Helgarblaðið - 07.02.1992, Qupperneq 6

Helgarblaðið - 07.02.1992, Qupperneq 6
Helgar 6 blaðið Hagur sjukra versnar enn ólafur Ólafsson landlæknir sagði við Helgarblaðið að af reynslu nágrannalandanna af því að skera niður í heil- brigðiskerfinu væri ljóst að hagur þeirra sem minna mættu sín versnaði. Það er stutt síðan Ólafur kynnti niðurstöður könnunar þar sem fram kom að hagur fólks með langvinna sjúkdóma hefði ekki batnað jafnmikið og hagur annarra landsmanna. Með niðurskurðinum í heilbrigðiskerfinu versnar hagur þessa fólks enn meira. Sérstaklega fólks sem ef til vill þyrfti að bíða lengi efir bæklunaraðgerðum. Ólafur vildi hinsvegar taka fram að á þessum tímapunkti væri ekki ljóst hver niðurskurðurinn yrði þar eð menn væru að fara yfir þær upplýsingar sem safnast hefðu. Hann benti líka á að starfsmenn heilbrigðisstofnana væru að vinna að hagræðingu sem án efa myndi takast og væri það af hinu góða. „Síðan verður reynt að finna hvar eigi að skera svo skerðing þjónustunnar verði sem minnst,“ sagði landlæknir. Hann sagði að niðurskurður ann- arsstaðar hefði bitnað á eldra fólki, fólki sem þyrfti að vistast á hjúkr- unar- og elliheimilum og endur- hæfingarstofnunum og að niður- skurður í tryggingamálum hefði bitnað á bamafólki, einstæðum foreldrum, sjúklingum og öryrkj- um. „Þetta er reynsla hinna Norð- urlandanna," sagði hann. „Ef það stenst sem Alþingi hefúr samþykkt þá er líklegt að hið sama muni gerast hér og því hljótum við að mótmæla,“ sagði Ólafur. Ólafur Ólafsson landlæknir. Skorið á báða bóga Niðurskurðurinn tröllríður þjóðfélaginu þessa dagana. Hin harkalega aðferð flata niðurskurðarins hefur vakið upp ýmsar spumingar og margir telja niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinu á endan- tun verða þjóðfélaginu dýrari en ef kyrrt hefði verið látið liggja. Það er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn, segir máltækið. Þetta er máltæki sem fólk í heil- brigðiskerfinu gripur iðulega lil þessa dagana þegar spamaðartillög- ur sjúkrahússtjómanna eru að líta dagsins ljós. Sjúkrastofnunum er gert að spara flatt fimm prósent einsog öðmm ríkisstofnunum, en það er ekkert áhlaupaverk þegar ekki er hægt að fækka sjúkuni, margar deildir hafa þegar verið reknar með of fáu starfsfólki, og stofnanimar telja sig hafa verið í stanslausu hagræðingarátaki síðast- liðin ár. Nú keyrir hinsvegar um þverbak og sem dæmi um spamaðarráðstöf- un má nefna að framvegis verður mjólk ekki á hveiju borði í matsöl- um Borgarspítalans heldur verður - mjólk í kaffið á einum stað. Ein kanna fyrir alla. Það sparar. Það viðurkenna allir nauðsyn þess að spara, veita aðhald og auka hag- ræðingu. Hinsvegar telja flestir að aðgerðir ríkisstjómarinnar leiði alls ekki til þessa. Bent er á að margar spamaðartillögur dagsins í dag spari ef til krónur í ár en muni í framtíð- inni kosta þjóðfélagið stórar fúlgur og þá er ekki tekið með í reikning- inn óhagræði fólks sem þarfnast þjónustunnar en fær ekki. Þorkell Helgason, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, benti hinsvegar á að enn ætti eftir að útdeila þeim 500 miljónum króna sem ráðuneytið greiðir til baka af flata niðurskurðin- um. Því væri gagnrýnin ótímabær. Dýr sparnaður Sighvatur Björgvinsson heilbrigð- isráðherra telur að íslenska velferð- arkerfið sé misnotað og auk þess séu ekki til þeir miljarðar sem nauðsyn- legir eru til þess að reka kerfið með sama hætti og gert hefiir verið. Þjóð- in hafi ekki lengur efni á þessu og því sé niðurskurður leiðin til að vemda kjamann i velferðarkerfinu. En hefúr þjóðfélagið efni á spamað- inum? Þorvaldur Veigar Guðmundsson, formaður læknáráðs Landspítalans, sagði að til lengri tíma litið gerði þessi spamaður ekkert gagn, til þess væri hann alltof harkalegur. „Það er svo auðvelt að ákveða fimm prósent flatan niðurskurð, en ég held að ráðamenn hafi ekki skilið hvað þetta þýðir fyrir einstaklinga," sagði Þor- valdur Veigar. Hann sendi ásamt formönnum læknaráða Borgarspít- ala og Landakotsspítala frá sér yfir- lýsingu í síðasta mánuði þar sem bent er á að niðurskurðarhnífurinn er tvíeggjaður og ber að meðhöndla hann af mikilli varúð. „Fækkun sjúkrarúma bætir