Helgarblaðið - 07.02.1992, Síða 12

Helgarblaðið - 07.02.1992, Síða 12
Helgar 12 blaðið Hneyksli í Wall Street Leiðandi fjármálamenn við margar af stærstu fjár- málasamsteypum Banda- ríkjanna roðna þegar pils- faldinum er lyft og í Ijós kemur leynifélagsskapur sem margir þeirra eru meðlimir í. Félagsskapur þessi nefnist Kappa Beta Phi og hefur verið við lýði í 60 ár. Fram til þessa hefur lítið sem ekk- ert verið vitað um félags- skapinn, annað en að hann er til og að margir af helstu {jármálamönnum Bandarikj- anna eru meðlimir í honum. Yfirmenn flestra stórfyrir- tækja í Wall Street eru með- limir i Kappa Beta Phi. Sem dæmi má nefna iyrirtæki einsog American Express og Morgan Stanley. Nú hefur vitni skýrt frá mjög sérstæðum helgisiðum sem tíðkast hjá félagsskapn- um þegar nýir meðlimir eru teknir í hópinn. Þessir fjár- málajöfrar höfðu sem sagt allir verið á háum hælum, klæðst kjóium og jafnvel sett á sig gervibrjóst til að fá inngöngu í klúbbinn. Arlega heldur félagsskap- urinn mikið kvöldverð- arboð og er nýjum með- limum boðið að taka þátt í því. Mikil leynd hefiir hvílt yfir því sem gerist á þessum samkomum og það var ekki fyrr en í byrjun þessa árs sem upplýsingar láku út um það. Hinum nýju meðlim- um í félagsskapnum er fyrirskipað að klæðast einsog klæðskiptingar. Þegar þeir mæta til veisl- unnar standa fjármála- spekingamir, sem þegar em fullgildir meðlimir, og ausa mat yfir kven- mannsklædda nýliðana. Einkunnarorð félagsskapar- ins em „Cantamus et Biber- amus“ (Við borðum og drekkum). Sá sem sagði frá þessu segist hafa hitt mann sem hann var vel kunnugur en ekki borið kennsl á hann. • „Ég áttaði mig ekki fyrr en hann spurði hversvegna ég heilsaði sér ekki. Síða hár- kollan og gervibrjóstin gerðu hann óþekkjanlegan.“ Það var New York Obser- ver sem birti lýsinguna á helgisiðunum. Flestir sem tóku þátt í kvöldverðarboð- inu neituðu að tjá sig um það þegar fjölmiðlar gengu á þá. „Ég vil ekki tala um þetta. Þetta em einkasamtök sem koma fjölmiðlum ekk- ert við,“ sagði Archie Fost- er, forseti Werthwim Schro- der samsteypunnar. „Þar eð ég hef ekki gefið kost á mér í forsetaframboð kemur einkalíf mitt engum við,“ sagði yfirmaður eins af fjárfestingarfélögunum í Wall Street. Annar sagði það andstætt trú sinni að ræða við fjöl- miðla og einn sagðist ekki muna í hveiju hann hefði verið þegar hann gerðist meðlimur. Margir skelltu á þegar hringt var í þá út af þessu hneyksli. Marinó G. Njólsson ókvöróunarfræóingur. Mynd: Kristinn. GULLFALLEGAR GJAFABÆKUR Á 10 ára afmæli bókaforlagsins Vöku-Helgafells hefjum við útgáfu á flokki glæstra gjafabóka á ótrúlega góðu verði. Hér býðst lifandi og skemmtilegt efni tengt íslenskri þjóðmenningu: Bókin Úr sagnabrunni, með þjóðsögum og ævintýrum sagnaþularins Ásdísar Ólafsdóttur. Eftir henni sendu Reykvíkingar mann og hest um síðustu aldamót svo að hún gæti sagt þeim sögur. Hin bókin sem markar upphaf þessa nýja gjafabókaflokks er í skugga lárviðar með snilldarþýðingum Helga Hálfdanar- sonar á 2000 ára ljóðum Hórasar, höfuðskálds Rómveija. Gjafabækur í hæsta gæðaflokki á aðeins 1860 krónur. VAKA-HELQAFELL Síðumúla 6 • Sími 688 300 Marinó G. Njálsson heitir 31 árs Seltimingur sem ber starfsheitið ákvörðunarfræð- ingur, sem