Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2003, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ2003
Gestunum í Perlunni á þriðjudags-
kvöldiö var ekki í kot vísað. Kvöld-
verðurinn var byggður upp á flakki
um landið sem byrjaði á Klaustri
og endaði í Skagafirði. Einnig
skemmti Karlakór Reykjavíkur
veislugestum undir stjórn Friðriks
S. Kristinssonar.
Matseðill kvöldsins var svohljóð-
andi:
Bleikjutartar frá Klaustri með sil-
ungahrognum og pottbrauði
Kræklingaseyði frá Eyjafirði
Skagfirskar lambarifjar með pecan-
hnetum og myrkilsveppasósu
Súkkulaðiturn með mascaponeis
Vín:
J. Lohr Arroyo Vista Vineyard
Chardonnay 2000
J. Lohr Seven Oaks Cabernet
Sauvignon 1998
Að sjálfsögðu var svo farið með
þýska forsetann til Þingvalla þar
sem gengið var niður Almannagjá,
Lögberg skoðað og að endingu far-
ið í sumarhús forsætisráðherra þar
sem Davíð Oddsson bauð til há-
degisverðar. Síðdegis voru svo þeir
bræður, Geysir og Gullfoss, heim-
sóttir áður en haldið var aftúr til
höfuðborgarinnar.
í gærkvöld lauk svo dagskrá
heimsóknarinnar í Salnum í Kópa-
vogi þar sem forseti Þýskalands
bauð til tónleika kammerhljóm-
sveitar frá Túbingen undir stjórn
Guðna A. Emilssonar. Að þvf loknu
buðu svo forsetahjónin þýsku til
móttöku í Gerðarsafni.
Þau héldu svo af landi brott um
níuleytið í morgun. kja@dv.is
HEILSAÐ UPP Á RÓBERT: Ólafur Ragnar og Johannes Rau heilsa hér Róberti Arnfinnssyni leikara í boði sem þýski forsetinn hélt í
Gerðarsafni I Kópavogi í gærkvöld. Fyrr um kvöldið bauð Rau til tónleika með kammerhljómsveit frá Tubingen.
FORSETANUM HEILSAÐ: Forsetahjónin
þýsku fengu hlýjar móttökur á þriðjudag-
inn - ekki bara frá gestgjöfum heldur líka
veðurguðunum.
GLÆSILEG: Forsetahjónin íslensku,
Dorrit og Ólafur, og þau þýsku, Jo-
hannes og Christina, tóku sig vel út
fyrir framan Perluna þar sem þau
snæddu meðal annars skagfirskar
lambarifjar með pecanhnetum og
myrkilsveppasósu.
Johannes Rau, forseti Þýska-
lands, fór af landi brott í morg-
un eftir vel heppnaða tveggia
daga opinbera heimsókn til Is-
lands. í gær heimsótti hann
meðal annars Þingvelli, Gull-
foss og Geysi auk þess að bjóða
til tónleika og móttöku í Kópa-
vogi.
Forsetinn fór snemma á fætur f
gærmorgun þrátt fyrir að mikið fjör
hefði verið í heiðurskvöldverði í
Perlunni á þriðjudagskvöld. Þar var
margt fyrirmenna eins og sjá má á
gestalistanum sem er hér annars
staðar á sfðunni,en forsetahjónin
Ólafur Ragnar og Dorrit tóku þar á
móti rúmlega 200 gestum. Þar
buðu forsetahjónin upp á einkar
girnilegan matseðil eins og sjá má
hér að neðan.
Þótti íslenska forsetafrúin, Dorrit
Moussaieff, bera af á þriðjudags-
kvöldið þar sem hún skartaði glæsi-
MATSEÐILLINN í PERLUNNI:
Bleikjutartar
frá Klaustri
legum síðum silkikjól, auk þess
sem hálsmenið sem hún bar vakti
mikla athygli.
Gengið um Þingvelli
f gærmorgun mætti Johannes
Rau svo á fund Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra í Ráðherrabú-
staðnum en að viðræðunum lokn-
um hófst íslandsreisa forsetans fýr-
ir alvöru. Ásamt Ólafi Ragnari
Grímssyni og frfðu föruneyti heim-
sótti hann hestabúgarðinn Dalland
á Nesjavallaleið og fylgdist með
kynningu á íslenska hestinum. Að
því loknu var orkuverið á Nesjavöll-
um skoðað.
íslenska forsetafrúin,
Dorrit Moussaieff, þótti
bera afá þriðjudags-
kvöldið þar sem hún
skartaði glæsilegum
síðum silkikjól auk þess
sem hálsmenið, sem
hún bar, vakti mikla
athygli.
