Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Blaðsíða 38
38 DVSPORT FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 Lokaumferðin í torfærunni fer fram um helgina á Bolöldum, við mynni Jósefsdals: > ■r * * Hugguleg staða segir Haraldur Pétursson sem hefur þegar tryggt sér íslandsmeistaratitilinn Haraldur Pétursson er búinn að tryggja sér íslandsmeistaratitil- inn í torfæruakstri en það gerði hann í fjórðu umferð mótsins sem ekin var við Stapafell í ágúst. Haraldur er með 10 stiga forskot á næsta mann, Sigurð Þór Jónsson. Sigurður Þór getur jafnað Harald að stigum ef hann sigrar í keppninni og Har- aldur nær ekki hærra en í átt- unda sætið. En þar sem Harald- ur hefur sigrað í fleiri keppnum hreppir hann titilinn þrátt fyrir það auk þess sem eitthvað al- varlegt verður að koma fyrir Mussoinn til að Haraldur verði svo neðarlega. „Þetta er voða hugguleg staða en mig langar samt til að vinna," sagði Haraldur Pétursson á miðvikudag- inn þegar DV hafði samband við hann en þá var Haraldur við störf úti í Noregi. „Pressan er ekki eins mikil á mér og ég ætla fyrst og fremst að hafa gaman af þessu” sagði Haraldur Sigur eða dauði „Það er fyrsta sætið eða ekkert. Það er það eina sem skiptir máli,“ sagði Sigurður Þór Jónsson í vik- unni og gaf í skyn að hann myndi standa Toshiba-tröllið í allar braut- ir. Sigurður Þór er þekktur fyrir „Þetta er voða huggu- legstaða en mig langar samt til að vinna. Press- an er ekki eins mikil á mér og ég ætla fyrst og fremst að hafa gaman afþessu." annað en að gefast upp og mun hann vafalaust berjast til síðasta blóðdropa til að halda öðru sætinu í keppninni. Þar á hann í höggi við Kristján Jóhannesson á Cool sem hefur komið geysiöflugur inn í keppnina í sumar. Sigurður Þór er nýkominn heim frá Noregi en þar lagði hann, ásamt Gunnari Gunnarssyni, brautirnar í lokaumferð Norðurlandameistara- mótsins í torfæruakstri. Fannst Norðmönnunum brautirnar erfið- ar og voru þeir hálfragir að leggja í bröttustu stálin að sögn Sigurðar. MISJAFNT GENGI: Gengi Björns Inga Jóhannssonar hefur verið misjafnt f sumar en haest rels sól hans þegar hann stökk i Frfðu Grace í gegnum endahlið lokabrautarinnar i Blönduósl og tryggði sér með þvf sigurinn í þeirri keppni. DV-mynd JAK Gefur titilinn eftir Ljóst var að baráttan um Islands- meistaratitilinn í götubílaflokki myndi standa á milli Gunnars Gunnarssonar á Trúðnum og Ragn- ars Róbertssonar á Pizza 67 Willysn- um. Gunnar stendur nú uppi með bikarinn í höndunum því að Ragn- ar ákvað að sleppa þátttöku í loka- umferðinni en fór í þess stað til Bandaríkjanna þar sem hann mun keppa í „Rockcrawler" keppni. “Mér líst ágædega á þessa keppni að öllu leyti nema því að það vantar Ragga. Ég hefði viljað hafa meiri sam- keppni," sagði Gunnar. „Það er nóg „Mér líst ágætlega á þessa keppni að öllu leyti nema því að það vantar Ragga." fyrir mig að mæta á staðinn en mig langar til að stríða stóru strákunum aðeins," bætti Gunnar við. Gunnar Gunnarsson og aðstoðar- menn fundu bilun í kveikjunni í Trúðnum. Stykki í tímaflýtingunni var brotið og taldi Gunnar að þessi bilun hefði verið að hrjá hann í hátt í tvö ár án þess að þeir félagarnir hefðu getað fundið út hvað var raunverulega að jeppanum. Eftir viðgerð á þessu ætti Trúður- inn að hafa nægt afl í löngu brekk- urnar í malargryfjunum í Bolöldum, við mynni Jósefsdals, en þar mun síðasta torfæra ársins fara fram á sunnudaginn. jak Sérútbúinn flokkur Haraldur Pétursson Sigurður Þór Jónsson Kristján Jóhannsson Björn Ingi Jóhannsson Gunnar Ásgeirsson Daníel G. Ingimundarson Leó Viðar Björnsson Erling Reyr Klemensson Guðmundur Pálsson Garðar Sigurðsson Helgi Gunnarsson Óskar Gunnar Óskarsson Görubílaflokkur GunnarGunnarsson Ragnar Róbertsson Bjarki Reynisson PéturV. Pétursson Karl Víðir Jónsson m Veiðihornið Sjóbirtingur á sveimi Tímabilið lofar góðu fyrír veiðimenn Sjóbirtingurinn er byrjaður að mæta fyrir austan, fiskurinn virðist vera vel haldinn og tíma- bilið lofar góðu fyrir veiðimenn. f Laxá í Kjós hafa veiðimenn ver- ið í góðum birtingi og í Þverá í Fljótshlíð geta veiðimenn fengið góða veiði af sjóbirtingi neðarlega í ánni. Veiðimenn sem voru í Ytri-Rangá fyrir fáum dögum veiddu bolta- sjóbirtinga og í Vola hefur verið reytingssjóbirtingsveiði. Veiðimað- ur sem var þar fyrir fáum dögum veiddi nokkra væna og á Eyrar- „í Viðarhólma sást mjög stór sjóbirtingur um daginn en hann kom allur uppúr vatn- inu." bakkaengjum hafa verið að fást fín skot í fallegum birtingi. „Óveðrið stoppaði aðeins veiði- skapinn á svæði sjö í Grenlæk en veiðimaður sem var þar fyrir helgi veiddi 5 punda sjóbirting og næstu dagar gætu orðið góðir," sagði Jak- ob Hrafnsson er við spurðum um stöðuna á svæðinu í gærdag. „í Viðarhólma sást mjögstórsjó- birtingur um daginn en hann kom allur upp úr vatninu. Veiðimenn voru sammála um að hann hefði verið hátt í metri eða eitthvað kringum 20 pund. Það hefur verið mikið vatn á svæðinu en það fer minnkandi og þá er aldrei að vita hvað gerist," sagði Jakob enn frem- ur. G. Bender FLUGU KASTAÐ: Veiðimaður kastar flugunni fyrir fiska í Grenlæk á svæði sjö en ágætur gangur hefur verið þar í veiðinni. DV-myndJakob

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.