Helgarblaðið - 07.02.1992, Page 15
Helgar 1 5 blaðið
Kröfur Alþýðusambandsins
A fundi Alþýðusambands Is-
lands með atvinnurekendum
í íyrradag lagði ASÍ fram eft-
irfarandi kröfur:
1. Samningstími verði eitt ár.
2. Akvæði um rauð strik og
launanefnd verði hliðstæð því sem
var á síðasta samningstímabili; end-
urskoðun fari fram þrisvar á samn-
ingstímabilinu.
3. Samið verði um eftirfarandi al-
menn ákvæði:
I) Desember- og orlofsuppbót
verði samræmd þannig að desem-
beruppbótin hækki hjá öllum í 24
þúsund krónur. í dag er stór hluti fé-
lagsmanna ASÍ með 10 þúsund
króna desemberuppbót en ýmsir
hópar innan ASÍ svo og flestir opin-
berir starfsmenn með 24 þúsund
krónur.
II Orlofsréttur verði samræmdur
þannig að 1 dagur bætist við þegar
ákveðnum aldri eða starfsaldri er
náð og síðan fleiri dagar þangað til
28 dögum er náð. Hér er einnig um
samræmingu við ýmsa sérkjara-
samninga að ræða.
III Réttur til fráveru vegna veik-
inda bama verði aukinn (10 dagar í
stað 7) og rétturinn nái einnig til
fráveru vegna veikinda maka og
nánustu ættingja.
IV Réttur starfsmanna til að taka
sér launalaust leyfi vegna jarðarfar-
ar verði samningsbundinn. V)
Aunnin réttindi haldast þegar starfs-
maður flyst á milli vinnustaða.
VI Uppsagnarréttur eldri starfs-
manna verði aukinn. Starfsmenn
sem hafa náð 63 ára aldri og hafa
verið 10 ár í starfi hjá sama atvinnu-
rekanda njóta nú 6 mánaða upp-
sagnarffests.
VII Allir sem hafa náð 16 ára
aldri njóti fúllra launa. Svo er ekki i
dag hjá verslunarfólki og starfsfólki
í veitinga- og gistihúsum.
VIII Lífaldurs- og starfsaldurs-
álög verði betur samræmd.
IX Matartími um helgar verði
greiddur.
X Uppsagnarréttur sjómanna sem
nú er 7 dagar verði samræmdur því
sem almennt gerist.
XI Skýrt komi fram í samningi að
útgerðarmanni sé óheimilt að krefj-
ast þess að sjómenn taki þátt í
kostnaði við kvótakaup.
4. Launakröfúr verða lagðar fram
síðar m.a. með hliðsjón af ffam-
vindu sérkröfúviðræðna. Áhersla er
jafnffamt lögð á að gerð er krafa um
sérstakar kauphækkanir til handa
láglaunafólki.
A samningafúndinum ítrekuðu
fúlltrúar atvinnurekenda að þeir
höfnuðu öllum kröfúm sem auka
kostnað atvinnurekenda. Nýr fundur
hefúr verið boðaður á mánudag n.k.
þar sem forstjóri Þjóðhagsstofnunar
mun gera grein fyrir nýrri þjóðhags-
spá.
og haga sér síðan eftir því.
En ef það tekst ekki, verður það
þá ekki sótt til atvinnurekenda?
Þetta er ekki svona einfalt. Við
sækjum ekki til atvinnurekenda það
sem verið er að rífa af sjúklingum.
Við getum ekki borgað sjúklingun-
um út í gegnum launaumslögin sem
við erum að sækja til atvinnurek-
enda. Ennfremur getum við ekki
sótt til þeirra hjálpartækin. Þetta er
spumingin um kostnaðinn sem við-
komandi verður fyrir. Margt af
þessu fólki er ekki í vinnu, svo að
það verður ekki sótt beint til at-
vinnurekenda. En fýrir vinnandi
fólk reiknum við einfaldlega út
hvað þetta kostar - og sækjum það.
