Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Page 18
4
78 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003
Súkkulaði, kynlíf,
rauðvín og vindlar
Freistingor eru til þess að falla fyrir þeim, sagði
einhver spekingur og má rétt vera. Allt sem
manninum finnst gott er sennilega óhollt,
ólöglegt eða ósiðlegt.
Það hefur einhvern tfmann verið sagt
að allt sem er gott sé annaðhvort ósiðlegt,
ólöglegt eða óhollt. Það getur hver og
einn litið inn í hjarta sitt þessu til staðfest-
ingar. Nútfmamaðurinn er umkringdur
freistingum í mat og drykk sem há
þróaður auglýsingaiðnaður heldur
að honum af slíkum krafti að eng-
in leið verður að standast allar
freistingarnar. Þetta sést best af
tölum um stöðugt hækkandi með-
alþyngd fólks í flestum ríkjum þar
sem velmegun er hvað mest.
Lítum á nokkur dæmi:
Aftur í glasið?
Nýjar rannsóknir sýna að í góðu
rauðvínsglasi kann að leynast lyk-
illinn að langlífi. Vísindamenn
hafa fundið í rauðvíni efni sem
lengir líf einfaldra gersveppa um
80%. Tilraunir á rannsóknarstofu
sýna einnig að þetta efni eykur þol
frumna úr mönnum gegn geislun.
Það kann að vera dálítið stökk frá
þessum uppgötvunum yfir í fram-
leiðslu á lyfi sem lengir líf fólks en
það er sjálfsagt það sem flestir sem
koma að málinu eru að hugsa um.
Þetta efni finnst einnig í ávöxtum
og grænmeti auk ólífuolíu.
Þetta er allt gott og blessað og
þegar við bætum þessu við að lengi
hefur því verið haldið að fólki að
eitt rauðvínsglas á dag hafi aldeilis
sérlega góð áhrif á hjarta og æða-
kerfið þá ætti að vera í lagi að fá sér
aftur í glasið. En of mikil neysla á
rauðvíni rétt eins og öðru áfengi
leiðir til áfengissýki, þunglyndis, skorpulifrar
og styttir lff manna.
Blessaður bjórinn
Annað dæmi af þessu tagi er bjórinn sem
Islendingar fengu loksins að drekka óhindrað
árið 1989 og hafa lítið dregið af sér við drykkj -
una síðan. Það hefur margt verið sagt fallegt
um bjórinn eins og að hann sé ígildi brauðs
og þar með er gefið í skyn að sá sem á nógan
bjór þurfi ekki að borða eins mikið. Bjórinn
hefur einnig jákvæð áhrif á samfélög og sam-
skipti manna, hvetur til söngs og gleði og er
freyðandi gleðigjafi nánast hvernig sem á það
er litið.
Sá sem borðar mikið verður
feitur, eða fær fyrir hjartað
eða þjáist af langvinnum
meltingartruflunum vegna of-
áts eða óhóflegrar krydd-
neyslu. Þetta getur ekki endað
nema á einn veg.
En þeir sem drekka of mikið af bjór geta
orðið áfengissjúklingar, þá safna þeir svokall-
aðri bjórvömb sem seint verður talin til prýði
á nokkrum manni, nefið verður rautt og
þrútið og of mikil fitusöfnun á kviðarholi
styttir vinnulengd getnaðarlims og það hefur
ekki góð áhrif á kynlífið.
Viltu nammi, væna?
Súkkulaði er gott. Þetta er eitt af því fáa
sem heimurinn er líklega að mestu sammála
um. Við getum fengið svo mikið af súkkulaði
því að framleiðendur keppast við að bjóða
okkur það í risapökkum í Bónus, í háklassa
sérpakkningum í konfektbúðum eða fram-
andi og freistandi í Fríhöfninni.
Það eru til rannsóknir sem sýna að í
súkkulaði leynist efni sem lætur okkur
beinlínis líða vel. Þetta eru efni sem heili
mannsins framleiðir og losar þegar við
eru mjög glöð eða ástfangin eða eitthvað
af því tagi. Þessi vellíðunartilfinning sem
súkkulaðið getur kallað fram hefur getið
af sér kannanir sem sýna að meira en
helmingur aðspurðra kvenna sagðist
frekar vilja súkkulaði en kynlíf ef þær
mættu velja.
Súkkulaði inniheldur um það
bil 550 hitaeiningar í hverjum
100 grömmum. Það þýðir til
dæmis að fjögur stór Snickers
eru ágætur dagskammtur fyrir
vinnandi fólk.
Þetta er ekki erfitt. Þeir sem
borða mikið af súkkulaðinu
góða verða feitir vegna þessara
umframhitaeininga sem þeir
innbyrða. Það þykir ekki alls
kostar fi'nt að vera feitur og það
getur fækkað verulega tækifær-
um fólks til að velja um
súkkulaði eða kynlíf.
Áttu eld?
