Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Page 10
10 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 Verktakar virði VERKALÝÐSMÁL Stjórn BSRB krefst þess að verktakafyrir- tæki sem vinna við stóriðju- framkvæmdir á Austurlandi virði í hvívetna kjarasamninga og lög og reglur sem gilda á ís- lenskum vinnumarkaði. Þetta kemurfram í ályktun sem sam- tökin sendu frá sér í gær. Þar segir jafnframt: „Stjórnvöldum ber skylda til að grípa í samninga taumana ef brotið er á launa- fólki eða ekki sinnt kröfum sem almennt eru gerðar hér á landi um aðbúnað á vinnu- stað." Þá styður BSRB eindreg- ið kröfur stéttarfélaga um að verktakafyrirtæki leggi öll spil á borðið og eftirlitsstofnanir taki á málum fullri einurð og festu í góðri samvinnu við ís- lenska verkalýðshreyfingu. Frá Kárahnjúkum. Mótmæla línuívilnun LÍNUÍVILNUN: Sambandsstjórn Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands samþykkti á fundi sínum fyrir helgina álykt- un þar sem sambandið „... mótmælir nú sem endranær hvers konar sértækum aðgerð- um stjórnvalda við úthlutun aflahlutdeildar, hvort sem fisk- ur er veiddur á línu eða í önnur veiðarfæri," eins og segir orð- rétt. í ályktuninni segir að afla- hlutdeild smábáta hafi síðustu árin verið að aukast stöðugt á kostnað annarra og slík mis- munun sé ólíðandi. Línuívilnun myndi auka forréttindi á kostn- að annarra skipaflokka - og því er skorað á stjórnvöld að láta af undanlátssemi undan- farinna ára við smábátasjó- menn. Skipalyftan í Eyjum keypti rekstur Vélsmiðju KÁ Vélsmiðja Suðurlands stofnuð um reksturínn SKIPT UM NAFN: Vélsmiðja KA hefur um áraraðir þjónað islenskum landbúnaði, m.a. með smíði ýmiss konar landbúnðartækja. Flér má sjá Jón Vilhjálmsson vélsmiðjustjóra við mykjudreifara sem vélsmiðjan fjöldaframleiddi. Þessi mynd var tekin í mars 1998, en nú hefur fyrir- tækið skipt um eigendur og fengið nafnið Vélsmiðja Suðurlands. DV-mynd KE Skipalyftan ehf. í Vestmanna- eyjum hefur keypt rekstur Vél- smiðju Kaupfélags Árnesinga. Að sögn Gunnlaugs Axelssonar framkvæmdastjóra var stofnað nýtt félag um þann rekstur á þriðjudag sem ber nafnið Vél- smiðja Suðurlands. „Við tókum við rekstrinum síð- asta föstudag," sagði Gunnlaugur en nýtt félag var skráð á þriðjudags- morgun. Hann segir að Vélsmiðja Suðurlands verði rekin sem dóttur- félag Skipalyftunnar. Einungis sé verið að kaupa reksturinn en ekki verið að yfirtaka ijárhagsskuldbind- ingar Vélsmiðju KÁ. Vélsmiðjan fékk greiðslustöðvun 21. mars og fékk hana framlengda fram eftir sumri. Var síðan farið í nauðasamninga. Þeir nauðasamn- ingar voru hins vegar felldir nú í ágúst. Viðræður um kaup Skipalyft- unnar fóru þá í fullan gang en rætt hafði verið við þá og fleiri aðila um hugsanleg kaup í sumar. Beiðnir um gjaldþrot Samkvæmt upplýsingum frá Hér- aðsdómi Suðurlands lá fyrir gjald- þrotabeiðni á Vélsmiðju KÁ á þriðjudag og var hún tekin til úr- skurðar í gær, 25. september. Ekki var málið þó afgreitt endanlega og vart er búist við úrskurði vegna gjaldþrotabeiðninnar