Opinberri heimsókn Johannesar Rau lauk í morgun:
Þýski forsetinn
á ferð og flugi í gær
Gestalisti kvöldverðar í Perlunni
Mikið var um dýrðir í hátíðarkvöldverðar-
boði sem forseti Islands hélt til heiðurs
þýsku forsetahjónunum (Perlunni á
þriðjudagskvöld. Alls voru 224 gestir á
gestalistanum, en að fylgdarliði þýska for-
setans slepptu var hann á þessa leið:
Forseti Islands, Ólafur Ragnar Grlmsson
Forsetafrú Dorrit Moussaieff
Forseti Þýskalands, Johannes Rau
Forsetafrú Christina Rau
Ungfrú Anna-Christina Rau
Rfldsstjóm (slands:
Davíð Oddsson forsætisráðherra
Halldór Ásgrlmsson utanríkisráðherra og frú
Sigurjóna Sigurðardóttir
Geir H. Haarde fjármálaráðherra og frú Inga
Jóna Þóröardóttir
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og frú
Nína Þórðardóttir
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og frú
Hallgeröur Gunnarsdóttir
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og hr.
Arvid Kro
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og frú Rut
Ingólfsdóttir
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra
og frú Margrét Hulda Einarsdóttir
Aörirgestir:
Guðmundur Árni Stefánsson 1.
varaforseti Alþingis, og frú Jóna Dóra Karlsdóttir
Frú Vigdls Finnbogadóttir, fv. forseti Islands
Flemming Mörch, sendiherra Danmerkur
á Islandi, og frú Hanne Mörch
Steingrímur Hermannsson, fv. forsætisráðherra,
og frú Edda Guðmundsdóttir
Johannes Gijsen, biskup kaþólskra á fslandi
Hörður Sigurgestsson, stjómarformaður
Flugleiða, og frú Áslaug Ottesen
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Islandi, og hr.
Jón Heiðar Rlkharðsson
Róbert Wessman, forstjóri Pharmaco,
og frú Sigriður Ýr Jensdóttir
Kristján Hjaltason, forstjóri SH-þjónustunnar
ehf., og frú Helga Benediktsdóttir
BjörgólfurThor Björgólfsson, stjómarformaður
Pharmaco, og frú Kristin Ólafsdóttir
Finnbogi Jónsson, stjórnarformaður Samherja,
og frú Sveinborg Sveinsdóttir
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri
Otfiutningsráðs, og frú María Dagsdóttir
Sólon Sigurðsson, forstjóri Búnaðarbanka
Kaupþings, og frú Jóna V. Árndóttlr
Bjarni Ármannsson, forstjóri Islandsbanka, og
frú Helga Sverrisdóttir
Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður
Landsbanka Islands, og frú Þóra Hallgrímsson
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbanka
Islands, og frú Kristrún Þorsteinsdóttir
Páll Kr. Pálsson, forstjóri Vaðs ehf, og frú Helga
Lisa Þórðardóttir
Eberhard Wieland, framkvæmdastjóri Wurth á
(slandi ehf.
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Eimskips, og
frú Hallveig Hilmarsdóttir
Erlendur Hjaltason, framkvæmdastjóri Eimskips,
og frú Aðalheiður Valgeirsdóttir
Karl Eiriksson, forstjóri Ormson hf, og frú Fjóla
Magnúsdóttir
Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, og
frú Ingibjörg Kristjánsdóttir
Ttyggvi Jónsson, forstjóri Heklu, og frú Ásta
Ágústsdóttir
Sverrir Sigfússon, ráðgjafi hjá Heklu, og
frú Stefanía Daviðsdóttir
Hallgrfmur Gunnarsson, forstjóri Ræsis, og frú
Steinunn Helga Jónsdóttir
Jón Norland, framkvæmdastjóri Smith
og Norland, og frú Sigríður Lilja Signarsdóttir
Frú Kristln Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri
Þýsk-islenska verslunarráðsins,
og hr. Kristján Kristjánsson
Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri og
frú Ingibjörg Pálmadóttir
Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri Eddu, og frú
Stefanía Pétursdóttir
Guðmundur Hafsteinsson, skrifstofustjóri
Atlanta, og frú Inger Birgitta Mállberg
Arngrfmur Jóhannsson, Atlanta, og frú Þóra
Guömundsdóttir
Hafþór Hafsteinsson, forstjóri Atlanta, og frú
Hjördis Uney Pétursdóttir
Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri
KatlaTravel, og frú Kristin Dóra Sigurjónsdóttir
Bergþór Konráðsson, framkvæmdastjóri Sindra
Stáls, og frú Hildur Halldórsdóttir