Því miður leysum við ekki aðförina
að þessu fólki með því að ná því í
gegnum atvinnurekendur. Það er
ekki svo einfalt. Þetta em aðgerðir
ríkisstjómarinnar og mér er voða-
lega illa við að lemja Pétur þegar
Páll sló mig.
Eru verkfalisátök eða jafnvel
allsherjarverkfall inni í mynd-
inni?
Það er allt inni í myndinni.
Telurðu að almenningur sé til-
búinn í átök?
Mér skildist um daginn á niður-
stöðum úr einhverri skoðanakönnun
að 50% hefðu verið tilbúin þá. Og
það er ekki langt þangað til þessi
tala verður komin uppí 80%. Það
em þannig miklu meiri líkur á því
að til átaka komi heldur en ekki. Og
þær líkur vaxa dag frá degi, því er
nú verr og miður. Það verður ekki
borið á hina almennu verkalýðs-
hreyfingu að hún hafi misnotað
þetta eina vopn sem verkafólk á til
að ná fram sínum málum. Því hefur
ekki verið misbeitt. Ég bara bið
menn, ef þeir geta rökstutt það að
almennt verkafólk á íslandi hafi
misnotað verkfallsvopnið að undan-
fömu, að stíga ffam fýrir alþjóð og
segja það. Vegna þess að margir af
ungu gapuxunum hafa verið að
senda þessu verkafólki kveðjur.
Þetta em yfirleitt menn sem líklega
hafa aldrei nokkumtíma lyft reku,
hvað þá heldur meir, og þeir em
með einhveijar einkaskoðanir á
verkföllum! Verkföll em fýrst og
fremst neyðarréttur verkafólks og
það er ekki hinn almenni launamað-
ur, þetta venjulega verkafólk, sem
hefur verið að misnota þennan rétt.
Menn ættu að skoða þá sögu og það
væri gaman að fá raunverulega út-
tekt á því, t.d. á síðasta áratug, hvar
verkföllin hafa verið.
Má búast við að samstaða verði
með opinberum starfsmönnum og
Alþýðusambandsfélögunum?
Eg held að það komi til með að
myndast mikil samstaða á næstunni
um hin ýmsu mál. Þau em ennþá í
höndum hinna einstöku félaga innan
BSRB en við erum nokkum veginn
komin með þau inn á sameiginlegt
borð, hvað snertir aðalkröfumar. En
ég held að þegar fer að harðna í
þessu núna, eins og það lítur út i
dag, þá myndist hér mikil breiðfylk-
ing. Að visu á maður aldrei að spá
langt ffam í tímann í þessum efnum,
en ég held að menn þurfi að samein-
ast, ætli þeir að breyta einu neii.
Launþegahreyfingin þarf að samein-
ast til að bioyta því.
Ertu bjartsýnn á að samningar
takist á næstunni?
Nei, það er ég því miður ekki.
En er eitthvað sem bendir til
þess að samningaviðræður geti
runnið út í sandinn á næstunni?
Já, ef neiin halda áffam að
streyma svona. Við semjum ekki
um nei.
En því miður er þaö svo áb
fólk skynjar ekki hlutina
fyrr en þeir koma beint
viö budduna
NISSAN SUNNY SLX 1.6
STÓRSKEMMTILEGUR 0G GLÆSILEGUR
Nissan Sunny SLX 1.6 16 ventla
hlaðinn aukahlutum s.s. rafdrifnum rúðum,
rafstillanlegum speglum, upphituðum sætum,
vökvastýri, samlæstum hurðum og m.fl.
Fáanlegur í ýmsum útfærslum.
Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 1400-1700.
Nissan Sunny SLX 1,6, 3ja dyra.
Verð kr. 903.000 stgr.
4ra dyra stallbakur. Verð kr. 981.000 stgr.
5 dyra hlaðbakur. Verð kr. 980.000 stgr.
Ingvar
Helgason hf
Sævarhöföa 2
sími 91-674000
Föstudagurinn 7. febrúar