Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Síða 2
2 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003
ÖTGAFUFéLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýslngar: auglys-
ingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerö og prentun: Arvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins i
stafrænu formi og í gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl
við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Stóraukin ásókn fjár-
glæfrafyrirtækja
- frétt bls. 4
Umbrot í viðskiptalífinu
- frétt bls. 8
Ætlaði að kaupa sér
nýjan jakka
- erlent fréttaljós bls. 14
Madonna venjuleg
- Helgarblað bls. 16
Hrefnukjötsuppskrift
- Matur og vín bls. 24-25
Spennandi lokaumferð
- DV Sport bls. 40-41
Krókódílar á grein
Maður hringdi á dögunum í
dýragarð í Suður-Afríku og sagði
frá tveimur krókódflum á grein
uppi í tré í garðinum hjá sér.
Starfsmenn dýragarðsins vildu
ekki kaupa þessa sögu hráa,
sögðust vantrúaðir á að krókódíl-
ar gætu klifrað (trjám. Þeir vildu
þó hafa vaðið fyrir neðan sig og
sendu fulltrúa sinn á staðinn. Sá
gapti af undrun að sjá tvo lida
krókódíla engjast í trjágreinun-
um. Dýrin þjáðust mjög af vatns-
skorti og dóu skömmu síðar
þrátt fyrir lífgunartiiraunir. Ekld
er vitað hvemig kvikindin
komust upp í tréð en menn leiða
getum að því að flðmð máltíð
hafi freistað þeirra.
Fyrirgefa mistök og sárindi
Ræninginn gengur laus
ÞINGFLOKKAFt Miðstjórn
Frjálslynda flokksins fjallaði um
mál Gunnars Örlygssonar á
fundi á fimmtudag og tók af-
stöðu til skriflegrar afsökunar-
beiðni hans. (tilkynningu seg-
ir: „Miðstjórn var Ijóst fyrir al-
þingiskosningar sl. vor að
Gunnar Örlygsson yrði að af-
plána þriggja mánaða refsingu
og inna af hendi sektargreiðslu
sem þingmaður ef hann næði
kjöri til Alþingis. Miðstjórn var
einnig sammála þeirri máls-
meðferð sem að Frjálslynda
flokknum sneri, að Gunnar Ör-
lygsson kæmi ekki til starfa á
Alþingi fýrr en hans mál væru
uppgerð og refsingu lokið." Og
síðan segir: „Miðstjórn harmar
þetta mál, en sárindi og mistök
ber að fýrirgefa.“
RÁN: Lögreglan heldur áfram
að reyna að upplýsa hver það
var sem rændi fjármunum úr
(slandsbanka í Lóuhólum síð-
degis á fimmtudag. „Það er
ekkert nýtt, menn eru engu
nær um hver maðurinn er. Það
er verið að vinna úr þeim upp-
lýsingum sem voru á staðn-
um,"sagði Hörður Jóhannes-
son yfirlögregluþjónn við DV
um miðjan dag í gær. Ekki hef-
ur verið gefið upp hve miklum
peningum ræninginn náði.
Hann gekk inn í bankann,
stökk yfir afgreiðsluborð og
yfir í gjaldkerastúku sem var
mannlaus. Þar hrifsaði hann
peninga úr skúffu. Eftir mjög
skamman tíma, langt innan
við mínútu, var maðurinn
kominn út aftur. Starfsmaður
hljóp á eftir honum til að
freista þess að stöðva för hans
en án árangurs. Hörður segir
að óvíst sé að hve miklu gagni
myndir úr öryggisvél komi.
Ræninginn hafi verið þannig
útbúinn að erfitt hafi verið að
bera á hann kennsl. Var hann
með hettu eða húfu sem huldi
andlit, annað en augu, og trefil
sem hluldi neðri hluta höfuðs.
Héraðsdómur Vestfjarða dæmir bræður fyrir brot gegn
valdstjórninni:
Bitu, slógu og skölluðu
þrjá lögreglumenn
Héraðsdómur Vestfjarða
dæmdi í gær bræður á þrítugs-
aldri seka um brot gegn vald-
stjórninni. Bræðrunum var gef-
ið að sökað hafa bitið lögreglu-
mann í fingurinn, slegið til ann-
ars með krepptum hnefa og
handjárnum og skallað þann
þriðja í andlitið. Þeir hlutu báð-
ir skilorðsbundna dóma fyrir
brot sín.
