Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Page 24
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003
4
24
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5824-550 5810
Smekkleysa í Bókhlöðu
Sýningin „Humar eða frægð -
Smekkleysa í 16 ár" hefur verið
færð úr Hafnarhúsinu í Þjóðar-
bókhlöðuna. Áður var hún í
Spitz Gallery í London. Þar sem
sýningin þykir höfða mjög til
námsmanna var afráðið að
setja hana upp að nýju, í því
sem næst sömu mynd, og hafa
hana aðgengilega gestum í
Þjóðarbókhlöðunni. Mikil eftir-
spurn er einnig eftir sýning-
unni erlendis frá og þegar eru
nokkrir sýningarstaðir bókaðir
á næsta ári. Smekkleysa áform-
ar að hafa ýmsar dagskrár í
haust í tengslum við sýning-
una, m.a. verður Úlfhildur
Dagsdóttir bókmenntafræð-
ingur með erindi um mynd-
bönd Bjarkar.
Skimað í skógi
Gengið verður um Fossvogs-
dalinn á morgun, í síðustu
haustgöngu Skógræktarfélag-
anna og Garðyrkjufélags Is-
lands, þetta árið. Hist verður
við hlið Skógræktarinnar kl. 10
árdegis og síðan verður létt
ganga um svæðið, tré mæld
og skimað eftir fuglum, því
bæði verða fuglafræðingur og
garðyrkjufræðingur með í för.
Styrktartónleikará Höfn:
í Eden
Torfhildur Steingrímsdóttir frá
Hafnarfirði og Ólafur Árni Hall-
dórsson frá Keflavík sýna í Eden.
Allt frá 16 ára aldri hefurTorfhildur
fengist meira eða minna við mynd-
list og sýnir brot af afrakstrinum.
Ólafur Árni Halldórsson sýnir olíu-
málverk, pastelmyndir og skúlptúr-
verk úr hvalskíðum, fjörugrjóti og
steinsteypu.
Yfirlitssýning og sjónþing
Gerðuberg: Yfirlitssýning á verk-
um Koggu sl. 30 ár verður opnuð á
morgun kl. 13.30 í Gerðubergi með
Sjónþingi sem Aðalsteinn Ingólfs-
son list-
fræðing-
ur stjórn-
ar. Sýn-
ingin
stendur
til 16.
nóvem-
ber.
Eftir höfðinu
Guðrún Öyahals opnar sýningu í
Gallerí Skugga, á morgun, 27. sept-
ember, kl. 17. Yfirskrift sýningar-
innar er Eftir höfðinu dansa limirn-
ir.
Augnagildrur
Á morgun, 27. september, kl.15
opna Einar Garibaldi Eiriksson og
Bruno Muzzolini einkasýningar í
Listasafni ASÍ. Einar Garibaldi sýn-
ir málverk og kallast sýning hans fs-
land f níu hlutum. Bruno sýnir ljós-
myndir og myndbandsverk og kall-
ast sýning hans Augnagildrur.
Himinn og jörð
Himinn og jörð nefnist sýning
Þorgerðar Sigurðardóttur í Grens-
áskirkju. Sýningin er liður í 40 ára
afmælishátíð Grensássafnaðar og
mun standa yfir næstu vikur.
Þar eru 15 teikningar, unnar með
blýi á akrýlgrunnaðan pappír. Þær
eru gerðar á þessu ári og eru úr
myndröð sem fyrst var sýnd í Ás-
mundarsal, Listasafni ASf, 5.-21.
Sara og Spessi
Tvær sýningar verða opnaðar í
Sjónarhorni Listasafns íslands í dag
kl. 16. Sara Björnsdóttir og Spessi
eru gestir Sjónarhornsins að þessu
sinni og eru þau bæði með ný verk
sérstaklega gerð af þessu tilefni.
Sara Björnsdóttir sýnir vídeó-
innsetningu sem hún kallar Rugl í
rýminu. Spessi er kominn burt frá
andartakinu sem ljósmyndin festir
á mynd yfir í óskilgreindan og til-
viljunarkenndan tíma sem mynd-
bandið fangar.
Leiðsögn verður um allar sýning-
ar Listasafns íslands sunnudaginn
28. september. Þar mun Harpa
Þórsdóttir listfræðingur ganga með
gestum safnsins um yfirlitssýningu
Júlíönu Sveinsdóttir og nýopnaðar
sýningar þeirra Söru Bjömsdóttur
og Spessa í Sjónarhorninu. Leið-
sögnin hefst kl. 15 og tekur um eina
klukkustund.
Ljósi varpað á söguna
Yfirlitssýning verður opnuð á
morgun í Ljósmyndasafni Reykja-
víkur, Tryggvagötu, á verkum
Magnúsar Ólafssonar (1862-1937),
eins helsta fmmherja í íslenskri
ljósmyndun. Verk Magnúsar, sem
em kjölfestan f safneign Ljós-
myndasafns Reykjavíkur, varpa
ljósi á tímabilið frá aldamótum
1900 fram undir miðbik 20. aldar og
fletta upp svipmyndum frá tímabili
er samhliða tæloiiframförum ein-
kenndist af þjóðfélagsbreytingum
* og þróun borgarsamfélags í Reykja-
apríl sl. Allmargar em í einkaeigu,
ein fengin að láni hjá Listasafni
Reykjavfkur en aðrar til sölu.
Opið
Myndlistarkonan Nína Magnús-
dóttir sýnir verk sín undir nafninu
Opið í Kling og Bang galleríi,
Laugavegi 23. Verkin samanstanda
af ljósmyndum og myndbands-
verkum. I Kling og Bang er opið frá
fimmtudegi til sunnudags frá kl. 14
til 18. Sýningin stendur til 28. sept-
ember.
