Helgarblaðið - 07.02.1992, Blaðsíða 25
Helgar 25 blaðið
Fylltar
rauðsprettu-
rúllur í blað-
laukshreiðri
Höfundur uppskriftar
Asbjörn Pálsson, yfirmat-
reiðslumaður á Fjöru-
kránni. Rétturinn er fyrir
fjóra. A að berast fram
heitur.
Hráefni:
600 gr. rauðspretta
4 stk. sveppir
4-5 stk. blaðlaukur
4 stk. hörpuskel
1/2 msk. kjúklinga-
kraftur
1/2 stk. laukur
250 gr. smjör
1 1/2 dl mysa eða
hvítvín
1 1/2 dl kræklingasoð
2 dl rjómi
matarolía
Fylling í rauðsprettuna:
Skerið tvo blaðlauka niður
í 4 sm langa bita og síðan
hvem bita í femt (notið að-
Helgarblaðið mun í sam-
vinnu við veitingahús viku-
lega bjóða einhverjum af
áskrifendum blaðsins út að
borða. Veitingamaðurinn
veit að hann á von á gestum
Helgarblaðsins en veit ekki
hverjir þeir verða. Það er
gert til þess að gestir blaðs-
ins hljóti alfarið sömu þjón-
ustu og aðrir gestir veitinga-
hússins. Að máltíð lokinni
verða lagðar nokkrar spurn-
ingar fyrir gestina um gæði
þjónustu, matar og umhverf-
is, auk verðsins. Tilgangur-
inn er sá að fá álit venjulegs
fólks í stað svokallaðra sér-
fræðinga. Þá verður birt
uppskrift frá yfirkokki staðar-
ins.
Þorrablót í
Fjörugarðinum
Fyrsta veitingahúsið sem
gestir Helgarblaðsins heim-
sóttu var Fjömkráin, Strand-
götu 55, Hafnarfirði. Húsið
er næstelsta húsið i Hafnar-
firði, byggt af Matthíasi
Jónssyni Mathiesen kaup-
manni árið 1841.
Gestir Helgarblaðsins, þau
Nanna Friðgeirsdóttir og
Hjörtur Gunnarsson, fóru á
þorrablót í Fjömgarðinn,
sem er viðbygging við
Fjömkrána, þar sem líkt er
efiir víkingaskála.
Umhverfið:
„Það er mjög viðeigandi
fyrir þorrablót, sem þeir hjá
Fjömgarðinum kalla reyndar
víkingaveislu. Umhverfið er
fomeskjulegt. Staðurinn er
byggður þannig upp að líkt
er eftir tímum víkinga og
það vom víkingar með
hjálma, skildi og vopn, sem
tóku á móti okkur. Þetta
reyndust síðan hin mestu
ljúfmenni og þjónuðu þeir
gestum til borðs. Tvær
stúlkur komu með kyndla
þegar líða tók á máltíðina og
sungu gamlar þjóðvísur. Þær
sungu mjög vel og maður
heyrði strax að þar fóm
lærðar söngkonur.
1 stuttu máli sagt þá á um-
hverfið mjög vel við þorra-
blót og stemmningin er
mjög við hæfi.“
eins hvíta hlutann af blað-
lauknum). Hristið vel og lát-
ið síðan krauma í potti. Bæt-
ið kjúklingakraftinum útí og
vatni þannig að rétt fljóti yf-
ir blaðlaukinn. Látið sjóða
þar til svo til allt vatnið er
horfið, látið þá kólna.
Rauðsprettan fyllt:
Roðflettið fiskinn og bein-
hreinsið. Skerið sveppina í
sneiðar svo og hörpuskelina.
Flökin er lögð á bretti þann-
ig að roðhliðin snúi upp.
Blaðlaukurinn, sveppimir og
hörpuskelin era lögð á
miðju flaksins í þessari röð.
Kryddað með salti og pipar.
