Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Blaðsíða 26
26 SKOÐUN FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 Lesendur Innsendar greinar ■ Lesendabréf Lesendur geta hringt allan sólarhringinn í síma: 550 5035, sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is eða sent bréf til: Lesendasfða DV, Skaftahlfð 24,105 Reykjavfk. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar. Lúðrasveit Reykjavíkur Baldvin Jónsson skrifar: Margir sakna þess að ekki skuli heyrast í Lúðrasveit Reykjavíkur nema kannski 17. júní á Austurvelli. Hvað hefur orðið um þessa ágætu sveit? í allt sumar hefði hún átt að vera til taks á góð- viðrisdögum, eins og þeir voru nú margir, og leika fjörug lög hér og þar í borginni. Ekkert endilega á Austurvelli, þótt það sé líka kjörinn staður, og þá rétt eins á virkum dögum þegar ferðamenn eru allsráð- andi í mannhafinu í miðborg- inni. Ef Lúðrasveitin er á fjár- lögum Reykjavíkurborgar þá á að nýta hana til þess að lífga upp á borgarlífið. Þetta er við- tekin venja víða í borgum er- lendis. Hví ekki hér líka? Prestssetrið á Útskálum Brottfluttur Garðbúi skrifar: Ég las í Morgunblaðinu 23. þ.m. um að endurbyggja ætti Út- skálahúsið sem var fyrrum prestssetur í Garði. Húsið hefur nú verið líkt og tóftarbrot í allt of langan tíma. Húsið ætti þó fremur að nýta sem prestssetur en ekki sem sögu- og menning- arsetur. I þessari frétt Mbl. voru ranghermi sem nauðsynlegt er að gera athugasemd við. (fyrsta lagi, að sagt var að á Útskálum væri prestssetur, en það er ekki rétt, því að Útskálahúsið er tómt og í niðurníðslu. Enn frem- ur var sagt að keypt hefði verið íbúðarhús á Útskálum fyrir prestinn. Það er heldur ekki rétt. Húsið sem keypt var fyrir prest- inn heitir hins vegar Presthús en á ekkert skylt við Útskála. Rógsherferðin gegn Bandaríkjunum RfKISÚTVARPIÐ: Siglir sinn sjó með allan vinstriskarann neðan þilja. Halldór Sigurðsson skrifar: Það þykir bera vott um seiglu og sjálfsvirðingu í hópi vinstrimanna að hamast sem mest gegn Bandaríkjun- um, forseta þeirra og flestu sem bandarískt er. Nú er það ekki lengur kapítalisminn sérstaklega eða arðrán auðvaldsríkjanna í þróunarlöndun- um sem fangar hugi og hjörtu and- stæðinga vestrænna þjóða. Nei, það skal vera stefna Bandaríkjanna, vftt og breitt, sem skjóta verður niður með góðu eða illu, en þó aðallega illu. Og það má beita öllum ráðum, skotleyfið er búið að veita og það verður að vera til púður, og mikið púður. Framleiðsluna má helst ekki stöðva einn dag. Það er óskiljanlegt hvernig Ríkisút- varpið hefur fallið í þá gryfju að þjóna því hlutverki að níða niður Bandarík- in og flest sem þaðan kemur (jassinn að vísu undanskilinn). Eftir að innrásin var gerð í Irak hef- ur varla liðið sá dagur að ekki sé látið að því liggja beint og óbeint að Bandaríkin eða forseti Bandaríkj- anna hafl framið þar hið mesta og ódrengilegasta níðingsverk. Venju- lega er sérstakur fréttamaður stofn- unarinnar kallaður til að lesa slíkar fréttir og eru þá ekki sparaðar lýsing- arnar á vanhæfi Bush forseta og vitn- að í hina og þessa dálkahöfunda vest- anhafs og austan til að ná tiltrúnni. Engu er líkara en verið sé að lesa upp úr Netskrifum