Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Page 40
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
I DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum
viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
sefur 550 55 55
SIMINN
SEM
ALDREI
Gefum betri lieilsu því nudd gerir fólk hraustara
og veitir betri líðan. í>ess vegna býður Kínverska
nuddstofan í Hamraborg falleg gjafakort.
Það er tilvalið að gefa vinum og ættingjum
sínum betri líðan í gjöf-
Sanngjarnt verð og vönduð þjónusta fyrsta
flolclcs fagmanna.
fönas Ingólfur Gunnarsson viö málverk sitt
Jónas Gunnarsson opnar sýningu á verkum sem hann málaði í krabbameinsmeðferð:
Tek einn dag fyrir í
„Ég var mikið að mála þegar ég
var yngri en hafði ekki sett máln-
ingu í pensilinn i mörg ár þangað til
i fyrra þegar ég veiktist," segir hinn
21 árs Jónas Ingólfur Gunnarsson
sem opnar í dag sýningu á myndlist-
arverkum sínum í K-byggingu
Landspítalans. Hann greindist með
eitlakrabbamein fyrir tæpu ári og
hóf að mála á ný í meðferðinni. Af-
raksturinn fáum við svo að sjá í dag
þegar sýning hans verður opnuð en
hún verður einnig opin á morgun.
„Það verða eitthvað um 20 verk á
sýningunni en þau eru öll máluð á
síðustu mánuðum. Ég hef aðallega
‘ verið að fást við landslagsmyndir en
eitthvað er þó af abstraktmyndum
þama líka,“ segir Jónas sem mun
svo halda á heimaslóðir vestur í
land í byrjun næsta mánaðar til
þess að sýna verk sín þar.
„Þann 1. maí verð ég svo með
sölusýningu í Klifi i Ólafsvík, ná-
lægt heimaslóðum mínum á Snæ-
fellsnesi, en auðvitað er fólki frjálst
að gera mér tilboð í myndimar
héma fyrir sunnan líka,“ segir
hann og brosir. Jónas verður við-
staddur fyrir hádegi báöa sýningar-
dagana og einnig eftir klukkan f]ög-
ur vilji fólk ná tali af honum.
„Myndlistin hjálpaði mér mikið í
þessum veikindum mínum," segir
Jónas og heldur áfram, „ég lá inni á
spítala í um mánuð eftir að ég
greindist með krabbameinið og var
þar að auki í geislameðferð í u.þ.b.
mánuð. Eftir það hef ég verið í
sjúkra- og iðjuþjálfun hjá Göngu-
deiid LSH í Kópavogi en þaö er sér-
hæfð endurhæfingarstöð fyrir fólk
með krabbamein. Þar hóf ég svo að
mála á ný en eins og ég sagði áður
þá hjálpaði það mér mikið á meðan
á meðferðinni stóð.“
Þegar verk Jónasar eru skoðuð í
tímaröö sést greinilega að eftir því
sem timinn líður verða verk hans
öll bjartari sem endurspeglar
kannski hugarástand listamannsins
en í dag hefur Jónas náð miklum
bata.
„Ég er þegar búinn að selja þrjú
verk og vonandi eiga fleiri eftir að
seljast en það verður bara að koma
í ljós. Hvað framhaldið varðar þá
mun ég reyna að mála eitthvað
áfram ef tími gefst tU. Ég er búinn í
meðferðinni og er meira að segja
farinn að starfa hálfan daginn á
göngudeUdinni sem ég var sjálfur á
þannig aö maður veit ekki alveg
hvemig myndlistin á eftir að þróast.
Ég tek bara einn dag fyrir i einu og
sé svo hvað gerist.“
-áb
Fall íraksstjórnar:
Fagnaðarefni
„Öllum frjálshuga
mönnum er fagn-
aðarefni þegar
hárðstjórn er rutt
úr vegi,“ segir
Bjöm Bjamason
um faU Iraks-
stjómar. „Nú
skiptir mestu að
meö janfskjótum
hætti og tókst aö feUa Saddam af
staUi verði tekið tU við að búa
írökum betri framtíð undir lýö-
ræðislegri og mannúðlegri stjóm
þeirra sjálfra."
Bjöm segir að Sameinuðu
þjóðimar hafi mikUvægu hlut-
verki að gegna við það verkefni.
„En það þarf líka að hafa skýra
forystu og það er ijóst aö þeir
sem hafa haft forystu um að
bjarga heiðri Sameinuðu þjóð-
anna í baráttunni viö Saddam
Hussein hljóta áfram að leiða
þetta verk,“ segir Bjöm. -ÓTG
Aðeins SÞ geta gefið
Bjöm
Bjarnason.
„Það er að sjálf-
sögðu gleðiefni að
Saddam Hussein
og hans stjóm
faUi en við endur-
heimtum ekki þau
mannslíf sem
þessi hUdarleikur
segir Steingrímur
J. Sigfússon, formaður Vinstri-
grænna. Ótrúlegt er að sjá mis-
vísandi yfirlýsingar mUli ráðu-
neyta í Washington. Það er mjög
miður ef þeir ætla að halda Sam-
einuðu þjóðunum þar fyrir utan,
en það þarf sem fyrst að koma
þama á lögmætri skipan og SÞ
era eini aðUinn sem þar getur
komið tU sögunnar og gefið
þessu lögmæti, eins og Kofi Ann-
an hefur sagt. Stríðiö er ólögleg
aögerð en betra er seint en aldrei
að fara aö virða alþjóðlegar leik-
reglur. Þetta stríð er hörmulegt
dæmi um að Bandaríkjamenn
eru gjarnir á að skjóta fyrst og
spyrja svo“.
-GG
Stelngrímur J.
Slgfússon.
hefur kostað,"
1
dagur
í jackass®
Sjálfvírk slökkvitæki
fwir sjónvörp
Síml 517-2121
H. Blöndal ehf.
Auðbrekku 2 - Kópavogi
Innflutningurog sala ■ www.hblondal.com
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRAUÐ j