Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Qupperneq 13
mmmtm FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 7 3 9 Bolungarvík. Jón segir að bæjarstjórn hafi, að kröfu nokkurra fjölskyldna sem hagsmuna eiga að gæta, haldið neyðarfund fyrir hálfum mánuði þar sem hnykkt var á stuðningi við smábátasjómenn og samþykkt bæjarstjórnar um stuðning við línuívilnun sem gerð var í vor. Á þessum fundi var samþykkt að hvetja Bolvíkinga til að mæta á fund smábátasjómanna á Isafirði og greiða hluta kostnaðar af hon- um. Hann segir þetta óeðlilegt þar sem smábátasjómenn, konur þeirra og skyldulið sitji í bæjar- stjórn og skilji ekki vanhæfi sína í málinu. Bæjarstjórn megi ekki mis- muna þegnum sínum á þennan hátt. Gefa skít í okkur „Strax og ég fékk þessi skilaboð lá í hlutarins eðli að það var ekki um annað að ræða en að ég stæði við mitt. Þetta var auðvitað ekkert spennandi augnablik að það skyldi vera gefinn skítur í okkur. Ég hélt að ég væri ekkert vandamál hér í bænum. Eftir 37 ára dvöl hér í Bol- ungarvík er þetta ekki bara leikur. Við hjónin fórum því í sumarbú- stað okkar í Álftafirði til að róa taugarnar." Jón auglýsti í kjölfarið bæði ein- býlishús sitt og bflaverkstæði í Bol- ungarvík til sölu. Hann segist ekki vita hvert stefnan verði tekin en hann líti á boð Súðvíkinga um að hann flytji þangað sem góðlátlegan brandara. Hann tekur þó fram að Súðvíkingar séu upp til hópa hið vænsta fólk. Hann sé mikill Vest- firðingur í sér og er ísfirðingur að uppruna. Því verði erfitt að slíta sig frá Bolungarvík og hugsanlega flytja í annan landshluta. hkr@dv.is Alltaf slæmt að missa góða menn segir forseti bæjarstjórnar Elías Jónatansson, forseti bæj- arstjórnar Bolungarvíkur, seg- ir það auðvitað áhyggjuefni ef Jón Guðbjartsson útgerðar- maður vill ekki dvelja hjá þeim lengur vegna þess sem hann telur vera óeðlilega af- stöðu bæjarins vegna línuívilnunar. Elías situr í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem er með 4 af sjö bæjarfulltrúum en K-listi bæjarmálafélags Bolungarvikur hefur hina 3 fulltrúana. Hann seg- ir að afstaðan með iínuívilnun hafi legið fyrir frá því fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Bæði framboðin lýstu þá yfir stuðningi við hugmyndir um línuívilnun. Ef bæjarfulltrúar hefðu farið að koma með aðra skoðun á því máli eftir kosningar væru þeir einfald- lega að ganga á bak orða sinna. „Það er því einfald-. lega ekki rétt að við séum að taka afstöðu eingöngu með smá- bátum." „Við vorum kosnir til starfa m.a. undir þessum yfirlýsingum. Jón sendi okkur formlegt bréf og við höfum svarað því erindi. Að sjálfsögðu er alltaf slæmt að missa góða menn og auðvitað kvótann lika, á þvi er enginn vafi," segir Elías Jónatansson. Ekki bara fyrir smábáta „Það hefur ekkert verið ályktað sérstaklega um málið síðan í vet- ur. Hins vegar var ekkert tekið sérstaklega fram þar að þetta væri bara fyrir smábáta. Þetta var línuívilnun til dagróðrabáta sem róa með línu og í sjáJfu sér ekkert í okkar ályktun sem segir til um það hvað bátarnir megi vera stór- ir. Það er því einfaldlega ekki rétt að við séum að taka afstöðu ein- göngu með smábátum. Það er Elías Jónatansson. engum blöðum um það að fletta að línuútgerð héðan er mikil og því mildir hagsmunir fyrir bæjar- félagið að hún geti aukist." - Hvað með þá gagnrýni að fiskurinn af smábátunum sé nær allur fluttur í burtu eftir löndun og komi því ekki til vinnslu á stöð- um eins og Bolungarvík? „Það eru ekki smábátarnir sem ráða því. Það er fískkaupandinn. Sá sem fískar fískinn og landar honum á markað ræður því í sjálfu sér ekki hvar hann er unn- inn. Eftir því sem framboðið verð- ur meira á markaðnum því meiri líkur eru til þess að meira votói unnið á stöðunum," segir Elías og er bjartsýnn á að lfnuívilnun verði að veruleika. Ekki náðist í Einar Pétursson, bæjarstjóra í Bolungarvík, vegna orða Jóns Guðbjartssonar. Hall- dór Benediktsson, staðgengill bæjarstjóra, segist ekki þekkja nógu vel forsögu málsins. „Ég held þó að Jón sé að skamma rangan aðila," sagði hann, enda réð bæjarstjórn litlu um kvótalög- in í landinu. „Það hlýtur svo að vera hans mál hvort hann flytur í burtu eða ekki." SPURT OG SVARAÐ Guðbjörg Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur. Lesandi spyr hvort munur sé á kynjum, hvað varðar ástæður þess að menn byrja aftur að reykja eftir að hafa verið hættir í einhvern tíma! Konum virðist vera hættara við að falla þegar þær lenda í erfiðum aðstæðum eins og álagi, deilum, streitu eða sorg. Körlum er hins vegar hættara við að talla á reykbindindi þegar þeir eru að skemmta sér og eru í hóp. Þetta er samt einstaklingsbundið. ALLIR PISTLARNIR ERU Á WWW.DV.IS Annar lesandi spyr hvort það sé ekki betra að draga úr reykingum með því að fara yfir í léttari sígarettur? Margir reyna að draga úr reykingunum með því að reykja léttari (light) sígarettur. Þetta hefur þó ekki reynst árangursríkt. Þeir sem hafa innbyrt ákveðið magn af nikótíni yfir daginn munu ekki draga úr reykingunum þótt á pakkanum standi “light” eða lítið nikótín. Það hefur sýnt sig að þeir sem fara yfir í léttu sigarettunrnar reykja þær yfirleitt mun ákafar, draga reykinn dýpra og halda honum lengur niðri í lungunum. Við þetta verður glóðin mun heitari en í “venjulegu” sígarettunum og ýmis hættuleg efni til viðbótar losna úr læðingi. Kveðja Guðbjörg. Nicotinell Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hjálparefni til að hætta eða draga úr reykingum. Það inniheldur nikótín sem losnar þegar tuggið er, frásogast í munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu, hægt og rólega til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn, en ekki má tyggja fleiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráðlaat að nota lyfið lengur en 1 ár. Nikótín getur valdið aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk, ógleði, hiksta og ertingu í meltingarfærum. Sjúklingar með slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótínlyf nema í samráði við lækni. Nicotinell tyggigúmmí er ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema í samráði við lækni. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. hkr@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.