Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Side 4
4 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003
Stöð 2 hættir á Norðurlandi
Tekjuaukning á Nesinu
HÆTTIR: Fréttastofa Stöðvar 2
hefur hætt fréttaöflun á Norð-
urlandi en fjárhagsörðugleikar
fyrirtækisins hafa leitttil þess
að smám saman hefur dregið
úr starfseminni á undanförn-
um árum. Islenska útvarpsfé-
lagið keypti rekstur Eyfirska
sjónvarpsfélagsins og lagði
niður staðbundnar útsending-
ar þess fyrirtækis á Akureyri en
se'tti í staðinn upp útibu með
tveimur starfsmönnum sem
önnuðust fréttaöflun á Norður-
landi. Árið 2001 var útibú fyrir-
tækisins einnig lagt niður og
samið við Aksjón um fréttaöfl-
un og myndatökurá Norður-
landi en þeim samningi var
sagt upp nú í Vor og hefur
enginn starfað fyrir stöðina á
Norðurlandi í sumar.
Enginn fréttamaður verður á
vegum fyrirtækisins á Norður-
landi í framtíðinni en samið við
fyrirtækið Castor miðlun um
að annastfréttamyndatökur í
bænum. Hópur ungmenna á
aldrinum 17 til 23 ára rekur
fyrirtækið Castor miðlun sem
tekur að sér verkefni á sviði
margmiðlunar, heimasíðugerð
og skipulagningu viðburða.
FJÁRHAGUR: Endurskoðuð fjár-
hagsáætlun Seltjarnarnesbæjar
fyriryfirstandandi rekstrarár
hefur verið samþykkt í bæjar-
stjórn. Er gert ráð fyrir 25 millj-
óna króna aukningu á útsvars-
tekjum og 7 milljóna króna
aukningu annarra tekna en 20
milljóna króna hækkun rekstr-
argjalda að teknu tilliti til
breytinga á afskriftarhlutfalli
fasteigna og húsaleigu. Rekstr-
arafgangur fyrir afskriftir og
fjármagnsliði verður 7 prósent.
Heildarvelta bæjarsjóðs og fyr-
irtækja er áætluð um 1.550
milljónir króna en nettóskuld
um 390 milljónir í árslok. Ráð-
stöfunarfé bæjarsjóðs nemur
um 130 milljónum og verður
varið til niðurgreiðslu lang-
tímaskulda og fjárfestinga.
Jafnréttisnefnd Reykjavíkur kvartar vegna viðtals í blaði UMFÍ
Segir umfjöllun um fyr-
irsætustörf ekki sam-
rýmast forvarnarstarfi
Jafnréttisfulltrúi Reykjavíkur-
borgar hefur kvartað formlega
yfir grein um fyrirsætustörf í
Skinfaxa, forvarnarblaði Ung-
mennafélags fslands, fyrir hönd
jafnréttisnefndar borgarinnar.
Greinin er viðtal við Bjarneyju S.
Lúðvíksdóttur hjá Eskimó módels
um fyrirsætustörf og birtist í nýjasta
tölublaði Skinfaxa. Steinunn Valdís
Óskarsdóttir borgarfulltrúi sendi
jafnréttisnefnd athugasemd vegna
greinarinnar. f kjölfarið sendi Hild-
ur Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafi
borgarinnar, ritstjóm Skinfaxa bréf
um að athugasemd hefði borist
vegna greinar um fyrirsætuheiminn
sem hæfist á þessum orðum: „Eins
og marga unga drengi dreymir um
að verða atvinnumenn í knatt-
spyrnu þá dreymir margar ungar
stúlkur um að verða fyrirsætur."
„Gamlar staðalímyndir
kynjanna"
í bréfi sínu til ritstjórnarinnar
segir Hildur að jafnréttisnefnd hafi
verið sammála um að í greininni
birtust „gamlar staðalímyndir af
kynjunum sem ekki geti samrýmst
þeirri uppeldis-, forvarnar- og jafn-
réttisstefnu sem ætla má að sé leið-
arljós ungmenna- og íþróttafélaga."