Málsatvik voru þau að lögregla
hafði í október á síðasta ári afskipti
af bræðrunum þar sem þeir slógust
fyrir utan skemmtistað í Bolungar-
vík. Beita þurfti úðavopni til þess
að skilja mennina að en þeir brugð-
ust illa við afskiptum lögreglunnar
og til harkalegra átaka kom er lög-
regla hugðist færa mennina í járn.
Þá var meðal annars slegið til lög-
reglumannanna, ýmist með
krepptum hnefa eða handjárnum
sem fest höfðu verið við úlnlið ann-
Mönnunum var gefið
að sök að hafa bitið
lögreglumann í fingur-
inn, slegið til annars
með krepptum hnefa
og handjárnum og
skallað þann þriðja í
andlitið.
ars mannsins. Lögreglumönnun-
um tókst að forðast öll höggin
nema eitt en þeir kölluðu síðan eft-
ir aðstoð frá kollegum sínum á Isa-
ftrði.
í öllum þessum hamagangi
LENDA OFTIHÆTTU: Starf lögreglumanna getur á stundum verið haettulegt eins og fram kemur í meðfylgjandi frétt. Þessi mynd tengist
ekki því máli en sýnir lögregluna að störfum.
komst annar bræðranna svo undan
en tveir lögreglumenn veittu hon-
um eftirför á meðan sá þriðji ók
með hinn bróðurinn á brott. Hon-
um tókst hins vegar að komast út
úr lögreglubifreiðinni og þegar lög-
reglumaðurinn reyndi að þvinga
hann aftur inn í bílinn skallaði
hann lögreglumanninn í andlitið.
Sá sem komist hafði undan var
handtekinn stuttu síðar og færður á
lögreglustöð.
í dómi héraðsdóms Vestfjarða
kemur fram að bræðurnir hafi sýnt
einbeittan árásarvilja en annar
þeirra hefur tvívegis áður hlotið
dóma vegna líkamsárása og var
hann á skilorði er brotin voru fram-
in. Sá hlaut fjögurra mánaða fang-
elsisdóm en hinn var dæmdur í
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi. Sá síðarnefndi hafði áður
gerst sekur um umferðarlagabrot
en refsing hans fellur niður að
þremur árum liðnum haldi hann
almennt skilorð.
agust@dv.is
VINSÆLUSTU BARNABÆKURNAR
HERRA SUBBI
HERRA KITLI
HERRA LITILL
HERRA SKELLUR
Framhaldsskólakenn-
arar án starfsþjálfunar
Útlit er fyrir að Háskóli fslands
brautskrái næsta vor um 80
verðandi framhaldsskólakenn-
ara án nokkurrar kennsluþjálf-
unar.
Guðný Guðbjömsdóttir, formað-
ur Uppeldis- og menntunar-
fræðiskorar Félagsvísindadeildar
HÍ, og Hafdís Ingvarsdóttir, um-
sjónarmaður kennslufræði til
kennsluréttinda, segja að 8-10
milljónir króna vanti upp á til að
hægt sé að senda nema sem em í
kennsluréttindanámi við HÍ í vetur
í starfsþjálfun í framhaldsskólum
samkvæmt gildandi kjarasamningi.
Er þá gert ráð fyrir að æfrnga-
kennsla verði felld niður á gmnn-
skólastigi. Háskóli fslands hefur
farið fram á 8 milljóna króna auka-
fjárveitingu frá menntamálaráðu-
neytinu svo nemar geti fengið
starfsþjálfún í framhaldsskólum.
Formlegt svar hefur ekki borist og
þykja viðbrögð ekki gefa tilefni til
bjartsýni.
Elna Katrín Jónsdóttir, formaður
Félags framhaldsskólakennara,
segir þetta til þess að bæta gráu
ofan á svart. f fýrra vom æfinga-
kennslutímar skornir niður um
helming. Hún segir að þetta mál
verði að leysa hið fyrsta. Umræða
um agaleysi í skólum landsins hafi
verið nokkuð áberandi síðustu
misseri og það sé hrein lítilsvirðing
af hálfu menntamálaráðuneytisins
í garð nemenda sem og foreldra
þeirra að stefna reynslulausum
framhaldsskólakennumm inn í þá.
gg@dv.is