Möguleki
Myndlistarmennirnir Sirra Sig-
rún Sigurðardóttir
og Erling T.V.
Klingenberg opna
á morgun kl. 17
sýningu er ber
heitið „Mökuleki"
í menningarmið-
stöðinni Skaftfelli
á Seyðisfirði.
Á sýningunni
vinna þau saman
sem andstætt kyn
á og í yfirborð
hefðbundinna miðla myndlistar út
frá miðju síns kyns sem verkfæri
aðdráttarafls. Aðdráttaraflið og
möguleikar merkinga í verkunum
takast á við tálbeitu miðlanna og
efnisnotkunar. Sýningin stendur til
10. október. Allir velkomnir.
vík.
Dansi dansi...
Sýningunni
Dansi, dansi dúkkan
mín á Minjasafninu
á Akureyri lýkur á
morgun. Þar em
dúkkur í eigu mynd-
istarkonunnar Guð-
bjargar Ringsted.
Fyrsti vangadansinn
kannski rifjaður upp
Hljómsveit Hauks Þorvaldssonar
hefur staöið undir ballmenningunni
á suðausturhorni landsins í tvo ára-
tugi. Haldið verður upp á það um
helgina og safnað um leið fyrir lifrar-
skiptum lítils drengs.
„Við verðum með tónleikana
„Hljómsveit Hauks í 20 ár“ í
Sindrabæ í kvöld og síðan er af-
mælishóf á Hótel Höfn annað
kvöld, með mat, hluta af tónleika-
prógramminu og balli á eftir," seg-
ir forsprakkinn, Haukur Þorvalds-
son. Fleiri munu stíga á svið á tón-
leikunum því hornfirska ung-
mennahljómsveitin Parket mun
hita upp og auk þess koma fram
Synir Valda og Ágúst og hluti
hinna austfirsku Óma sem áttu
miklum vinsældum að fagna á sjö-
unda áratugnum. Þess má geta að
í öllum þessum hljómsveitum eru
„synir Valda" valdamiklir, enda
tónlistarmenn af lífi og sál.
Lítill drengur í lifrarskipti
Að sögn Hauks rennur allur
ágóði af tónleikunum í nýstofnað-
an styrktarsjóð vegna lítils drengs,
Hilmis Guðna Heimissonar sem er
af hornfirskum og vopnftrskum
ættum. Hann fæddist 19. júní í
sumar og er með mjög sjaldgæfan
lifrarsjúkdóm þannig að hann þarf
að fara í lifrarskipti. Reikningurinn
er nr. 0172-05-220 og kennitalan
hans er 190603-2450. „Allir sem að
þessum tónleikum standa gefa
sína vinnu og við vonum að við
getum lagt hinni ungu Ijölskyldu
lið því að þetta er kostnaðarsöm
aðgerð,“ segir Haukur.
Víða borið niður
Með Hauki í bandinu eru þeir
Jóhann Morávek, Gunnlaugur Sig-
urðsson, Bragi Karlsson og söngv-
arinn Bjartur Logi Finnsson.
„Allir sem að þessum
tónleikum standa gefa
sína vinnu og við von-
um að við getum lagt
hinni ungu fjölskyldu
lið því að þetta er
kostnaðarsöm aðgerð,"
Haukur segir þennan kjarna hafa
myndað hljómsveitina að mestu
síðan 1986 en þó hafi orðið söngv-
ara- og trommaraskipti og koma
þeir kraftar flestir fram á tónleik-
Danirnir í FH fóru í kennslustund
ídönsku:
Kvennamál og
fótbolti efst á
baugi
FH-ingar bíða í ofvæni eftir bikar-
leiknum sem fram fer gegn ÍA á
morgun.
Félagið hóf í gær að dreifa mið-
um til skólabarna í Hafnarfirði og
stóð til að gefa 1500 miða. Það voru
dönsku leikmennirnir, Tommy
Nielsen og Allan Borgvardt, sem
riðu á vaðið og mættu þeir klyfjaðir
aðgöngumiðum í Áslandsskóla
snemma í gærmorgun. Að sjálf-
sögðu eltu tvímenningarnir uppi
kennslustundir í dönsku. Nemend-
ur í Áslandsskóla tóku fótbolta-
mönnunum tveimur vel og voru
ófeimnir að rabba við þá á dönsku.
Spurningum rigndi yfir fótbolta-
mennina og voru þeir meðal ann-
ars spurðir út í fótboltaferilinn,
hvernig þeim litist á íslenskt kven-
fólk og hvort þeir væru búnir að
eignast kærustur. Úrslitaleikinn
bar einnig á góma.
Stuðningsmenn FH standa í
ströngu við undirbúning vegna
leiksins enda tilefnið stórt; FH hef-
ur aldrei hampað bikartitli. Þeir
hafa tvisvar leikið bikarúrslitaleik;
árið 1971 gegn ÍBV og árið 1991
gegn Val en tapað í bæði skiptin.
Búið er að setja upp FH-búð í
Nemendur í Áslands-
skóla tóku fótbolta-
mönnunum tveimur vel.
verslunarmiðstöðinni Firði og eins
og fyrr segir verður öllum krökkum
í bænum boðið á leikinn. Opið hús
verður í Kaplakrika frá klukkan 11 í
fýrramálið og þar geta krakkar
fengið andlitsmálningu. Rútuferðir
á leikinn verða frá Kaplakrika.
arndis@dv.is
GJÖRÐU SVO VEL: Allan Borgvardt, leik-
maður FH, afhendir nemanda í Áslands-
skóla aðgöngumiða á bikarleik FH og (A
sem fram fer á morgun. Tommy Nielsen
sést ofar í salnum.