Segir Hildur að lýsa megi greininni
sem „einhliða auglýsingamennsku1'
fyrir tiltekið atvinnufyrirtæki en
„ekki úttekt þar sem t.d. er bent á
tengsl lystarstols, áhættuhegðunar
og fleiri slíkra þátta við fyrirsætu- og
tískuheiminn."
Loks segir hún að af framsetn-
ingu greinarinnar megi ráða að rit-
stjórn Skinfaxa „finnist það beinlín-
is heyra til forvarnarstaifs að hvetja
ungar stúlkur til að starfa í fyrir-
sætuheiminum en að mati jafn-
réttisnefndar er vafasamt hvort slíkt
geti samrýmst forvarnarstefnu
UMFÍ sem beint er að börnum og
ungmennum sérstaklega."
DV tókst ekki að ná tali af Hildi
Jónsdóttur.
„Ekkert óeðlilegt"
„Mér finnst greinin ekki gefa til-
efni til athugasemda af þessu tagi,"
segir Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ. „Við erum
ekki með neina fegurðarsamkeppni
á okkar vegum og höfum ekki ætíað
okkur það,“ segir hann, spurður um
þá fúllyrðingu að blaðið sé í raun að
hvetja ungar stúlkur til að leggja fyr-
ir sig fyrirsætustörf. „Ég sé ekkert
óeðlilegt við þessa grein."
%ím? ju 9
STi
Áherslan í blaðinu
Þótt viðtalið við Bjarneyju sé ekki
„úttekt" um meinta skaðsemi þess
að starfa sem fyrirsæta, af því tagi
sem jafnréttisráðgjafi Reykjavíkur-
borgar virðist lýsa eftir í bréfi sínu,
kemur þar fram að umboðsskrif-
stofa Bjarneyjar fylgist með og grípi
„Jafnréttisnefnd var
sammála um að í grein-
inni birtust gamlar
staðalímyndir afkynj-
unum,
í taumana, bendi eitthvað til þess
að stúlkur á hennar vegum beiti
óheilbrigðum eða óskynsamlegum
aðferðum til að grennast. Þá segir
Bjarney að sýningar-
stúlkur hafi vissu-
lega þótt verulega
grannar en að það
hafi „sembeturfer
verið að breytast".
Einnig kemur
fram að mismikið
fé sé í boði.- stund-
um lítið en stund-
um mikið - og
sumar stúlkur
vinni sér inn fyrir
innborgun í íbúð.
Þá má nefna að
blaðinu em viðtöl
við fimm konur en
þrjá karla. Auk
Bjameyjar er rætt
við Ásthildi Helga-
dóttur knattspyrnu-
konu undir fyrir-
sögninni: „Þessi
ólöglegu efni em
hættuleg"; Guðrúnu
B. Ágústsdóttur
áfengisráðgjafa um
„Vellíðan án vfmu-
efna"; Ragnhildi
Steinunni Jónsdóttur
fegurðardrottningu undir fyrir-
sögninni: „Mér finnst reykingar
hræðilega sorglegar" og Sigrúnu
Völu Vilmundardóttur sem á dög-
unum sigraði í söngva-keppni
UMFÍ.
KVARTAÐ YFIR BLAÐI: Jafnréttisráögjafi
kvartaði yfir grein um fyrirsætustörf i blaði
UMFl eftir ábendingu frá Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur. (Greinin tengist ekki forsíðu-
viðtalinu við ungfrú Island.)
-.Í.G-rH-
w»
u. **•**»
« atóíttSW***- öMúttow vA
Í5S3X2S*. - *-*-jr **
Ki M
l{ agnpc Ssti' S.Uih3«írti
GuAift'BeérgifÁnn-. -
olafur@dv.is
liiS'tui Vi
i 1« I z