Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Blaðsíða 36
40 DVSPORT LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003
FLUdWEL
í ELDL.ÍNUNNI:
t>að mun mikid mæða ém
leikmönnum Vals og Fram
eins og um stðustu helgi
þegar liðin mættust.
OV mynd
Lokaumferð æsispennandi Landsbankadeildar karla fer fram í dag
Sjaldan áður hefur ríkt jafn mik-
- il spenna fyrir lokaumferð fs-
landsmótsins í knattspyrnu
þegar meistararnir hafa þegar
verið krýndir. Fallbaráttan er í
algleymingi og geta 5 lið, helm-
ingur deildarinnar, auðveldlega
fallið. Það sem gerir málin enn
skemmtilegri er að liðin geta öll
bjargað sér með sigri óháð úr-
slitum úr öðrum leikjum.
Tvö lið munu falla, svo mikið er
víst. En þar sem 4 af þeim 5 liðum
sem eru í fallhættu mætast inn-
byrðis um helgina munu að
minnsta kosti tvö þeirra tapa stig-
um - og það gæti orðið þeirra
banabiti. Reykjavíkurstórveldin
tvö, Valur og Fram, sitja í botnsæt-
unum fyrir umferðina og er því vit-
anlega verst fyrir þeim komið. En
aðeins tvö stig skilja að neðstu 5
liðin og er því skammt stórra högga
á milli.
Langt er síðan spennan hefur
verið eins mikil og ef fallslagur síð-
ustu ára er skoðaður má sjá að þó
LIÐ í FALLHÆTTU: 2003
(BV 17 7 2 8 24-24 23
v Þróttur 17 7 1 9 27-28 22
Grindavík 17 7 1 9 23-30 22
KA 17 6 3 8 28-26 21
Valur 17 6 2 9 22-27 20
Fram 17 6 2 9 21-30 20
Fallslagur í lokaumferðinni:
Grindavlk-KA
Fram-Þróttur
Fylkir—Valur
svo að oft hafi lið staðið tæpt hefur
óvissan aldrei verið meiri (1997
voru Stjarnan og Skallagrímur fall-
in í síðustu umferðinni).
Þriggja marka sigur ekki nóg
f fyrra féllu Keflvíkingar þrátt fyr-
ir að þeir fengu 20 stig yfir tímabil-
ið og var það aðeins í annað sinn
sem það gerist f 10 liða efstu deild
LIÐ í FALLHÆTTU: 2002
ÍBV 17 5 5 7 22-20 20
ÍA 17 5 5 7 27-26 20
FH 17 4 7 6 27-29 19
Fram 17 4 5 8 26-33 17
Keflavlk 17 3 8 6 21-29 17
Þór Ak. 17 3 4 10 22-38 13
Fallslagur í lokaumferðinni:
FH-lBV 2-1
Grindavík-Keflavlk 1-4
KA-Fram 0-3
KR-Þór 5-0
hér á landi. Þrátt fyrir að Keflvfking-
ar færu illa með Grindvíkinga í
lokaumferð mótsins dugði það ekki
til þar sem að Framarar unnu góð-
an 3-0 útisigur á KA og björguðu
sér þar með frá falli enn eitt árið. En
mun það einnig verða tilfellið í ár
eða senda þeir annað félag niður
með sigri í lokaleiknum?
Þungt yfir í Kópavoginum
Fyrir tveimur árum voru Vals-
menn í ágætum málum fyrir loka-
umferðina. Hin Reykjavíkurstór-
veldin, KR og Fram, voru fyrir neð-
an liðið í töflunni og síðasti leikur-
inn var gegn Breiðabliki sem þegar
var fallið og hafði ekki verið til stór-
ræða það árið. En allt kom fyrir
LIÐ í FALLHÆTTU: 2001
Valur 17 5 4 8 18-24 19
KR 17 5 4 8 14-20 19
Fram 17 5 2 10 23-25 17
Breiðablik 17 3 2 12 15-31 11
Fallslagur í lokaumferðinni:
Grindavík-KR 0-2
Fram-Keflavík 5-3
Breiðablik-Valur 2-1
ekki, KR og Fram unnu sína leiki og
Blikar gerðu sér lítið fyrir og unnu
Valsara, sem þýddi að liðið var, eins
og tveimur árum áður, fallið í 1.
deild.
