Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: örn Valdimarsson AÐALRrTSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRÍTSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýslngan auglys- ingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setnlng og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Jafnréttisnefnd kvartar vegna Skinfaxa - frétt bls. 4 Hefur tapað tugum milijóna á beltliáráttu - frétt bls. 12-13 Flugeldasýning - Menning bls. 19 Hvaða plötur verða í jólapakkanum? - Fókus bls. 23 Opnaði sálfræðistofu fyrir kjúklinga Þýskur sálfræðingur, Barbara Luetzner frá Bonn, hefur nýlega opnað sálfræðistofu fyrir kjúkiinga og býður þar upp á meðferðir við öllum mögulegum sálarkviilum þeirra, allt frá kynhvörfum til taugaveiklunar. Hún segir að þörfin íyrir þessa þjónustu hafi verið brýn og tekur sem dæmi hænuna Lucie sem alltaf hafi dreymt um að vera hani. „Lucie lifði sig svo inn í hana- hlutverkið að hún rak alla af fmynduðu yfirráðasvæði sínu, jafnvel köttinn. Hún er mjög stolt og hefur líka reynt að herma eftir kráku," segir Barbara í viðtali við þýska blaðið Express en hún hefur einnig sálgreint yfir tvö þúsund kjúklinga sem haldnir voru svo- kallaðri „hraðbrautarfælni" og vögguðu stöðugt hausnum. Víkur sæti þegar við á Harður árekstur UMFERÐ: Flarður árekstur varð á mótum Hringbrautar og Njarðar- götu um hálftólfleytið í gær- kvöld þegar bíll, sem ekið var austur Hringbraut, sveigði inn Njarðargötu og í veg fyrir annan sem ók Hringbrautina í vesturátt. Tveir voru fluttir á slysadeild en ekki alvarlega slasaðir. Mikið eignatjón varð og voru bílarnir dregnir á brott. Páll Gunnar Pálsson. VANHÆFI: Komi til þess að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, teljist vanhæfur til meðferðar mála er tengjast Eimskipafélagi Is- lands mun Stefán Svavars- son, stjórnarformaður FME, taka sæti hans í slíkum mál- um. Mun forstjórinn lýsa sig vanhæfan til ákvarðanatöku um eftirlit og til meðferðar mála þar sem vanhæfis- ástæður eiga við. Fjármálaeftirlitið gaf út til- kynningu í gær í tilefnið frétta af hugsanlegu vanhæfi Páls Gunnars vegna hluta- bréfaeignar hans í Eimskipa- félaginu. Samkvæmt hæfis- reglum sem gilda fyrir starfs- menn og stjórnendur FME taka þeir ekki þátt í meðferð Framboð STJÓRNMÁL Atli Rafn Björns- son hefur tilkynnt framboð til embættis formanns Heimdallar 2003-2004 en kosið verður á aðalfundi 1. október. Ásamt Atla Rafni standa að framboð- inu ellefu aðrir ungir sjálfstæðis- menn, þaraftveirtil áframhald- andi setu. Hafa frambjóðend- urnir opnað vefinn Hugsjónir.is til að kynna framboðið. Lögreglan í Reykjavík að fletta ofan af alþjóðlegri vændisstarfsemi í borginni: viðurkenna vændi hótelum Samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV er ofbeldisbrota- deild lögreglunnar í Reykjavík um það bil að upplýsa óvenju umfangsmikið sakamál sem snýr að því að fletta ofan af ís- lendingum sem hafa skipulagt það að fá konur frá öðrum lönd- um til að stunda vændi hér á landi. Hér er um að ræða stúlkur af ýmsu þjóðemi en flestar hafa þær búsetu í Bredandi. Vændiskonumar hafa fal- boðið þjónustu sína á Netinu en hér á landi hafa þær dvalið á nokkmm hót- elum - þar hafa hérlendir sem erlend- ir menn einmitt átt viðskipti við kon- umar. Þetta mál er vafalaust