Helgarblaðið - 07.02.1992, Qupperneq 2
Helgar 2 blaðið
Félagar í Óperusmiðjunni komu saman í Borgarleikhúsinu i vikunni
tii a& hefja undirbúning ai sýningunni á La Bohéme. Mynd: Kristinn.
Bohéme í Borgarleikhúsinu
Óperusmiðjan og Börgar-
leikhúsið hafa sameinast
um að færa upp hina vin-
sælu óperu La Bohéme
eftír Puccini. Frumsýning
verður 28. mars. Þetta er
í fyrsta skiptí sem ópera er
uppfærð í Borgarleikhús-
inu, en salur þess er sér-
staklega hannaður með
góðan hljómburð í huga,
auk þess sem þar er full-
komnasta leiksvið lands-
ins.
Leikstjóri sýningarinnar verður
Bríet Héðinsdóttir. Hljómsveitar-
stjóri verður Guðmundur Óli
Gunnarsson, sem verið hefur við
framhaldsnám í Finnlandi.
Hljómsveitin verður skipuð hljó-
færaleikurum úr röðum Sinfóníu-
hljómsveitar Islands. Leikmynda-
höfundur er Messíana Tómasdótt-
ir.
Með helstu hlutverk fara Þor-
geir Andrésson, Inga Backman,
Ingibjörg Guðjónsdóttir, Jóhanna
Linnet, Keith Reed, Sigurður
Bragason, Stefán Amgrímsson,
Jóhann Smári Sævarsson, Sigurð-
ur Steingrímsson og Ragnar Dav-
íðsson. Þá tekur þrjátíu manna
kór auk tuttugu bama, sem Ámi
Harðarson hefur æft, þátt í sýn-
ingunni.
Tenórinn Ólafiir Bjamason,
sem hefur staðið sig vel í Óper-
unni í Regensburg í Þýskalandi,
mun syngja í nokkrum sýningum
í byijun maí. Einnig er hugsan-
legt að Kristján Jóhannsson komi
og taki þátt í sýningum ef færi
gefst.
Helgarblaðið lætur sér ekkert mann-
legt óviðkomandi og hikar því ekki
við að hnýsast í persónulega hagi
fólks sem á vegi þess verður. Sem
fyrsta fómarlamb völdum við Tómas
Tómasson, ungan og upprennandi
söngvara sem um þessar mundir æf-
ir af kappi hlutverk Lodovicos í Ot-
ello eftír Verdi sem íslenska óperan
fmmsýnir á sunnudaginn kemur.
Þar að auki sinnir hann dagskrár-
gerð á tónlistardeild Rásar 1 og lærir
söng í Tónlistarskólanum í Reykja-
vík.
Stundum
er tilveran
trunta!
Hverra manna ertu?
Sonur Tómasar og Sigurlínu, cn þau rckja ætt-
ir sínar austur, norður og vestur, mest vcstur á
firði.
Aldur, menntun og fyrri störf?
Ég er ungur maður, 25 ára. Menntunin hcld ég
sé ágæt en störfin hafa verið mörg og misjöfn;
vikapiltur í sveit, háseti á trillu og togara,
löndunarbolti, pizzugerðarmaður, rilari,
gæslumaður á geðdeildum, tækjamaður í
frystihúsi, handlangari og „smiður“, blaða-
maður og auðvitað bar ég út Þjóðviljann þeg-
ar ég var gutti.
Heimilishagir?
Bý með Tinnunni minni í notalegri 2ja her-
bergja íbúð vestur í bæ.
í hvaða stjörnumerki ertu?
Steingeitinni.
Hvað er það besta sem fyrir þig hefur kom-
ið?
Að eldast og giftast.
Hvaða bók lastu síðast?
Ritgerð um ríkisvald eftir John Lockc. ,
Hver er þinn uppáhaldssöngvari?
Nicolai Ghiaurov.
Á hvaða plötu/disk hlustaðirðu síðast?
Aríudisk með Matti Salminen.
Ertu með einhverja dellu?
Söngdellu!
Er þér meinilla við eitthvað?
Tilhugsunina um að í Örfirisey rísi fiskimjöls-
verksmiðja.
Hver er þinn helsti löstur?
Letin, kannski gleymskan lika.
En kostur?
Stundum man ég eftir að rífa mig uppúr leti-
köstunum.
Ertu sá sem þú sýnist?
Hver sýnist þér ég vera?
Ertu sáttur við tilveruna?
