Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST2003 DV HELGARBLAÐ 35 VEIFAÐ TIL FJOLDANS: Eyjólfur veifar til aðdáenda sem fjölmenntu til þess að sjá hann spila í síðasta sinn í búningi Herthu. HETJAN KVÖDD: Áhangendur hylltu Eyjólf, eða Jolly eins og þeir kalla hann, lengi að leik loknum enda hefur hann þjónað liðinu vel í átta ár. EKKERT GEFIÐ EFTIR: Eyjólfur og Michael Preezt gáfu ekkert eftir í síðasta leik sínum, eins og þessar myndir bera með sér. SteASTI SPRETTURINN: Félagarnir Eyjólfur og Preezt hlaupa hér síðasta sprettinn fyrir Herthu fyrir framan fjölda áhorfenda á Ólympíuleikvanginum f Berlín. FAGNAÐ AF 35 ÞÚSUND ÁHORFENDUM: Um 35 þúsund áhorfendur mættu á kveðjuleik Eyjólfs Sverrissonar sem haldinn var um síðustu helgi á Ólympfuleikvanginum í Berlín. Ákaft var fagnað þegar Eyjólfur og félagi hans, Michael Preezt, gengu af velli f síðasta sinn en þeir hafa verið mjög góðir vinir þau átta ár sem þeir hafa leikið saman með Herthu. Eyjólfur segir það hafa verið einstaka tilfinningu að ganga af velli f sfðasta sinn. mörgum af bestu knattspyrnumönnum heims. Eyjólfur segir margt standa upp úr á ferlinum en nefnir þó nokkrar minningar sem honum eru kærari en aðrar. „Það er margt sem stendur upp úr. Meist- aratitillinn með Stuttgart var t.d. mjög eftir- minnilegur rétt eins og meistaratitillinn sem við unnum í Tyrklandi. Svo var sérstaklega gaman að taka þátt í meistaradeildinni með Herthu Berlín þar sem við mættum mörgum af bestu liðum heims. Svo man ég líka vel eft- ir leik með Herthu þar sem við vorum að berjast um að komast upp í efstu deild í Þýsklandi þar sem 76 þúsund áhorfendur horfðu á okkur sigra. Þetta eru allt ógleyman- legar stundir,“ segir Eyjólfur sem segist eiga góðar minningar með hverju liðið fyrir sig. „Svo var gaman þegar landsliðið var að spila við Frakkana þar sem við náðum aldeil- is að stríða þessu stjörnum prýdda liði þeirra. Svo á maður líka góðar minningar með Tindastóli, t.d. þegar við slógum KR út úr bik- arnum. Það eru nokkur svona augnablik þar sem maður fær beinlínis gæsahúð af því að hugsa til baka. En svo eru líka leikir sem fóru illa og maður á heldur aldrei eftir að gleyma. Eins og 6-0 tapið á móti Dönum sem var minn síðasti landsleikur. Það er nokkuð sem gleymist ekki heldur. En maður verður auð- vitað að kunna að tapa líka og það er alveg jafnmikill hluti af þessu,“ segir Eyjólfur og brosir út í annað. Þegar hann er inntur eftir því hvaða leik- mönnum og þjálfurum hann muni helst eftir þarf hann ekki langan umhugsunarfrest og svarar um hæl: „Michael Preezt er sá sam- herji sem ég hef hvað mestar mætur á. Við spiluðum saman kveðjuleik fyrir Herthu um síðustu helgi og við höfum verið mjög góðir vinir þau átta ár sem við vorum saman hjá í Berlín, innan vallar sem utan. Svo hef ég líka sterkar taugar til þjálfara eins og Christops Daums sem hefur komið mikið við sögu á at- vinnumannsferli mínum. Svo er Bjarni Jó- hannsson líka eftirminnilegur en hann er sá maður sem fékk mig til þess að halda áfram að spila fótbolta þegar ég var að hugsa um að skipta yfir í körfuna á sínum tíma. Svo hafa bræður mínir líka haft mikil áhrif á mig,“ seg- ir Eyjólfur. „Hvað mótherjana varðar get ég nefnt mjög marga. Franska landsliðið var náttúr- lega erfitt en svo man ég líka vel eftir því þeg- ar við í Herthu spiluðum við Barcelona og AC Milan þar sem maður mætti stórstjörnum á borð við Maldini og Figo. Svo eru margir í þýsku deildinni sem hafa verið erfíðir, eins og Elber sem er martröð hvers varnarmanns." Vantar einn leik upp á Eins og kunnugt er eru laun atvinnumanna á borð við Eyjólf Sverrisson í hærri kantinum miðað við það sem gengur og gerist. Þegar Eyjólfur er spurður út í þann þátt atvinnu- mennskunnar segist hann hafa komið sér vel fyrir og hugsað fram í tímann. „Ég er búinn að vera í þessu lengi og hef haft vit á því að hugsa fram í tímann. Ég er búinn að koma mér vel fyrir og hef ekki yfir neinu að kvarta. Það er staðreynd að menn fá vel borgað í atvinnumennskunni en það er ekkert sem varir að eilífu og menn verða að huga að því eins og öðru og halda rétt á spöð- unum,“ segir Eyjólfur, en sögumar herma að hann hafi gert nokkrar arðbærar íjárfestingar úti í Þýskalandi, m.a. fyrir tilstuðlan Dieters Hoeness sem þjálfaði hann bæði hjá Stutt- gart og Herthu Berlín. „Ég hef þekkt Dieter frá því í Stuttgart og við emm miklir mátar. Það er svo sem ekkert Ieyndarmál að við vomm saman í ákveðnu fjárfestingardæmi á sínum tíma en við erum engir viðskiptafélagar, ef þannig mætti að orði komast. Hann var mér ótrúlega hjálpleg- ur, sérstaklega þegar ég kom fyrst til Þýska- lands og vissi lítið um það hvert ég ætti að snúa mér. Þá er eðlilegt að maður spyrji þá sem em í kringum sig og hafa vit á hlutunum þannig að það lá beint við að ég leitaði til hans, líkt og Ásgeir Sigurvinsson gerði á sínum tíma. Dieter er toppmaður sem hefur alla tíð verið mér mjög góður," segir Eyjólíúr og hefur ekki fleiri orð um það. Að lokum lék blaðamanni DV forvitni á að vita hvort ekki væri mögulegt að Eyjólfur myndi leika eins og einn leik með sínum gömlu félögum í Tindastóli á Sauðárkróki áður en hann legði skóna endanlega á hill- una. „Ég útiloka ekkert. Ég held alveg örugglega að ég sé búinn að spila 99 leiki fyrir Tindastól um ævina þannig að það vantar eiginlega bara einn upp á til þess að fullkomna þetta. Það gæti því alveg gerst að ég spilaði hundr- aðasta leikinn fyrir Tindastól einhvem tíma. Maður verður bara að sjá til og athuga hvort maður fær tækifæri til þess.“ agust@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.