Flökin em rúlluð upp og
plastfilma sett utan um
Þjónustan:
„Þjónustan var ljómandi
góð. Víkingamir og söng-
konumar þjónuðu til borðs
með miklurn ágætum. Það
var borið út blað með söng-
textum og síðan upphófst
fjöldasöngur með hljóðfæra-
leik. Tónlistin var mjög
notaleg. Ekki þessi ærandi
hávaði sem sumsstaðar er.“
Maturinn:
„Við gefum honum ágætis
þorrablótsmatareinkunn.
Jóhannes Viftar veitinga-
maóur i vióeigandi vík-
ingaklæbum.
Þetta var hefðbundinn þorra-
matur og sem slíkur mjög
góður. Þá var hákarlinn
fyrsta fiokks, en hann er það
vandasamasta við þorramat-
inn. Enda var þetta hákarl að
vestan og því ekki við öðm
að búast en að hann væri
fyrsta fiokks. Maturinn var á
hlaðborði og gat hver í sig
látið einsog hann gat torgað.
Með hákarlinum var borið
fram brennivín í íshröngluð-
um flöskum. Það besta við
hákarlinn er kannski það að
hveija rúllu. Þannig helst
lagið á rúllunum. Fiskurinn
gufúsoðinn í 4 mínútur.
Sósan:
Laukurinn er saxaður og
látinn krauma í dálitlu
smjöri. Mysunni (eða hvít-
víninu) og kræklingasoðinu
bætt útí og soðið niður um
helming. Rjómanum bætt
útí. Þegar sósan sýður er af-
gangurinn af smjörinu settur
útí. Kryddað með salti og
pipar eftir smekk.
Blaðlaukshreiðrið:
Skerið blaðlaukinn sem
eftir er niður í sjö sentimetra
langa strimla (notið ekki
græna hlutann). Skolið vel
og djúpsteikið í matarolíu.
hann er tilefni til að fá
brennivísstaup.
Verð:
„Þorrahlaðborðið kostar
2.200 kr. Það virðist vera
svipað verð og annarsstaðar
á þorramat."
Að lokum:
„Við gefum staðnum
fyrstu einkunn. Þetta er hið
rétta umhverfi til að halda
þorrablót. Þama komast allir
í rétta stemmningu.“
Heim-
spekin
slær í
gegn
Sökum gífurlegrar
aðsóknar á þá fyrir-
lestra sem haldnir hafa
verið í erindaröðinni
um tengsl iíkama og sál-
ar, hefur verið ákveðið
að fiytja fyrirlestrana
yfir í Háskólabíó.
Næstkomandi laugar-
dag, 8. febrúar kl. 14 flyt-
I ur dr. Sigurður J. Grétars-
son erindi þar sem hann
fjallar um heimsmynd
sálarfræðinnar. Laugar-
daginn 15. febrúar á sama
stað og tíma ræðir Oddur
Bjamason geðlæknir um
geðlæknisfræði i ljósi
sálarheimspeki og þann
22. febrúar lokar Þor-
steinn Gylfason prófessor
erindaröðinni.
Á fyrirlestra Guð-
mundar Péturssonar og
dr. Jóns Torfa Jónssonar
mættu yfir 200 manns. Þá
hafa fyrirlestramir verið
fjölsóttir af fólki utan Há-
skólans. Að mati þeirra
sem standa að þessum
fyrirlestram sýnir þessi
miklu áhugi að heim-
spekileg umræða á meiri
hljómgmnn í samfélaginu
en menn hafa áður talið.
Bingó
og dans
í kvöld, föstudags-
kvöldið 7. febrúar,
verður dansað frá klukk-
an 21 að Auðbrekku 25 í
Kópavogi. Húsið er öll-
um opið. Það er Félag
eldri borgara í Kópavogi
sem stendur fyrir þessari
skemmtun og einnig fyrir
bingói að Digranesvegi
12, laugardaginn 8.
febrúar klukkan 14. Fjöl-
mennið.
Nanna Fri&geirsdóttir og Hjörtur Gunnarsson gæöa sér á þorramatnum i Fjöru-
garöinum. Þau eru meó víkingahjólma ó höf&i aö fornum sió.
