Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Blaðsíða 12
72 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 1.ÁGÚST2003
Útíönd
Heimurinn í hnotskurn
Umsjón: Erlingur Kristensson / Kristinn Jón Arnarson
Netfang: erlingur@dv.is / kja@dv.is
Sími: 550 5828
N-Kóreumenn í viðræður
NORÐUR-KÓREA: Stjórnvöld í
Norður-Kóreu hafa samþykkt
að taka þátt í sex landa samn-
ingaviðræðum um umdeilda
kjarnorkuáætlun sína, með
þátttöku Kínverja, Rússa,
Bandaríkjamanna, Suður-
Kóreumanna og Japana, sem
liklega fara fram í Peking.
Þar með er lokið löngu
samningaþófi um langþráðar
fjöldaviðræður síðan í apríl en
hingað til hafa Norður-Kóreu-
menn aðeins viljað ræða málið
við Bandaríkjamenn án þátt-
töku annarra þjóða. Að sögn
Lee Soo-hyuk, aðstoðarutan-
ríkisráðherra S-Kóreu, var
viljayfirlýsing Norður-Kóreu-
manna stuttorð og án allra skil-
yrða. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær viðræðurnar hefjast.
Herferð hafin
PÁFAGARÐUR: Páfagarður hefur haf-
ið alþjóðlega herferð gegn hjóna-
vígslum samkynhneigðra til þess að
koma í veg fyrir að fleiri þjóðir í
Evrópu og Ameríku setji lög sem leyfi
slíkt. (harðorðri tólf síðna yfirlýsingu,
sem undirrituð eraf Joseph Ratzinger,
guðfræðilegum ráðgjafa Jóhannesar
Páls páfa, segir að kaþólska kirkjan líti
svo á að sambönd samkynhneigðra
séu ósiðleg, óeðlileg og skaðleg.
Dætur
Saddams
til Jórdaníu
Tvær af þremur dætrum Sadd-
ams Husseins, fyrrum íraks-
forseta, þær Raghad og Rana
Saddam og níu börn þeirra,
hafa fengið hæli í Jórdaníu af
mannúðarástæðum og eru
þær þegar komnar til Amman
þar sem þær munu búa í einni
af höllum Abdullah konungs.
Það var Nabil Sharif, upplýsinga -
málráðherra Jórdaníu, sem til-
kynnti þetta í gær og sagði hann að
systurnar væru gestir þjóðarinnar
og Abdullah konungs.
„Sem gestum er þeim velkomið
að dvelja hér og velkomið að fara
hvert sem þær vilja um landið. En
það er tilfmning mín að þær séu
komnar til þess að vera hér áfram,“
sagði Nabil.
Að sögn náinna vina systranna
sóttu þær sjálfar um hæli í Jórdaníu
og veitti Abdullah konungur það
fúslega af mannúðarástæðum, þar
sem þær áttu ekki í önnur hús að
venda.
Eiginmennirnir skotnir
Þær Raghad, sem er 35 ára og
Rana, sem er tveimur árum yngri
eru dætur Saddams og fyrstu eigin-
konu hans, Sajida Khairallah Telah.
Hvorug þeirra var eftirlýst af
Bandaríkjamönnum og talið ólík-
legt að þær viti nokkuð um dvalar-
stað eða ferðir föðurs síns síðan
hann var hrakinn frá völdum.
Eiginmenn systranna, þeir Huss-
ein og Saddam Kamal voru skotnir
til bana að skipan Saddam Huss-
eins árið 1996, sakaðir um Iandráð
eftir að hafa snúið heim frá Jór-
danfu, en árið áður höfðu þeir flúið
þangað ásamt fjölskyldum sínum
og boðið fram aðstoð sfna við að
steypa tengdaföður sínum af stóli.
Að sögn náinna vina
sóttu þær sjálfar um
hæli í Jórdaníu og veitti
Abdullah konungur
það fúslega afmann-
úðarástæðum þar sem
þær áttu ekki í önnur
hús að venda.
Saddam Kamal hafði um áraraðir
stjórnað gjöreyðingavopnaáætlun
fraka og lak hann upplýsingum um
áætlunina til bandarískra, breskra
og jórdanskra stjórnvalda.
