Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Qupperneq 19
19
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003
DV
___________________Menning
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir silja@dv.is
Tómlegt
innan um
tilbúin sjálf
- segir Pröstur Helgason sem vill
vera í nærveru sálar þegar hann les bók
Einkavegir er nafn á bók eftir Þröst
Helgason bókmenntafrœðing sem Bjart-
ur hefur nýlega gefiö út. í bókinni eru
rúmlega tuttugu greinar þar sem víöa
er komiö viö. Segja má aö í bókinni sé
Þröstur að leitast við að greina menn-
ingu og menningarstrauma samtím-
ans.
- Af lestri bókarinnar sýnist mér sem þér þyki
hraði, yfirborðsmennska og sýniþörf einkenna
samtíma okkar og menningu.
„Það er mjög margt sem einkennir menningu
okkar en ég nefni sérstaklega þessa hluti,“ segir
Þröstur. „í menningu samtímans ríkir gegndar-
laus yfirborðsmennska og áhersla á sjáifið. Fjöl-
miðlasjálf eru blásin upp og reyndar er allur
menningarheimurinn uppblásinn í fjölmiðlum.
Hraðinn er mikill og upplýsingastreymið dynur
á fólki og áreitið er alls staöar. Fólk er nánast
hætt að gera greinarmun á því hvenær það er að
taka þátt í raunverulegum atburði og hvenær
það er bara að upplifa tilveruna í gegnum fjöl-
miðla. Það er eiginlega hætt að skipta máli hvort
maöur var á staðnum eða ekki. Og svo er h'ætt
við aö upplýsingarnar komi allar úr sömu átt,
menn fái eina mynd sem verður að sannleika,
Svo getur verið allt annar veruleiki undir sann-
leikanum sem fjölmiðlar búa til Sá veruleiki
kemur kannski aldrei í ljós. Að þessu leytinu til
erum við kannski komin úr tengslum við hin
raunverulega heim.“
Deyfð yfir skáldskapnum
- Er þetta ekki nokkuð sem listamenn eiga að
benda á?
„Jú, maður myndi haida það.“
- Finnst þér þeir ekki gera það?
„Þeir hafa kannski ekki gert það með nægi-
lega beinskeyttum hætti. Það er einhver fjand-
ans deyfö yfir skáldskapnum. Og táknmál mynd-
listarinnar eða sjónmenningarinnar öllu heldur
er orðið útþynnt, það snertir mann ekki lengur.
Og tilraunir hennar til öfgunar eða íróníu verða
oftast bara hlægilegar. Ég sá „lúðurinn" hans
Anish Kapoors í túrbínusal Tate Modern um
daginn. Hann er hrikalegt ferlíki. En það er eitt-
hvað gamait og lúið við þessa stærð. Hann virk-
aði eins og risaeðla þama í nútímalistasafninu."
- Greinampr í þessari bók em stuttar. Var
það meðvituð ákvörðun?
„Það var yfirveguð ákvörðun að hafa kaflana
stutta. Mér þykir spennandi að glíma við að
benda á lítinn hlut sem afhjúpar stærra sam-
hengi. Út á þetta ganga kannski öll fræði. Og
sennilega allur skáldskapur líka.“
Skáldsagan ekki spennandi form
- Gengur þú ekki með drauma um að skrifa
skáldverk?
„Það er oft sagt að bókmenntafræðingar gangi
með rithöfund í maganum," segir Þröstur, „og ég
væri að ljúga ef ég segði að það hefði aldrei
hvarflað að mér að setja saman skáldaðan texta.
Það er skáldskapur í þessari bók í þeim skilningi
að sumar aðstæður eru uppdiktaðar. En án þess
að ég vilji vera yfirlýsingaglaður þá fmnst mér
skáldsagan ekki mjög spennandi form. Að ljúga
upp sögu á tvö eða þrjú hundmð blaðsíðum
heillar mig ekki.“
- Hvers saknarðu í íslenskum skáldsögum?