Já, ég er nokkuð sáttur við þá stefnu sem líf
mitt er að taka, cn það verður nú að viður-
kcnnast að stundum cr tilvcran svolítil trunta!
Hefurðu migið í saltan sjó?
Auðvitað. Mér finnst samt hlýlegra að gera
það bara heima.
Hvernig heldurðu að sé að búa með þér?
Skaplegt, allavega þolanlegt milli þess sem ég
æfi mig á þessum yndislegu skölum upp og
niður tónstigann, hálftón í senn!
Ertu matvandur?
Yfirlcitt ekki, en kæsta skötu ét ég aldrei.
Hvernig ertu útlits?
Svolítið líkur henni mömmu.
Hefurðu komið í Perluna?
Einu sinni, en ekki oftar og ekki aftur i bráð
því maturinn var vondur.
Ertu misskilinn?
Svolítið stundum, en sjaldnast kemur það að
sök.
Hvernig fólk laðast að þér?
Flest það fólk sem ég hef kynnst hefur reynst
vera ágætisfólk.
Ferðastu með strætó?
Stundum, en mér finnst samt betra að flakka
um á nýja, fina Clio- inum okkar Tinnu.
Kanntu brauð að baka?
Já, það kann ég.
Fer herinn?
Æ, já, væri það ekki óskandi?
Hvað er það sem þú hefur ekki glóru um?
Ha?
Ertu ástfanginn?
Ja.
Á hvað stefnirðu?
Að verða „góður" söngvari, syngja með góðu
fólki í góðum óperuhúsum og fleira gott.
Hvernig er fólk flest?
Áhugasamt.
Hvernig viltu verja ellinni?
Mér litist ágætlega á að verða hrukkótt,
hundrað ára, pínulítið skapstirt grey og
gleymið, með haug af góðum plötum í kring-
um mig og Tinnuna líka, álíka hrukkótta og
hundrað ára.
Miljón
króna
skrif-
borð
Á sama tíma og ríkisvaldið sést
ekki fyrir í atlögu sinni að velferð-
arkerfinu virðast ávallt vera til
nægir peningar til að kosta hé-
gómaskap ráðamanna. Sem dæmi
um það má nefna að ekki alls fyrir
löngu fjárfesti Jón Sigurðsson,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í
nýju póleruðu skrifborði sem kost-
aði litla miljón. Þá er ekki langt
um liðið síðan Halldór Blöndal
samgönguráðherra Iét ríkið kaupa
undir sig nýjan jeppa sem kostaði
að sjálfsögðu sitt.
Titring-
ur hjá
krötum
Mikill titringur er kominn í her-
búðir krata eftir að DV birti niður-
stöður úr skoðanakönnun um fylgi
stjómmálaflokkanna í vikunni. Þar
kom ffam að fylgi flokksins er
komið niður í 9% á sama tíma og
Alþýðubandalagið er komið með
23,6%. Þrátt fyrir þessar ófarir
reyna kratar að bera sig manna-
lega svona opinberlega og bera
við að þeir séu að vinna þarfl verk
í ríkisstjóm þótt þau séu óvinsæl
meðal almennings. Engu að síður
verða þær raddir háværari innan
flokksins sem krefjast þess að
skipt verði um foryslu í flokknum.
Þeir hinir sömu er auðvitað minn-
ugir orða flokksformannsins sem
sagði á sínum tíma að nauðsynlegt
væri að skipta um karlinn í brúnni
þegar hann væri hættur að fiska. Á
máli stjómmálamanna þýðir þetta
að skipta beri um fomstu í við-
komandi flokki þegar hann er far-
inn að tapa kjósendum.
Annað að
gista en fljúga
Sökum flughræðslu lætur for-
maður Verkamannasambands ís-
lands, Bjöm Grétar Sveinsson, sig
ekki muna um að keyra á milli
Homafjarðar og Reykjavíkur þeg-
ar hann þarf að fara suður. En
hann er jafnframt formaður verka-
lýðs- og sjómannafélagsins Jökuls
þar eystra. Þrátt fyrir þessa
hræðslu við að fljúga Iætur verka-
lýðsforinginn sér fátt um finnast
þótt hann gisti á herbergi númer
727 á Hótel Esju. En eins og
kunnugt er þá er 727 ákveðin teg-
und af Boeing-flugvélum. Til að
vinna bug á flughræðslu sinni hef-
ur Bjöm, að því er best er vitað,
ákveðið að fara á námskeið hjá'
Flugleiðum til að vinna bug á
þessum flugótta sínum.
Föstudagurinn 7. febrúar