Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2003, Page 19
19
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003
DV Tilvera
•Krár
IÞú og ég Qg Cadillac á Krindukranni
Gestir helgarinnar á Kringlukránni eru þau Helga
Múller og Jóhann Helgason sem skipuöu diskódúett-
inn Þú og ég sem gerði garSinn frægan úti um víða
veröld á diskóárunum margrómuðu. Þau koma nú
fram i fyrsta skipti í Reykjavíkurborg í meira en tvo ára-
tugi. Af þessu tilefni hefur Ijósabúnaður staðarins ver-
ið aukinn og allt er gert til að ná fram gömlu stemn-
ingunni. Helga og Jóhann stíga á svið upp úr klukkan
00.30. Hljómsveit hússins, Cadillac, leikur á undan
og á millijjess sem þau Helga og Jóhann koma fram.
BGeir Olafs og fleiri á Broadwav
Geir Ólafsson verður á Broadway ásamt Big band.
Ásamt Geir koma þau Ragnheiður Gröndal og Harald
Burrfram.
lónlist á 22
Benni heldur uppi flörinu á efri hæð 22. Atli verður
niðri. Tilboð á bar til klukkan eitt. Munið stúdentaskír-
teinjn og kaupið ykkur nýju tjúttskóna í OASIS.
BÓmar á Celtic
Trúbadorinn Ómar Hlynsson spilar fyrir gesti Celtic
Cross á Hverfisgötu í kvöld.
BPrifter á Champions
Hljómsveitin Drifter spilar á Champions í Grafarvogi í
kvöld. Sveitin leikur úrval bestu rokktónlistar síöustu
ára og hefur getið sér gott orð undanfarið fyrir kraft-
mikla og skemmtilega spilamennsku. Sviðsfram-
koma Drifter-manna þykir með eindæmum skemmti-
leg og eru þeir sagðir ná áhorfendum á sitt band frá
fyrsta lagi. Skyldumæting fyrir Grafarvogsbúa og aðra
áhugamenn um skemmtilega rokkmúsík.
•Klúbbar
BFrimann og Arnar á Flaueli
Frimann og Amar eru við stjórnvölinn á Raueli í kvöld,
500-kall inn og tilboð á bamum.
BStuð á Suotlight
Það er opið frá 21 til 5.30 á Spotlight i kvöld og þú
getur unnið þér inn miða á Sterió 89,5. DJ Grétar, DJ
Baddi Rugl, DJ Ýmir og DJ Ingvi spila á báðum hæð
um hússins.
•Sveitin
■Hot N Sweet í Evium
Strákarnir í Hot N Sweet og Hermann Ingi ætla að
bregða sér í lunda á Landanum i Vestmannaeyjum
um helgina og lofa öllum eyjapeyjum og -pæjum
feiknafjöri.
IBer á Ísafirði
Hljómsveibn Ber með írisi Kristinsdóttur söngkonu
innanborðs skemmtir ísfirðingum og nærsveitarmönn-
um í Sjallanum í kvöld.
IJet Black Joe á Akurevri
Hljómsveitin Jet Black Joe er mætt norður í land og
leikur á tónleikum fyrir 14 ára og eldri frá klukkan
21-23 í Sjallanum. Miðaverð er 1.500 krónur. Að tón-
leikunum loknum tekurvið dansleikur með hljómsved-
inni á sama stað þar sem aldurstakmark er 18 ár.
Miðaverð er 1.500 krónur fyrir klukkan 1 en 2.000
krónur eftir það. Hljómsveitin Von hitar upp.
•Leikhús
■Hliómsveitin
Leikfélag Kópavogs verður með aukasýningu í kvöld á
Hljómsveitinni sem félagiö sýndi fyrir áramót við góða
aðsókn. \ferkið er sýnt í Hjáleigunni, litla sviði Félags-
heimilis Kópvogs. Hægt er að panta miða í sima 554-
1985 eða með því að senda tölvupóst á mida-
sala@kopleik.is. Sýningin hefst klukkan 20.30.
•Uppákomur
■Ullarvettlingarnir aflientir
Ullarvettlingar Myndlistarakademiu íslands verða af-
hentir í kvöld frjóhuga íslenskum myndlistamranni.
Dagskráin hefst klukkan 20 á Næstabar.
•Fundir og
fyrirlestrar
■Stiórnun. fagstéttir og kvnferói
Rannsóknastofa í kvennafræðum stendur fyrir mál-
þinginu Stjómun, fagstéttir og kynferði í stofu 101 i
Lögbergi, kl. 14 til 17. Málþingið er öllum opið og að-
gangur ókeypis.
■Þátttaka almennings í ákvörðunum
um umhverfjsmál
Lagastofnun Háskóla íslands í samvinnu við umhverf-
isráðuneytið stendur fyrir opnum fræðafundi um þátt-
töku almennings í ákvörðunum um umhverfismál í
dag klukkan 12:15 í hátíðarsal HÍ.
Krossgáta
Lárétt: 1 kjötkássa,
4 útlit, 7 megni, 8 spírar,
10 sáðlönd, 12 tré,
13 viðureign, 14 fljót,
15 kraftur, 16 snuðrara,
18 fengur, 21 köld,
22 menn, 23 hlið.
