Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Síða 17
f MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 DV HELGARBLAÐ 17 frönsku - þeir eru útgefendur Litla prinsins - og að útgáfu- hófið yrði haldið í heimalandi hans." Pabbi las fyrir systkinin átta Uppákoman í París var tvískipt, annars vegar blaða- mannafundur á Hótel Ritz með fulltrúum þrjátíu landa, hins vegar veisla í fögrum garði Gallimard-útgáfunnar. „Meðal blaðamannanna voru fáein börn og tvær mjög ungar stúlkur spurðu fyrstu spuminganna," segir Sigþrúð- ur. „Þær spurðu hvað Madonna hefði lesið þegar hún var krakki og hvort það væri eins að semja bók og músík. Madonna reyndist hafa lesið mikið sem bam - hélt til dæmis upp á Namíubækur C.S. Lewis, Lísu í Undralandi og bækurnar hans E.B. White, Vefinn hennar Karlottu og Stúart litla. En henni vafðist tunga um tönn við seinni spuminguna, sagðist svo leggja að minnsta kosti jafnmikið af sjálffi sér í bækumar og lögin en það væri miklu miklu meiri vinna að semja svona barnabók en lag. I æsku bjó Madonna með föður sínum og einum sjö systkinum í litlu húsi og hún sagði að pabbi sinn hefði alltaf lesið fyrir þau á kvöldin. I húsinu vom mörg lítil her- bergi þar sem bömin sváfú og þegar þau vom komin í bólið settist pabbinn á stól á ganginum og las fyrir þau, öll í einu! Hún talaði óskaplega fallega um pabba sinn og uppeldi sitt." —Átti hún ekki mömmu? „Nei, hún var móðurlaus eins og Binna í sögunni. Hún var spurð á fundinum hverja hún hefði öfundað sem krakki og hún sagðist hafa öfundað krakka sem áttu mömmu. Þannig að hún er að vinna úr eigin reynslu líka í bókinni." Hart var gengið á Madonnu með það hvort hún læsi fyrir börnin sín og hve oft. Loks svar- aði hún þvf til að hún læsi fyrir þau um það bil á hverju kvöldi. En hvað les hún? „Hún lagði mikla áherslu á að hún læsi fallegar sögur og góðar," segir Sigþrúður og grettir sig pínulítið. „Þá spurði einn sænsku blaðamannnanna hvort hún læsi Astrid Lind- gren og hún spurði á móti hvort það væri konan sem skrif- aði Línu langsokk. Svo sagðist hún oft lesa úr hennar bók- um, þannig að það em ekki bara hámóralskar sögur sem hún les, Lola litla fær líka að heyra um prakkarastrik Línu og Emils." Svör á reiðum höndum Kaballa tengist gyðingdómi og mikill Madonnuaðdá- andi ffá ísrael spurði hvort Madonna kæmi ekki pílagríms- ferð til ísraels tU að kynna sér gyðingatrú nánar. Madonna þvemeitaði því, trúarbrögð skiptu fólki bara í fylkingar og bækumar hennar hefðu ekkert með gyðingdóm að gera, þær boðuðu eingöngu kærleika. „Enn meiri aðdáandi var frönsk stúlka ffá einhverjum netmiðli," segir Sigþrúður, „ég skildi hana ekki vel en hún virtist fyrst ætla að spyrja spumingar eins og aðrir. Fljót- lega fór hún þó að gera kröfur tU Madonnu - um að taka við gjöf og kyssa hana - svo hrópaði hún hvað eftir annað „ég elska þig, ég elska þig, ég elska þig“ - og var borin út!“ Madonna var spurð að því hvort öfundin gæti ekki verið góð í bland - hvort hún gæti ekki drifið fóUc tU stórra verka ef það væri að keppa við aðra. Madonna sagði það fjarri lagi: „Öfund er alltaf af hinu Ula, hún grefur alltaf undan sjálfstrausti fólks og það er alltaf slæmt." „Hún hafði svör á reiðum höndum við öllu," segir Sig- þrúður. „Hún var til dæmis spurð hvort hún ætlaði að halda áfram að skrifa eftir þessar fimm bækur og hún sagð- ist hafa áhuga á því - og ekki bara fyrir böm. Þá var hún minnt á að síðasta bók sem hún gaf út hefði verið ljós- myndabókin SEX og spurð hvort ekki væri einkennilegt að manneskja með þá fortíð sneri sér að mórölskum barna- sögum. Hún hélt nú ekki, þetta væri allt saman rökrétt þró- un. Þegar hún gaf út SEX var hún upptekin af sjálfri sér, vildi sýna sig og vera flott, síðan væru liðin tíu ár og núna væri hún upptekin af allt öðmm hlutum. Hún væri orðin móðir og vildi koma fallegum boðskap á framfæri. Hún var líka spurð út í koss þeirra