fyrr en eftir helgi. Gunnlaugur segir að 12 starfs- menn Vélsmiðju KÁ vinni áfram hjá Vélsmiðju Suðurlands og rekstur verði áfram bæði á Selfossi og á Hvolsvelli. Gunnlaugur segir að 12 starfsmenn Vélsmiðju KÁ vinni áfram hjá Vél- smiðju Suðurlands og rekstur verði áfram bæði á Selfossi og á Hvolsvelli. „Við erum nú að leita að húsnæði undir starfsemina á Selfossi en við misstum þar húsnæðið sem Vél- smiðja KÁ var með á leigu." Hann segir vélsmiðjuna munu þjónusta landbúnað, auk ýmiss konar þjónustu sem Vélsmiðja KÁ stundaði áður, m.a. við Vegagerð- ina og virkjanir. Vélsmiðjan var áður beintengd rekstri Kaupfélags Árnesinga en varð sjálfstæður rekstraraðili árið 1996. Gunnlaugur segir verkefni Skipa- lyftunnar í Eyjum liggja vfða. Þó hafi skipaviðgerðir minnkað mikið með mikilli fækkun vertíðarbáta. Drátt- arbrautin í Eyjum tekur ekki nema mest um 1.000 tonna skip og það dugar ekki fyrir algengustu skipin í dag. Gunnlaugur segir að því séu uppi hugmyndir um að byggja þurrkví í Vestmannaeyjum sem geti kostað um þrjú til íjögur hundruð milljónir króna. Slíkt sé þó ekki framkvæmanlegt nema með þátt- töku hafnarsjóðs. hkr@dv.is Bókavarðan býður 20 tonn afbókum við Hlemm: Budduvænn bókamarkaður „Mér sýnist að bækurnar sem eru í boði verði einhvers staðar í kringum 40 þúsund talsins og alls vegur þetta um tuttugu tonn. „Aldrei fyrr höfum við haldið bókamarkað af þessari stærð- argráðu," segir Ari Gísli Bragason fornbókasali. Þeir feðgar, Ari Gísli og Bragi Kristjónsson, sem reka Bókavörðuna, hafa síðustu daga verið að raða kynstrunum öllum af bókum ofan í kassa. Markaðurinn góði hefst á mánudag og verður á Laugarvegi 105, þar sem íslands- banki var áður til húsa. Yfirgengilega mikið Máltækið segir að fyrr sé fullt en út af flói. Það gildir í Bókvörðunni, en að sögn Ara hefur mikið af bók- um borist að í sumar - aukinheldur sem keypt hafa verið inn stór bóka- söfn, meðal annars úr dánarbúum. „Það er alveg yfirgengilega mikið af bókum sem við eigum núna," segir hann. Á markaðnum verða til að FORNBÓKASALINN: „Bækurnar í kringum 40 þúsund talsins," segir Ari Gísli Bragason. DV-mynd ÞÖK mynda skáldverk, ævisögur, ljóða- bækur og þjóðlegur fróðleikur - auk margvíslegs annars lesefnis. Lunginn af þessu býðst á 100 kr. - auk þess sem ríflegur afsláttur verður í verslun Bókvörðunnar við Vesturgötu íReykjavík. „Þettaverð- ur því afskaplega budduvænn markaður," segir Ari Gísli. Vel þekktir bókamenn „Það er vel til fundið að vera með bókamarkað á haustin, þá getur fólk sótt sér lestrarefni fyrir vetur- inn. Auk þess er alltaf skemmtileg stemning sem fylgir þessu," segir Ari Gísli Bragason enn fremur. Bókamarkaðurinn er ævinlega ijölsóttur - og meðal annars eru alltaf á ferðinni vel þekktir bóka- menn. Eru þar til sögunnar nefndir meðal annarra Halldór Blöndal, forseti Aiþingis, Hilmar Ingimund- arson Iögmaður, Magnús Skúlason geðlæknir og Jóhann Pétursson, fyrrum vitavörður á Horn- bjargsvita. sigbogi@idv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.