Urðu að treysta á óvininn
Árið 2000 voru Framarar í afar
erfiðri stöðu. Ekki nóg með að þeir
væru í fallsæti og þyrftu að mæta
öðru liði sem var að berjast fyrir lífi
LIÐ í FALLHÆTTU: 2000
Keflavík 17 4 7 6 19-30 19
Breiðablik 17 5 2 10 28-34 17
Stjarnan 17 4 5 8 17-27 17
Fram 17 4 4 9 21-32 16
Leiftur 17 2 7 8 19-67 13
Fallslagur í lokaumferðinni:
Stjarnan-KR 1-4
Fram-Breiðablik 1-1
Keflavlk-Lerftur 2-5
sínu í deildinni, heldur þurftu þeir
líka helst að treysta á að erkifjend-
urnir í Vesturbænum, KR, ynnu
Stjörnuna sem þýddi að þeir yrðu
íslandsmeistarar. Það þykir ekki til
happs að óska þess að KR verði Is-
landsmeistari ef þú telst til hinna
bláklæddu.
En til allra lukku fyrir Safamýrar-
pilta vann KR Stjörnuna og það
þýddi að jafntefli gegn Blikum
dugði til að halda þeim uppi - enn
og aftur.
Árið sem Valur vill gleyma
Það er erfitt að finna Valsmenn
sem vilja tala um knattspyrnusum-
arið 1999. Þetta var nefnilega árið
sem Hlíðarendapiltar féllu í 1.
deildina í fyrsta sinn í sögu félags-
LIÐ I' FALLHÆTTU: 1999
Keflavík 17 5 4 8 26-31 19
Valur 17 4 6 7 27-35 18
Fram 17 3 7 7 20-25 16
Grindavík 17 4 4 9 22-28 16
Víkingur 17 3 5 9 19-35 14
Fallslagur í lokaumferðinni:
Fram-Vfkingur 3-2
Grindavík-Valur 3-1
KR-Keflavík 3-2
ins og gátu þeir því ekki lengur
stært sig af því að vera eina félag
landsins sem aldrei hefur leikið
annars staðar en í efstu deild. Ekki
nóg með það heldur fögnuðu erki-
fjendurnir í KR sínum fyrsta ís-
landsmeistaratitli í meira en 30 ár
og hlakkaði því heldur betur í þeim.
Hið sama var upp á teningnum
hjá Val og 2001. Þeir voru í 7. sæti í
deildinni og nægði einfaldlega
jafntefli en nú mættu þeir liði sem
var einnig að berjast fyrir stöðu
sinni í deildinni. Um var að ræð’a
lið Grindavíkur sem undanfarin
þrjú ár á undan hafði bjargað sér
naumlega frá falli og var því orðið
vant þessari aðstöðu. Grindavík
endurtók leikinn aftur það árið,
vann Valsara og braut þar með blað
í íslenskri knattspyrnusögu.
Nýliðarnir niður
Valsarar fengu reyndar smjörþef-
inn af fallsætinu árið á undan þeg-
ar þeir björguðu sér naumlega á
hagstæðri markatölu. Þeir voru í 7.
sæti fyrir umferðina en þar sem lið-
unum í næstu sætum fyrir neðan
tókst öllum að ná sér í stig mátti
það vart tæpara standa. Það kom
LIÐ í FALLHÆTTU: 1998
Valur 17 4 6 7 24-31 18
(R 17 4 4 9 19-29 16
Grindavík 17 4 4 9 20-32 16
Þróttur 17 3 6 8 26-39 15
Fallslagur I lokaumferðinni:
Þróttur-Keflavík 1-0
Leiftur-Valur 2-1
Grindavík-Fram 4-2
ÍR-lA 1-1
hins vegar í hlut nýliðanna í Þrótti
og ÍR að falla það árið þar sem fyrr-
nefnda liðið vann sinn leik bara
með einu marki en hið síðarnefrida