heyrir til nýmæla hérlendis þótt það sé vel þekkt erlendis. Marinó er þegar tekinn til starfa með eigin ráðgjafarþjónustu sem hann neíhir „Betri lausn“, en auk þess kennir hann tölvunarfræði við Iðnskól- ann í Reykjavík. „Þetta starfsheiti, sem ég hef tek- ið mér, finnst mér betra en það sem ég hef lært til, sem er aðgerðarrann- sóknarfræðingur. En þau fræði lærði ég í Stanford- háskólanum í Kalifomíu í Bandaríkjunum. Mín sérmenntun þar vestra var ákvörð- unarfræðin innan aðgerðarrann- sóknarinnar. Ég er tölvunarfræðing- ur að mennt frá Háskóla íslands og vestra var ég í tvö ár við nám. Starfið felst einkum í því að að- stoða fólk við að taka markvissar ákvarðanir. Ákvörðunarfræðingur- inn tekur að sér ákveðið verkefni og kemur með ákveðna ráðleggingu um bestu lausn. Hann skoðar óvissuþættina, möguleikana, fer í gagnasöfnunina og setur vandamál- ið upp.“ Eins og Marinó hefur auglýst sína ráðgjöf er hún meðal annars fyrir stjómendur fyrirtækja og stofnana, deildarstjóra, fólk með mannaforráð, vinnuhópa, verkefna- anir án þess að þurfa að kaupa sér slíka þjónustu? „Ef þú ert íþróttamaður og vilt ná árangri í þinni íþrótt, þá færðu þér þjálfara. Hann bendir þér á hvað þú þarft að gera til að ná árangri. Sundmaður sem ætlar sér stóra hluti í sinni íþrótt, þarf að vita ná- kvæmlega hvemig sundhreyfingin á að vera og það er þjálfarinn sem bendir honum á það. Jú, auðvitað emm við sjálfmenntuð í ákvarðana- töku með svo og svo góðum árangri og sammála um að góð ákörðun sé gulls ígildi. Við getum bara líka séð hvað hefur gerst í íslensku þjóðfé- lagi á undanfömum ámm. Það hef- ur allt farið úr böndunum. Menn hafa ekki getað tekið réttar ákvarð- anir varðandi fjárhagsáætlanir og hvemig standa skuli að hinu og þessu. Ég er í sjálfu sér ekki að gagnrýna þær ákvarðanir sem menn hafa tekið. Það var ömgglega staðið vel að þeim ákvörðunum sem til dæmis vom teknar í sambandi við Perluna. En þeir hinir sömu klikk- uðu allillilega í því að sjá hvaða þættir ættu að koma inn í ákvörðun- ina. Því var ofsalega margt skilið útundan sem seinna varð að kostn- aðarliðum. Gmnnákvörðunin var sem sagt góð, en afmörkunin slæm. Þannig að þetta er spuming um vinnubrögð og þar kemur ákvörð- unarfræðin inn,“ segir Marinó G. Njálsson. upphefðin kemur að utan.“ Marinó viðurkennir að aðsóknin að nám- skeiðunum sem hann býður uppá hafi ekki verið eins mikil og hann hafði vonast til. „Ég geri mér líka grein fyrir því að ég þarf að kynna mig og ná athygli landsmanna. Þótt nokkuð hafi skort á það hefur hann þó náð að vekja athygli fjölmiðla. Marinó segist hafa fengið mis- jöfn viðbrögð við námskeiðahaldi sínu. Sumir hafi verið mjög hrifnir, aðrir minna eins og gerist og geng- ur. En er ekki hver og einn fullfær um að taka sínar sjálfstæðu ákvarð- hópa og einstaklinga sem vilja víkka eigin sjóndeildarhring. Hann segir að í Bandaríkjunum sé vissu- lega markaður fyrir ákvörðunar- fræðinga og hvað viðkemur íslandi þá bendir hann á þau erlendu ráð- gjafarfyrirtæki sem innlendir aðilar hafa fengið sér til aðstoðar við ákvarðanatöku. „En það er með þetta eins og svo margt annað að Ákvörðunar- fræðingur Góð ákvördun gulls ígildi

x

Helgarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.