Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 Hef tapað tugum millj- óna í betliáráttu vest- firskra þingmanna segir útgerðarmadur sem flytur á brott vegna stuðnings Bolungar- víkurbæjar við línuívilnun Hatrömm átök eiga sér nú stað í bæjum við Isafjarðardjúp vegna svokallaðrar línuívilnun- ar. Útgerðarmaður í Bolungar- vík hyggst nú flytja á brott með allt sitt hafurtask vegna stuðn- ings bæjarfélagsins við línuívilnun til bátasjómanna. Jón Guðbjartsson, bifvélavirki og útgerðarmaður, gerir út 150 tonna togskipið Gunnbjörn ÍS 302 í Bol- ungarvík. Skipið er með rúmlega 480 þorskígildistonna kvóta. Hann sagði fyrir nokkrum vikum í bréfi til bæjarstjórnar Bolungarvíkur að hann myndi ílytjast á brott frá Bol- ungarvík með allt sitt hafurtask létu bæjaryfirvöld ekki af „gagnrýnis- „Þeir geta ekki sett fram það sjónarmið að það sé eðlilegt og sjálf- sagt að taka afeinum til að láta annan hafa. lausum stuðningi" við málflutning smábátaútgerða um línuívilnun. Jón segir að smábátasjómenn og bæjarfulltrúar megi hafa sínar skoðanir á hinum og þessum hlut- um en bæjarfulltrúar megi ekki beita þeim gegn öðrum þegar þeir séu orðnir bæjarfulltrúar. „Þeir geta ekki sett fram það sjónarmið að það sé eðlilegt og sjálfsagt að taka af einum til að láta annan hafa. Frá mínum báti hafa verið flutt atvinnuréttindi sem ég hef verið að reyna að kaupa mér miðað við þau lög sem eru í gildi á hverjum tíma. Þingmenn okkar hafa barist á móti því að ég fengi að Jón Guðbjartsson. vinna eftir þeim lögum. Þessi rétt- indi mín, sem ég skulda kannski enn þá, eru flutt á aðra menn í kringum mig og ég sætti mig ekki við það að sveitarfélagið mitt taki líka þátt í þessu.“ Betliárátta vestfirskra þingmanna „Eg er búinn að missa svo tugum milljóna skiptir í þessa betliáráttu vestfirskra þingmanna. Því bregst ég við og ég svara því einu til að ef sveitarstjórnin mín ætlar að halda þessu áfram þá er mér öllum lokið. Loforð, eða „ekki loforð", stjórn- málamannanna um línuívilnun er ekki réttlætanlegt, nema þeir kaupi þá þessar heimildir og afhendi hin- um. Ég lít það mjög alvarlegum augum ef það á að halda svona áfram." Á Lf IÐ í BURTU: Togskipið Gunnbjörn (S mun hverfa á brott með rúmlega 480 þorskígildistonna kvóta við brottflutning útgerðarmanns- ins frá Bolungarvík. Hann segist ekki geta annað gert vegna andstöðu bæjarstjórnar í sinn garð. Línuívilnun: Óþekki króginn sem allir rífast um Línuívilnun hefur tröllriðið fjölmiðlum að undanförnu, þó enn hafi ekki tekist að ná mynd af henni eða útlista á ættfræðisíðum hverra manna hún er. Þrátt fyrir að fjölmargir Islend- ingar viti nær ekkert um hverja eða hvað er verið að tala þá var haldinn fjölmennur fundur Eld- ingar, félags smábátasjómanna á norðanverðum Vestfjörðum, um málið fyrir skömmu. Það vart gert undir forystu Guðmundar Hall- dórssonar í Bolungarvík. Skorað var á Alþingi að lögfesta án tafar landsfundasamþykktir stjórnar- flokkanna um línuívilnun. Landssamband íslenskra út- vegsmanna brást ókvæða við og fjölmörg önnur samtök útgerðar- manna. Þrátt fyrir ályktanir út og suður situr hin umdeilda Línu- ívilnun álengdar eins og hrepps- ómagi sem enginn gerir sér al- mennilega far um að kynnast. Ekki er til mynd af henni þrátt fyrir orðróm þar um og engar tilraunir hafa verið gerðar til að upplýsa al- menning um ætternið. Línuívilnun Guðmundar- dóttir Samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins er Línuíviln- un hins vegar talin afkvæmi Guð- mundar Halldórssonar, trillukarls í Bolungarvík og fyrrum togara- skipstjóra frá ísaflrði. Hann barð- ist þar fyrir rétti krógans og upp- skar mikinn stuðning og lófaklapp fundarmanna. Var það þrátt fyrir öfluga andstöðu manna sem m.a. eru orðaðirvið LÍÚ. Bara hugtak í raun er þó ofsögum sagt að um stúlkubarn sé að ræða. Ef satt skal segja er þetta einungis hugtak sem ekki hefur einu sinni verið skil- greint til fulls, þó að allir séu til f að rífast um það. Þetta byggist á þeirri hugmynd línuveiðimanna að bátar sem rói með línu fái að fiska meira en fiskveiðikvóti þeirra segir til um. Er það stutt þeim rök- um að línuveiðar séu vistvænar og mjög atvinnuskapandi fyrir byggðarlögin vitt og breitt um landið. Á móti hverjum einum fiski sem heimild er til að veiða á línu samkvæmt kvótakerfi verði því gefin „ívilnun", eða viðbótar- heimild, til að veiða annan fisk eða hluta úr öðrum fiski án þess að það dragist frá veiðiheimild viðkomandi útgerðar. Ekki er að fullu ljóst hversu mik- il línuívilnunin eigi að vera. Nefndar hafa verið tölur í því sam- bandi og að hún verði sem nemur allt að 20% aukningu í þorski (fyr- ir utan kvóta) og 50% f öðrum teg- undum. Þannig yrði t.d. önnur hver ýsa sem kemur á línuna utan kvóta. Fyrir nokkrum árum var talað um línutvöföldun á svipuð- um forsendum. Samkvæmt því áttu línuveiðibátar að fá að veiða tvo fiska fyrir hvern einn sem heimild var fyrir. Sjávarútvegsráð- herra segir að ekki komi til línuívilnunar á nýbyrjuðu fisk- veiðiári en að sjálfsögðu verði þó staðið við yfirlýsingar í þá átt sem gefnar hafa verið, m.a. af forsætis- ráðherra. hkr@dv.is s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.