„Ég sakna hugmyndafræðilegrar glímu við
ríkjandi ástand. Ég fæ stundum sömu tilfinn-
ingu þegar ég les skáldsögu og þegar ég fer í leik-
hús. Fólk setur sig á svið með svo óraunveruleg-
um og handapatskenndum hætti að þaö er engin
leið að það geti snert mann, nema kannski sem
falleg eða hlægileg sýning. Yfirleitt kemur mað-
ur út jafn tómur og þegar maður fór inn. í skáld-
sögu er maður loginn fullur af einhverju fólki
sem aldrei hefur verið
til og er svo einfalt í
sniðum að lesandinn
endar alltaf á þvi að
leita að höfundinum til
að finna raunverulega
dýpt. Það er alltaf eitt-
hvað svo tómlegt innan
um öll þessi tilbúnu
sjálf, kalt og fjarrænt.
Maður vill vera í nær-
vera sálar þegar maður
les bók. Því meiri og
hlýrri nálægð, því
betra. Um þetta fjalla
DV-MYND TEITUR
Einkavegir öðrum þræði, fjarlægðina sem er
alltaf að verða meiri og viðspyrnuna við henni.
Mig langaði til að búa til hlýja bók þótt hún inni-
héldi jafnframt kalt mat á ríkjandi ástandi."
- Finnst þér betra ástand í erlendum skáld-
skap?
„Bækur sem hafa snert mig nýverið hafa flest-
ar komið að utan, eins og skáldsögur
Houellebecqs, Öreindimar og Áform. Hann er að
takast á við samtímann og benda á hluti sem
skipta máli. Maður er virkilega sleginn yfir því
sem hann skrifar. Og maður vill vera sleginn.
Það er masókísk reynsla að lesa. Ég held að hinn
fagurfræðilegi texti sé dauður. í dag er það ekki
fagurfræöin sem blífur. Hvað þá hinn vel skrif-
aði texti. Ef texti slær mann ekki utanundir þá
er hann ekki fallegur. Hann þarf jafnvel að vera
svolítið ljótur til að vera fallegur."
Blað um samtímamenningu
- Þú ert ritstjóri Lesbókar Morgunblaðsins,
hefur breytt henni og ert búinn að gera hana að
öflugu menningarblaði. Þegar þú tókst við henni
fannst þér þú þá ekki vera bundinn af því sem
hafði áður verið gert þar?
„Mér fannst ég vissulega vera bundinn af 75
ára hefð Lesbókarinnar en um leið langaði mig
til að breyta henni og gera hana að breiðu menn-
ingarblaði. Ég ákvað strax að ég skyldi gera
breytingar smám saman, eins og hefð er fyrir á
Morgunblaðinu. Ég hef fengið mjög góð viðbrögð
við þeim breytingum sem ég hef gert. Tilgangur
minn er að gera Lesbókina að blaði sem fólk gríp-
ur á laugardögum til að athuga hvað er að gerast
í samtímamenningu. Þarna er leitast við að setja
hluti í samhengi við það sem hefur áður gerst í
íslenskri menningarsögu og einnig alþjóðlegt
samhengi. Þannig á fólk að geta fengið heild-
stæða mynd af því sem er að gerast. Mér finnst
aðalatriðið að Lesbókin verði blað sem fólk geti
notfært sér í daglegri menningarneyslu og ég
held að þetta sé hægt og rólega að takast. En ég
legg líka áherslu á að greina hugmyndalega
strauma, óháð tilteknum atburðum. Og ég viröi
fortíö Lesbókarinnar með því að birta greinar
um þjóðleg fræði og sögu landsins. Það er þáttur
sem alls ekki má glatast í þessari útgáfu." -KB
Rjóminn fleyttur
Þjóölagahátíö í sumar
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði verður
haldin dagana 2.-6. júlí í sumar. í ár er
boðið upp á ellefu námskeið fyrir börn
og fullorðna auk fjölda tónleika. Að
þessu sinni verður athyglinni beint sér-
staklega að vikivökum, hinum fomu
söngdönsum íslendinga.
Setningartónleikar hátíðarinnar
verða miðvikudaginn 2. júlí. Þar leikur
sænski þjóölagahópurinn Draupnir
ásamt Önnu Pálínu Árnadóttur marg-
víslega vikivaka. Tvennir tónleikar
verða á hverjum degi auk námskeiða
sem standa yfir 3.og 4. júlí.
Laugardagskvöldið 5. júlí verður
uppskeruhátíð og á sunnudaginn lýkur
hátíðinni með hljómsveitartónleikum.
