Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Blaðsíða 16
16 DVHELGARBLAÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST2003
DvHelgarblað
Umsjón: Snæfríður Ingadóttir og Finnur
Vilhjálmsson
Netfang: snaeja@dv.is / fin@dv.is
Sími: 550 5891
Pútter
Ragnhildur
íslandsmeistarinn
Ragnhiidur
Sigurðardóttirsegirfrá
golfferlinum og fleiru.
Ást á útihátíð
Er verslunarmannahelgin
rómantískasta helgi
ársinsfMargirfinnasér
allavegna maka um
þessa helgi.
Brynjartil Forest
Skrifaði undir eins árs
samning við eitt af
toppliðum ensku i.
deildarinnar í gær.
Bls. 20
Bls. 28
Bls. 59
Hugsjónirog
hátíðin vestra
Ein af hátíðunum sem haldnar eru um
verslunarmannahelgina er unglinga-
landsmót Ungmennafélags fslands vest-
ur á fsafirði. Búast má við rúmlega þús-
und keppendum til leiks en mótsgestir
verða stórum fleiri. Björn Bjarndal Jóns-
son er formaður UMFÍ.
„Að minni hyggju eru það margir samverk-
andi þættir sem valda því að svo ágætur
hljómgrunnur er fyrir unglingalandsmóti.
Fyrir fáum árum hefði þótt fjarstæðukennt
að efna til svona hátíðar um verslunar-
mannahelgi. Þeirra viðhorfa gætir alls ekki
nú,“ segir Björn f viðtali við DV. Hann kveðst
f inna til þakklætis til UMFÍ vegna þessa -
það er að félagið sé tilbúið að segja sukkinu
sem hefur fylgt þessari helgi stríð á hendur.
„Gildi ungmennafélagshreyfingarinnar
koma hér vel fram. Við boðum að hornsteinn
þjóðfélagsins sé íjölskyldan. Það er hollt að
taka þátt í heilbrigðum leik, hvort sem það er
í íþróttum eða öðrum tómstundum, sér til
gagns og gleði. Þessi gildi eiga svo sannarlega
upp á pallborðið í dag.“
Gerir starfið eftirsóknarvert
Björn segir að margt valdi því að málflutn-
ingur og gildi UMFÍ nái til fólks. „Það er ekki
allra að stunda íþróttir. Því er mikilvægt að
hafa eitthvað handa þeim að gera sem vilja
taka þátt í félagsstarf! en finna sig ekki í
íþróttum. Leiklist, Iandgræðsla, skógrækt,
dans, félagsmál og fleira er nokkuð sem við
höfum alla tíð boðið upp á og gerir starfið eft-
irsóknarverðara," segir Björn og bætir við að
á landsmótinu vestra megi vel sjá fjöl-
breytnina í starfi félagsins og það í hverri ein-
ustu byggð landsins.
„Miðað við reynslu af fyrri mótum munu á
annað þúsund keppendur taka þátt í mótinu
og gestir verða fimm til sjö þúsund. Lands-
mót á Sauðárkróki á næsta ári verður aðra
helgina í júlí. Hvað við gerum um næstu
verslunarmannahelgi veit ég ekki. Margir
telja að unglingalandsmót séu komin til að
vera árlega og þá um þessa helgi. Það er
þings UMFÍ í haust að ákveða framhaldið."
Ekki á sauðskinnsskóm
Allt frá því að Ungmennafélag íslands var
stofnað árið 1907 hefur ræktun lýðs og lands
í víðustu merkingu þeirra orða verið megin-
stefið í starfi félagsins. Það hafði líka með
starfi sínu og gildum mikil áhrif í sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar. Björn segir að þetta
meginmarkmið í starfinu sé áfram hið sama.
