Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003
DV
Ferðir
Strendw Salou ent einstaklega fallegar
og adstaðan frábær. Terra Nova-Sol
býður óiskrifendwn DV ódýrar ferðir í
W sólina í surnar
FERGAÁVÍSUN AÐ VERÐMÆTI
TERRA
NOVA
í Salou er prýðilegt úrval af
verslunum sem gaman er að
skoða. Best er þó að gera innkaup-
in í Tarragona sem er í nokkurra
kílómetra fjarlægð frá Salou. Þar
er úrvalið enn meira en í Salou og
verð mun hægstæöara en í
Barcelona.
Endalausar strendur við Al-
bufeira
Terra Nova-Sól býður áskrifend-
um DV einnig upp á ferðir til sól-
arbæjarins Albufeira í Portúgal.
Boðið er upp á úrvalsíbúðahótel á
besta staö í bænum þar sem starfs-
menn ferðaskrifstofunnar taka á
Imnu
móti farþegum með brosi á vör,
enda ekki annað hægt á þessum
slóðum. Gististaðir Terra Nova-
Sólar eru vel staðsettir og hið
glæsilega íbúðahótel, Paraiso de
Albufeira, á nú þegar fjölda fastra
viðskiptavina á íslandi, enda sam-
bærilegur gististaður vandfund-
inn í Suður-Evrópu.
Algarve-svæðið er löngu þekkt
sem sumarleyfisparadís og þús-
undir íslendinga hafa heimsótt Al-
bufeira og notið alls hins besta
sem Suður-Evrópa hefur upp á að
bjóða. Gylltar strendur Algarve
eru samanlagt tvö hundruð og sjö-
tíu kílómetrar að lengd og því nóg
pláss fyrir sóldýrkendur.
í Albufeira er hægt að njóta
sannkallaðs sólar- og sældarlifs
Hótelið Paraiso de Albufelra
Á íbúðahótelinu Paraiso de Aibufeira er öll aðstaða til fyrirmyndar og sérlega skemmtilegur sundiaugargaröur.
í sumar verður framhald á far-
sælu samstarfi DV og ferðaskrif-
stofunnar Terra Nova-Sólar.
Áskrifendum DV standa til boða
spennandi afsláttarkjör í pakka-
ferðir til Algarve í Portúgal og
Salou á Spáni á vegum Terra
Nova-Sólar. Boðið er upp á feröir
til Portúgals frá aprílbyrjun til
októberloka og Spánar frá því í
lok maí þar til í lok september.
Salou er nýr og spennandi kost-
ur þar sem lögð er áhersla á vand-
aöar íbúðir með tveimur svefn-
herbergjum fyrir stórar fjölskyld-
ur á Larimar-íbúðahótelinu. Al-
bufeira er sólarbærinn í Portúgal
og þar er boðið upp á frábær
íbúðahótel og spennandi skoðun-
arferðir.
í ár býður Terra Nova-Sól upp á
nýjar fjögurra til tíu daga ferðir
til Portúgals, vor og haust. Þessar
ferðir eiga áreiðanlega eftir að
njóta mikilla vinsælda, ekki síst
meðal íslenskra golfara og þeirra
sem dreymir um helgarferð í sól-
ina á svipuðu veröi og borgarferð.
Terra Nova-Sól starfrækir sér-
staka barnaklúbba í Portúgal og á
Spáni, undir leiðsögn íslenskra
starfsmanna, og kemur þannig til
móts við kröfur barnanna og ger-
ir þeim ferðina ógleymanlega.
Krakkarnir hvíla sig á foreldrun-
um og öfugt. Þeir kynnast nýjum
félögum og upplifa spennandi æv-
intýri undir handleiðslu þraut-
reyndra fararstjóra.
Sól og strendur í Salou
Sólarperlan Salou, sem er rétt
suður af Barcelona, hefur notið
mikUla vinsælda vegna fjölbreyti-
leika bæjarins. Salou er sannkall-
aður sólarbær sem skartar ern-
staklega fallegum ströndum og
íjölbreyttri aðstöðu og því frábær
dvalarstaður fyrir fjölskyldufólk.
Larimar-íbúðahótelið, þar sem far-
þegar Terra Nova-Sólar gista, er í
miðbæ Salou. Hótelið er glænýtt
og örstutt er á ströndina.
Port Aventura, stærsti og glæsi-
legasti skemmtigarður Spánar, er í
göngufæri frá gististöðum Terra
Nova-Sólar. Hann er í eigu Univer-
sal Studios og hefur slegið öll að-
sóknarmet undanfarin ár, enda er
þar allt í boði sem hugurinn girn-
ist þegar alvöru-skemmtigarður er
annars vegar. Þar eru ævintýra-
legir rússibanar, ótrúleg leiktæki,
frábærb- veitingastaðir, vandaðar
verslanir og fjölbreyttar sýningar.
Salou býður upp á fjölbreytt úr-
val veitmgahúsa þar sem feröafólk
getur bragðað á fjölbreyttri matar-
gerð Miðjarðarhafsins, auk veit-
ingastaða sem bjóða rétti frá öllum
heimshomum. Veitingastaðir í
Salou eru ekki síst þekktir fyrir
úrvalsfiskrétti sem enginn ætti að
láta ógert að prófa. Þegar sólböð-
um lýkur tekur við menning,
verslanir og fjölbreytt og fjörugt
næturlíf. Fjöldi bara og diskóteka
stendur til boða og fjörið stendur
iðulega fram undir morgun.
Salou er í tæplega klukkustund-
ar akstursfjarlægð frá Barcelona,
höfuðborg Katalóníu. í Barcelona
er að finna litríkt mannlíf, fagrar
listir og gamla menningu.
Barcelona er borg sem heillar alla
sem gefa sér tíma til að heimsækja
hana. Terra Nova-Sól býður far-
þegum sínum í Salou upp á vand-
aðar skoðunarferðir með farar-
stjóm til Barcelona.
Solarmegin