Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2003, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2003, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ2003 DVSPORT 31 Lítið að gerast hjá Pétri KNATTSPYRNA: Pétur Marteinsson, leikmaður íslendingaliðsins Stoke í Englandi, segist ekki vera á leið frá félaginu í augnablikinu. Sögusagnir hafa verið um að ýmis lið frá Norðurlöndunum hafi verið að bera víurnar í Pétur, þar á meðal KR. (gær var Pétur síðan bendlaður við Guðjón Þórðarson og félaga hjá Barnsley. Pétur tekur sjálfur hins vegar lítið undir þennan orðróm. „Ég kom til Englands í gær eftir gott frí og fer á mína fyrstu æfingu á morgun (í dag). Þessi hugsanlegu félagaskipti eru ekki í mínum höndum á þessu stigi svo að ég hugsa bara um að standa mig hjá Stoke. Ef eitthvað kemur upp á mun ég skoða þau mál en ég er samningsbundinn Stoke út næsta ár. Vissulega hef ég metnað og vill sanna mig að nýju, m.a. með landsliðinu, en um leið verð ég að standa við gerða samninga," segir Pétur sem verður þrítugur síðar í mánuðinum. Helgi farinn að hugsa sér til hreyfings KNATT5PYRNA: Helgi Sigurðsson, sóknarmaður hjá norska liðinu Lyn, segir litlar líkur vera á því að hann spili áfram með liðinu á næstu leiktíð. Samningur Helga við félagið rennur út eftir þetta tímabil og er honum frjálst að ræða við önnur félög frá og með 1. júlí. „Það er ekkert launungarmál aað ég hef hugsað mértil hreyfings en hvert það verður er óvíst. Eftir sumarið er ég er búinn að vera hér í tæp þrjú ár og það er einfaldlega kominn tími til að breyta til," sagði Helgi í samtali við DV-Sport í gær. Jafnframt sagðist Helgi hafa mestan áhuga á því að leika utan Noregs. „Mig langar að prófa að spila utan Norðurlandanna en ef það gengur ekki upp þá væri ég til í að prófa eitthvert annað Norðurland en Noreg. Ég er bjartsýnn á að finna nýtt félag og treysti umboðsmanni mínum fullkomnlega fýrir því," segir Helgi. i BRÚNAÞUNGUR: Aðalsteini Víglundssyní var ekki skemmt þegar hann horfðl / á menn sína f Fylki tapa fyrsta bikarleik slnum slftan árið 2000 á Akureyri I gaer. DV-mynd SigurífurJúi.. 1- 0 Dean Martin 6. 2- OSteinarTenden 52. 3- 0 Hreinn Hringsson, vfti 76. Bikarmeistarar Fylkis sóttu KA- menn heim í gærkvöld. Drengirnir úr Árbænum sýndu einn slakasta leik sinn í sumar og töpuðu með þremur mörk- um, 3-0, móti sterkum heima- mönnum sem stjórnuðu leikn- um frá fyrstu mínútu og gáfu engan höggstað á sér fyrr en á lokamínútunum þegar sigurinn var næsta víst kominn í höfn. Strax á 6. mínútu leiksins komust heimamenn í KA í forrystu. Steinn Viðar Gunnarsson átti þá frábæra sendingu utan af velli inn í teig Fylkismanna þar sem Dean Martin kastaði sér fram og skallaði boltann óveijandi fram hjá Kjartani Sturlu- syni í markinu. Fátt var um mark- tækifæri næstu 20 mínútumar, liðin skiptust á að sækja, og vom sóknir heimamanna eilítið beittari. Ffrafn- kell Helgason átti besta færi gest- anna á 30. mínútu en gott skot hans af 20 metrunum sleikti utanverða stöng KA-manna. Fátt annað mark- vert gerðist fram að leikhléi og menn héldu til búningsherbergj- anna. Strax á 7. mínútu seinni hálf- leiks áttu heimamenn stórsókn. Dean Martin braust upp hægri kantinn þar sem hann gaf fyrir og Steinar Tenden var réttur maður á réttum stað í teigi Fylkismanna og hamraði boltann viðstöðulaust í Sigurvin KR og unglingaliðs ÍA á blautum vellinum. Liðið skoraði reyndar að því er virtist löglegt mark þegar skammt var eftir en aðstoðar- dómarinn mat það svo að boltinn hefði ekki farið inn fyrir marklínuna þegar Garðar fylgdi eftir skoú Ellerts. Eins og áður segir fór spila- mennska KR að mestu eftir framtaki Veigars Páls. Ekki má gleyma þætti „Skagamenn sýndu íslandsmeisturunum enga virðingu." Sigurvins Ólafssonar á miðjunni en hann skilaði sínu vanmetna hlut- verki mjög vel og sá um að dreifa boltanum - oftast þó til Veigars. Stuðningur fyrir'þessum rökum birt- ist á silfurfati þegar þeir kumpánar voru teknir af leikvelli um miðjan síðari hálfleikinn. Þá datt allur