Markús örn Antonsson útvarpsstjóri
Haraldur Johannessen rlkislögreglustjóri og frú
Brynhildur Ingimundardóttir
Lúðvik Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, og frú
Hanna Björk Lárusdóttir
Séra Gunnþór Ingason sóknarprestur og frú
Þórhildur Ólafs
Jónas Guðlaugsson, formaður Vináttufélags
Hafnarfjarðar og Cuxhaven, og frú Dórothea
Stefánsdóttir
Hartmut Wolf myndlistarmaður og frú Birgit
Wolf
Frú Jane Procter ritstjóri og hr.Tom Goldstaub
Frú Ragna Sara Jónsdóttir blaðamaður
Stefán Sigurðsson hagfræðingur
Guðriður Sigurðardóttir, forstöðumaður Þjóð-
menningarhúss
Vésteinn Ólason, forstöðumaður Árnastofnunar,
og frú Unnur A. Jónsdóttir
Jón Björn Skúlason, forstjóri Nýórku, og frú
Steinunn Hauksdóttir
Stefán Lárus Stefánsson forsetaritari
og frú Guðrún Harðardóttir
ÖrnólfurThorsson skrifstofustjóri og frú Margrét
Þóra Gunnarsdóttir
Vigdls Bjarnadóttir deildarstjóri
Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri
Jón Egill Egilsson, sendiherra Islands
I Þýskalandi ,og frú Inga Lis Östrup Hauksdóttir
Stefán Skjaldarson skrifstofustjóri og frú Birgit
Nyborg
Sturla Sigurjónsson skrifstofustjóri og frú Elín
Jónsdóttir
Sveinn Bjömsson prótokollstjóri og frú Sigríður
Hrafnhildur Jónsdóttir
Petrina Bachmann prótokollfulltrúi
Hannes Heimisson skrifstofustjóri og
frú Guðrún Sólonsdóttir
Frú Katrin Einarsdóttir sendiráðsritari
Oswald Dreyer-Eimbcke, aðalræðismaður (s-
lands (Hamborg
Svanur Eiriksson, vararæðismaður á Akureyri, og
frú Erla I. Hólmsteinsdóttir
Dr. Þorsteinn Jóhannesson, ræðismaður Þýska-
lands á Isafirði, og frú Margrét Kristín
Hreinsdóttir
Dr. Adolf Guðmundsson, ræðismaður Þýska-
lands á Seyðisfirði
Dr. Magnús Sigurðsson heiðursræðismaður
Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri og frú Helga
Einarsdóttir
Kristján Andri Stefánsson deildarstjóri
Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri og frú
Guðrún Einarsdóttir
Óskar Þórmundsson yfirlögregluþjónn og frú
Helga Ragnarsdóttir
Jóhann Benediktsson sýslumaöur og frú Sigriö-
ur Guðrún Guðmundsdóttir
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur, og ffú Halldóra Björnsdóttir
Gunnar Dungal forstjóri og frú Þórdls Siguröar-
dóttir
Eirlkur Smith listmálari og frlcflnna Smáradóttir
Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgis-
gæslunnar
Alfreð Þorsteinsson, stjómarformaður
Orkuveitunnar, og frú Guðný Kristjánsdóttir
Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður
Geröarsafns, og hr. Benjamln Magnússon
Oswald Dreyer-Eimbcke, aðalræðismaður
(slands í Hamborg
Dr. Adolf Guðmundsson, ræðismaður
Þýskalands á Seyðisfirði
Dr. Magnús Sigurðsson heiðursræðismaður
Frú Harpa Harðardóttir, Göethe Zentrum
Frú Oddný Sverrisdóttir, stjórnarformaður
Göethe Zentrum
Dr. Coletta Búrling og dr. Kjartan Gíslason
Ásgeir Eggertsson, formaðurGermaniu, og frú
Brynja Jónsdóttir
Hörður Áskelsson organisti og frú Inga Rós
Ingólfsdóttir
Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Sinfónlu-
hljómsveitarinnar, og frú Þómnn Klemensdóttir
Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur
og frú Anna Vilborg Gunnarsdóttir
Frú Guðný Halldórsdóttir kvikmyndaleikstjóri
og hr. Halldór Þorgeirsson.
Einar Már Guðmundsson rithöfundur
Thor Vilhjálmsson rithöfundur og frú Margrét
Indriðadóttir
Þorlákur Morthens myndlistarmaður
og frú Gunný Magnúsdóttir
Arnaldur Indriðason rithöfundur og firú Anna
Fjeldsted
Martin Hunger Friðriksson og frú Þórunn
Björnsdóttir
Arthúr Björgvin Bollason og frn Svala
Arnardóttir
Katrín Hall listdansstjóri og hr. Guðjón Pedersen
leikhússtjóri
Steinunn Siguröardóttir rithöfundur og
hr. Þorsteinn Hauksson
Einar Bollason, forstjóri Ishesta, og ungfrú
Svandís Dóra Einarsdóttir
Kristján Ámason bókmenntafræðingur og frú
Inga Huld Hákonardóttir
Sigurður Björnsson óperusöngvari og frú
Sieglinde Kahmann