Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST2003 DV HELGARBLAÐ 25 Lax og silungur eru algengur matur á borðum landsmanna á þessum árstíma. Matreiðslan hér á síðunni er afar girnileg þar sem lax- inn er eldaður á einfaldan hátt en meðlætið er samsett úr fersku grænmeti og ljúffengum kryddteg- undum. Við erum við sama hey- garðshornið og venjulega og viljum mæla með vínum með matnum; ekki síst þar sem margir gera sér glaðan dag um verslunarmanna- helgina. Við fengum Gunnlaug Pál Páls- son hjá Austurbakka til að finna vín með krásunum. Kaliforníuvín urðu fyrir valinu hjá Gunnlaugi Páli og bæði frá sama framleiðanda; hinu rúmaða J. Lohr-fyrirtæki. Við gerð Cypress-vínanna er allt gert til að ná því besta fram í þrúg- unum og eru þær valdar frá hinum ýmsum víngörðum J. Lohr-fjöl- skyldunnar. Hugmyndin er að búa til gæðavín sem er jafnframt hvers- dagsvín. Til þess að vínin bragðist alltaf eins geta blöndurnar því verið mismunandi ár frá ári. Fyrra vínið sem varð fyrir valinu kallast Cypress White Zinfandel frá Lodi-svæðinu. Vínið fer vel við lax- inn því það er fallega laxableikt á litinn. Umurinn er af jarðarberjum og rifsberjum með frfskandi, lfflegri og snarpri sýru. Vfnið er aðeins freyðandi með vott af sætu. Að sögn Gunnlaugs Páls hentar þetta vín mjög vel með laxi, barbeque-rifjum og kjúklingi, salötum með bctls- amic-dressingu eða rifsberjaediki. Cypress Zinfandel getur líka ver- ið alveg frábært eitt og sér. Það má vel hugsa sér að bjóða upp á það sem fordrykk í sumarbústaðnum eða í lautarferðinni. Þrúgurnar eru að stærstum hluta Zinfandel, eða 90%, 5,5% eru Syrah og 4,5% Merlot. Vínið fæst í reynsluverslun- um ÁTVR og kostar 990 krúnur. Önnur tegund frá sama fyrirtæki varð einnig fyrir valinu hjá Gunn- laugi Páli. Það heitir Cypress Barrel Fermented Chardonnay. Þetta vín er frá Monterey og Clarksburg. Vín- ið hefúr gylltan lit og ber með sér flúkna angan epla, límúnu-krydd- túna, jarðarberja, hvftra blúma, vanillu og smjörs. Ríkulegt bragð er af sítrus, eplum og ristaðri dökkri eik með löyddtúnum sem þykja samsvara sér einkar vel. Cypress Chardonnay er úrvalsvín eitt og sér sem fordrykkur. Það passar líka mjög vel með pastarétt- um, fiskréttum í rjúmasúsu, svo sem laxi, og einnig með ljúsu fugla- kjöti. Þrúgurnar eru að stærstum hluta Chardonnay, eða 93,4%, og 6,6% Viognier. Cypress Chardonnay fæst í flestum verslun- um ÁTVR og kostar 1.290 krúnur. Gæðavín frá Kaliforníu sem eru iíka hversdagsvín - eru val Gunnlaugs Páls Pálssonar hjá Austurbakka Haukur með kartöflu- og ólífusalatið sem hann mótar sem kringlótta köku á diskinum og leggur laxinn ofan á. Hér er sósan hrærð í mauk en þegar um meira magn er að ræða er matvinnsluvél gjarnan notuð ef hún er fyrir hendi. Lárviðarlauf henta vel sem skreyting á laxinn sem hefur verið steiktur þannig að húðin er orðin stökk. DV-myndir: ÞÖK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.