Það er orðið frekar langt síðan
nokkrum manni datt í hug að
halda því fram í alvöru að það
væri hollt að reykja. Það getur
hins vegar enginn sem nokkru
sinni hefur reykt haldið því fram
að það sé ekki gott. Einu já-
kvæðu fréttirnar sem ég hef
nokkru sinni heyrt af virkni og
áhrifum tóbaks gengu út á að
nikótín skerpti heilastarfsemina
tímabundið. En óumdeilt veldur
það mikilli vellíðan og þeir sem
hafa barist hvað harðast við tó-
baksfíkn segja að það sé erfiðara
að venja sig af reykingum en
heróínfíkn.
Þess vegna er ekkert skrýtið þótt fólk leggi
það á sig að láta úthýsa sér á heimilum og
vinnustöðum, láti okra á sér og fórni síðan lífi
sínu, vellíðan og heilsu ofan í kaupið, Allt fyr-
ir reykingarnar. Þetta er fólkið sem getur ekki
hætt og tóbakið mun að lokum drepa það. En
vegna þess hve reykingar eru sterkur og
magnaður ávani á tóbakið heima í þessari
grein.
Viltu koma heim með mér?
Menn geta áreiðanlega verið nokkuð
almennt sammála um gæði kynlífs.
Fjölmargar rannsóknir sýna að það er
margt jákvætt við kynlíf annað en að
það viðheldur mannkyninu. Það
stuðlar að vellíðan og ástúð, eyk-
ur líkamlegt þol, brennir óþarfa
hitaeiningum og er sannkall
aður gleðigjafi þegar ekki er
völ á annarri skemmtan
enda er kynlíf oft
kallað ópera fá-
tæka mannsins.
En þeir sem
halda að það sé
ekkert athugavert
við að stunda kynlíf í
óhófi þurfa að rifja
upp ýmsa lífshættulega
sjúkdóma sem geta
borist milli fólks við kyn-
lífsiðkun, kynli'fsfíkn hefur
steypt mörgum manninum
í glötun og rústað fjárhag
þeirra sem ánetjast dónalegum símalín-
um, vændiskonum og dansmeyjum. Kynlíf
og vangeta manna til þess að standast freist-
ingar á því sviði hefur lagt legíó hjónabanda í
rúst, gert börn heimilislaus ef ekld munaðar-
Skál! Þótt hóflega drukkið
vín gleðji vissulega manns-
ins hjarta leynast hættur í
glasinu eins og öllu sem er
gott.
Nektin helllar Sumir telja að á okkar tímum sé kynlíf ofnotað og kynhegðun fólks sé komin úr öllum böndum.
laus og valdið meiri
annað böl manna.
óhamingju en margt
Komdu að borða
Matur er mannsins megin og
sjaldan hefur verið eins auð-
velt að vera meistara-
kokkur og í dag. Fram-
boðið á hráefni er ævin-
týralegt, flóð matreiðslu-
bóka yfirgengilegt svo ekki
sé minnst á öll tímaritin og
fylgiblöðin. Svo standa
lamie Oliver og Nigella
Lawson á skjánum til-
búin að sýna hvað
það er hlægilega
auðvelt að elda
smjörsoðin þistilhjörtu
með ostasósu eða eitt-
hvað.
Við tökum að sjálf-
sögðu þátt í leiknum og
horfum á þættina,
kaupum blöðin og
reynum eins og við get-
um að elda. En matarnautnin felur í sér sínar
hættur rétt eins og aðrar nautnir.
Sá sem borðar mikið verður feitur, eða fær
fyrir hjartað eða þjáist af langvinnum melt-
vntu
namml,
væna? Öllumfinnst
^kkulaði gott og rann-
sóknir sýna að margir kjósa það í
stað kynlífs en of mikið súkkulaði er
ekki gott.
ingartruflunum vegna ofáts eða óhóflegrar
kryddneyslu. Þetta getur ekki endað nema á
einn veg. Það verður að fara að telja hitaein-
ingar og fylgjast með fituinnihaldi upp á
gramm. Meinlætalíf á ekki vel við lífsglaða
sælkera og þeir verða önugir og pirraðir.
Allirá iði
Offita er skilgreind sem eitt stærsta heil-
brigðisvandamál nútímans og fer vaxandi.
Það er ekki lengur spurt hvort fólk hreyfi sig
reglulega heldur hvernig það haldi sér í formi
því auðvitað vill enginn vera feitur þvf það er
ekki fallegt og svo er það óhollt. Þess vegna
förum við út að skokka, út að hlaupa, göngum
á fjöll, hjólum, skíðum, förum í líkamsrækt og
lyftum lóðum, hoppum og stökkvum í þolfimi,
syndum, kraftgöngum, gerum jógaæfingar,
stundum sjósund svo fátt eitt sé nefnt sem
tryggir heilbrigða sál í hraustum líkama.
En sá sem þjálfar of mikið býr við stöðug
meiðsli og vanlíðan. Ofþjálfun veikir ónæmis-
kerfið, slítur ganglimum, liðum og þófum
margfalt of hratt. Niðurgangur, líkþorn, bein-
himnubólga, rifnir liðþófar, slitin liðbönd og
krónískt kvef er meðal þess sem of mikil lfk-
amleg áreynsla getur leitt af sér.
Eina rökrétta niðurstaðan sem hægt er að
draga af þessu er auðvitað sú að hóf sé best í
hverjum hlut. polli@dv.is
-VT
.m
™ w
■ T-':.-