hvorki heilbrigði þjóðarinnar né fækkar þeim sem þurfa aðhlynningar við. Niðurskurð- Abgerðin breytti lifi Gunnars, ón hennar hefbi hann orðiö byrði á samfélaginu, en vegna hennar er hann nýtur þjóðfélagsþegn sem borgar sina skatta og skyldur. Mynd Kristinn. Gunnar Baldursson vöru- bflstjóri hefði ekkert getað unnið, heíði orðið að selja atvinnutæki sitt og þurft á fé frá ríkinu að halda hefði ekki verið skipt um hnjálið í honum. Nú kemur hann hinsvegar til með að borga sína skatta einsog hver ann- ar nýtur þjóðfélagsþegn. Gunnar Baldursson er nýbúinn að fá stálkúlu í vinstra hnéð. Fyrir rúmum tveimur árum fékk hann eina slíka í hægra hnéð. 1 haust var hann orðinn óvinnufær vegna þcss að hann gat lítið sem ekkert hreyft liðinn. „Þetta var orðið bein í Væri rúmliggjandi án gerviliðarins bein,“ sagði Gunnar í samtali við Helgarblaðið. Um leið og hann heyrði af niðurskurðarhugmyndum ríkisstjómarinnar fór hann að þrýsta á lækna sína um að gera þess bæklunaraðgerð. Hann vissi að ef hann lenti í langri biðröð á bæklunardeiidinni vegna niður- skurðar yrði hann að selja bílinn sinn, atvinnutækið. Auk þess yrði hann nánast rúmliggjandi þangað til aðgerð yrði gerð. „Þessi aðgerð breytir öllu í lífi mínu,“ sagði hann. Gunnar, líkt og svo margir aðrir, skilur ekkert í spamaðarhug- myndum ríkisstjómarinnar sem margar leiða til þess að fólk cins og hann kostar þjóðfélagið pen- inga í stað þess að leggja sitt af mörkum til samneyslunnar. Vegna reynslu sinnar af hnjá- liðaaðgerðinni árið 1989 vissi Gunnar að hverju hann gckk. Hann vann í fyrrasumar en þcgar líða tók á haustið var hann orðinn óvinnu- fær. Þá fór hann að þrýsta á um að skipt yrði um liðinn í vinstra hnénu. Hann tók íbúð á lcigu í Reykjavík og flutti hingað suður í haust frá Hofsósi ásamt konu sinni. Strax viku eftir aðgerðina er hann farinn að lyfta fætinum og beygja lítilega og býst fastlega við því að verða jafngóður, enda var það tilfellið með hægra hnéð. Hann var skorinn upp á Landa- koti og mun liggja þar næstu tvær vikumar. Jafnframt verður hann í endurhæfingu. Síðan tekur við mánaðar endurhæfing í Hveragerði og þá ætti hann að geta farið að vinna aftur. Gunnar er dæmi um mann sem cr þjóðhagslega hagkvæmt að framkvæma læknisaðgerð á, að ekki sé nú talað um hvaða þýðingu þetta hcfur fyrir hann sjálfan. „Þctta skiptir öllu máli fyrir mig, ég gat ekkert orðið gert og hefði orðið örkumla maður,“ sagði Gunnar. „Eg sárvorkenni því fólki sem sér fram á langan biðtíma eftir svona aðgerðum. Það gæti orðið margra ára bið,“ sagði hann og bætti við að yfirlæknirinn hefði sagt honum að ef ekki yrði drifið í þessari aðgerð núna væri alveg ófyrirsjáanlegt hvenær af henni gæti orðið. „Ef ég hefði ekki kom- ist inn hefði ég orðið að selja bíl- inn, mitt atvinnutæki. Og ég hefði verið frá vinnu í mörg ár, jafnvel alla tíð. Auk þess hefði ég þurft á peningum frá ríkinu að halda í stað þess að borga mína skatta.“ „Auðvitað þarf að spara,“ sagði Gunnar en sagðist jafnframt ekki skilja hvers vegna það þyrfti að koma niður á sjúkum og fólki sem Iiði kvalir á meðan það biði eftir aðgerðum á bæklunardeild. „Manni finnst þessar niðurkurðar- hugmyndir alveg ótrúlegar. Menn eru alveg frosnir í þessu,“ sagði Gunnar og talaði ekki fallega um Sighvat Björgvinsson heilbrigðis- ráðherra. Honum sámar sérstak- lega niðurskurðurinn á Landakoti en þar var fyrri aðgerðin líka gerð. „Það er óskaplegt að vera í þessari óvissu," sagði hann um starfsfólk spítalans sem hann talar mjög hlý- lega um. Hann hefur veitt því at- hygli að andrúmsloftið á spítalan- um er annað eftir að öllum var sagt upp. „En það er ekki látið bitna á sjúklingunum," sagði hann. „Um- önnunin á þessu sjúkrahúsi er al- gert einsdæmi og Höskuldur Bald- ursson.sem skar mig í bæði skiptin er alveg frábær," sagði Gunnar ánægður — enda laus við biðröðina. Hann gagnrýnir niðurskurðinn harkalega og segir að margt miður fallegt mætti um hann segja. „En maður vonar að þessir menn sjái að sér því gamla fólkið, öryrkjar og ellilífeyrisþegar eiga þetta ekki skilið eftir að hafa unnið sitt ævi- Föstudagurinn 7. febrúar

x

Helgarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.