Britney Spears og hvort hún vildi láta líta á sig sem viUta poppdrottningu eða stUltan bama- bókahöfund. Hún sagðist ekkert hugsa um það, vUdi bara fá að vera sú sem hún væri hverju sinni." Fyndin og afslöppuð - Hvemig kom hún fyrir? „Ég sat á fremsta bekk, mjög nálægt henni, þannig að ég gat fylgst vel með henni," segir Sigþrúður. „Hún lét bíða lengi eftir sér og virtist stressuð þegar hún loksins kom. En þegar hún var sest við háborðið fór henni að líða vel. Hún fékk mikið af heimskulegum spumingum en svaraði öllu skemmtUega, var fyndin og afslöppuð. Hún var ekki lengi í veislunni en hún spjaUaði við frönsk böm sem höfðu sungið fyrir hana og áritaði bækur handa þeim, svo var hún mynd- uð með öUum útgefendunum og við fengum að skiptast á orðum við hana." - Hvað sagði hún við þig? „Hún tók íslensku bókina af mér og las titilinn, Ensku rósimar, og náði ffamburðinum ágætlega - hann myndi ekki vefjast fyrir henni ef hún lærði íslensku! Svo spurði hún hvort hún fengi ekki bókina á íslensku og ég gaf henni eintakið sem ég var með - áritað! Úr því að hún vUdi ekki árita bók fyrir mig þá áritaði ég bara bók fyrir hana! Svo sagði hún að henni þætti gaman að koma út á íslandi og líklega urðu orðin ekki fleiri. Við brostum framan í linsuna og þar með var minn tími búinn!" - Hvemig leið þér? „Mjög einkennUega. Þetta er ólíkt öllu sem ég hef nokkum tíma lent í. Madonna er auðvitað ofurstjama, ein ffægasta kona í heimi, en manni verður Ijóst í svona návígi að þetta er bara venjuleg manneskja. Þama gekk hún um með sína litlu dóttur eins og ég hefði getað gert líka. Þó að þetta atvik eigi ekki eftir að hafa gagnger áhrif á líf manns héðan í ffá var það mjög skemmtUegt. Það er gaman að fá einu sinni að komast í návígi við svona stjömu." Aðdáendur hópuðust að sjálfsögðu saman fyrir utan Ritz og Gallimard í von um að sjá drottningunni bregða fyrir, og Sigþrúður segir að þegar hún hafi haldið út í Parísamótt- ina, löngu eftir að Madonna var farin brott með dóttur sína, hafi fólk enn staðið þar fyrir utan, spilað og sungið Madonnulög og gert gleðihróp að þeim sem komu út úr þessu eftirsótta húsi. poM@dv.is Fljótlega fór hún þó að gera kröf- ur til Madonnu - um að taka við gjöfog kyssa hana - svo hrópaði hún hvað eftir annað„ég elska þig, ég elska þig, ég elska þig"- ogvarborinútl" Stórball ársins í Iíaplakrika á iaugardagimi 20. september 2003 Forsala aðgöngumiða á Súfistanum Hafnarfirði og í Kaplakrika Húsið opnað kl. 23:00 Nú mæta ailir á eitt besta ball ársins í Hafnarfirði! a\ adidas Smáauglýsingar ertu aö kaupa eða selja? 550 5000 P t I Allnr ir Yfir 30 mismunandi uppstillingar til sýnis í verslun okkar. ■ Allar innréttingar til afgreiðslu af lager Úflif: Spónl. hlynur f% Úflif: Hvíf fulning Breidd 120 sm .... bpor....f.. Breiad 1 20 sm Sturtuhorn. Öryggisgler, segullæsing. 70x70 sm kr. 20.750, * stgr. 80x80 sm kr. 20.750, - stgr. Útlit: Ölur Breidd 80 sm Sturtuhorn rúnnaS. Heil sveigS örygg'sgleG segulíæsing. 80x80 sm kr. 37.950, - stgr. 90x90 sm kr. 41.950, - stgr. Einnarhandar blöndunartæki f. handlaug m. lyftit. Kr. 5.900,- stgr HitastýrS blöndunartæki m. bruna- og vatnsöryggi. Fró kr. 9.800,- stgr. Útlit: Hvít fulning Breidd 90 sm Útlit: Ölur Breidd 125 sm Útlit: Kirsub.fulning Breidd 90 sm Útlit: Hvít slétt Breidd 95 sm Útlit: Kirsuberjafulning Breidd 1 20 sm Sturtuhlíf f. baSkar þrískipt. Öryggisgler. 125x140 sm kr. 16.900,- stgr. Gala Nila handlaug í borS 56x47 sm Verð kr. 7.900,- stgr. Uppgefnar breiddir miSast viS neSri skápa, ekki heildarbreidd. Einnarhandar blöndunartæki f. baS m. sturtusetti Kr. 5.900,- stgr i~ WC meS festingum og harSri setu. Tvötöld skolun. Stútur í vegg eSa gólf. Verð frá kr. 17.900,- stgr. Innbyqqt WC. MeS öllum fylgihl. Verð kr. 37.450,- stgr. V. Fellsmúla • S. 588 7332 OpiS: Mán. - föst. 9-18, Laugardaga 10-14

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.