Lóðrétt: 1 klettasprunga,
2 spil, 3 hrekkir,
4 sómasamlegur,
5 skarð, 6 blása, 9 álút,
11 sól, 16 vatnagróður,
17 fífl, 19 leyfí,
20 flökta.
Lausn neðst á síðunni.
ssáe-'i:;
Umsjón: Sævar Bjarnason
Hvitur á leik!
Sex skámenn urðu efstir á skák-
þingi Reykjavlkur, þeir Stefán Krist-
jánsson, Bragi Þorfinnsson, Bjöm
Þorfinnsson, Magnús Örn Úlfarsson,
Jón Viktor Gunnarsson og Bergsteinn
Einarsson. Það var vegna óvæntra úr-
slita að svo margir skákmenn deildu
efsta sætinu en þeir Bergsteinn og
Bragi gerðu jafntefli í ævintýralegri
skák og Stefán hafði ekki meira en
jafntefli upp úr krafsinu i þessari
skák. Þeir Stefán, Bergsteinn og
Bragi höfðu 0,5 v. forskot á aðra
keppendur. Stefán hefði t.d. getað
leikið hér 16. Be3 og eftir 16. Re4 leik-
ið 17. Dh5 með ágætri stöðu. En fóm-
in var freistandi þó hún dygði
skammt!
Hvltt: Stefán Kristjánsson
Svart: Sigurður Páll Steindórsson
Skákþing Reykjavikur 2003
(11), 2.2. 2003
1. e4 c5 2. c3 Rf6 3. e5 Rd5 4. d4
cxd4 5. Rf3 Rc6 6. cxd4 e6 7. a3 a6
8. Bd3 d6 9. 0-0 Be7 10. b4 0-0 11.
De2 Db6 12. De4 f5 13. exf6 Rxf6
14. Dh4 d5 15. Bg5 h6 (Stöðumynd-
in) 16. Bxh6 gxh6 17. Dg3+ Kh8 18.
Dg6 Dc7 19. Dxh6+ Kg8 20. Dg5+
Kh8 21. Dh4+ Kg8 22. Dg5+ Kh8
23. Dh6+ Kg8 24. Dg6+
1/2 - 1/2.
'«0! 02 ‘UJ 61 Tub ít ‘fls 91
‘Iuqoj II ‘uqoi 6 ‘snd 9 ‘ypA s ‘snuimuresis \ ‘jodesiejis g ‘ese z ‘efS 1 :j}3jqot
•bqis es* ‘-«úA zz ‘Jndou \z ‘i'bb 81 ‘úbus 91'
‘UB SI ‘BQ0m \1 ‘5[Q}B gx ‘UIIB ZX ‘BJ5IB oi ‘JBI? 8 ‘!>iæis I ‘diAS X ‘sbi3 T uiqjqu
DV-MYND JÚÚA IMSUND
Svona var á Sturlungaöld
Krakkarnir í 6. bekk R í Hafnarskóia á Höfn buöu foreldrum og systkinum á smá kynningu á því hvernig var að
vera uppi á dögum Snorra Sturlusonar. Krakkarnir fluttu leikþátt og lásu upp. Þeim til halds og trausts viö flutn-
ing á námsefninu, sem tókst meö ágætum, var Rósa Valdimarsdóttir, kennarinn þeirra.
Dagfari
Við viljum
súrmat
„Alltaf gleðst ég þegar ég
heyri talað um mat og sér-
staklega ef hann er vel kæst-
ur,“ sagði einn frændi minn
nýlega og ég efast ekki um
að hann hafi meint það. Þá
var þorrablót í uppsiglingu
hjá sjálfvöldum hópi ætt-
ingja minna á höfuðborgar-
svæðinu og um síðustu helgi
var því komið á, hist og sest
að krásum. (Hist og sest.
Þetta minnir á barnið sem
kom úr afmælisveislu með
súðarsvip og sagði. „Það var
ekkert leikt, bara drekkt!“)
En meira um blótið. Einn
frændinn hafði verið svo
fyrirhyggjusamur að leggja í
súr strax á haustdögum slát-
ur, sviðasultu og bringu-
kolla og að sögn hans góðu
konu var hann oft og mikið
búinn að strjúka matarkút-
inn, kíkja í hann, þefa og
smakka og skipta um mysu
reglulega. Sú umhyggja skil-
aði líka góðum árangri. Mat-
urinn var meiriháttar. Ekki
samt jafn súr og selshreifa-
sultan sem sá frændinn sem
fyrst er vitnað í lagði á
borð. Slíkt súrbragð hafði ég
ekki fundið frá því í gamla
daga. Svo ég vitni stöðugt í
frændur mína þá kom einn
með þá tilgátu að þetta væri
einmitt rétta bragðið sem
þyrfti í þennan þjóðlega mat
til að hrífa yngri kynslóð-
irnar. Ég er á því að hann
hafi rétt fyrir sér. Unga
fólkið vill afgerandi bragð.
Súrmaturinn sem víða er
boðið uppá á þorranum er
ekki súr. Bara blautur. Móð-
ir mín kunni að búa til eitt-
hvað sem hét súrn og gaf
matnum ekta súrbragð.
Þetta þurfa fleiri að kunna.
Þá mun unga fólkið ekki
þreyja þorrann heldur þrá
hann.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
blaðamaöur
Jæja Tanni. þetta var
löng keyrsla en nú erum
við klárir fyrir ströndina...
drífum okkur!