„En við göngum ekki lengur í sauðskinns-
skóm frekar en aðrir. Félagið hefur náð að
aðlaga sig breytingum í þjóðfélaginu. Flestir
þekkja hugsjónastarf í skógrækt. Það tók
langan tíma að sanna fyrir þjóðinni að hægt
væri að endurheimta skóga Islands en það
tókst. f dag erum við með nokkur baráttumál
- eins og að fá sem flesta til að hreyfa sig í
lengri sem styttri gönguferðum - bæta heils-
una og kynnast náttúru landsins betur f leið-
inni.“
Björn segist hugsjónamaður og hugsjónir
gildi í mörgum þáttum innan starfs ung-
mennafélaga. Aukin samvera fjölskyldunnar
sé sér kært mál og nokkuð sem ungmennafé-
lögin vinni að með margvíslegu móti.
BARÁTTUMAÐURINN: „Það er ekki allra að stunda
íþróttir. Því er mikilvægt að hafa eitthvað handa þeim
að gera sem vilja taka þátt í félagsstarfi en flnna sig
ekki í íþróttum," segir Björn Bjarndal Jónsson. DV-
mynd:Teitur
Mikil uppbygging
„Hver og einn íslendingur á að vera sér
meðvitandi um uppruna sinn og hafa það að
markmiði að vinna landi sínu og þjóð gagn,“
segir Bjöm. Spurður segir hann ekki auðvelt
að svara því hvort ungmennafélagshreyfing-
in hafi nú sambærilegt hlutverk og í fullveld-
isbaráttunni á sínum tíma.
Hann segir UMFÍ hafa reynt að berjast
gegn fólksflótta af landsbyggðinni og gert
sitthvað í þeim efnum. „Þar sem landsmót
UMFÍ hafa verið haldin hefur orðið mikil
uppbygging sem ella hefði ekki orðið. Þá
höfum við opnað þjónustumiðstöðvar hring-
inn í kringum landið og eiga þær að styrkja
æskulýðsstarf á landsbyggðinni. Þá vinnum
við gegn vímuefnum en besta forvörnin er
vitaskuld gott fjölskyldulíf og öflugt æsku-
lýðsstarf."
Breiddin er einkenni
Verulegur eðlismunur er, að mati Björns, á
starfi ungmennafélaganna og íþróttasam-
taka eins og til dæmis KSÍ, HSÍ og slíkra sam-
taka. „Breiddin í starfl ungmennafélaganna
er einkenni hennar, hvort heldur litið er til
starfsins sjálfs eða aldurs þátttakenda. Hug-
sjónin gerir ekki ráð fyrir að nokkur verði of
gamall fyrir holla hreyfingu eða til að stunda
félagsstarf. Við erum og viljum vera í grasrót-
arstarfi og sinnum afreksíþróttum þar af
leiðandi lítið. Það er hlutverk sérsambanda
og ÍSÍ að sinna þeim málum," segir Björn.
Á seinni árum hefur talsvert verið rætt um
að peningarnir séu að ná öllum tökum á
íþróttunum. Björn segir það í góðu lagi að
greiða íþróttafólki laun en innistæðan þurfi
þá að vera fyrir hendi. Því miður hafi grasrót-
arstarf liðið fyrir að drjúgur hluti af tekjum
íþróttafélaga hefur farið til þeirra sem komn-
ir eru í meistaraflokk og f kostnað við þjálfun
þeirra. „Þetta er sem betur fer að lagast. For-
svarsmenn félaga gera sér nú betur grein fyr-
ir því að íslenski markaðurinn er ekki svo stór
að hann þoli þetta."
Jöfn tækifæri
Sjálfboðastarf innan UMFÍ hefur og alltaf
verið mikið og segir Björn að ef greiða ætti
laun fyrir það sjálfboðastarf sem unnið er
innan félagsins yrðu tekjur að aukast um
einn til tvo milljarða.
„Það gengur ekki upp og því er vonandi að
sjálfboðastarfið haldi áfram af fullum krafti
enda er það þar sem ungmennafélagshug-
sjónin nýtur sín hvað best,“ segir hann og
telur almenningsíþróttirnar sérlega mikil-
vægar í því sambandi.
„Við leggjum áherslu á að almenningur
taki þátt í hollri hreyfingu. Það skiptir ekki
öllu máli hjá okkur að hafa óteljandi sigur-
vegara. Meginmálið er að allir séu með og
hafi jöfn tækifæri til þátttöku."
sigbogi@dv.is