fyrrverandi rit- stjóra DV (jonas.is) eða úr Visir.is frá innherja sem skrifar undir dulnefn- inu GWBear, en á báðum stöð'um eru gjarnan heilu pistlarnir dag hvern til- einkaðir Bandaríkjunum og ótrú- verðugleika ríkisstjórnar George W. Bush. Hjá RÚV er þess og dyggilega gætt, að ekki líði of langur tími á milli árásanna á bandarísk stjórnvöld og forsetann Bush. í fréttaskýringaþætt- inum Speglinum, sem mörgum finnst orðið fremur vera eins konar innræt- ing fyrir hlustendur, er næsta daglega skotið inn stuttum, beittum og hnit- miðuðum atriðum sem vísa hlust- endum réttu leiðina til að sannmæl- ast „ósköpunum" og „ógninni", sem vestrænum þjóðum, umfram allt, stafar af stefnu bandarískra stjórn- valda í Mið-Austurlöndum og í írak. Ekki lætur útvarpsráð þetta til sín taka á neinn hátt - eins og það hefur þó látið til sín taka þegar pistlahöf- undar eða utanaðkomandi dagskrár- gerðarmenn (ekki innahússmennirn- ir, sem hafa verið „sprautaðir" og eru því ónæmir) eru gripnir glóðvolgir við að styðja vestræna samvinnu. Nei, útvarpsráð vaktar hins vegar Hannes Hólmstein Gissurarson og aðra sem vilja upp á dekk í musteri vinstra trúboðsins. Útvarpsráð hefur kannski ekki mikið svigrúm ef ein- staklingar þar innanborðs kunna að tengjast dagskrárgerðarfólki eða fréttamönnum með einhverjum RÚV hljóðvarp (rás 1) sinnir ágætlega daglangri dagskrá, í orði sem tónum. Það tekur hins vegar inni- legan þátt í rógsherferð þeirri sem vinstrimenn stunda gagnvart Bandaríkjunum. hætti. En eins og alþjóð er kunnugt eru margir starfsmenn RÚV ýmist tengdir fjöiskylduböndum eða blóð- skyldir í annan eða þriðja ætdið. Útvarpsstjóri stendur svo í brúnni og lætur skipið sigla sinn sjó: ekki beint sjóhraustur, með allan vinstriskarann neðan þilja. Heldur ekki ménntamálaráðherrar undan- farinna áratuga, þeir hafa nóg að gera við að halda dauðahaldi í nauðung- aráskriftina og kenna samstarfsflokk- um sínum um að ekki sé hægt að hrófla við neinu. Það er ekki hægt að segja að Ríkis- útvarpið sé óværa á þjóðinni, svo djúpt er ekki hægt að taka í árinni, en RÚV hefur fjarlægst það hlutleysi sem því var gert að starfa eftir í upp- hafl. RÚV hljóðvarp (rás 1) sinnir ágætlega daglangri dagskrá, í orði sem tónum. Það tekur hins vegar innilegan þátt í rógsherferð þeirri sem vinstrimenn stunda gagnvart Bandaríkjunum og þarlendum stjórnvöldum. Stríðið í frak og eftirmál þess skipta okkur á Vesturlöndum miklu. Það er ekki heimskur stjórnmálamaður sem hefur kjark til að rísa upp gegn hryðjuverkastarfsemi gegn þessum heimshluta. Ríkisútvarp elstu þing- ræðisþjóðar heims ætti að láta af þeirri heimsku að egna snöru fyrir fá- vísa þjóðfélagsþegna sem ekki hafa greind til að meta alla þá orðræðu sem kann að hljóma sem síbylja í eyr- um hlustenda þessarar ríkisáskriftar- stöðvar. IDJÖRFUM LEIK: Með heiftina að leið- arljósi? Fótbolti - ofbeldisíþrótt Ragnar Björnsson skrifar: Það er kannski að renna upp fyrir mörgum á þessum síðustu tímum, þegar íþróttum er dembt yfir mann í sjónvarpsþáttum, kvöld eftir kvöld, að fótbolti er ein mesta ofbeldisíþrótt sem um get- ur. Engar eða a.m.k. fáar reglur virðast gilda um framkomu leik- manna á vellinum. Miðað