Sex mánuðum síðar bauð Sadd-
am þeim að koma aftur heim til
íraks og lofaði fyrirgefningu synd-
anna. Þeir þáðu það en voru fljót-
lega drepnir eftir 13 klukkustunda
skotbardaga, sem taiið er að þeir
Uday og Qusay, synir Saddams, hafi
MÓÐIR OG SYSTUR: Sajida Khairallah Telah, fyrsta eiginkona Saddams Husseins ásamt dætrunum Rönu og Raghad og nokkrum
börnum þeirra systra.
skipulagt að beiðni föður þeirra.
Síðan þá hefur systrunum verið
haldið í stofufangelsi í Bagdad, eða
þar til borgin var hertekin af Banda-
ríkjamönnum, en fljótíega eftir það
var þeim leyft að flytja til Samein-
uðu arabísku furstadæmanna þar
sem þær dvöldu síðustu dagana þar
til þær fengu hæli í Jórdaníu.
Fyrst höfðu vinir systranna ráð-
gert að sækja um hæli fyrir þær í
Bretíandi en eftir að því hafði verið
algjörlega hafnað, án þess þó að
formleg beiðni hefði verið lögð fram,
var leitað til jórdanskra stjómvalda.
Hala, þriðja dóttir Saddams, sem
var uppáhald föðurs síns, er eigin-
kona Jamals Mustafa Abdallah Sul-
tan al-Tikrits, sem gaf sig fram við
Bandaríkjamenn þann 17. maí sl., en
hann var náinn samstarfsmaður
Saddams og númer tíu á lista Banda-
ríkjamanna yfir eftirlýsta hjálpar-
kokka hans.
Nýjar upplýsingar
David Kay, einn helsti vopnasér-
fræðingur Bandaríkjamanna í Irak
og sérstakur ráðgjafi CLA, fullyrti í
gær að óvæntar ahyglisverðar upp-
lýsingar um gjöreyðingavopna-
áætlanir Irak ættu eftir að koma
fram á næstu dögum. Hann vildi þó
ekkert staðfesta um það hvort
gjöreyðingavopn hefðu fundist en
sagði að íraskir vísindamenn hefðu
unnið náið með bandarískum sér-
fræðingum að undanförnu og upp-
lýst ýmislegt nýtt um gjöreyðingar-
vopnaáætlun Saddams.
Þessar upplýsingar Kays koma
fram á besta tíma fyrir þá Bush
Bandaríkjaforseta og Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, en þessa dag-
ana er lagt hart að þeim báðum að
leggja fram haldbær gögn um gjör-
eyðingavopnaeign íraka, sem rétt-
lættu stríðið.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeiiunni 17. Sími 568 51 0Ú
www.surukibilar.is
SUZUKI
Grand Vitara 3ja dýra verð frá 2.115.0Ö0
Grand Vitara 5 dyra verð frá 2.435,000
Grand Vitara XL-7 verð frá 3.090.000
Áformum ísraelsmanna
um áframhaldandi
uppbyggingu mótmælt
Bandarísk stjórnvöld hafa
varað ísraelsmenn við því að
áframhaldandi uppbygging
landtökubyggða á heima-
stjórnarsvæðum Palestínu-
manna gangi gegn alþjóð-
legu friðaráætluninni, Veg-
vísi til friðar, og sé henni í
raun mjög skaðleg.
„Það er gert ráð fyrir að upp-
byggingin verði stöðvuð og þess
vegna koma þessar áætlanir fsra-
elsmanna mjög á óvart," sagði
Richard Boucher, talsmaður
bandaríska utanrfkisráðuneytis-
ins, í gær eftir að fréttir bárust af
því að ísraelsk stjómvöld hygðust
leggja fram áætlanir um áfram-
haldandi uppbyggingu landtöku-
byggða á Gaza-svæðinu.
Boucher sagði að viðræður um
málið væm þegar hafnar eftir að
Palestínumenn höfðu fordæmt
þessar nýju ráðgerðir ísraels-
ARIEL SHARON: Sharon kemur í bakið
á Bandaríkjamönnum með breyttar
áætlanir um uppbyggingu landtöku-
byggða á Gaza-svæðinu.
manna harðlega í gær en þær
koma fram aðeins stuttu eftir að
slitnaði upp úr saminga-
viðræðum um brottflutning herja
ísraelsmanna frá herteknu
svæðunum á miðvikudaginn.