Útivist er upphaf að
góðri skemmtun
Allar götur siðan í júlí árið
1985 hefur gönguklúbburinn
Hana nú i Kópavogi gengið um
götur bæjarins á hverjum laugar-
dagsmorgni og er enn að. Til
marks uin áhugann tóku alls um
tvö þúsund manns þátt í göngu-
ferðum klúbbsins á síðasta ári.
Tilhögun þessara vikulegu
gönguferða um götur Kópavogs
er sú að klukkan hálftíu á hveij-
um laugardagsmorgni safnast
göngugarpamir saman við Fann-
borg 4 þar sem þeirra bíður rúkj-
andi molakaffi áður en lagt er
í’ann. Á meðan kaffið er dmkkið
er spjallað saman og almælt tíð-
indi ganga mann frá manni fram
Göngu-
garpar
í Hana
nú i
kulda
og
trekki
síöasta
laugar-
daginn
ó ný-
liftnu
óri.
til klukkan tiu þegar lagt er af
stað í klukkustundar göngu um
götur bæjarins, á gönguhraða sem
hentar öllum.
Þótt mörgum þyki erfitt að rifa
sig upp snemma á laugardags-
morgni, í vetrarmyrkri og mis-
jöfnum veðmm, er það mat þeirra
fjölmörgu sem gengið hafa með
klúbbnum, að það sé vel þess
virði. I hugum þessa fólks er
laugardagsgangan upphafið að
góðri skemmtun sem fáir vilja
missa af. Skilaboðin til þeirra sem
áhuga hafa á að slást í for með
Hana nú í Kópavogi em þau að
stilla vekjaraklukkuna og velja
fatnað eftir veðri.
Horfur á laugardag: Suöaustlæg ótt op fremur hlýtt. Rianing
um mikinn hluta lanasins en ef til vill sn|ókoma noröantilá
Vestf jörðum. Horfur á sunnudag: Sublæq eöa suövestlæg átt og
sumstaöar skúrir um suöaustanvert landiö en gengur i noröan
átt meb snjókomu eöa éljagangi og kólnar talsvert
noröanlanas og vestan.
Mín útivist
Höskuldur Jóns-
son, forsljóri A TVR:
A þessum tíma árs
er ég af og til á rölti
hér í nágrenni
Reykjavíkur með
Ferðafélagi íslands.
Á vegum þess er
boðið uppá stuttar
gönguferðir alla
sunnudaga, svo fram-
arlega sem veður er
ekki því verra. Mig
er náttúrlega farið að
lengja eftir snjónum
til að geta farið um á
gönguskíðum, sem
ég hef mjög gaman
af. Þetta er svona það
helsta sem ég geri af
mér á þessum árs-
tíma.
I)agsferðir
Utivistar
Sunnudaginn 9. febrúar verður
genginn þriðji áfanginn í Kirkjugöngu
Utvistar. Gengnar verða tvær leiðir:
Stardalur - Mosfell - Leirvogstunga og
Helgafell - Mosfell - Leirvogstunga.
Lagt verður af stað i tyrri ferðina
kl. 10.30 og i þá seinni kl. 13. Brottför
verður frá bensínsölu BSÍ í báðar ferð-
imar en stansað við Árbæjarsafn og
kaupfélagið í Mosfellsbæ.
í þessum dagsferðum verður gengið
um gömlu Mosfellssóknina ftá Star-
dal, niður með Leirvogsá, framhjá
Sámsstöðum, Tröllafossi, Skeggja-
stöðum og gömlu Svínaskarðsleiðina
að kirkjunni að Mosfelli. í kirkjunni
verður tekið á móti hópnum og rakin
saga staðarins, kirkjumunir sýndir og
rætt um safhaðarstarfið. Frá Mosfelli
verður siðan gengið að Hrísbrú og
niður með ánni að Leirvogstungu.
Komið verður við á bæjunum og stað-
fróðir heimamenn vísa til vegar.
Að sjálfsögðu eru allir velkomnir i
þessar dagsferðir Útivistar og ffítt er
fýrir böm 15 ára og yngri í fýlgd með
fiillorðnum.
Föstudagurinn 7. febrúar