um- fangsmesta vændismál sem rannsak- að hefur verið hér á landi. A.m.k. 3 íslenskir skipuleggj- endur Rannsóknin, sem er mjögyfirgrips- mikil, hefur staðið yfir í um hálft ár. Hún hefur meðal annars leitt í ljós rökstuddar gmnsemdir um að a.m.k. þrír Islendingar hafi skipulagt þessa vændisstarfsemi. Þessir íslensku um- boðsmenn hafa tekið 40 til 50 prósent af innkomu vændiskvennanna eftir að hafa séð um ferðakostnað til og frá landinu fyrir þær auk uppihalds. Hér hefur verið um miklar tekjur að ræða hjá hverri konu. DV hefur heimildir fýrir því að ein af stúlkunum sem við- urkenna þessa háttsemi hafi haft um 300 þúsund krónur í tekjur fyrir fjög- urra daga vinnu. Lögreglan hefur komist að raun um að vændiskonumar hafa komið hing- að til lands til starfa í ákveðinn tíma. Efdr það hafa þær horíið af landi brott en hafa svo gjaman komið aftur tíl starfa fyrir Islendingana sem þær hafa unnið með. Sumar hafa raunar viður- kennt að hafa einnig stundað vændi víðs vegar um Evrópu. Lögreglan hefur á síðustu mánuð- um lagt hald á mikið magn gagna sem tengjast þessari skipulögðu og alþjóð- legu vændisstarfsemi. Nokkrar þess- ara kvenna hafa viðurkennt að hafa stundað hér vændi á vegum íslenskra umboðsaðila og það á hótelum í borginni. Hérhefur verið um mikl- ar tekjur að ræða hjá hverri konu. DVhefur heimildir fyrir því að ein afstúlkunum sem viður- kenna þessa háttsemi hafi haft um 300þúsund krónur í tekjur fyrir fjög- urra daga vinnu. Gunnleifur Kjartansson, lögreglu- fulltrúi í ofbeldisbrotadeild lögregl- unnar, staðfestí við DV að rannsókn þessi hefði átt sér stað en vildi ekki tjá sig að öðm leyti. Málið væri á rann- sóknarstigi. Þetta mun vera fyrsta málið þar sem gmnur beinist að al- þjóðlegri glæpastarfsemi vegna er- lendra vændiskvenna sem koma til starfa hér á vegum fslendinga. ottar@dv.is á VÆNDI: Stúlkur af ýmsu þjóðerni hafa selt blíðu sína á hótelum borgarinnar undir stjórn (slenskra og erlendra manna. Er um óvenju umfangsmikið sakamál að ræða sem lögreglan hefurflett ofan af. Kóraninn er elsta og langmerkasta verk klassískra bókmennta araba. Múslímar telja haxm vera hið óskeikula orð Allah og í j honum eru þær reglur um I rétta breytni sem lífsmáti m þeirra byggist á. í ■ öndvegisþýðingu Helga llálldanarsonar. B Tilbodsbok manaöarins 30% afs lattur Mái og menning www.edda.is Helgarblað DV Miðill fslands Þórhallur Guð- mundsson er án efa þekktasti núlifandi miðill fslands. Hann fer ótroðnar slóðir á sjónvarpsskjái landsmanna í næstu viku. Þórhallur talaði við Helgarblað DV um hæfileikana, álagið og einkalífið. Börnin sem aldrei komu heim Mál Sophiu Hansen komst aft- ur í sviðsijósið í vikunni þegar er- lendur dómstóll dæmdi henni bætur frá Tyrklandi. DV rifjar upp þetta langdregnasta forræðismál íslandssögunnar og birtir annál málsins í myndum og fréttum. Á slóðum hálftrölla Blaðamaður DV gekk hringinn um Þórisjökul um Þórisdal þar sem sagt er að Grettir sterki hafi dvalist vetrarlangt í félagsskap Þóris hálftrölls og dætra hans. Fáfarnar slóðir og fögur náttúra í Helgarblaði DV. Lauslátastir allra Samkvæmt nýrri könnun um kynlífshegðun jarðarbúa virðast íslendingar vera lauslátastir allra. Helgarblað DV rýnir f fjölþættar niðurstöður þessarar undarlegu könnunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.