Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Blaðsíða 22
22 FÓKUS FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 fókus Umsjón: Höskuldur Daði Magnússon og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir. Netföng: fokus@fokus.is, hdm@fokus.is, sigrun@fokus.is Sími: 550 5894 • 550 5897 www.fokus.is c Dr. Cunni orðinn pabbi Tónlistarséníið og út- varpsmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson varð pabbi nú í vikunni. Les- endur bloggsíðu Dr. Gunna hafa undanfama mánuði af og til fengið ffegnir af með- göngu eiginkonu hans og nú er biðin á enda. Þeim hjónum fæddist sönur og segist Doktorinn vera afar lukkulegur með frumburð- inn. Þessa dagana stendur Dr. Gunni í brúnni í Popp- punkti ásamt Felix Bergs- syni auk þess sem hann stjómar útvarpsþætti á Skonrokki ásamt Sigur- jóni Kjartanssyni. Hann hafði þetta að segja um son- inn á síðunni sinni, www.this.is/drgunni: „Sonurinn heitir Dagbjartur Öli Gunnarsson og em allir sammála um að hann sé fegursta barn sem sést hefur - rauð- hærður og leggjalangur, þreklega vaxinn og puttalangur. Ég sé fyrir mér að hann muni verða einhverskonar fullkomin blanda af Jóni Arnari (nema auðvitað miklu betri í afreks- íþróttum og ekki að mála á sér skeggið eins og fífl), 19 ára píanóleikaranum sem nú er að gera allt vitlaust og gáfu- menninu Degi B. Eggertssyni. Lufsan vill að ég ali hann upp sem nörd og ekki stendur á mér í þvf. Akkúrat núna er hánn auðvitað ekki upp á marga fiska og annaðhvort lepur eða grenjar með smá glápa-út-í-loftið períódum inn á milli. Ég verð að játa að myndin Eraserhead hefur komið upp í hug- ann síðustu nætur enda má segja að það meistaraverk sé minn eini undirbúningur fyrir uppeldi smábarna. Mín elskuleg eiginkona ber auðvitað hitann og þungann af Dag- bjarti enn sem komið er og lítið sem ég get gert með skrauf- þurrar geirvörtur." Þeir tveir bjóða í fótboltapartí Þeir tveir kvikmynda- geið hefur verið einn af at- hyglisverðari ffamleiðend- um íslenskra sjónvarps- auglýsinga hin síðustu misseri. Fyrirtækið fagnar um þessar mundir sex ára afmæli sínu en á þeim tíma hefur það ffamleitt yfir 400 auglýsingar. í tilefni afmælisins halda Þeir tveir fótboltamót fyr- ir allar helstu auglýsinga- stofur landsins á morgun. Mótið hefur að sögn mælst vel fyrir í auglýsingaheim- inum og munu strangar æfingar standa yfir á nokkrum auglýsingastof- um. Mótið hefst um há- degisbilið á gervigrasinu í Laugardal og verður spilað ffam eftir degi. Um kvöldið held- ur gleðin áfram á Prikinu þar sem sigurvegarar mótsins verða verðlaunaðir og valin brot úr leikjunum verða sýnd. Nánari upplýsingar um mótið og fleira tengt Þeim tveimur má fá á heimasíðu fyrirtækisins, www.t2.is. Tvær oc hálf mínúta af Hrincadróttinssöcu Biðin eftir þriðju Hringadróttinssögu-myndinni styttist óðum. Æstustu aðdáendur ættu að geta slegið aðeins á eftir- væntinguna f kvöld þegar fyrsta sýnishomið úr myndinni verður sýnt. Þriðja myndin heitir Hringadróttinssaga - Hilmir snýr heim og er þetta sýnishom heilar tvær mínút- ur og þrjátíu sekúndur. Það verður ffumsýnt samtímis hér á landi og í Bandaríkjunum, á undan kvikmyndinni Jeepers Creepers 2 í Laugarásbíói og Regnboganum og hjá þeim Sveppa og Audda í þættinum 70 mínútum á Popptíví. Úr karamellumyndinni Þegar einfaldir hlutir verða floknir 17 skilgreiningar á hvers- dagslegum hugtökum í landslögum Þéttbýli „Þyrping húsa þar sem búa a.m.k. 50 manns og fjarlægð milli húsa fer að jafhaði ekki yfir 200 metra.