bom úr heimamönnum og Skagamenn gengu á lagið. Jökull Elísabetarson átti góðan dag sem hægri bakvörður en aðrir léku undir getu. Hjá ÍA stóðu „reynsluboltarnir" fyrir sínu. Ellert var elstur þeirra, ný- lega orðinn 21 árs, og átti ágætis leik. Annars vom fjórir leikmenn í liði ÍA ekki nema 16 ára. Besti maður vall- arins, ásamt Veigari, var Hjálmur Dór Hjálmsson sem lék í stöðu mið- varðar. Hann var sú hindmn sem var óyfirstíganleg fyrir Veigar og var kappinn hreinlega ffábær í vöm Skagans. Liðið getur vel spilað án okkar Með Einar Þór Daníelsson og Kristján Finnbogason á varamanna- bekknum var Sigurvin Ólafsson gerður að fyririiða KR í gærkvöld. Hann kvaðst nokkuð sáttur við ffammistöðu KR. „Við náðum ágætis spili á köflum og miðað við að hafa misst mann út af var þetta viðunandi. Ég tek algjör- leg fyrir það að liðið geti ekki spilað án okkar Veigars. Það er fínn mann- skapur í Vesturbænum sem getur leyst okkur vel af. Við áttum auðvit- að hræðilegan leik gegn Grindavík í deildinni en ég er bjartsýnn á fram- haldið. Maður leiksins: Hjálmur Dór Hjálmsson, ÍAU23 vignir@dv.is „Vorum með bux- urnar á hælunum" sagði Þórhallur Dan Jóhannsson hjá Fylki netmöskvann. Fylkismenn urðu fyrir miklu áfalli á 75. mínútu en þá braut Kjartan Sturluson markvörður á Ronni Hartvig og fékk umsvifalaust rauða spjaldið hjá ágætum dómara leiks- ins. Þar sem brotið átti sér stað inn- an teigs var að sjálfsögðu dæmt víti sem Hreinn Hringsson tók og skor- aði örugglega. Fylkismenn komust „Fylkisvörnin var mjög ótraust og fékk Dean Martin næstum óhindr- aðan aðgang upp kant- inn" aðeins inn í leikinn á lokamínútun- um og áttu nokkur hálffæri en ekk- ert sem ógnaði marki heimamanna að neinu ráði. Bikarmeistaramir ffá því í fyrra em úr leik, en KA-menn haida áfram í 8 liða úrslit. Fyikismenn áttu án efa einn versta leik sinn í sumar. Leikmenn liðsins virtust áhugaiausir og sókn- araðgerðir þeirra vom ómarkvissar auk þess sem vörn þeirra virtist mjög ótraust á köflum, sérstaklega vinstra megin, þar sem Dean Mart- in fékk næstum óhindraðan aðgang upp kantinn. Vörn heimamanna var sterk allan tímann og greinilegt er að koma Ronnis Hartvigs hefur aukið sjálfstraust hennar til muna. Maður leiksins: Ronni Hartvig akureyri@dv.is Þórhallur Dan Jóhannsson var að vonum svekktur með að vera úr keppninni um VISA-bikarinn. „Já maður er svekktur, eiginlega hundsvekktur. KA-menn vom miklu betri í dag og við vomm með buxurnar á hælunum nær allan leikinn og tókum ekkert á þeim," sagði Þórhallur en taldi víst að sínir menn myndu hysja upp um sig buxumar og reima skóna fast á sig fýrir leik liðanna á sunnudaginn. „Við munum taka á þeim þá en þeir vom ofarlega í fyrra og hafa bætt við sig mannskap em með vel- spilandi Iið og fullt af góðum leik- mönnum. Er í fínu formi Besti maður leiksins, Ronni Hartvig, var ánægður í leikslok. „Þetta var mjög mikilvægur leikur fýrir okkur KA-menn, sérstaklega í ljósi úrslitanna um síðustu helgi gegn Sloboda, og góð úrslit hér hjálpa okkur við að gleyma von- brigðunum þá," segir Ronni sem hefur fallið einstaklega vel inn f lið KA-manna í undanfömum leikj- um. „Ég kom hingað til landsins áður en keppninni heima í Dan- mörku lauk þannig að ég var í fínu formi þegar ég kom. Auk þess hafa strákamir héma í KA tekið mér vel og allt starfsfólks í kringum knatt- spymudeildina," segir Ronni. Þurfum stöðugleika Félagi Ronni frá Danmörku, markvörðurinn Sören Byskov, var einnig sáttur við að vera kominn í átta liða úrslit VISA-bikarkeppn- innar. „f dag sýndum við að við höfum gott lið. Ef við losnum við ffekari meiðsl í liðinu getum við sigrað öll liðin í deildinni. En við þurfum að sýna meiri stöðugleika gegn öllum liðum. í leiknum í dag áttum við að leyfa boltanum að rúlla meira milli okkar en ég er mjög sáttur við vamarvinnu minna manna því að við gáfum þeim mjög fá færi,“ sagði Sören. akureyri@dv.is U231 gærkwölcl. Nekkrum sekúndubrotum Mftar l,í knötturinri (rwti Skaga- monna. ♦ *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.