Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST2003 ÖV HÉLGARBLAb 21 BÍLNÚMER RAGNHILDAR: Ragnhildur keyrir um á jeppa frá Toyota með þessu glæsilega einkanúmeri en Toyota hefur stutt vel við bakið á henni. „Golfklúbburinn minn á einnig miklar þakkir skildar," segir Ragnhildur. sinni, hvert á sínu sviði: Ragnhildur í golfinu, Einar í enduro-þolakstri og Sigurður og Sölvi í hestaíþrótt- um. „Árið 1998 urðum við þrjú af fjórum Islandsmeistarar sama árið, hvert á sínu sviði. Ég og Siggi bróð- ir fengum svo viðurkenningu í lok ársins sem íþróttamenn í okkar íþróttagreinum, það var dásamleg tiifinning," segir Ragnhildur og heldur áfram: „Foreldrar okkar vildu að við stæðum okkur vel í öllu því sem við tækjum okkur fyrir hendur og alltaf þegar við fórum að heiman, sama hvert það var, þá sagði pabbi: „Og verið okkur nú til sóma.“ Við þorðum náttúrlega ekki „Það er ekki auðvelt að vera í keppnisgolfi með lítil börn. Mamma átti mjög stóran þátt í þeim árangri sem ég hefnáð gegnum tíðina, hvort sem það voru störfkylf- usveinsins eða barna- píunnar." annað," segir Ragnhildur kímin. Það er þó ekki bara metnaður og keppnisskap sem Ragnhildur tekur með sér á völlinn heldur er ekki laust við að hún sé örlítið hjátrúar- full þegar kemur að velgengninni. „Eg var t.d. lengi með lukku- bangsa en svo hætti hann að virka þannig að ég lagði honum. Á lands- mótinu var ég með hárteygju sem Berglind Björnsdóttir framtíðar- meistari hafði lánað mér. Ég var með hana allt landsmótið og hún greinilega virkaði," segir Ragnhild- ur og brosir. Hún segir að móðir sín, sem lést fyrir þremur árum, sé heldur aldrei langt undan. „Hún var með mér í Eyjum, það er enginn vafi. Áður en ég fór að sofa kvöldið fyrir vallarmetið flugu í gegnum hugann allar stundirnar sem hún hafði staðið sem klettur við hlið mér og ég vorkenndi sjálfri mér og óskaði þess að ég hefði hana hjá mér. Svo mætti hún bara og togaði í ósýnilega spotta," segir Ragnhild- ur og bætir við að hún hafi farið „Þegar ég var 16 ára gat ég valið hvort ég yrði íslenskur eða ensk- ur ríkisborgari og að sjálfsögðu valdi ég rétt" með golfkúlu að leiði móður sinnar áður en hún fór til Eyja - svo vissu- lega sé hún hjátrúarfull. Það er greinilegt að það var kært á milli þeirra mæðgna og segir Ragnhildur að móðir sín hafi verið ótrúleg manneskja sem tók annarra þarfir endalaust fram yfir sínar eigin og sinnti þeim. „Það er ekki auðvelt að vera í keppnisgolfi með lítil börn. Mamma átti mjög stóran þátt í þeim árangri sem ég hef náð gegn- um tíðina, hvort sem það voru störf kylfusveinsins eða barnapíunnar." Golf fyriralla Að sögn Ragnhildar skiptir miklu máli að vera í góðu andlegu jafri- vægi þegar að keppni kemur. Ef hugurinn er við eitthvað annað en höggið fram undan þá er voðinn vís. Góður andlegur undirbúningur er ekki síður mikilvægur heldur en tækniatriði golfsveiflunnar. „Ég hita alltaf vel upp, aðallega til að finna út hvernig dagsformið er, af því að maður getur ekki alltaf gengið að því sem vísu að fá sín bestu högg. Ef höggin eru ekki góð getur maður reiknað með að það gerist úti á velli og er síður að svekkja sig, tekur því sem Guð rétt- ir manni þann daginn og reynir að vinna sem best úr því. Mér finnst gott að nota hugarþjálfun og á kvöidin þegar ég var komin upp í rúm í Eyjum þá spilaði ég völlinn í huganum og reyndi alltaf að slá mín bestu högg. Það að sjá fyrir sér og finna hvernig maður stendur á teignum, að sjá boltann fljúga og sjá hann lenda á brautinni gerir það að verkum að manni finnst maður hafa spilað völlinn oftar en ella og það vel!“ Aðspurð um óhöpp í golfinu segist hún reyna að gleyma öllum óhöppum strax en þó man hún eftir meistaramóti sem unglingur þar sem hún fékk 14 högg á fimmtándu holu. „15-braut- in í Grafarholtinu hefur reynst mörgum ansi strembin, með skurðum báðum megin og vatni fyrir framan flötina sem óhjá- kvæmilegt er að slá yfir vilji maður að kúlan endi í holunni. Ég dældi kúlum í vatnið, endaði á 14 högg- um og uppskar þriðja sætið að launum," segir Ragnhildur og hlær. Maðurinn og börnin spila líka golf, dæturnar gengu í golfklúbb- inn Kjöl í Mosfellsbæ í vor og Þor- varður grípur einnig til kylfunnar en hann er með 20 í forgjöf. „í goffinu er keppt á jafnréttis- grundvelli; afar, ömmur, pabbar og mömmur, börn og barnabörn leika sér saman. Það er án efa ein af ástæðunum fyrir þeirri sprengingu sem hefur orðið í íþróttinni hin síð- ustu ár, ásamt hollri útiveru og skeinmtilegum leik,“ segir Ragn- hildur og bætir við að þrátt fyrir að kynjaskiptingin í íþróttinni sé mjög óhagstæð fyrir konur þá sé greini- lega mikiluppsveifla hjá stelpum. Sjálf vinnur hún við það að halda utan um stelpustarfið hjá Golf- klúbbi Reykjavíkur. Einnig hafa kvenkyns nemendur hennar úr Ár- bæjarskóla sótt námskeið í sumar. „Ég hengdi í vor upp auglýsingu í Árbæjarskóla þar sem auglýst var ókeypis golfnámskeið fyrir stelpur og skráðu sig 39 stelpur úr ung- lingadeildinni. Ég sé einstaklinga með mikla hæfileika í þeim hópi,“ segir Ragnhildur en svo er bara að sjá hvort þær hafa áhuga á að halda áfram. „Iþróttamennska er í heiðri höfð í golfinu, á vellinum er ekki til siðs að sýna svipbrigði eða einhverja neikvæða hegðun gagnvart and- stæðingnum. Kylfingar hrósa hver öðrum og stappa stálinu hver í annan, það er annar andi en maður upplifir oftar en ekki á fótboltaleikj- um þar sem er gargað og gólað á liðsmenn, blammeringar og sví- virðingar fá að fjúka, jafnvel frá for- eldrum - slíkir einstaklingar ættu að skammast sín og fengju ekki að vera langa stund á golfvelli," segir Ragnhildur að lokum og hristir höfuðið. snaeja@dv.is ■ og <&££)}}§ Q vodafone i (gefuw útvarp hátíðarinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.