Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Síða 16
76 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR26. SEPTEMBER2003
Útlönd
Heimurinn í hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Erfið bið fram undan
RANNSÓKN: Tony Blair, forsæt-
isráðherra Bretlands, verður
væntanlega að bíða þangað til
í desember eftir niðurstöðum
rannsóknar Huttons lávarðar á
dauða vopnasérfræðingsins
Davids Kellys.
Vopnasérfræðingurinn var
miðpunktur illdeilu stjórnvalda
og ríkisútvarpsins BBC um
hvort hættan af gjöreyðingar-
vopnum Saddams Husseins
hefði verið ýkt í opinberri
skýrslu sem notuð var sem
réttlæting fyrir innrás í Irak.
Mál þetta hefur mjög dregið úr
trúverðugleika Blairs og hafa
vinsældir hans minnkað mikið.
Hutton sagði við lok tveggja
mánaða rannsóknarinnar í gær
að enginn gæti vænst þess að
sleppa við gagnrýni.
Ekki grýtt
NÍGERÍA: Dómstóll í Nígeríu
ógilti í gær umdeildan dóm yfir
ungri konu, Aminu Lawal, sem
íslamskur dómstóll hafði úr-
skurðað að skyldi grýtt til bana
fýrir hórdóm þar sem hún
eignaðist barn utan hjóna-
bands. Dómurinn vakti mikla
hneykslan á sínum tíma og
þrýstu erlend ríki mjög á Níg-
eríustjórn að skerast í leikinn.
Öflugirjarðskjálftar í Japan:
Að minnsta kosti
400 manns slasaðir
Mjög öflug jarðskjálftahrina
reið yfir japönsku eyjuna
Hokkaido í norðurhluta Japans
í morgun með þeim afleið-
ingum að minnsta kosti 400
manns slösuðust, þar af tveir
alvarlega, auk þess sem miklar
skemmdir urðu á mannvirkjum.
UPPBOÐ
Föstudaginn 3. október 2003
kl. 14.00 er fyrirhugað að selja
nauðungarsölu, á athafnasvæði
Geymslusvæðisins ehf., Kapellu-
_____hrauni, Hafnarfirði,_
Gemax segulómtæki, framleiðslunr.
514/ax-9, í eigu þrotabús Örfiriseyjar
ehf., kt. 511188-1489, auk gáms
(modularbuilding) sem tækið er upp-
sett í.
SýSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐI
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðar og iausafé
verða boðin upp við lögreglu-
stöðina í Borgarnesi föstudag-
inn 3. október 2003 kl.16.00,
hafi beiðnirnar ekki verið aftur-
kallaðar:
VB-332 OL-030 YG-800 PI-784
Gorgi affelgunarvél 312 0655,
Gorgi affelgunarvél 452 2445,
Gorgi affelgunarvél án númers,
Gorgi affelgunarvél án númers,
Mondolfo Ferro affelgunarvél 1754,
Cemb C 32 balance-vél 843860,
Gorgi E T-66 balance-vél 6072143,
Brannick glennari,
Shamal 2936 loftpressa.
SýSLUMAðURINN 1 BORGARNESI
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
______um sem hér segir:______
Búagrund 14A, 0101, Kjalarnesi, 116
Reykjavík, þingl. eig. Eva Eðvalds-
dóttir, gerðarbeiðendur Gró ehf.,
Húsasmiðjan hf., fslenska skófélagið
ehf., Nóló ehf., Ríkisútvarpið, Sportís
ehf. og Tal hf., þriðjudaginn 30. sept-
ember 2003 kl. 11,30.________
Langholtsvegur 116B, 0101, Reykja-
vík, þingl. eig. Unnar Karl Halldórs-
son og Guðlaug Helga Jónasdóttir,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingar-
bankinn hf., fbúðalánasjóður og Spari-
sjóðurinn í Keflavík, þriðjudaginn 30.
september 2003 kl. 14.00.
Laugavegur 164, 010401, Reykjavík,
þingl. eig. Vignir Jóhannsson, gerðar-
beiðendur Innheimtustofnun sveitar-
félaga, Lögmál ehf. og Tollstjóraemb-
ættið, þriðjudaginn 30. september
2003 kl. 14.30.
Leifsgata 4, 0102, Reykjavík, þingl.
eig. Hilmar Páll Jóhannesson, gerðar-
beiðandi Tollstjóraembættið, þriðju-
daginn 30. september 2003 kl. 15.00.
SýSLUMAðURINN í REYKJAVÍK
Fyrsti skjálftinn, sem var sá
harðasti, mældist átta á Richter og
reið hann yfir um klukkan 4.50 að
staðartíma í morgun, eða um
klukkan 19.50 að íslenskum tíma í
gærkvöldi. Nokkrir öflugir skjálftar
fylgdu í kjölfarið og mældist sá
næsti 5,8 á Richter en sá öflugasti,
sem reið yfir um klukkustund síðar,
mældist um sjö á Richter.