við t.d. japanskar og aðrar austurlenskar íþróttir, sem eru afar vinsælar til áhorfs og kurteislegar, er fótbolt- inn hreinn villimannabardagi. Mörgum varð t.d. ekki um sel þegar þeir urðu vitni að því í leik tveggja erlendra liða nýverið og sýnt var frá því í sjónvarpi þegar leikmaður kom askvaðandi að dómaranum og fleygði bolnum sínum svo gott sem ffaman í hann og hlaut enda brottvikningu fyrir vikið. En heiftin og vonskan skein úr augum þessa vesalings leikmanns. Þetta er ekki eins- dæmi og ekki heldur þau skrfls- læti sem skapast stundum í kring- um fótboltann að leik loknum. - Ekkert annað en ofbeldi í kring- um þessa svokölluðu „íþrótt". Armæða alþýðunnar Viðkvæðið er enn hið sama: Það er tap og halli hjá fyrirtækjum KOMMÚNISMINN FALUNN: En verkalýðsbaráttan heldur áfram. Einar Ingvi Magnússon skrifar: Kommúnisminn er fallinn í Evr- ópu fyrir margt löngu. Eldmóð- ur sósíalistanna kulnaður. En barátta alþýðunnar fyrir sínu lifibrauði heldur áfram. Neyðin vekur upp raddir íyrir mannsæmandi afkomu. Fyrirvinn- ur heimilanna kvíða fyrir að afla bjargar í bú fyrir börnin á akri fyrir- manna þar sem leyfist einungis að tína upp eftir kvóta sem er af skorn- um skammti, en samt skattlagður til þrautar. Árþúsundum saman hefur al- þýða manna haldið uppi hefðar- fólki, sem er reyndar leyndardómur út af fyrir sig. Á meðan iðjulausir arðræningjar strjúka kviðinn, sitj- andi í leðurstólum á bak við eikar- skrifborð, eru þeim skammtaðar fjárfúlgur úr ríkiskassanum á sama tíma og vinnandi menn úr alþýðu- stétt eru látnir skrimta á smánar- framfærslu. Svona rétt til þess að geta tórt og unnið. Svona hefur þetta viðgengist í gegnum aldirnar. Alþýðan er í ánauð vinnuþrælkunar eignafólks- ins. Hún hefur dregið fram lífið á meðan auðvaldar hafa skammtað henni smælkið, en lifað sjálfir á rjóma framleiðslunnar. Grimmd og vægðarleysi auðvaldsins hefur leik- ið almenning grátt f gegnum tíðina og enn sér engan enda þar á. - Við- kvæðið er enn hið sama: Það er tap og halli hjá fyrirtækjum. Þó hafa blessanir almættisins sjaldan verið jafn örlátar og gjaf- mildar. Þótt afrakstur góðærisins fljóti upp fyrir alla bakka verður ágirnd hvítflibbanna ekki södd. Skerða verður laun lágstéttanna enn meira svo að beina megi enn hærri fjárfúlgum til iðjuvera sem skapa vaxandi gróða hinna ríku og til að halda uppi auðvaldsins peyj- um og glæsipíum. Fólkið í landinu er látið borga brúsann. Þótt afkom- an gæti batnað, framleiðslan aukist og góðærið fyllt hlöður og verslanir, þá er alþýðunni alltaf haldið utan við töðugjöld og blessun almættis- ins. Þetta óréttlæti og - ég vil segja skepnuskapur - hefur haldist næst- um óumbreytanlegur gegnum tíð- ina. Þó hafa blessanir al- mættisins sjaldan verið jafn örlátar og gjaf- mildar. Þótt afrakstur góðærisins fljóti upp fyrir alla bakka verður ágirnd hvítflibbanna ekki södd. Stjórnvöld, kosningar og verka- lýðsleiðtogar hér á landi eru orðin að einu stóru leikhúsi skrípaleiks þar sem fámenningsklíkan er í að- alhlutverki og vermir stóla kom- andi hrakmenna eignastéttarinnar. - Já, kommúnisminn er fallinn en verkalýðsbaráttan heldur áfram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.