, 31 í vörn,
Flake 16, Baldur 13), Tindastóll 45 (18 í sókn,
27 1 vöm, Antropov 11, Cook 10).
Stoösendingar: KR 26 (Amar 8),
Tindastóil 12 (Cook 4).
Stolnir boltar: KR 8 (Amar 3),
TindastóU 10 (Axel 4).
Tapaöir boltar: KR 15, Tindastóll 12.
Varin skot: KR 11 (Magni 5, Óöinn 3),
TindastóU 4 (Antropov 3).
3ja stiga: KR 20/8, (40%, 12/6 í þriðja),
TindastóU 19/6, (32%).
Víti: KR 25/20, (80%), Tindastóll 27/18,
(67%).
- segir Eyjólfur Guðlaugsson, þjálfari Grindavíkur, um leik Keflavíkur og ÍS
Ikarlar j—oN
Bikarúrslitaleikir karla fóra fyrst
fram árið 1966 og sigraði þá Ármann.
Þetta er í 37. sinn sem leikið er til úr-
slita í bikarkeppninni. Fyrstu 4 árin
sendu liðin 1. flokk til keppni en frá
1970 hefur bikarkeppnin verið keppni
þeirra bestu.
KR hefur sigraö oftast, alls lt sinn-
um, Njarðvik hefur unnið sjö sinnum
og Keflavík, Grindavík, Haukar, Valur
og Ármann hafa sigrað þrisvar.
Keflavik og Snœfell hafa einu sinni
mæst í bikarúrslitaleik (1993) og er þaö
jafnframt í eina skiptið sem Snæfell
hefur leikið til úrslita. Keflavík sigraði
næsta örugglega með 115 stigum gegn
76. Þá var Ivar Ásgrímsson, núverandi
þjálfari kvennaliðs ÍS, þjálfari og
leikmaður með Snæfelli og stigahæsti
leikmaður Snæfellinga 1 leiknum var
Báröur Eyþórsson, núverandi þjálfari
liðsins.
Keflavik og Snœfell hafa mæst einu
sinni i Intersportdeildinni í vetur og
sigraði Keflavík í Stykkishólmi, 95-97,
eftir að hafa unnið upp forskot
Snæfellinga í leiknum.
Siguröur Ingimundarson, þjálfari
Keflavíkur, hefur leikið fjóra bikarúr-
slitaleiki (1990, 1991, 1993 og 1994) og
stýrt liði 4 sinnum til sigurs í bikar-
keppninni sem þjálfari (3 kvennatitlar
og 1 karlatitill). Bárður Eyþórsson,
þjálfari Snæfefls, hefur leikið í tveim
bikarúrslitaleikjum (1987 og 1993), í
hvoragt skiptið sigrað og aldrei stýrt
liði í bikarúrslitaleik áöur sem þjálfari.
Keflvikingar hafa unnið 3 bikarmeist-
aratitla, árin 1993, 1994 og 1997. Liðiö
hefur alls komist 6 sinnum í bikarúr-
slitaleikinn. Fyrsti sigurinn kom fyrir
10 árum er liðið lagði einmitt Snæfefl í
úrslitaleik. Það er í eina skiptið sem
Snæfell hefur komist í úrslitaleikinn.
Félag utan Stór-Reykjavíkursvœöis-
ins og Reykjaness hefur aldrei orðið
bikarmeistari. Keflavík hefur hvorki
oröið íslands- né bikarmeistari í meist-
araflokki karla án þess að Guðjón
Skúlason hafi verið i liðinu.
„Keflavík er með besta liðið á
landinu í dag í kvennaflokki og ég
hallast að sigri þeirra í leiknum á
morgim en þær munu þurfa að hafa
fyrir sigrinum því að ÍS-liðið hefur
verið að koma mjög mikið til eftir
áramót. Ólík staða liðanna í deild-
inni segir hálfa söguna og ég tel það
Jjóst að það er ekki eins mikill getu-
munur á liðinum og menn gætu
haldið þegar efsta lið deildarinnar
mætir því neðsta,“ sagði Eyjólfur
Guðlaugsson, þjálfari kvennaliðs
Grindavíkur, um bikarúrslitaleik-
inn á milli Keflavík og ÍS í Laugar-
dalshöllinni á morgun.
Mikil reynsla í Keflavík
„Keflavíkurliðið býr yfir mikilli
reynslu og langri sigurhefð. Það
hefur verið að vinna flesta sína leiki
með stórum mun í vetur en þó sýnt
veikleikamerki í þeim tveimur
leikjum sem liðið hefur tapað. Þegar
mjótt hefur verið á mununum eins
og var í þeim leikjum þá hefur liðið
farið á taugum og ekki vitað hvem-
ig það ætti að bregðast við. Það er
nokkuð sem ÍS-liðið gæti nýtt og
lykilatriði fyrir það að missa Kefla-
vikurliðið ekki of langt frá sér.
Vömin hjá Keflavík er mjög sterk
og sömuleiðis hefur liðum reynst
erfitt að ráða við Erlu Þorsteinsdótt-
ur, Soniu Ortegu og Önnu Maríu
Sveinsdóttur inni í teig. ÍS-stúlkur
verða að ná að loka á sendingar inn
í teiginn ef þær ætla sér að eiga
möguleika."
Baráttuglaöar ÍS-stúlkur
„ÍS-liðið er gott, miklu betra held-
ur en staða liðsins í deildinni gefur
til kynna. Það er með mjög góðar
skyttur og það er lykilatriði fyrir
liðið að leikmennimir hitti vel úr
skotum sínum fyrir utan. Að auki
verða þær að passa vel upp á bolt-
ann. Margir leikmanna Keflavíkur-
liðsins eru mjög góðir að stela bolt-
anum og skora auðveldar körfur í
framhaldinu og það er nokkuð sem
ÍS verður að passa. ÍS-liðið er
skemmtilegt, það er mjög baráttu-
glatt og leikmenn liðsins elta hvem
einasta lausa bolta sem dettur.
Liðið hefur bætt sig leik frá leik
að undanfömu og það er alveg ljóst
að Keflavík á erfitt verkefni fyrir
höndum. Það getur ekki leyft sér
neitt vanmat því að það mun koma
aftan að því. ÍS-liðið þarf að ná topp-
leik til að bera sigur úr býtum í
leiknum og það myndi gefa því byr
undir báöa vængi í framhaldinu ef
það tækist en Keflavíkurliðið er það
sterkt og reynslumikið að ég hallast
að sigri þess,“ sagði Eyjólfur Guð-
laugsson, þjálfari Grindvíkinga, um
bikarúrslitaleik Keflavíkur og ÍSi
kvennaflokki. -ósk