“ (Skipulags- og byggingarlög, 1997) Raflína „Samsafn af leiðumm, einangrandi efni og tengdum búnaði til að flytja raforku milli tveggja staða innan raforkukerfis. (Raforkulög, 2003) Matvæli Hvers konar vörur sem ætlaðar eru mönnum til neyslu, þar með talið neysluvatn." (Éög um matvæli, 1995) Umbúðir „Allar umbúðir sem umlykja eða hafa að geyma matvæli eða efni sem notuð eru við ffamleiðslu matvæla." (Lög um matvæli, 1995) Nafn „Fullt nafn manns er eiginnafn hans eða eiginnöfn, millinafn, ef því er að skipta, og kenninafn.“ (Lög um mannanöfh, 1996) Aldraðir „Sá sem náð hefur 67 ára aldri.“ (Lög um aldraða, 1999) Búfé „Hross, nautgripir, sauðfé, geitur, svín, loðdýr, kanínur og alifuglar, auk þess eldisfiskar og önnur dýr sem haldin eru til nytja. Rísi ágreiningur um hvað falla skuli undir hugtakið búfé sker landbúnað- arráðherra úr þeim ágreiningi." (Búnaðarlög, 1998) ÁFENGI „Samkvæmt lögum þessum telst áfengi hver sá neysluhæfur vökvi sem í er að rúmmáli meira en 2,25% af hreinum vínanda.“ (Áfengislög, 1998) ÍSLENSKI FÁNINN „Hinn almenni þjóðfáni fslendinga er heiðblár með mjallhvítum krossi og eldrauðum krossi innan í hvíta krossinum. Armar krossanna ná al- veg út í jaðra fánans, og er breidd þeirra 2/9, en rauða krossins 1/9 af fánabreiddinni. Bláu reitimir eru rétthymdir ferhymingar: stangár- reitimir jafnhliða og ytri reitimir jafhbreiðir þeim, en helmingi lengri. Hlutfallið milli breiddar fán- ans og lengdar er 18:25.“ (Lög um þjóðfána íslendinga og ríkisskjald- armerkið, 1944) Loftfar „Sérhvert tæki sem haldist getur á flugi vegna verkana loftsins, ann- arra en loftpúðaáhrifa við ýfirborð jarðar.“ (Lög um loftferðir, 1998) Girðing „Netgirðing, gaddavírsgirðing og rafgirðing. Einnig teljast til girðinga girðingar úr ýmsu eftii, svo sem úr tré, steinsteypu, stáli, áli, plasti, grjóti og torfi og að auki aðrar girð- ingar sem teljast gripheldar að mati búnaðarsambands." (Girðingalög, 2001) SÍmanúmer „Röð tákna sem eru notuð til að auð- kenna einstaka áskrifendur í fjar- skiptavirkjum.“ (Lög um fjarskipti, 2003) Skotvopn „Vopn eða tæki sem hægt er með sprengikrafti, samanþjöppuðu loffi eða á annan sambærilegan hátt að skjóta úr kúlum, höglum eða öðrum skeytum." (Vopnalög, 1998) Veiði ,Að handsama eða drepa villt dýr. Þegar um er að ræða fuglaveiðar er einnig átt við eggjatöku.“ (Lög um vemd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, 1994) ÚTVARPSDAGSKRÁ „Heildarsamsetning dagskrárliða í útvarpi.“ (Útvarpslög, 2000) Akbraut „Sá hluti vegar sem ætlaður er fyrir umferð ökutækja.“ (Umferðarlög, 1987) Vecfarandi „Hver sem fer um veg eða er stadd- ur á vegi eða í ökutæki á vegi.“ (Umferðarlög, 1987) t) t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.