Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Page 17
FÖSTUDAGUR 26.SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 17
Clark í eldlínunni
RÖKRÆÐUR: WesleyClark,
fyrrum hershöfðingi og
nýjasti þátttakandinn í
kapphlaupinu um að
verða forsetaefni demó-
krata, hafði fremur hægt
um sig í eldskírn sinni á
vettvangi landsmálanna í
gærkvöld. Clark tók þátt í
hávaðasömum kappræð-
um þarsem meðframbjóð-
endur hans skutu föstum
skotum hver á annan.
Clark er einnttu
demókrata sem vilja etja
kappi við Bush forseta í
nóvember á næsta ári.
Hershöfðinginn fyrrver-
andi, sem nýtur umtals-
verðs fylgis, beindi spjót-
um sínum eingöngu að
ábúanda Hvíta hússins.
„Við kusum forseta sem
við héldum að væri brjóst-
góður íhaldsmaður. En við
fengum hvorki íhalds-
stefnu né samúð. Við feng-
um mann sem lækkaði
skatta af glannaskap. Við
fengum mann sem leiddi
okkur af glannaskap út í
stríð við lrak,“ sagði
Wesley Clark.
Grunaður morðingi úrskurðaðurí gæsluvarðhald:
Hataði Önnu Lindh
Dómstóll í Stokkhólmi úrskurð-
aði í morgun 24 ára gamlan
mann af júgóslavnesku bergi
brotinn í gæsluvarðhald til 10.
október vegna morðsins á
Önnu Lindh utanríkisráðherra.
Hinn grunaði. neitar að hafa
framið morðið.
Sænska lögreglan þykist nú alveg
viss um að hafa gómað rétta mann-
inn þar sem hægt sé að tengja líf-
sýni á morðvopninu við hann.
„Við getum nú sannað að hann
hélt á morðvopninu," segir heim-
ildarmaður blaðsins Expressen.
Aftonbladet segir í morgun að
hinn grunaði, sem er truflaður á
ALVEG VISSIR: Sænska lögreglan þykist al-
veg viss um að hafa nú loks gómað mann-
inn sem drap Önnu Lindh.
geðsmunum, hafi verið útskrifaður
af geðdeild aðeins fimm dögum
fyrir morðið. Eftir morðið leitaði
hann aftur aðstoðar á geðdeild en
var vísað frá.
Expressen hefur í morgun eftir
vini hins grunaða að hann hafi
hatað Önnu Lindh. Þá kemur fram í
Aftonbladet að hann hafi sagt
mörgum að hann væri tilbúinn að
drepa manneskju.
„Fórnarlamb mitt á að vera sterk
kona,“ á hann að hafa sagt.
Maðurinn hafði sjúklegan áhuga
á frægu fólki og var Anna Lindh þar
efst á blaði. Hann mun einnig hafa
sagt mörgum að hann teldi að Lind
hefði gert alvarleg mistök.
tll kl. 01:00 alla vlrka daga
tll kl. 03:00 föstu^ og laugai
tll kl. 01:00 sunnudaga
H LEÐ S LU
BORUEL j
.
hraðskiptipatróna
ífi
Hraðskiptipatróna
..sparar tíma og eykur afköst!
FESTOOL
áSCÉM)
Ármúli 17, WB Heykjavík
síml: 533 1334 fax: 5GB 0493
www.isol.is
byssur, ferðalög, ferðaþjónusta,
fyrir ferðamenn, fyrír veiðimenn,
gisting, golfvörur, heilsa, hesta-
mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útilegubúnaður... tómstundir
550 5000