Á námskeiðunum verða m.a. kenndir
vikivakar, norrænir þjóödansar, búl-
görsk þjóðlagatónlist, rímnakveðskap-
ur, þæfmg og refilsaumur auk silfur-
smíði. Þá verður saga og náttúra Siglu-
fjarðar kynnt á sérstöku útivistamám-
skeiði. Nánari upplýsingar em á
heimasíðu Siglufjarðarkaupstaðar
www.siglo.is.
Allt svo veröi til dýrðar þér
Annaö kvöld kl. 20 verða tónleikar í
Laugameskirkju í tilefni af útgáfu
Smekkleysu á geisladiskinum „Allt svo
verði til dýrðar þér“. Á laugardaginn
kl. 16 verða tónleikamir endurteknir í
Reykholtskirkju í Borgarfirði.
Á diskinum eru 12 Passíusálmar og
11 aðrir sálmar viö þjóðlög og lög úr
munnlegri og skriflegri geymd í útsetn-
ingum Smára Ólasonar. Flytjendur eru
Magnea Tómasdóttir sópransöngkona
og Guðmundur Sigurðsson orgelleikari.
Á morgun segir sá lati
Salka hefur gefið út
sjálfsræktarbókina Á
morgun segir sá lati -
listin að framkvæma
strax eftir bandaríska
rithöfundinn Ritu
Emmett. Þóra Sigríð-
ur Ingólfsdóttir þýddi.
Nærri því allir standa sig að því að
fresta verkefnum og hjá sumum verður
þetta leiður vani sem þeim gengur erf-
iðlega að losa sig við. En það er hægt,
segir Rita Emmett, og sjálfsagt að gá
hvort hún hefur rétt fyrir sér. Bókin
hennar er full af góðum ráðum og sög-
um af raunverulegu fólki sem opna
augu okkar fyrir lausnum.
Bókin er gefin út í sjálfsræktar-
klúbbnum Hugur, líkami og sál en hún
er líka seld í öllum helstu bókaverslun-
Síöustu forvöö á Louisu
- ofan af óperubókmenntunum á Sinfóníutónleikum í kvöld og annað kvöld
í kvöld og annað kvöld verða fjöl-
margar af helstu perlum óperubók-
menntanna fluttar á tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar íslands og ein-
söngvari er ung og fógur söngkona,
Liping Zhang. Hún hefur iðulega
unnið til verðlauna fyrir söng, bæði í
Evrópu og Kanada, komið fram í
mörgum helstu óperuhúsum um víða
veröld og vakið verðskuldaða athygli
fyrir frammistöðu sína hlutverkum
Luciu í La Traviata, Liu í Turandot,
Liping Zhang,
söngkona.
Micaelu í Carmen og Leilu í
Perluköfurunum svo fátt eitt sé
nefnt.
Árið 1998 vakti hún mikla hrifn-
ingu þegar hún kom fram í fyrsta
sinn í Albert Hall í London í hlut-
verki Madame Butterfly og höfðu
gagnrýnendur á orði að þeir hefðu
sjaldan eða aldrei verið jafn
snortnir og af söng hennar. Vart
fannst þurr hvarmur í salnum í
lok óperunnar.
Meðal laga kvöldins verða Una voce poco fa,
aría úr Rakara Rossinis, Casta Diva, aría úr
Normu, og Son vergin vezzosa, aría úr I Purit-
ani, báðar eftir Bellini, aría Michaelu úr Car-
men eftir Bizet og eftir Puccini syngur Zhang
II bel sogno di Doretta, Musetta’s valse (qu-
ando me’n vo) og Un bel di vedremo úr
Madame Butterfly.
David Giménes, sá sami og stýrði móður-
bróður sínum, José Carreras, á tónleikum í
Laugardalshöll í september árið 2001, heldur
um tónsprotann að þessu sinni.
Við minnum á að fram undan er síð-
asta sýningarhelgi í Hafnarborg en þar
standa yfir sýningar á áður ósýndum
verkum listakonunnar Louisu Matthí-
asdóttur og á verkum Hlífar Ásgríms-
dóttur og Olafar Oddgeirsdóttur undir
yfirskriftinni „Með lífsmarki". Á síðar-
nefndu sýningunni eru að hluta til
verk sem listakonumar hafa unnið í
sameiningu og gert tilraun í verki til
að sameina hugmyndir sínar.
Hafnarborg er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og sýningum
lýkur 14. apríl.