Sjálftarnir, sem eru þeir öflug-
ustu í heiminum á þessu ári, áttu
upptök sín undan austurströnd
Hokkaido og ollu þeir miklum
skemmdum á mannvirkjum.
Eldur kom upp í olíubirgðastöð í
borginni Tomakomai en enginn
slasaðist og hafði slökkviliði tekist
að ná tökum á eldinum innan
þriggja klukkustunda.
Flestir voru í fastasvefni þegar
skjálftahrinan hófst og urðu flest
slysin á heimilum þegar hlutir eða
glerbrot féllu ofan á fólk.
Eitt dauðsfall
Um fjörutíu þúsund manns
munu hafa flúið heimili sín en að
sögn NHK-fréttastofunnar múnu
flestir hinna slösuðu hafa orðið
undir fallandi hillum og öðru
lauslegu sem féll af veggjum og úr
lofti bygginga. Þá fótbrotnaði sjötfu
ára gömul kona þegar hún reyndi
að komast út úr húsi sínu f gegnum
glugga.
Að sögn talsmanns björgunarliðs
í borginni Kushiro voru um fimm-
tíu manns fluttir þar til aðhlynn-
ingar á sjúkrahús með áverka og
beinbrot og í nálægum bæ um
þrjátíu manns.
Eina dauðsfallið, sem vitað er um
og rakið er til skálftanna, varð
þegar maður varð fyrir bifreið þar
sem hann var að sópa upp gler-
brotum af götunni utan við heimili
sitt.
Nokkuð var um rafmagnstrufl-
anir og fór allt rafmagn af stóru
svæði í nágrenni borgarinnar Ats-
uma þegar straumur var rofinn í
Átta írakar fórust í sprengju-
árás á markaðstorg í borginni
Baquba, norðaustur af
Bagdad, í gærkvöld.
Talsmaður bandaríska hersins
sagði í morgun að ekki væri vitað
hverjir stóðu fyrir árásinni.
Baquba er í héraði sem kallað er
„súnníta-þrfhyrningurinn" þar
sem árásir á bandaríska hermenn
hafa verið tíðar að undanförnu og
þar sem stuðningur við Saddam
Hussein, fyrrum forseta, er mikill.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Tomato-Atsuma raforkuverinu af
öryggisástæðum og urðu þar um
25 þúsund heimili rafmagnslaus.
Nokkrar tafir urðu á samgöngum
vegna skriðufaila og í Kushiro var
flugvellinum lokað tímabundið
eftir að loftklæðning hafði hrunið
niður í flugstjórnarsal. Þá fór næt-
urlest með um fjörutíu manns inn-
anborð út af teinunum en aðeins
einn farþegi slasaðist lítils háttar.
Varað við flóðbylgjum
Japönsk stjór. /öld hafa varað
íbúa í strandhéi iðum á austur-
strönd Hokkaido við hugsanlegum
flóðbylgjum í kjölfar skjálftanna, en
ein slík um 1,2 metrar á hæð, skall á
ströndinni í morgun en olli minni
háttar skaða í nokkrum strand-
byggðum.
Eina dauðsfallið, sem
vitað er um og rakið er
til skáiftanna, varð
þegar maður varð fyrir
bifreið þar sem hann
var að sópa upp gler-
brotum afgötunni utan
við heimili sitt.
1 morgun bárust þær fréttir frá
Japan að opnast hefðu fjórar jarð-
sprungur í Jilíðum Fuji-eldfjallsins í
kjölfar jarðskjálftanna og legði gufu
upp úr einni þeirra. Að sögn jarð-
fræðinga var allt með kyrrum kjör-
um í sjáifum gíg eldfjallsins og eng-
in merki um að gos væri í aðsigi.
Hokkaido er önnur stærsta eyjan
í Japanseyjaklasanum og þar búa
um fimm milljónir manna, flestir í
höfuðborginni Sapporo.
MIKLAR SKEMMDIR: Miklar skemmdir
urðu í jarðskjálftunum í Japan.
Bandaríkjanna, segir í viðtali við
New York Times í dag að fram-
kvæmdaráð íraks fái sex mánaða
frest til að semja nýja stjórnarskrá
sem gerir kleift að halda kosningar
á næsta ári og mynda nýja ríkis-
stjórn í kjölfarið.
Gærdagurinn var enn einn
sorgardagurinn fyrir hernámsliðið
f Irak og stuðningsmenn þess.
Aldla al-Hashemi, ein þriggja
kvenna í framkvæmdaráðinu, lést
á sjúkrahúsi í gærmorgun af völd-
um sára sem hún fékk í skotárás
fyrir fimm dögum.
Átta týndu lífi
í sprengjuárás
LÉST AF SKOTSÁRUM: Akila al-Hashemi, ein þriggja kvenna í framkvæmdaráði Iraks,
lést í gær af skotsárum sem hún hlaut þegar ráðist var á hana fýrir fimm dögum.